Morgunblaðið - 30.11.1994, Page 45

Morgunblaðið - 30.11.1994, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 45 . BRÉF TIL BLAÐSINS ísland í dag Eru störf Alþýðu- flokksins vanmetin? Frá Aðalheiði Jónsdóttur: EKKI ER hægt að segja að tíð- indalaust hafi veri í íslenskri póli- tík undanfarandi, ráðherrar hafa komið og farið af ýmsum ástæðum hjá ráðvilltum flokki, sem fyrir áratugum er úreltur og hefur á engan hátt skilið hlutverk sitt en allan tímann verið að þvælast fyr- ir félagshyggjufólki ogþess vegna virkað sem þjóðfélagsmeinsemd. Hvort honum tekst að uppræta sjálfan sig er óleyst gáta. Hitt er sýnilegt, eins og málin standa í dag, að klofinn er hann líklegur til að valda enn meira tjóni en ella, ef marka má skoðanakannanir. Hvað sjá hinir trúuðu? Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir féll í formannskjöri fyrir sitjandi formanni hrópaði hún hátt og skörulega: „Minn tími mun koma!“ — segir sig síðan úr Alþýðuflokkn- um — leggur land undir fót eða svífur seglum þöndum landshorna milli og er að vörmu spori komin í skoðanakönnunum með kjörfylgi á landsvísu næst Sjálfstæðisflokki ef kosið væri nú. Þetta fólk segist allt ætla að kjósa Jóhönnu hvar á landinu sem það býr. Þó að mörgum kunni að koma það á óvart verður ekki annað séð en utanríkisráðherra hafi þarna haft rétt fyrir sér þegar hann tal- ar um heilaga Jóhönnu. Allt er þetta svo yfirnáttúrulegt. Sýnir reyndar að íslenska þjóðin er furðulegasta fyrirbæri meðal þjóða heims. Annað eins og þetta gæti hvergi gerst nema á Islandi. Geislábaugur Jóhönnu Við fall Jóhönnu í formanns- kjöri var engu líkara en hún hefði allt í einu fengið köllun. En köllun til hvers? Ekki getur það verið til að sameina félagshyggjufólk eins og hún lætur í veðri vaka, þar sem hún hafnar allri samvinnu við fé- lagshyggjuflokka, svo að eitthvað hlýtur félagshyggjuhugsjónin að vera brengluð, enda ekkert skrýtið eftir það pólitíska sálufélag sem hún hefur lifað í fram að þessu. En hvað sjá hinir trúuðu? Sjá þeir hvíta dúfu eins og sagt var um þá er lentu í niðurdýfingar- skírn? Ekki þarf hún að leggja fram stefnuskrá eða tilnefna fram- bjóðendur nema sjálfa sig. Að vísu hafa eitthvað verið orðaðir við hana þungavigtarmenn úr verka- lýðshreyfingunni, sem einnig telja sig vilja sameina félagshyggjufólk í einum flokki, en varla geta þeir lagt trúnað á að slíkt gerist þó að þeir trúi á Jóhönnu, sem sýni- lega er komin til að sundra í stað þess að sameina, þar sem mest af fylgi hennar er talið komið frá Alþýðubandalagi og Kvennalista. En að sjálfsögðu fá hinir svo- kölluð þungavigtarmenn mjúkan sess og hlýjar móttökur í samfé- lagi heilagra — sælir í sínu hjarta yfir því að hafa fundið hið eina rétta í krataarmi Jóhönnu sem öðlast hefur geislabaug á yfirnátt- úrulegan hátt. Góðan bata! Burt séð frá öllu þessu virðist þjóðin vera orðin dauðþreytt og hneyksluð á allri þeirri spillingu sem sýnt hefur verið fram á, að ríki vítt og breytt í öllu íslenska stjórnkerfinu bæði hjá einstökum ráðherrum og stofnunum og telur skylt að háttsettir menn hér verði að bera ábyrgð verka sinna eins pg gerist hjá öllum þjóðum sem íslendingar bera sig saman við. En þegar það síðan kemur á dag- inn að einn slíkur brotamaður seg- ir af sér, eftir að hafa haldið langa ræðu , ekki vegna þess að hann hafi gert neitt rangt heldur vegna þess að hann hafi engan vinnufrið sökum ofsókna fjölmiðla og ann- arra, er telji að honum beri að segja af sér. Þá breytist skyndilega viðhorf