Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 21
Níu íhaldsþingmenn sniðgengnir
Stjórn Majors
í minnihluta
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, kvað stjórn sína í gær
myndu halda sínu striki, þrátt fyrir
að hún teljist nú minnihlutastjórn.
Ástæða þess er sú að átta þing-
menn íhaldsflokksins eru nú snið-
gengnir af flokknum eftir að þeir
sátu hjá í atkvæðagreiðslu um til-
lögu Majors að auka greiðslur til
Evrópusambandsins.
Þingmennirnir munu áfram sitja
á þingi en eru nú taldir tilheyra
stjórnarandstöðunni, þrátt fyrir að
fastlega sé reiknað með því að þeir
muni styðja forsætisráðherrann í
ýmsum málum. Níundi þingmaður-
inn, Sir Richard Body, sagði sig
sjálfviljugur undan flokksaga og því
nýtur stjórnin stuðnings 321 þing-
manns en stjórnarandstaðan 325.
Þetta er þriðja breska minni-
hlutastjórnin, hinar fyrri voru báðar
stjórnir Verkamannaflokksins, sú
fyrri á árinu 1974 og sú síðari 1977-
1979. Vald beggja var mjög tak-
markað en ekki er búist við því
sama nú, þar sem aðeins er um
„tæknilegan" minnihluta að ræða.
Þá segja ráðgjafar Majors hann
hreint ekki reiðubúinn að sætta sig
við tilslakanir.
Búist er við því að áttmenning-
arnir muni hlíta flokksaga að nýju
eftir einhvern tíma.
Bardagar halda áfram í Kákasushéraðinu Tsjetsjníu
Moskvustj órnin setur
deiluaðilum úrslitakosti
Moskvu. Reuter.
Hyggist Jeltsín lýsa yfir neyðar-
lögum verður hann fyrst að fá
samþykkt þingsins. Pavel
Gratjsov, varnarmálaráðherra
Rússlands, segir að fallhlífaher-
menn gætu tekið Tsjetsjníu á
nokkrum klukkustundum. Þrátt
fyrir ummæli Gratjsovs óttast
margir að erfitt geti reynst að
buga Dúdajev og menn hans,
minningin um 13.000 Rússa sem
féllu í Afganistan, lifir enn. í
Tsjetsjníu er hefð fyrir því að full-
orðnir karlar gangi að staðaldri
vopnaðir.
Glæpahreiður
Rússar telja flestir að Tsjetsjn-
ía, sem er olíuauðugt hérað, sé
hreiður hryðjuverkamanna og
glæpagengja en , glæpasamtök
Tsjetsjna eru öflug víða í Rúss-
landi. Er Dúdajev lýsti yfir sjálf-
stæði síðla árs 1991 reyndu stjórn-
völd í Moskvu að setja neyðarlög
í héraðinu en það mistókst vegna
ringulreiðarinnar í Russlandi og
vinsældir Dúdajevs urðu meiri en
ella meðal Tsjetsjna sem eru lítil
múslimaþjóð er barðist af hörku á
síðustu öld gegn yfirráðum Rússa.
BORIS N. Jeltsín Rússlandsforseti
segir að gripið verði inn í átökin
í Kákasushéraðinu Tsjetsjníu ef
ekki verði samið þar um vopnahlé
og afvopnun á næstu sólarhring-
um. „Vonin um að íbúar Tsjetsj-
níu muni sjálfir fínna lausn á inn-
anlandsátökunum er að verða að
engu“, sagði í yfirlýsingu forset-
ans í gær. Jafnframt var sagt að
neyðarlög yrðu sett í héraðinu og
„öllum ráðum“ beitt til að binda
enda á átökin ef deiluaðilar létu
sé ekki segjast.
Þótt það væri ekki sagt beinlín-
is í yfirlýsingu Jeltsíns var gefið
í skyn að rússneska hernum yrði
beitt í Tsjetsjníu. Uppreisnarmenn
þar sem beijast gegn Dzhokar
Dúdajev, forseta héraðsins, er lýst
hefur yfir sjálfstæði gagnvart
Rússlandi, hafa farið halloka í
hörðum bardögum við stjórnarliða
að undanförnu og mannfall verið
mikið.
Fallhlífaherliði beitt?
Dúdajev fullyrðir að um 70 rúss-
neskir hermenn séu 'meðal fanga
sem stjórnarherinn hefur tekið og
viðurkenndu embættismenn í
Moskvu á mánudag að sumir
Rússanna hefðu verið í hernum
en þeir hefðu farið til héraðsins
af sjálfdáðum. Moskvustjórnin
krefst þess að Rússunum verði
sleppt en Dúdajev hefur hótað að
taka þá af lífi. „Hvað munu Rúss-
ar ségja um ríkisstjórn sem lét hjá
líða að vernda syni þjóðarinnar?“
spurði Moskvublaðið Ízvestíja í
gær.
100.000
hestafla
bifreið
KAPPHLAUP þriggja aðila um
að rjúfa hljóðmúrinn á bifreið
stendur nú yfir. Að smiði einnar
bifreiðarinnar stendur Bretinn
Richard Noble sem ekið hefur
hraðar en nokkur annar, eða á
1.046 kílómetra hraða. Það af-
rek vann hann 1983.
