Morgunblaðið - 30.11.1994, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Matsverð fasteigna
hækkað um 2-10%
YFIRFASTEIGNAMATSNEFND
hefur ákveðið að matsverð fasteigna
hækki almennt um 2% frá og með
1. desember en þó með mörgum und-
antekningum. Þannig mun matsverð
íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Keflavík,
Njarðvík, Grindavík, Sandgerði,
Vatnsleysustrandarhreppi hækka um
10%. Þá mun matsverð á Akranesi,
Borgamesi, ísafirði, Akureyri, Dal-
vík, Egilsstöðum, Hornafírði og Sel-
fossi hækka um 6%.
Að sögn Magnúsar Ólafssonar,
forstjóra Fasteignamats ríkisins, mið-
ast fasteignamatið við staðgreiðslu-
verð. Stofnun safnar saman kaup-
samningum og ber síðan kaupverð
saman við gildandi fasteignamat.
„Það sýndi sig á þessum stöðum að
fasteignamatið var of lágt og þess
vegna verða þessar sérstöku hækk-
anir.“
Hann tók fram að endanleg hækk-
un yrði ekki jafnmikil í flestum tilvik-
um vegna fyminga. Almenna hækk-
unin yrði á bilinu 0-1% á fasteigna-
mati íbúðarhúsnæðis og fasteigna-
mat atvinnuhúsnæðis héldist nánast
óbreytt. Sömuleiðis yrðu endanlegar
hækkanir á þeim stöðum þar sem
fasteignamatið hækkaði um 6% og
10% eitthvað minni af sömu ástæðu.
................-—j,-----
Lyfjaverslun Islands
skráð á Verðbréfaþingi
Á STJÓRNARFUNDI Verðbréfa-
þings í gær var samþykkt að taka á
skrá hlutabréf Lyfjaverslunar íslands
hf. Þar með hafa 22 félög hlotið
skráningu hlutabréfa sinna á þinginu,
en nýlega vom skráð þar bréf Skelj-
ungs hf., Sfldarvinnslunnar hf., Har-
aldar Böðvarssonar hf. og Olíufélags-
ins hf. Markaðsverðmæti hlutabréfa
á skrá em áætluð rúmlega 31 millj-
arður króna.
Á árinu hafa 102 flokkar skulda-
bréfa og 3 flokkar hlutdeildarskír-
teina verið teknir á skrá á þinginu.
Alls em nú 224 flokkar skuldabréfa
skráðir á þinginu og 6 flokkar hlut-
deildarskírteina. Markaðsverðmæti
þessara flokka er um 182 milljarðar
króna. Viðskiptj það sem af er árinu
pema nú rúmlega 82 milljörðum
króna og er það um 9% aukning
miðað við öll viðskipti síðasta árs.
í frétt frá þinginu er það gagnrýnt
að aðilar sem hyggist sækja um
skráningu skulda- eða hlutabréfa lýsi
því yfír að bréfin verði skráð á þing-
inu. Þess séu dæmi að slíkar yfirlýs-
ingar séu gefnar t tengslum við sölu
bréfa, án þess að skráning hafi verið
undirbúin að einhveiju marki. Bent
er á að stjóm þingsins taki ein
ákvörðun um það hvaða bréf séu
skráð á þinginu og því sé það ekki
á valdi annarra að lýsa slíku yfir.
Vöruútflutningur jókst um 11% fyrstu tíu mánuði ársins
Afgangur á vöruskiptum
15,3 milljarðar
FLUTTAR voru út vömr fyrir 9,3
milljarða kr. í októbermánuði og inn
fyrir 11,1 milljarð kr. fob. Vöm-
skiptin í október voru því óhagstæð
um 1,8 milljaða kr. en í október
1993 vom þau hagstæð um 2,0
milljarða kr. á föstu gengi.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs voru
fluttar út vörar fyrir 91,6 milljarða
króna en inn fyrir 76,3 milljarða
króna fob. Afgangur var því á vöru-
skiptunum við útlönd sem nam 15,3
milljörðum króna en á sama tíma
í fyrra vora þau hagstæð um 11,8
milljaða króna á föstu gengi. Miðað
er við meðalgengi í viðskiptavog; á
þann mælikvarða var meðalverð
erlends gjaldeyris í janúar-október
1994 5,9% hærra en árið áður.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs var
verðmæti vöruútflutningsins 11%
meira á föstu gengi en á sama tíma
árið áður. Sjávarafurðir vom 78%
alls vömútflutningsins og var verð-
mæti þeirra 8% meira en á sama
tíma í fyrra. Þá var verðmæti út-
flutts áls 31% meira en á sl. ári en
kísiljárns 10% minna.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fyrstu tíu mánuði þessa árs var 8%
meira á föstu gengi en á sama tíma
árið áður. Að frátalinni sérstakri
fjárfestingarvöra (skip, flugvélar,
Landsvirkjun), innflutningi til stór-
iðju og olíuvörum reyndist annar
vörainnflutningur hafa orðið 5%
meiri á föstu gengi en árið áður.
Þar af jókst innflutningur á mat-
vöra og drykkjarvöru um 11%,
fólksbílainnflutningur dróst saman
um 5%, innflutningur annarrar
neysluvöru var 2% meiri en í fyrra
en innflutningur annarrar vöru
jókst um 6%.
