Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 45 .
BRÉF TIL BLAÐSINS
ísland í dag
Eru störf Alþýðu-
flokksins vanmetin?
Frá Aðalheiði Jónsdóttur:
EKKI ER hægt að segja að tíð-
indalaust hafi veri í íslenskri póli-
tík undanfarandi, ráðherrar hafa
komið og farið af ýmsum ástæðum
hjá ráðvilltum flokki, sem fyrir
áratugum er úreltur og hefur á
engan hátt skilið hlutverk sitt en
allan tímann verið að þvælast fyr-
ir félagshyggjufólki ogþess vegna
virkað sem þjóðfélagsmeinsemd.
Hvort honum tekst að uppræta
sjálfan sig er óleyst gáta. Hitt er
sýnilegt, eins og málin standa í
dag, að klofinn er hann líklegur
til að valda enn meira tjóni en ella,
ef marka má skoðanakannanir.
Hvað sjá hinir trúuðu?
Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir
féll í formannskjöri fyrir sitjandi
formanni hrópaði hún hátt og
skörulega: „Minn tími mun koma!“
— segir sig síðan úr Alþýðuflokkn-
um — leggur land undir fót eða
svífur seglum þöndum landshorna
milli og er að vörmu spori komin
í skoðanakönnunum með kjörfylgi
á landsvísu næst Sjálfstæðisflokki
ef kosið væri nú. Þetta fólk segist
allt ætla að kjósa Jóhönnu hvar á
landinu sem það býr.
Þó að mörgum kunni að koma
það á óvart verður ekki annað séð
en utanríkisráðherra hafi þarna
haft rétt fyrir sér þegar hann tal-
ar um heilaga Jóhönnu. Allt er
þetta svo yfirnáttúrulegt. Sýnir
reyndar að íslenska þjóðin er
furðulegasta fyrirbæri meðal
þjóða heims. Annað eins og þetta
gæti hvergi gerst nema á Islandi.
Geislábaugur Jóhönnu
Við fall Jóhönnu í formanns-
kjöri var engu líkara en hún hefði
allt í einu fengið köllun. En köllun
til hvers? Ekki getur það verið til
að sameina félagshyggjufólk eins
og hún lætur í veðri vaka, þar sem
hún hafnar allri samvinnu við fé-
lagshyggjuflokka, svo að eitthvað
hlýtur félagshyggjuhugsjónin að
vera brengluð, enda ekkert skrýtið
eftir það pólitíska sálufélag sem
hún hefur lifað í fram að þessu.
En hvað sjá hinir trúuðu? Sjá
þeir hvíta dúfu eins og sagt var
um þá er lentu í niðurdýfingar-
skírn? Ekki þarf hún að leggja
fram stefnuskrá eða tilnefna fram-
bjóðendur nema sjálfa sig. Að vísu
hafa eitthvað verið orðaðir við
hana þungavigtarmenn úr verka-
lýðshreyfingunni, sem einnig telja
sig vilja sameina félagshyggjufólk
í einum flokki, en varla geta þeir
lagt trúnað á að slíkt gerist þó
að þeir trúi á Jóhönnu, sem sýni-
lega er komin til að sundra í stað
þess að sameina, þar sem mest
af fylgi hennar er talið komið frá
Alþýðubandalagi og Kvennalista.
En að sjálfsögðu fá hinir svo-
kölluð þungavigtarmenn mjúkan
sess og hlýjar móttökur í samfé-
lagi heilagra — sælir í sínu hjarta
yfir því að hafa fundið hið eina
rétta í krataarmi Jóhönnu sem
öðlast hefur geislabaug á yfirnátt-
úrulegan hátt.
Góðan bata!
Burt séð frá öllu þessu virðist
þjóðin vera orðin dauðþreytt og
hneyksluð á allri þeirri spillingu
sem sýnt hefur verið fram á, að
ríki vítt og breytt í öllu íslenska
stjórnkerfinu bæði hjá einstökum
ráðherrum og stofnunum og telur
skylt að háttsettir menn hér verði
að bera ábyrgð verka sinna eins
pg gerist hjá öllum þjóðum sem
íslendingar bera sig saman við.
En þegar það síðan kemur á dag-
inn að einn slíkur brotamaður seg-
ir af sér, eftir að hafa haldið langa
ræðu , ekki vegna þess að hann
hafi gert neitt rangt heldur vegna
þess að hann hafi engan vinnufrið
sökum ofsókna fjölmiðla og ann-
arra, er telji að honum beri að
segja af sér. Þá breytist skyndilega
viðhorf landans og snýst til varnar
þessum góða dreng, sem sætt hef-
ur slíkum ofsóknum og má ekki
halda starfi sínu áfram í friði og
hefur aðeins gert það sama og
þeir geri allir.