landans og snýst til varnar þessum góða dreng, sem sætt hef- ur slíkum ofsóknum og má ekki halda starfi sínu áfram í friði og hefur aðeins gert það sama og þeir geri allir. Sýnilega telur þetta ágæta fólk, að 'slíkir gjörningar éigi að fylgja þjóðinni um ókomna framtíð, svona hafi það alltaf verið. Kannski gæti verið hollt fyrir embættis- og stjórnmálamenn að glugga í nýlega út komna bók Gunnars Helga Kristinssonar stjórnmálafræðings, er fjallar um íslenska stjórnkerfið sem hann telur bæði spillt og hættulegt og hafi í för með sér margs konar spillingu. Ekki þarf að efa að þið, ágætu menn, kunnið á kerfið og getið varast hætturnar sem í því felast að fara offari. Guð gefi ykkur og kerfinu góða endurhæf- ingu! AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Kaplaskjólsvegi 55, Reykjavík. Frá Bjarnþóri Aðalsteinssyni: ALÞÝÐUFLOKKURINN - Jafn- aðarmannaflokkur íslands hefur verið í ríkisstjórn frá árinu 1987, eða í sjö ár samfellt. Þessi sömu sjö ár hafa verið langdregnasta samdráttarskeið lýðveldissög- unnar. Hafa andstæðingar flokksins talið sig finna högg- stað á flokknum vegna þeirra margvíslegu að- gerða sem þurft hefur að grípa til og Alþýðu- flokkurinn ekki vikið sér undan að hrinda í Ekki verður því neitað að and- stæðingum Alþýðuflokksins hefur orðið nokkuð ágengt við að sá fræj- um tortryggni og efasemda um rétt- mæti stefnu og starfa Alþýðu- flokksins, sem hins vegar hefur ekki eitt andartak skorast undan að bera ábyrgð á gjörðum sínum. Störf Alþýðuflokksins í ríkis- stjórn hafa mótast af þeirri varnar- baráttu sem þjóðin hefur orðið að heyja. Til þess að varðveita efna- hagslegt sjálfstæði lýðveldisins, og komast hjá því að sökkva í erlendar skuldir, hefur orðið að grípa til vandasamra og viðkvæmra að- gerða. Fyrir þetta hefur Alþýðu- flokkurinn orðið fyrir heiftarlegum árásum af hendi andstæðinga flokksins. Sýnilegur árangur Þá hafa störf Guðmundar Árna Stefánssonar verið mikið til umflöll- unar að undanförnu og ýmsar emb- ættisfærslur hans sætt óvæginni gagnrýni. Er nú svo komið að hvert mannsbarn eldra en 7-8 ára veit allt um þetta mál því það hefur vart verið um annað ritað og talað í þessu landi að undanförnu. Ekki ætla ég mér að setjast í dómara- sæti í þessu máli, enda hefur Guð- mundur Árni axlað þá ábyrgð sem honum ber. Hitt er samt deginum ljósara að þetta hefur skaðað Al- þýðuflokkinn alvarlega. Þrátt fýrir alla erfiðleikana er árangur Alþýðuflokksins í ríkis- stjórn ekkert ti! að skammast sín fyrir og vil ég nefna eftirfarandi því til stuðnings: Náðst hefur umtalsverður árang- ur í að draga úr kostnaði í ríkis- rekstri, án þess að skaða það kerfi félagslegrar samhjálpar sem við höfum byggt upp í fortíðinni. Stöð- ugleiki í efnahagsmálum og bætt rekstrarskilyrði atvinnuveganna tala sínu máli. Frjálsræði og sam- keppni í viðskiptalífinu hefur fært niður vöruverð í landinu svo um munar. Á félagslega sviðinu má nefna fjölmörg framfaraspor, en þar ber hæst efling húsnæðiskerfísins og tilkoma húsbréfa sem leystu af hólmi gjaldþrota kerfi. í heilbrigðiskerfinu má nefna fjölgun hjartaaðgerða innanlands. Glasafrjóvgun hefur verið gerð möguleg hér á landi. Nýjar heilsu- gæslustöðvar hafa verið reistar og hæli fyrir ósakhæfa afbrotamenn verið sett á laggirnar. Þetta hefur verið framkvæmt samtímis veruleg- um sparnaði í heilbrigðiskerfinu. Umbætur í réttarfari og stjórn- sýslu eru miklar. Að frumkvæði dómsmálaráðherra Alþýðuflokksins voru lög samþykkt um aðskilnað dóms- og