1290kmhraði
Bifreið Noble verður knúin
tveimur Rolls-Royce Spey 202
þotuhreyflum, sem síðast voru
í notkun sem aflvélar tveggja
Phantom-orrustuþotna í Persa-
flóastríðinu. Saman framleiða
þeir rúmlega 100.000 hestöfl
og ættu að geta knúið bifreiðina
á 1.290 kílómetra hraða, en
hljóðmúrinn er við um 1.152
km/klst. hraða. Sérfræðingur í
flugeðlisfræði eldflauga hefur
hannað bifreiðina sem mun líta
út sem næst því sem sjá má á
teikningunni.
Auk Noble vinnur McLaren
kappaksturssveitin í Sviss og
Bandaríkjamaðurinn Craig
Breedlove, sem fimm sinnum
hefur sett hraðakstursmet, að
smíði hljóðfrárra bifreiða.
Lestar-
ræningi
heng’ir sig
BUSTER Edwards, sem af-
plánaði fangelsisdóms vegna
frægs lestarráns, fannst látirtn
í bílskúr sínum í Lundúnum í
gær eftir að hafa hengt sig.
Edwards starfaði síðustu árin
sem blómasali í Waterloo-stöð-
inni í Lundúnum. Hann tók
þátt í að ræna póstpokum úr
lest árið 1963 og ránsfengur-
inn er metinn á þijá milljarða
króna að núvirði.
Quayle á
sjúkrahús
DAN Quayle, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna,
var fluttur á sjúkrahús í Indi-
anapolis í fyrrakvöld vegna
blóðstorknunar í lungum.
Quayle átti við öndunarerfið-
leika að stríða en er ekki talinn
í lífshættu og fer að öllum lík-
indum af sjúkrahúsinu eftir
viku.
Barnaveiki-
faraldur
ALLT að 40.000 börn munu
fá barnaveiki í Austur-Evrópu
og fyrrum Sovétlýðveldum á
þessu ári, vegna skorts á bólu-
efni, að sögn Sameinuðu þjóð-
anna. Flest tilvikin hafa komið
upp í Rússlandi, Hvíta-Rúss-
landi og Úkraínu.
Selarann-
sóknamönn-
um mútað?
HÁSKÓLINN í Tromso hyggst
reyna að komast til botns í því
hvort bandarísk umhverfis-
verndarsamtök hafi reynt að
múta norskum vísindamönn-
um sem stunda rannsóknir á
selum og selveiði. Alþjóðlegi
dýraverndarsjóðurinn IFAW
hefur boðið rússneskum vís-
indamönnum 300 dollara á
mánuði fyrir að sinna ekki
selarannsóknum. Hefur þeim
verið heitið slíkum greiðslum
í þrjú ár gegn því að veiða
hvorki sel í vísindaskyni né
stunda aðrar rannsóknir á
þeim. 300 dollarar á mánuði
er miklu meiri fjárhæð en rúss-
neskir vísindamenn fá í kaup
og hafa tveir starfsmenn Pinro
tekið boði IFAW.
233 farast í eldsvoða í Kína
Gróðafíklar hunsa
öryggisrcglur
Pcking. Reuter.
TALIÐ er að alls hafí 233 farist
er eldur kom upp í þéttskipuðu
danshúsi í borginni Fuxin í Norð-
austur-Kína í gær. Þótt eldurinn
væri slökktur á nokkrum mínútum
dugði það ekki til, flestir munu
hafa látist fljótt af völdum reyk-
eitrunar frá brennandi efni í inn-
réttingum og húsbúnaði. Embætt-
ismenn í Peking segja að eldsvoð-
um hafi fjölgað mjög síðustu árin
vegna þess að óprúttnir, kínversk-
ir kaupsýslumenn hunsi öryggis-
reglur.
Húsið sem brann var aðeins
rúmlega 300 fermetrar að stærð,
ekki var vitað í gær hvort neyðar-
dyr voru nógu margar eða að-
gengilegar. Slökkviliðsmenn
björguðu 16 manns sem sluppu
með brunasár.
Talsmaður slökkviliðs Peking-
borgar taldi að eldsvoðinn væri
hinn mannskæðasti í landinu frá
því að liðlega 600 manns fórust
er kviknaði í kvikmyndahúsi í Xinj-
iang-héraði í Norðvestur-Kína árið
1979. Um það leyti var leiðtogi
landsins, Deng Xiaoping, að ýta
markaðsumbótastefnu sinni úr
vör.
Stjórnandi hússins í Fuxin, sem
tók það á leigu hjá yfirvöldum,
slapp óskaddaður en var hafður í
gæsluvarðhaldi meðan verið var
að rannsaka málið.
1ÖL¥II¥ÍL WEÁ HUSQYAIMÁ
jfcvÓLUSTEINN
Faxafen 14, Sími 889505
(h) Husqvarna
ÖRKIN 2096-27-4
FACETTE 500
QUILTING
Nýjasta tölvuvélin frá Husqvarna.
Sérstakir saumar fyrir bútasaum.
Þrjár gerðir af hnappagötum.
Mœlir eftir stœrð tölunnar.
Saumar bók- og tölustafi,
flatsaum, kúnststopp o.fl.
Þrjár hraðastillingar
og nálastoppstilling.
Námskeið og íslenskur leiðavísir.
Verð 67.823 - kr. stgr.