Sýnilega telur þetta ágæta fólk,
að 'slíkir gjörningar éigi að fylgja
þjóðinni um ókomna framtíð,
svona hafi það alltaf verið.
Kannski gæti verið hollt fyrir
embættis- og stjórnmálamenn að
glugga í nýlega út komna bók
Gunnars Helga Kristinssonar
stjórnmálafræðings, er fjallar um
íslenska stjórnkerfið sem hann
telur bæði spillt og hættulegt og
hafi í för með sér margs konar
spillingu. Ekki þarf að efa að þið,
ágætu menn, kunnið á kerfið og
getið varast hætturnar sem í því
felast að fara offari. Guð gefi
ykkur og kerfinu góða endurhæf-
ingu!
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 55, Reykjavík.
Frá Bjarnþóri Aðalsteinssyni:
ALÞÝÐUFLOKKURINN - Jafn-
aðarmannaflokkur íslands hefur
verið í ríkisstjórn frá árinu 1987,
eða í sjö ár samfellt. Þessi sömu
sjö ár hafa verið langdregnasta
samdráttarskeið
lýðveldissög-
unnar. Hafa
andstæðingar
flokksins talið
sig finna högg-
stað á flokknum
vegna þeirra
margvíslegu að-
gerða sem þurft
hefur að grípa
til og Alþýðu-
flokkurinn ekki
vikið sér undan
að hrinda í
Ekki verður því neitað að and-
stæðingum Alþýðuflokksins hefur
orðið nokkuð ágengt við að sá fræj-
um tortryggni og efasemda um rétt-
mæti stefnu og starfa Alþýðu-
flokksins, sem hins vegar hefur
ekki eitt andartak skorast undan
að bera ábyrgð á gjörðum sínum.
Störf Alþýðuflokksins í ríkis-
stjórn hafa mótast af þeirri varnar-
baráttu sem þjóðin hefur orðið að
heyja. Til þess að varðveita efna-
hagslegt sjálfstæði lýðveldisins, og
komast hjá því að sökkva í erlendar
skuldir, hefur orðið að grípa til
vandasamra og viðkvæmra að-
gerða. Fyrir þetta hefur Alþýðu-
flokkurinn orðið fyrir heiftarlegum
árásum af hendi andstæðinga
flokksins.
Sýnilegur árangur
Þá hafa störf Guðmundar Árna
Stefánssonar verið mikið til umflöll-
unar að undanförnu og ýmsar emb-
ættisfærslur hans sætt óvæginni
gagnrýni. Er nú svo komið að hvert
mannsbarn eldra en 7-8 ára veit
allt um þetta mál því það hefur
vart verið um annað ritað og talað
í þessu landi að undanförnu. Ekki
ætla ég mér að setjast í dómara-
sæti í þessu máli, enda hefur Guð-
mundur Árni axlað þá ábyrgð sem
honum ber. Hitt er samt deginum
ljósara að þetta hefur skaðað Al-
þýðuflokkinn alvarlega.
Þrátt fýrir alla erfiðleikana er
árangur Alþýðuflokksins í ríkis-
stjórn ekkert ti! að skammast sín
fyrir og vil ég nefna eftirfarandi
því til stuðnings:
Náðst hefur umtalsverður árang-
ur í að draga úr kostnaði í ríkis-
rekstri, án þess að skaða það kerfi
félagslegrar samhjálpar sem við
höfum byggt upp í fortíðinni. Stöð-
ugleiki í efnahagsmálum og bætt
rekstrarskilyrði atvinnuveganna
tala sínu máli. Frjálsræði og sam-
keppni í viðskiptalífinu hefur fært
niður vöruverð í landinu svo um
munar.
Á félagslega sviðinu má nefna
fjölmörg framfaraspor, en þar ber
hæst efling húsnæðiskerfísins og
tilkoma húsbréfa sem leystu af
hólmi gjaldþrota kerfi.
í heilbrigðiskerfinu má nefna
fjölgun hjartaaðgerða innanlands.
Glasafrjóvgun hefur verið gerð
möguleg hér á landi. Nýjar heilsu-
gæslustöðvar hafa verið reistar og
hæli fyrir ósakhæfa afbrotamenn
verið sett á laggirnar. Þetta hefur
verið framkvæmt samtímis veruleg-
um sparnaði í heilbrigðiskerfinu.
Umbætur í réttarfari og stjórn-
sýslu eru miklar. Að frumkvæði
dómsmálaráðherra Alþýðuflokksins
voru lög samþykkt um aðskilnað
dóms- og umboðsvalds og tóku lög
þessi gildi 1. júlí 1992. Þar með var
dómskerfi landsins komið í nútíma-
horf, en rekja mátti uppbyggingu
þess aftur til miðalda í meginatrið-
um. Þá v.oru einnig samþykkt lög
um fangelsismál sem bættu réttar-
stöðu fanga og stjórnsýslu fangelsa.
