Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 10

Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Þjófahylur í Gljúfurá. Franskur stuðn- ingur við Orra FRANSKA ríkisstjórnin hefur nú formlega lýst yfir stuðningi við úthafskvótakaupanefnd Orra Vig- fússonar, NASF. Það var tilkynnt á blaðamannafundi í Frakklandi nýlega. Samhliða að styðja við bakið á NASF ætlar franska ríkið að leggja háar fjárhæðir til upp- byggingar laxastofna í Frakk- landi, en fyrr á öldum gekk þar lax í margar ár, ekki síst á Bretag- neskaga og raunar víðar. Netalagnir í sjó í ósamræmi við verndun Tvær ályktanir voru samþykkt- ar á ársþingi Landssambands stangaveiðifélaga fyrir nokkru. Varðaði önnur laxveiðar í sjó við strendur landsins og hin ágreining um Poka- sjóð Landvemdar. í fyrri ályktuninni er skorað á landbúnaðar- __________ ráðherra að hann beiti sér fyrir því að netalagnir til lax- veiða í sjó verði keyptar upp eða leigðar til upptöku nú þegar. „Hér er fyrst og fremst átt við netalagn- ir frá jörðunum Kúludalsá og Innra-Hólmi við Hvalfjörð svo og lagnir frá jörðunum Lambastöð- um, Þursstöðum og Rauðanesi í Borgarfirði. Veiðar þessar eru í hróplegu ósamræmi við frum- kvæði íslendinga að vemdun lax í sjó, sem vakið hefur athygli á alþj óðavettvangi. “ Háar fjárhæð irtil uppbygg- ingar laxa- stofna í Frakklandi í hinni ályktuninni er harmaður sá ágreiningur sem kominn er upp um fjármögnun og verkefni Poka- sjóðs Landverndar. „Aðalfundur- inn skorar á stjórn Landverndar, Kaupmannasamtökin, Samvinnu- verslunina og Hagkaup að leita leiða til að tryggja áframhaldandi starfsemi Pokasjóðs Landvemdar, þannig að verndun umhverfis megi áfram njóta góðs af þessu lofsverða átaki." Stefnir í baráttu í stjórnarkjöri í SVFR Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur var haldinn á Hótel Loftleiðum á sunnudag. í stjóm- arkjöri hlaut Friðrik Þ. Stefánsson formaður rússneska kosningu tii næsta árs. Hiti var hins_ vegar í kjöri um sæti þeirra Ólafs H. Olafssonar varaformanns, Krist- jáns Guðjónssonar og Þórólfs Halldórssonar. Þeir náðu allir endur- kjöri, en Magnús Jónas- son umboðsmaður Orvis á íslandi bauð sig einnig fram. Beindist framboð ________ hans gegn Þórólfí Hall- dórssyni, en óánægju gætti með áframhaldandi setu hans í stjóm, þar sem hann hefur flutt til Patreksfjarðar og situr þar nú sem sýslumaður. Töldu ýmsir hann ekki í aðstöðu til að starfa af þeim krafti sem nauðsynlegur er vegna búsetu sinnar. Samþykkt voru frávik frá auglýstri dagskrá fundarins og opnuð var mælenda- skrá áður en kjörið fór fram. Þar tóku ýmsir til máls og féllu stór orð. Það breytti þó engu um að Þórólfur hélt velli. Vesturbær - við sjávarsíðuna Bráðhugguleg og skemmtilega endurnýjuð 4ra herb. íbúð á 1. hæð í þríbýli við Sörlaskjól. Nýtt parket og innréttingar. Hús í góðu standi. Ahvílandi 3,1 millj. Verð 8,5 millj. Hún gæti farið fljótt þessi! HÓLL, fasteignasala, sfmi 10090. Grafarhoit - einbýli við golfvöllinn Vorum að fá í sölu um 250 fm húseign, auk 70 fm vinnu- stofu á frábærum útsýnisstað í Grafarholti. Húsið skipt- ist í stofur og 5 svefnh. Falleg ræktuð lóð. Einstakt tækfæri fyrir