Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 53
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum yngri en 16 ára.
Komdu og sjáðu THE MASK,
skemmtilegustu, stórkost-
legustu, sjúkleg-
ustu, brjáluðustu, bestu,
brengluðustu, fyndnustu, fárán-
legustu, ferskustu, mergjuðustu,
mögnuðustu og eina mestu
stórmynd allra tíma!
**★ Ó.T. Rás 2
★★★ g.S.E. Morgun
pósturinn
★★,★ d.V. H.K
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
HX
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
S • I • R • E • N • s
Skemmtileg erótísk gamanmynd með Hugh Grant úr
1?r ... „Fjögur brúökaup og jaröarför."
Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11. B.i. 12 ára.
Gamansamur undirtónn
KÍNVERSKA ríkisfjölleika-
húsið kom hingað til lands
í síðustu viku og hélt sýning-
ar á Akureyri, í Vestmanna-
eyjum og Reykjavík. Það
sýndi sig að mikið hæfileika-
fólk var þar á ferð, enda
hefur sýningin fengið mjög
góða dóma erlendis. Meðal
þess sem boðið var upp á
voru línudans, fimleikar og
drekadans. Þá vakti gaman-
samur undirtónn sýningar-
innar kæti áhorfenda.
Plestir listamenn hópsins
hófu lærdóm sinn þegar á
bamsaldri. Námið tekur alla
jafna um sex ár þar til lista-
mennirnir eiga möguleika á
að komast að í fjölleikahúsi.
Yngsti listamaður hópsins
var sextán ára gömul stúlka,
en hún hafði unnið í fjöl-
leikahusi í tvö ár.
Að sýningunni stóðu tvö
fjölleikahús frá Kína og seg-
ir það sitt um hve mikið var
til hennar vandað. Meðal
áhorfenda var kínverska
sendiherrafrúin, Shi Qine,
og sagði hún að ekkert væri
betra til að slappa af og róa
taugarnar en að fylgjast
með listamönnunum að
störfum.
Regnbogalínan Sími 99-1000
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun á Regnbogalínunni í
síma 99-1000. Þú getur unnið boðsmiða á myndina Reyfari og frábæra geislaplötu með
lögum úr myndinni. Kr. 39.90 mín.
★★★★★ E.H., Morgunpósturinn.
★★★★ ö.N. Tíminn.
.★★★’/t Á.Þ., Dagsljós.
\\ ★★★Vt A.I. Mbl.
★★★ Ó.T., Rás 2.
REYFARI
Quentin Tarantino, höfundur og leik-
stjóri Pulp Fiction, er vondi strákurinn í
Hollywood sem allir vilja þó eiga. Pulp
Fiction, sem er ótrúlega mögnuð saga
úr undirheim-
um Hollywood, er nú frumsýnd
samtímis á íslandi og í Bretlandi.
Aðalhlutverk: John Travolta, Bruce
Willis, Samuel L. Jackson, Uma
Thurman, Harvey Keitel, Tim Roth,
Christopher Walken, Eric Stoltz og
Amanda Plummer.
Hlaut Gullpálmann í Cannes 1994.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
"" Bönnuð innan 16 ára.
Jndirleikarinn
Gagnrýnendur
lafa i hástert lofað
þessa átakamiklu
mynd er seair af
frægri söngkonu
og uppburöarl-
itlum undirleikara
hennar undir
þýsku hemámi í
aaris. Ast oa hatur,
öfundsýki og
afbrýði, unaðsleg
tónlist, spennanai
framvinda og
frábær leikur
einkennir þessa
mögnuðu frönsku
perlu.
Sýnd kl. 5, 7,
9 og 11.
Allir heimsins morgnar
**** Ó.T Rás2 *** A.l. MBL
Eintak *** H.K. DV.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LILLI ER TYNDUR
14.000 manns á öllum
aldri hafa þegar fylgst
með ævintýrum Lilla.
Meömæli sem engan
svíkur.
„Bráöskemmtileg,
bæði fyrir börn og full-
orðna og þvi tilvalin
fjölskylduskemmtun."
G.B., DV.