Leiðandi afl
Alþýðuflokkurinn hefur verið
leiðandi afl í utanríkismálum þjóð-
arinnar. Undir forystu formanns
flokksins komst umfangsmesti
milliríkj asamningur í slendinga,
EES samningurinn, í höfn. Hann
tryggir okkur jafnrétti í viðskiptum,
tollfrelsi og hindrunarlausan að-
gang að okkar mikilvægasta og
stærsta markaði.
Undir forystu Alþýðuflokksins
markaði ísland nýja stefnu um af-
vopnun á höfunum á viðkvæmum
tímum í alþjóðamálum. Þá var ís-
land í forystu vestrænna ríkja í
stuðningi við sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkj anna.
Að frumkvæði Alþýðuflokksins
var Háskóla íslands fali að gera
úttekt á kostum og göllum aðildar
landsins við Evrópusambandið. Nið-
urstaða þessarar úttektar liggur nú
fyrir og ekkert því til fyrirstöðu að
alvöruumræða um hugsanlega að-
ildarumsókn fari af stað.
Hér hef ég einungis nefnt örfá
atriði um störf Alþýðuflokksins í
ríkisstjórn undanfarin sjö ár. Ég
hika ekki við að halda því fram að
störf Alþýðuflokksins og stefna
hafi ekki fengið réttláta fjölmiðla-
umtjöllun eða verið dæmd af verð-
leikum.
Skuldastaða heimilanna
áhyggjuefni
Auðvitað eru mörg verkefni sem
Alþýðuflokkurinn hefur ekki gefist
færi á að hrinda í framkvæmd eða
að ljúka og þá aðallega vegna erf-
iðra aðstæðna í þjóðfélaginu, vænt-
anlega tímabundinna. Álþýðu-
flokknum er fullljóst að skuldastaða
heimilanna er verulegt áhyggjuefni
sem taka verður til skoðunar tafar-
laust. Ýmislegt hefur áunnist í
skattamálum, en betur má ef duga
skal og langur vegur frá að rétt-
læti ríki í þeim málaflokki. Kosn-
ingalögunum þarf að breyta í rétt-
lætisátt. Þá er framsal ríkisins á
auðlindum þjóðarinnar til einstakra
aðila með öllu ólíðandi.
Jafnaðarmenn, látum ekki árásir
andstæðinga okkar aftra okkur frá
góðum verkum. Höldum ótrauðir
áfram, landsmönnum öllum til
heilla.
BJARNÞÓR AÐALSTEINSSON,
formaður Alþýðuflokksfélags
Mosfellsbæjar.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
flttfrgimMiaMfo
-kjarni málsins!
Bjarnþór
Aðalsteinsson
framkvæmd.
NYJA BILAHOLUN FUNAHOFDA I S:
Ford Econolane 350 XLT 4WD, árg. ‘92, eK. 83
þús. km., drapp, sjálfsk., 4 þrepa, 15 manna.
Verö kr. 3.800.000 stgr. Ath. skipti.
Toyota Hilux Extra Cap V6, árg. ‘90, ek. 55
þús. km., grár, v-grind, 35“ dekk, álfelgur.
Verö kr. 1.390.000 stgr. Ath. skipti.
Nissan Patrol SLX GR diesel intercooler, nýr
bíll, grænn/grár, breyttur hjá Bílabúö Benna.
Sjón er sögu ríkari.
Suzuki Vitara JLXI, árg. ‘92, ek. 47 þús. km.,
5 d., Ijósblár.
Verö kr. 1.790.000 stgr. Ath. skipti.
MMC Colt GLXI, árg. ‘90, ek. 85 þús. km.
rauöur.
VerÖ kr. 750.000 stgr. Ath. skipti.
BÍLATORG
FUNAHOFÐA T
Honda Civic ESI árg. ‘92, blásans., sjálfsk.,
sóllúga, ek. aöeins 17 þús. km.
Verökr. 1.250.000.
MMC Galant 2000 GLSi árg. ‘91, vínrauður,
sjálfsk., ek. 61 þús. km. Verö kr. 1.150.000.
Mazda Navajo LX árg. ‘91, hvítur, sjálfsk., álfgur,
sóllúga, ek. 110 þús. km.
Verökr. 2.100.000. Skipti.
Daihatsu Charade TX LTD árg. ‘92, hvítur, ek.
aöeins 20 þús km. Verö kr. 690.000.
Toyota 4Runner árg. ‘92, vínrauður, sjálfsk.,
33“ dekk, sóllúga, ek. 42 þús. km.
VerÖ kr. 2.750.000. Skipti.
NU ER LAG — VIÐ SELJUM BILINN ÞINN I DAG!