golfara. EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, s. 19540og 19191. FRÉTTIR íslensk sendinefnd kynnir sér þörf á uPPbyggingu í Palestínu Uggvænlegt ástand skapast á Gazasvæðinu „ALLT SEM við teljum nauðsynlegt til að lifa er hér í lama- sessi,“ sagði Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráð- herra, er Morgunblaðið náði tali af honum í Palestínu, þar sem hann var ásamt Magnúsi Péturssyni, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneyti, og Guðmundi Árnasyni, deildarstjóra í forsætisráðuneyti. Þegar Morgunblaðið náði tali af Þresti í fyrrakvöld, hafði ís- lenzka sendinefndin þá átt fundi með ráðamönnum, þeirra á meðal Hamal, aðalað- stoðarmanni Yassers Arafat; næstæðsta yfir- manni í ráðu- neyti því sem fer með uppbygg- ingu á svæðinu; borgarstjór- anum í Gaza; formanni félags útgerðarmanna og formanni _ verslunarráðs. í fyrradag átti sendinefndin fund með fulltrúum utanríkisráðuneytis ísraels og kynnti fyrirætlanir Islendinga. Að sögn Þrastar hafa allir viðmælend- umir hafa reynst vinsamlegir og jákvæðir í garð íslendinga. 92 milljónir frá fslandi Þröstur sagði að ríkisstjórnin hefði ákveðið að skipta þeim 92 milljónum, sem veija á til upp- byggingar í Palestínu, þannig að þriðjungur renni renni í gegnum alþjóðlegar stofnanir til fjölþjóða- aðstoðar. Afgangurinn renni til aðila beint á svæðinu í gegnum tvíhliða aðstoð. 10 milljónir hafa runnið til verkefna ráðgjafastof- unnar A1 Wadi, sem stofnsett var af þremur íslenskum verkfræði- stofum í samvinnu við arabíska aðila. Engin ákvörðun liggur fyrir um ráðstöfun þeirra 52 milljóna sem eftir standa og verður hún ekki tekin fyrr en sendinefndin kemur heim. „Við höfum safnað upplýsingum um það sem hefur gengið þokkalega og það sem hef- ur gengið illa. Þótt framlag okkar sé ekki stórt verðum við að skoða vandlega hvernig þessu verður best varið.“ Tímasprengjan tifar Að sögn Þrastar er mjög alvar- legt ástand að skapast á Gaza svæðinu og brýnt að aðstoð berist sem fyrst. Þar er ekki hungur, en skortur á flestu öðru. „Menn ótt- ast að tímasprengjan sé að springa í höndunum á þeim,“ sagði Þröst- ur. „Kjör fólks hafa ekki batnað, heldur þvert á móti hríðversnað eftir að samkomulagið var undir- ritað og heimastjórn komst á.“ Hann segir að ísraelsmenn hafa svarað öllum hermdarverkum af mikilli hörku og lokað landamær- unum. Þannig hafí yfir 100 þúsund verkamenn frá Gaza stundað vinnu í Israel en nú fái um 10 þúsund manns að fara yfir og er 58% atvinnuleysi á Gaza. í dag stendur til að sendinefnd- in fari til fundar við borgarstjór- ann í Nablush og yfirmann lög- regluliðs Yassers Arafats í Jeríkó. Tilgangurinn er að kynna sér ástandið á Vesturbakkanum, Nablush er palestínskt svæði en undir ísraelsstjórn en Jeríkó er undir heimastjórn. Þröstur segir að þjóðir heims hafí lofað aðstoð sem svarar um 700 milljónum bandaríkjadala en af því hafa aðeins borist um 60 milljónir dala. Þeir fjármunir hafa einkum farið til að halda uppi lög- um og reglu á svæðinu. Ekki er von um að úr rætist fyrr en meira fjármagn berst til uppbyggingar, að sögn Þrastar. Þröstur Ólafsson 21150-21370 LARUS Þ. VALDIWIARSSON. framkvæmdastjori KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu - fjöldi annarra eigna á skrá: Glæsileg eign - úrvalsstaður Steinhús ein hæð 153,8 fm nettó v. Kvistaland. Innr. og tæki af bestu gerð. Stór sólverönd. Góður bílsk. 