Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 21 Níu íhaldsþingmenn sniðgengnir Stjórn Majors í minnihluta London. Reuter. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, kvað stjórn sína í gær myndu halda sínu striki, þrátt fyrir að hún teljist nú minnihlutastjórn. Ástæða þess er sú að átta þing- menn íhaldsflokksins eru nú snið- gengnir af flokknum eftir að þeir sátu hjá í atkvæðagreiðslu um til- lögu Majors að auka greiðslur til Evrópusambandsins. Þingmennirnir munu áfram sitja á þingi en eru nú taldir tilheyra stjórnarandstöðunni, þrátt fyrir að fastlega sé reiknað með því að þeir muni styðja forsætisráðherrann í ýmsum málum. Níundi þingmaður- inn, Sir Richard Body, sagði sig sjálfviljugur undan flokksaga og því nýtur stjórnin stuðnings 321 þing- manns en stjórnarandstaðan 325. Þetta er þriðja breska minni- hlutastjórnin, hinar fyrri voru báðar stjórnir Verkamannaflokksins, sú fyrri á árinu 1974 og sú síðari 1977- 1979. Vald beggja var mjög tak- markað en ekki er búist við því sama nú, þar sem aðeins er um „tæknilegan" minnihluta að ræða. Þá segja ráðgjafar Majors hann hreint ekki reiðubúinn að sætta sig við tilslakanir. Búist er við því að áttmenning- arnir muni hlíta flokksaga að nýju eftir einhvern tíma. Bardagar halda áfram í Kákasushéraðinu Tsjetsjníu Moskvustj órnin setur deiluaðilum úrslitakosti Moskvu. Reuter. Hyggist Jeltsín lýsa yfir neyðar- lögum verður hann fyrst að fá samþykkt þingsins. Pavel Gratjsov, varnarmálaráðherra Rússlands, segir að fallhlífaher- menn gætu tekið Tsjetsjníu á nokkrum klukkustundum. Þrátt fyrir ummæli Gratjsovs óttast margir að erfitt geti reynst að buga Dúdajev og menn hans, minningin um 13.000 Rússa sem féllu í Afganistan, lifir enn. í Tsjetsjníu er hefð fyrir því að full- orðnir karlar gangi að staðaldri vopnaðir. Glæpahreiður Rússar telja flestir að Tsjetsjn- ía, sem er olíuauðugt hérað, sé hreiður hryðjuverkamanna og glæpagengja en , glæpasamtök Tsjetsjna eru öflug víða í Rúss- landi. Er Dúdajev lýsti yfir sjálf- stæði síðla árs 1991 reyndu stjórn- völd í Moskvu að setja neyðarlög í héraðinu en það mistókst vegna ringulreiðarinnar í Russlandi og vinsældir Dúdajevs urðu meiri en ella meðal Tsjetsjna sem eru lítil múslimaþjóð er barðist af hörku á síðustu öld gegn yfirráðum Rússa. BORIS N. Jeltsín Rússlandsforseti segir að gripið verði inn í átökin í Kákasushéraðinu Tsjetsjníu ef ekki verði samið þar um vopnahlé og afvopnun á næstu sólarhring- um. „Vonin um að íbúar Tsjetsj- níu muni sjálfir fínna lausn á inn- anlandsátökunum er að verða að engu“, sagði í yfirlýsingu forset- ans í gær. Jafnframt var sagt að neyðarlög yrðu sett í héraðinu og „öllum ráðum“ beitt til að binda enda á átökin ef deiluaðilar létu sé ekki segjast. Þótt það væri ekki sagt beinlín- is í yfirlýsingu Jeltsíns var gefið í skyn að rússneska hernum yrði beitt í Tsjetsjníu. Uppreisnarmenn þar sem beijast gegn Dzhokar Dúdajev, forseta héraðsins, er lýst hefur yfir sjálfstæði gagnvart Rússlandi, hafa farið halloka í hörðum bardögum við stjórnarliða að undanförnu og mannfall verið mikið. Fallhlífaherliði beitt? Dúdajev fullyrðir að um 70 rúss- neskir hermenn séu 'meðal fanga sem stjórnarherinn hefur tekið og viðurkenndu embættismenn í Moskvu á mánudag að sumir Rússanna hefðu verið í hernum en þeir hefðu farið til héraðsins af sjálfdáðum. Moskvustjórnin krefst þess að Rússunum verði sleppt en Dúdajev hefur hótað að taka þá af lífi. „Hvað munu Rúss- ar ségja um ríkisstjórn sem lét hjá líða að vernda syni þjóðarinnar?“ spurði Moskvublaðið Ízvestíja í gær. 100.000 hestafla bifreið KAPPHLAUP þriggja aðila um að rjúfa hljóðmúrinn á bifreið stendur nú yfir. Að smiði einnar bifreiðarinnar stendur Bretinn Richard Noble sem ekið hefur hraðar en nokkur annar, eða á 1.046 kílómetra hraða. Það af- rek vann hann 1983. 