umboðsvalds og tóku lög þessi gildi 1. júlí 1992. Þar með var dómskerfi landsins komið í nútíma- horf, en rekja mátti uppbyggingu þess aftur til miðalda í meginatrið- um. Þá v.oru einnig samþykkt lög um fangelsismál sem bættu réttar- stöðu fanga og stjórnsýslu fangelsa. Leiðandi afl Alþýðuflokkurinn hefur verið leiðandi afl í utanríkismálum þjóð- arinnar. Undir forystu formanns flokksins komst umfangsmesti milliríkj asamningur í slendinga, EES samningurinn, í höfn. Hann tryggir okkur jafnrétti í viðskiptum, tollfrelsi og hindrunarlausan að- gang að okkar mikilvægasta og stærsta markaði. Undir forystu Alþýðuflokksins markaði ísland nýja stefnu um af- vopnun á höfunum á viðkvæmum tímum í alþjóðamálum. Þá var ís- land í forystu vestrænna ríkja í stuðningi við sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkj anna. Að frumkvæði Alþýðuflokksins var Háskóla íslands fali að gera úttekt á kostum og göllum aðildar landsins við Evrópusambandið. Nið- urstaða þessarar úttektar liggur nú fyrir og ekkert því til fyrirstöðu að alvöruumræða um hugsanlega að- ildarumsókn fari af stað. Hér hef ég einungis nefnt örfá atriði um störf Alþýðuflokksins í ríkisstjórn undanfarin sjö ár. Ég hika ekki við að halda því fram að störf Alþýðuflokksins og stefna hafi ekki fengið réttláta fjölmiðla- umtjöllun eða verið dæmd af verð- leikum. Skuldastaða heimilanna áhyggjuefni Auðvitað eru mörg verkefni sem Alþýðuflokkurinn hefur ekki gefist færi á að hrinda í framkvæmd eða að ljúka og þá aðallega vegna erf- iðra aðstæðna í þjóðfélaginu, vænt- anlega tímabundinna. Álþýðu- flokknum er fullljóst að skuldastaða heimilanna er verulegt áhyggjuefni sem taka verður til skoðunar tafar- laust. Ýmislegt hefur áunnist í skattamálum, en betur má ef duga skal og langur vegur frá að rétt- læti ríki í þeim málaflokki. Kosn- ingalögunum þarf að breyta í rétt- lætisátt. Þá er framsal ríkisins á auðlindum þjóðarinnar til einstakra aðila með öllu ólíðandi. Jafnaðarmenn, látum ekki árásir andstæðinga okkar aftra okkur frá góðum verkum. Höldum ótrauðir áfram, landsmönnum öllum til heilla. BJARNÞÓR AÐALSTEINSSON, formaður Alþýðuflokksfélags Mosfellsbæjar. Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu flttfrgimMiaMfo -kjarni málsins! Bjarnþór Aðalsteinsson framkvæmd. NYJA BILAHOLUN FUNAHOFDA I S: Ford Econolane 350 XLT 4WD, árg. ‘92, eK. 83 þús. km., drapp, sjálfsk., 4 þrepa, 15 manna. Verö kr. 3.800.000 stgr. Ath. skipti. Toyota Hilux Extra Cap V6, árg. ‘90, ek. 55 þús. km., grár, v-grind, 35“ dekk, álfelgur. Verö kr. 1.390.000 stgr. Ath. skipti. Nissan Patrol SLX GR diesel intercooler, nýr bíll, grænn/grár, breyttur hjá Bílabúö Benna. Sjón er sögu ríkari. Suzuki Vitara JLXI, árg. ‘92, ek. 47 þús. km., 5 d., Ijósblár. Verö kr. 1.790.000 stgr. Ath. skipti. MMC Colt GLXI, árg. ‘90, ek. 85 þús. km. rauöur. VerÖ kr. 750.000 stgr. Ath. skipti. BÍLATORG FUNAHOFÐA T Honda Civic ESI árg. ‘92, blásans., sjálfsk., sóllúga, ek. aöeins 17 þús. km. Verökr. 1.250.000. MMC Galant 2000 GLSi árg. ‘91, vínrauður, sjálfsk., ek. 61 þús. km. Verö kr. 1.150.000. Mazda Navajo LX árg. ‘91, hvítur, sjálfsk., álfgur, sóllúga, ek. 110 þús. km. Verökr. 2.100.000. Skipti. Daihatsu Charade TX LTD árg. ‘92, hvítur, ek. aöeins 20 þús km. Verö kr. 690.000. Toyota 4Runner árg. ‘92, vínrauður, sjálfsk., 33“ dekk, sóllúga, ek. 42 þús. km. VerÖ kr. 2.750.000. Skipti. NU ER LAG — VIÐ SELJUM BILINN ÞINN I DAG!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.