46 fm. Tilboð óskast. 3ja herb. hæð í Þingholtunum 3. hæð um 90 fm sólrík. Nýtt parket, nýtt gler. Góð langtlán um kr. 4,0 millj. Laus fljótlega. Á vinsælum stöðum í Vesturborginni Sólríkar 3ja og 4ra herb. íb. v. Meistaravelli og Hjarðarhaga. Tilboð óskast. Vinsamlega leitið nánari upplýsinga. í gamla, góða austurbænum endurbyggö 3ja herb. jarðhæö (ekkert niðurgr.) í nágr. Landspítalans. 40 ára húsnlán kr. 3,1 millj. Frábær greiðslukjör. Tilboö óskast. Skammt frá Vesturbæjarskóla mjög góð efri hæð í þríbhúsi um 155 fm. Smíðaár 1967. Góður bílsk. m. geymslu 37,4 fm. Skipti æskil. á góðri 3ja-4ra herb. íb. í borginni eða nágr. Laus strax. Tilboð óskast. Á söluskrá óskast m.a.: 2ja-5 herb. íb. í Vesturborginni, í grennd við nýja miðbæinn, í Smáíbúða- hverfi eða Fossvogi. Eignir í gamla bænum af ýmsum stærðum. Mega þarfnast endurbóta. Raðhús með 5-6 herb. íb. og tvöf. bílsk. Traustir kaupendur. Góðar greiðslur fyrir rétta eign. Góð einbhús, raðhús og sér- hæðir ískiptum. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. AIMENNA FASTEIGNASAIAW LAUGAVEG118 SlMAR 21150-21370 Átakið Stöðvum unglingadrykkju Breytt við- horf til unglinga- drykkju nauðsyn ÁTAKIÐ stöðvum unglinga- drykkju hefur sent frá sér blað í dagblaðsformi, sem gefið er út í 94 þúsund eintökum, og verður það sent inn á hvert heimili í land- inu. Með blaðinu verður dreift happdrættismiða, en happdrætt- inu er ætlað að standa straum af kostnaði við rekstur átaksins, en frumkvæði að því áttu foreldra- samtökin Vímulaus æska og Fræðslumiðstöð í fíknivörnum. Verndari átaksins er frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands. í blaðið skrifa alls 23 einstakl- ingar um ungl- ingadrykkju og skyld mál, en blaðið er 28 blaðsíður. Um 80 aðilar eiga aðild að blaðinu. Vinningar í happdrættinu eru 10 Fiat Punto-bifreiðar, en að sögn for- svarsmanna átaksins er kostnaður við happdrættið um 2% af miða- verðinu, ef frá eru taldir vinning- arnir, sem fengust með hagstæð- um kjörum. Átakið stendur í eitt ár Átakir.u Stöðvum unglinga- drykkju er ætlað að standa yfir í eitt ár, en hvatinn að stofnun þess er hin mikla og opinskáa drykkja barna og unglinga, nú síðast vegna mikillar aukningar í brugg- un landa og sölu á honum til barna og unglinga, segir í frétt frá átak- inu. Markmiðið er fyrst og fremst að koma á viðhorfsbreytingu hjá þjóðinni hvað varðar áfengis- drykkju barna og unglinga og gera mönnum umbúðalaust grein fyrir þessu vandamáli. í fréttatil- kynningu aðstandenda átaksins segir: „Við blasir sú nöturlega staðreynd að drykkja meðal barna pg unglinga er mjög almenn á íslandi. Þetta ástand hefur verið að festa sig í sessi undanfarin ár og jafnvel er farið að líta á það sem náttúrulögmál. Því verður aðeins breytt með sameiginlegu átaki allrar þjóðarinnar, hreinlega þjóðarvakningu.“ Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarni málsins! Forsíða blaðs átaksins Stöðvum ung- lingadrykkju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.