1290kmhraði Bifreið Noble verður knúin tveimur Rolls-Royce Spey 202 þotuhreyflum, sem síðast voru í notkun sem aflvélar tveggja Phantom-orrustuþotna í Persa- flóastríðinu. Saman framleiða þeir rúmlega 100.000 hestöfl og ættu að geta knúið bifreiðina á 1.290 kílómetra hraða, en hljóðmúrinn er við um 1.152 km/klst. hraða. Sérfræðingur í flugeðlisfræði eldflauga hefur hannað bifreiðina sem mun líta út sem næst því sem sjá má á teikningunni. Auk Noble vinnur McLaren kappaksturssveitin í Sviss og Bandaríkjamaðurinn Craig Breedlove, sem fimm sinnum hefur sett hraðakstursmet, að smíði hljóðfrárra bifreiða. Lestar- ræningi heng’ir sig BUSTER Edwards, sem af- plánaði fangelsisdóms vegna frægs lestarráns, fannst látirtn í bílskúr sínum í Lundúnum í gær eftir að hafa hengt sig. Edwards starfaði síðustu árin sem blómasali í Waterloo-stöð- inni í Lundúnum. Hann tók þátt í að ræna póstpokum úr lest árið 1963 og ránsfengur- inn er metinn á þijá milljarða króna að núvirði. Quayle á sjúkrahús DAN Quayle, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, var fluttur á sjúkrahús í Indi- anapolis í fyrrakvöld vegna blóðstorknunar í lungum. Quayle átti við öndunarerfið- leika að stríða en er ekki talinn í lífshættu og fer að öllum lík- indum af sjúkrahúsinu eftir viku. Barnaveiki- faraldur ALLT að 40.000 börn munu fá barnaveiki í Austur-Evrópu og fyrrum Sovétlýðveldum á þessu ári, vegna skorts á bólu- efni, að sögn Sameinuðu þjóð- anna. Flest tilvikin hafa komið upp í Rússlandi, Hvíta-Rúss- landi og Úkraínu. Selarann- sóknamönn- um mútað? HÁSKÓLINN í Tromso hyggst reyna að komast til botns í því hvort bandarísk umhverfis- verndarsamtök hafi reynt að múta norskum vísindamönn- um sem stunda rannsóknir á selum og selveiði. Alþjóðlegi dýraverndarsjóðurinn IFAW hefur boðið rússneskum vís- indamönnum 300 dollara á mánuði fyrir að sinna ekki selarannsóknum. Hefur þeim verið heitið slíkum greiðslum í þrjú ár gegn því að veiða hvorki sel í vísindaskyni né stunda aðrar rannsóknir á þeim. 300 dollarar á mánuði er miklu meiri fjárhæð en rúss- neskir vísindamenn fá í kaup og hafa tveir starfsmenn Pinro tekið boði IFAW. 233 farast í eldsvoða í Kína Gróðafíklar hunsa öryggisrcglur Pcking. Reuter. TALIÐ er að alls hafí 233 farist er eldur kom upp í þéttskipuðu danshúsi í borginni Fuxin í Norð- austur-Kína í gær. Þótt eldurinn væri slökktur á nokkrum mínútum dugði það ekki til, flestir munu hafa látist fljótt af völdum reyk- eitrunar frá brennandi efni í inn- réttingum og húsbúnaði. Embætt- ismenn í Peking segja að eldsvoð- um hafi fjölgað mjög síðustu árin vegna þess að óprúttnir, kínversk- ir kaupsýslumenn hunsi öryggis- reglur. Húsið sem brann var aðeins rúmlega 300 fermetrar að stærð, ekki var vitað í gær hvort neyðar- dyr voru nógu margar eða að- gengilegar. Slökkviliðsmenn björguðu 16 manns sem sluppu með brunasár. Talsmaður slökkviliðs Peking- borgar taldi að eldsvoðinn væri hinn mannskæðasti í landinu frá því að liðlega 600 manns fórust er kviknaði í kvikmyndahúsi í Xinj- iang-héraði í Norðvestur-Kína árið 1979. Um það leyti var leiðtogi landsins, Deng Xiaoping, að ýta markaðsumbótastefnu sinni úr vör. Stjórnandi hússins í Fuxin, sem tók það á leigu hjá yfirvöldum, slapp óskaddaður en var hafður í gæsluvarðhaldi meðan verið var að rannsaka málið. 1ÖL¥II¥ÍL WEÁ HUSQYAIMÁ jfcvÓLUSTEINN Faxafen 14, Sími 889505 (h) Husqvarna ÖRKIN 2096-27-4 FACETTE 500 QUILTING Nýjasta tölvuvélin frá Husqvarna. Sérstakir saumar fyrir bútasaum. Þrjár gerðir af hnappagötum. Mœlir eftir stœrð tölunnar. Saumar bók- og tölustafi, flatsaum, kúnststopp o.fl. Þrjár hraðastillingar og nálastoppstilling. Námskeið og íslenskur leiðavísir. Verð 67.823 - kr. stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.