„Hér er ekki spurt að
raunsæi heldur grfni og
glensi og enginn
skortur er
á því." A.l. Mbl.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Svikráð
„RESERVOIR DOGS“
Sýnd kl 5 og 11. B.i. 16 ára.
Miðnæturforsýning á jólamyndinni
STARGATE
Sjá auglýsingu á bls. 52
Hamslaus tjáning
TONLIST
Gcisladiskur
UTANGARÐSMENN
Tónleikaskifa Utangarðs-
manna, liljóðrituð á Kamikaze
tónleikum í Stokkhólmi 1982.
Utangarðsmenn voru Bubbi
Morthens, Rúnar Erlingsson
bassaleikari, Magnús Stefáns-
son trommuleikari, Daniel
Pollock og Michael Pollock
gítarleikarar, en Michael
syngur einnig í sumum lag-
anna. Upptökumaður óþekkt-
ur, framleiðandi Daniel
Pollock, hljóðblöndun Óskar
Páll. Smekkleysa s.m. lif. gef-
ur út. 38,54 min., 1.999 kr.
ROKKBYLTINGIN ís-
lenska á áttunda áratugnum
hófst með Utangarðsmönn-
um, sem sóttu kraft í breska
pönktónlist, reggí og rokk,
en ekki síst í íslenska þjóð-
ernishyggju. Leiðtogi sveit-
arinnar var Bubbi Morthens,
út á við að minnsta kosti,
kraftmikill og ögrandi
söngvari sem samdi texta
um íslenskan veruleika; hrá-
slagalegan og kaldan, með
sósíalískrealískrí greiningu
á vandamálum alþýðu undir
jámhæl kapítalísks kúgara,
farandverkamanna og slor-
þræla. Mótvægið í sveitinni
voru þeir Pollock bræður,
sem toguðust á við hann um
stjórntaumana, sérstaklega
Michael, sem var liðtækur
laga- og textasmiður sjálf-
ur, en núningsflöturinn var
ekki síst pólitík.
Þegar Utangarðsmenn
fóru utan til að leggja undir
sig Skandinavíu sumarið
1982, var sveitin nánast í
andarslitrunum, eins og
heyra mátti á eftirminnileg-
um tónleikum í Háskólabíói
stuttu áður en haldið var
af stað vom andstæður að
toga sveitina í sundur, sem
og gerðist í ferðinni, enda
var henni allri lokið að segja
þegar komið var heim. Tón-
leikaferðin hefur þó verið
mikil stuðferð, ef marka má
nýútkomna breiðskífu, sem
á em tónleikar úr ferðinni
sem úppgötvuðust fyrir
skömmu.
Helsti galli hljóðversskífa
Utangarðsmanna var að
þær náðu aldrei að fanga
að fullu hamslausan kraft-
inn á tónleikum, þar sem
Bubbi öskraði sig hásan og
þeir Michael og Danni reistu
ókleifan gítarvegg á þéttum
bassa- og trommugranni,
enda Rúnar og Magnús eitt
helsta rytmapar rokksins á
þeim ámm. Það er því feng-
ur að fá loks tónleikapíötu
með sveitinni, sem er ekki
síst merkileg fyrir þá sök
að hún er tekin upp án vit-
undar sveitarmanna; það er
engin tilgerð á ferðinni eða
stjörnustælar, bara Utan-
garðsmenn.
Á Kamikaze-tónleikunum
sem fangaðir vora á band
eru Utangarðsmenn eins og
vel smurð hakkavél, sem
hámar í sig öll þau ólíku
áhrif sem sótti á sveit-
armenn, alla spennu og allt
þeirra villta líferni og spýtir
úr sér hrárri rokkkeyrslu;
svo hraðri að við liggur ácT
sveitarmenn misstu af lest-
inni. Það er einmitt slíkt sem
gerði Utangarðsmenn svo
háskalega góða rokksveit,
þeir gáfu ævinlega allt sem
þeir áttu, sama hvort áheyr-
endur vora tveir eða tvö-
hundruð. Slíkt og þvílíkt fær
áheyrandann til að gleyma
því að hljómur er ekki alltaf
fullkominn eða að spila-
mennska sé ekki alltaf
hnökralaus; rokkið snýst um
þetta — hamslausa tján-
ingu.
Árni Matthíasson
-kjarni málsins!