Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 53 Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. Komdu og sjáðu THE MASK, skemmtilegustu, stórkost- legustu, sjúkleg- ustu, brjáluðustu, bestu, brengluðustu, fyndnustu, fárán- legustu, ferskustu, mergjuðustu, mögnuðustu og eina mestu stórmynd allra tíma! **★ Ó.T. Rás 2 ★★★ g.S.E. Morgun pósturinn ★★,★ d.V. H.K STÆRSTA TJALDIÐ MEÐ HX Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. S • I • R • E • N • s Skemmtileg erótísk gamanmynd með Hugh Grant úr 1?r ... „Fjögur brúökaup og jaröarför." Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11. B.i. 12 ára. Gamansamur undirtónn KÍNVERSKA ríkisfjölleika- húsið kom hingað til lands í síðustu viku og hélt sýning- ar á Akureyri, í Vestmanna- eyjum og Reykjavík. Það sýndi sig að mikið hæfileika- fólk var þar á ferð, enda hefur sýningin fengið mjög góða dóma erlendis. Meðal þess sem boðið var upp á voru línudans, fimleikar og drekadans. Þá vakti gaman- samur undirtónn sýningar- innar kæti áhorfenda. Plestir listamenn hópsins hófu lærdóm sinn þegar á bamsaldri. Námið tekur alla jafna um sex ár þar til lista- mennirnir eiga möguleika á að komast að í fjölleikahúsi. Yngsti listamaður hópsins var sextán ára gömul stúlka, en hún hafði unnið í fjöl- leikahusi í tvö ár. Að sýningunni stóðu tvö fjölleikahús frá Kína og seg- ir það sitt um hve mikið var til hennar vandað. Meðal áhorfenda var kínverska sendiherrafrúin, Shi Qine, og sagði hún að ekkert væri betra til að slappa af og róa taugarnar en að fylgjast með listamönnunum að störfum. Regnbogalínan Sími 99-1000 Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun á Regnbogalínunni í síma 99-1000. Þú getur unnið boðsmiða á myndina Reyfari og frábæra geislaplötu með lögum úr myndinni. Kr. 39.90 mín. ★★★★★ E.H., Morgunpósturinn. ★★★★ ö.N. Tíminn. .★★★’/t Á.Þ., Dagsljós. \\ ★★★Vt A.I. Mbl. ★★★ Ó.T., Rás 2. REYFARI Quentin Tarantino, höfundur og leik- stjóri Pulp Fiction, er vondi strákurinn í Hollywood sem allir vilja þó eiga. Pulp Fiction, sem er ótrúlega mögnuð saga úr undirheim- um Hollywood, er nú frumsýnd samtímis á íslandi og í Bretlandi. Aðalhlutverk: John Travolta, Bruce Willis, Samuel L. Jackson, Uma Thurman, Harvey Keitel, Tim Roth, Christopher Walken, Eric Stoltz og Amanda Plummer. Hlaut Gullpálmann í Cannes 1994. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. "" Bönnuð innan 16 ára. Jndirleikarinn Gagnrýnendur lafa i hástert lofað þessa átakamiklu mynd er seair af frægri söngkonu og uppburöarl- itlum undirleikara hennar undir þýsku hemámi í aaris. Ast oa hatur, öfundsýki og afbrýði, unaðsleg tónlist, spennanai framvinda og frábær leikur einkennir þessa mögnuðu frönsku perlu. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Allir heimsins morgnar **** Ó.T Rás2 *** A.l. MBL Eintak *** H.K. DV. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. LILLI ER TYNDUR 14.000 manns á öllum aldri hafa þegar fylgst með ævintýrum Lilla. Meömæli sem engan svíkur. „Bráöskemmtileg, bæði fyrir börn og full- orðna og þvi tilvalin fjölskylduskemmtun." G.B., DV. „Hér er ekki spurt að raunsæi heldur grfni og glensi og enginn skortur er á því." A.l. Mbl. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Svikráð „RESERVOIR DOGS“ Sýnd kl 5 og 11. B.i. 16 ára. Miðnæturforsýning á jólamyndinni STARGATE Sjá auglýsingu á bls. 52 Hamslaus tjáning TONLIST Gcisladiskur UTANGARÐSMENN Tónleikaskifa Utangarðs- manna, liljóðrituð á Kamikaze tónleikum í Stokkhólmi 1982. Utangarðsmenn voru Bubbi Morthens, Rúnar Erlingsson bassaleikari, Magnús Stefáns- son trommuleikari, Daniel Pollock og Michael Pollock gítarleikarar, en Michael syngur einnig í sumum lag- anna. Upptökumaður óþekkt- ur, framleiðandi Daniel Pollock, hljóðblöndun Óskar Páll. Smekkleysa s.m. lif. gef- ur út. 38,54 min., 1.999 kr. ROKKBYLTINGIN ís- lenska á áttunda áratugnum hófst með Utangarðsmönn- um, sem sóttu kraft í breska pönktónlist, reggí og rokk, en ekki síst í íslenska þjóð- ernishyggju. Leiðtogi sveit- arinnar var Bubbi Morthens, út á við að minnsta kosti, kraftmikill og ögrandi söngvari sem samdi texta um íslenskan veruleika; hrá- slagalegan og kaldan, með sósíalískrealískrí greiningu á vandamálum alþýðu undir jámhæl kapítalísks kúgara, farandverkamanna og slor- þræla. Mótvægið í sveitinni voru þeir Pollock bræður, sem toguðust á við hann um stjórntaumana, sérstaklega Michael, sem var liðtækur laga- og textasmiður sjálf- ur, en núningsflöturinn var ekki síst pólitík. Þegar Utangarðsmenn fóru utan til að leggja undir sig Skandinavíu sumarið 1982, var sveitin nánast í andarslitrunum, eins og heyra mátti á eftirminnileg- um tónleikum í Háskólabíói stuttu áður en haldið var af stað vom andstæður að toga sveitina í sundur, sem og gerðist í ferðinni, enda var henni allri lokið að segja þegar komið var heim. Tón- leikaferðin hefur þó verið mikil stuðferð, ef marka má nýútkomna breiðskífu, sem á em tónleikar úr ferðinni sem úppgötvuðust fyrir skömmu. Helsti galli hljóðversskífa Utangarðsmanna var að þær náðu aldrei að fanga að fullu hamslausan kraft- inn á tónleikum, þar sem Bubbi öskraði sig hásan og þeir Michael og Danni reistu ókleifan gítarvegg á þéttum bassa- og trommugranni, enda Rúnar og Magnús eitt helsta rytmapar rokksins á þeim ámm. Það er því feng- ur að fá loks tónleikapíötu með sveitinni, sem er ekki síst merkileg fyrir þá sök að hún er tekin upp án vit- undar sveitarmanna; það er engin tilgerð á ferðinni eða stjörnustælar, bara Utan- garðsmenn. Á Kamikaze-tónleikunum sem fangaðir vora á band eru Utangarðsmenn eins og vel smurð hakkavél, sem hámar í sig öll þau ólíku áhrif sem sótti á sveit- armenn, alla spennu og allt þeirra villta líferni og spýtir úr sér hrárri rokkkeyrslu; svo hraðri að við liggur ácT sveitarmenn misstu af lest- inni. Það er einmitt slíkt sem gerði Utangarðsmenn svo háskalega góða rokksveit, þeir gáfu ævinlega allt sem þeir áttu, sama hvort áheyr- endur vora tveir eða tvö- hundruð. Slíkt og þvílíkt fær áheyrandann til að gleyma því að hljómur er ekki alltaf fullkominn eða að spila- mennska sé ekki alltaf hnökralaus; rokkið snýst um þetta — hamslausa tján- ingu. Árni Matthíasson -kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.