Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Veturinn er að koma... Kul í lofti... reykur stígur upp Hljóðið í svellslíparanum...
úr reykháfum...
BRÉF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík 0 Sími 691100 • Símbréf 691329
Furðulegar
hugleiðingar
um ferskeytluna
Frá Guðmundi Guðmundarsyni:
í Lesbók Mbl. 12.11. sl. hljóðar
fyrirsögnin á grein Andra Isaksson-
ar „Er ferskeytlan skáldskapur?"
Hann tekur að þessu tilefni til með-
ferðar 12 ferskeytlur ásamt athuga-
semdum, sem
voru óþarfar.
Vísurnar „sem
mér sjálfum
finnst óvenju
góðar“ leiddu svo
til þeirrar niður-
stöðu, „að fer-
skeytlan þarf
ekki að vera
skáldskapur, þó
hún geti verið
það“.
Hvílíkar frétt-
ir!
Að sjálfsögðu tryggja rím og
stuðlar hvorki snalla vísu eða gott
kvæði. Ástsælasti kveðskapur þjóð-
arinnar, sem hún lærir og tekur
ástfóstri við er undir háttbundnum
bragarháttum.
Vísurnar hafa álltaf haft ótrúleg-
an töframátt eins og Klettafjalla-
skáldið Stephan G. lýsir meistara-
lega:
Undarleg er íslensk þjóð
allt sem hefur lifað
hugsun sína og hag í Ijóð
hefur hún sett og skrifað.
Hlustir þú og sé þér sögð
samankveðna bagan
þér er upp í lofa lögð
landið, þjóðin, sagan.
eða ættum við að heimsækja Stein-
grím í Nesi:
Allt sem þjóðin átti og naut,
allt sem hana dreymir,
allt sem hún þráði og aldrei hlaut
alþýðustakan geymir.
Ferskeytlan hefur glatt og gleður
enn íslendinga og ég vona að svo
mun verða um alla framtíð!
Tímanna tákn?
Hinsvegar leiða þessar
hugleiðingar yfirdeildarstjóra
kennsludeildar UNESCO í París
hugann að því hvar við erum stödd
í ljóðagerðinni í dag og hve mörg
af þeim ljóðskáldum, sem þiggja
skáldastyrk geta gert skammlausa
ferskeytlu?
Prósaruglið tröllríður svokallaðri
ljóðagerð með þeim hætti að hún
virðist komin á algjörar villigötur!
Þegar prósaljóðskáldi er hælt af
einhverjum aðdáenda og maður
biður viðkomandi að lofa sér að
heyra eitt af uppáhalds ljóðunum,
þá verður viðkomandi einskonar
heimaskítsmát. Hann kann ekki eitt
einasta ljóð eftir uppáhalds skáldið
sitt!
Er þetta ekki tímanna tákn? Nú
vil ég ekki neita því að til séu brúkleg
og snjöll prósaljóð en öllum má vera
ljóst að búið er að misþyrma þessari
grein ljóðlistar svo gjörsamlega, að
það fer hrollur um mann, þegar talað
er um prósaskáld.
Hvernig ætli standi * á því að
ljóðaskáld á 2ja ára styrk frá
Rvíkurborg launar ekki fyrir sig með
brúklegu Ijóði, um borgina okkar?
Hvert var framlag okkar
ljóðsnillinga í tilefni af 50 ára
lýðveldisafmælinu? Urðu ljóðskáldin
ekki upptendruð að þessu tilefni?
Var ekki Alþingishátíðin
uppspretta glæsilegra ljóða og
tónlistar, sem þjóðin tók ástfóstri
við og enn eru í hávegum höfð!
Sagan endurtók sig við stofnun
lýðveldisins 1944, frábær ljóð og
frábær lög. - Hefur engin áhyggjur
af spennufallinu á 50 ára
lýðveldisafmælinu 1994??
Er Ijóðagerðin á villigötum?
Hvar eru hátíðarljóðin? Efnt var
til samkeppni um lag, sem sjaldan
eða aldrei heyrist og ljóðið, sem því
fylgdi er vandlega falið! Örugglega
ekki að ástæðulausu!
Finnst mönnum ekki kominn tími
til að hugleiða, hvort ljóðagerðin sé
stödd í einskonar blindgötu
ruglukolla? Nú vita flestir að við
eigum enn ágæt ljóðskáld, þótt þeim
fari fækkandi og flestar ljóðabækur
seljast illa eða ekki. Hinsvegar
eigum við sem betur fer þúsundir
af hagyrðingum um land allt og
ferskeytlan er alltaf jafn vinsæl. Því
miður virðist kveðskapur í t.d.
skólum kaffærður í alls konar
prósarugli, enda er æskunni kennt
að ljóðastafir og rím séu úrelt
fyrirbæri og vísvitandi er verið að
falsa forrit ljóðagerðarinnar með
þeim hætti, að æskan telur sig ekki
þurfa að vera puða í einhverri
ljóðhefð. Þessi
menningar-fjandsamlega afstaða er
þöguð í hel!
Eg ætla að ljúka þessum
hugleiðingum með nokkrum stökum
hverri úr sinni áttinni og misgóðum
en áhugaverðum:
Stefja gróður stuðlafóll
stytta hljóða vöku.
Hlýnar blóð og hugsun öll
heyri ég góða stöku.
(Ólína Jónasd.)
K.N.:
Niðri á sandi nástrandar
nepja er blandin hita.
Hvort að landar þrífast þar
það má tjandinn vita.
Ingibjörg Sigfúsdóttir:
Áður taldi íslensk þjóð
óðsnildina gæði.
Samin voru og lesin ljóð
lærð og sungin kvæði.
Nú má kaupa þessi þjóð
þrykkt og gyllt í sniðum
í gerviskinni gerviljóð
af gerviljóðasmiðum.
Látum stórskáldið Einar Ben.
ljúka vísnaspjalli:
Falla tímans voldug verk
varla falleg baga.
Snjalla riman stuðlasterk
stendur alla daga.
Ýmsir okkar helstu
menningarfrömuðir virðast samtaka
og sammála um að kominn sé tími
til að kistuleggja eina okkar
merkustu menningararfleifð:
ljóðhefðina.
Ákveðið hefur verið að jarðarförin
fari fram í kyrrþey.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDARSON,
framkvæmdastjóri.
Allt efni sem .birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að Iútandi.