VÖRUSKI PTWÍú , - VIÐ UTLOMD Verðmæti vöruút- og innfiutnings ^ / jan.- okt. 1993 og 1994 1993 1994 breyíng á (fob virði í milljónum króna) jan.-okt. jan.-okt. föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 77.759,9 91.593,3 11,2
Sjávarafurðir 62.585,4 71.660,0 8,1
Ál 6.309,9 8.760,9 31,1
Kísiljárn 2.015,1 1.919,5 -10,1
Skip og flugvétar 543,4 963,2 67,4
Annað 6.306,1 8.289,7 24,1
Innflutningur alls (fob) 66.591,9 76.297,5 8,2
Sérstakar fjárfestingarvörur 1.255,0 3.758,6 182,8
Skip 766,6 3.610,8
Flugvélar 174,3 105,3
Landsvirkjun 314,1 42,5
77/ stóriðju 3.834,8 4.535,6 11,7
íslenska álfélagið 3.368,7 4.032,7 13,0
íslenska járnblendifélagið 466,1 502,9 1,9
Almennur innflutningur 61.502,1 58.003,3 4,4
Olfa 5.831,1 6.061,7 -1,8
Matvörur og drykkjarvörur 6.468,3 7.594,9 10,9
Fólksbílar 2.872,3 2.884,4 -5,2
Aðrar neysluvörur 14.953,7 16.160,7 2,1
Annað 31.376,7 35.301,6 6,2
Vöruskiptajöfnuður 11.168,0 15.295,8
Án viðskipta íslenska álfélagsins Án viðskipta íslenska álfélagsins, íslenska járnblendifélagsins 8.226,8 10.567,6
og sérstakrar fjárfestingarvöru 7.389,4 11.946,4
• Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog; á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris 5,9% hærra I jan.-okt. 1994 en á sama tlma árið áður. —
A
AUÐLIND HF.
Tilkynning um almcnnt hlutafjárútboð Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf.
Nafnverð hlutabréfanna: 123.380.216 kr.
t
Sölutími er-30. nóvember 1994 til 30. maí 1995.
Á útgáfudcgi er sölugengi hlutabréfanna 1,17 en breytist ú útboðstímanum í samræmi
við breytingar á markaðsvcrðmæti eigna félagsins.
Kaupþing hf„ Kaupþing Norðurlands hf, afgrciðslur sparisjóðanna og Búnaðarbanka
íslands.
Eldri hlutabréf Hiulabréfasjóðsins Auðlindar hf. eru skráð á Verðbréfaþingi íslands
og hefur félagið einnig óskað eftir skráningu á hlutabréfunum sem verða gcfin út í
þessu útboði. Þess er vænst að bréfin verði skráð I lok sölutímabilsins.'
Kaupþing hf., sem sér einnig um milligöngu við Vcrðbréfaþing íslands fyrir félagið.
Hver hlutur er ein króna. Þeir aðilar scm kaupa fyrir 250.000 kr. eða minna að
söluverði, er heimilt að greiða 3/4 hluta með skuldabréfi scm cr útgefið á kaupdegi,
með 10 jöfnum mánaðarlegum grciðslum, sem ber meöalvexti Seðlabanka íslands á
hverjum tíma.
Útboðs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda.
KAUPÞING HF
löggilt verd b réfafyrirtœk i
Kringlcm 5, 103 Reykjavík - Sími 91-689080, telefax 91-812824
Sölutímabil:
Sölugengi:
Söluaðilar:
Skráning:
Umsjónaraðili útboðs:
Skilmálar sölunnar:
Hlutabréf boðin með
afborgunarkjörum
ÞRJÚ verðbréfafyrirtæki hafa
ákveðið að bjóða viðskiptavinum
sínum að kaupa hlutabréf á afborg-
unarkjörum fyrir áramót. Þannig
tilkynntu bæði Verðbréfamarkaður
íslandsbanka og Fjárfestingarfélag-
ið Skandia í gær að þau byðu við-
skiptavinum lán til kaupa á hluta-
bréfum á Verðbréfaþingi til allt að
24 mánaða. Þá hefur hlutabréfa-
sjóðurinn Auðlind hf. sem er í vörslu
Kaupþings boðið út nýtt hlutafé að
upphæð rúmlega 123 milljónir króna
og er mögulegt að greiða allt að
75% kaupverðs hlutabréfa með
FT4220
Ijósritunarvél
- Þessi netta
Áreiöanleg Ijósritunarvél
með mjög mikla möguleika, svo sem
að Ijósrita beggja vegna á pappírinn.
skuldabréfi til ellefu mánaða.
Vaxtakjör í þessum viðskiptum
era þó eitthvað mismunandi. Verð-
bréfamarkaður íslandsbanka býður
óverðtryggð lán til 12 eða 24 mán-
aða með mánaðarlegum afborgun-
um og fyrstu greiðslu í mars 1995.
Vextir verða breytilegir en eru nú
10,75%. Kaupandi þarf einungis að
greiða 20-30% af kaupverði bréf-
anna.
Hjá Fjárfestingarfélaginu
Skandia hf. er farið fram á 20%
útborgun en afganginn má greiða
með svonefndum boðgreiðslum Visa
og Eurocard. Lánið ber vexti en er
án lántökukostnaðar. Áskilið er að
hlutabréfin verði höfð að handveði
hjá Skandia þar til greiðslu lýkur.
Hjá Kaupþingi er miðað við með-
alvexti sem Seðlabankinn reiknar
út á hveijum tíma. Hámarkskaup
með þessum greiðslukjörum eru 250
þúsund krónur og er skuldabréf sem
gefið er út að hámarki 187.500
krónur.
Einstaklingar eiga kost á tæplega
42 þúsund króna skattafslætti með
því að kaupa hlutabréf fyrir 125
þúsund krónur. Hjón sem kaupa
hlutabréf fyrir 250 þúsund krónur
fyrir áramót eiga þannig rétt á end-
urgreiðslu á tekjuskatti sem nemur
um 84 þúsund krónum. Til þess að
skattaafslátturinn verði ekki afturk-
ræfur þarf að eiga hlutabréfin í 3
ár en hægt er að selja bréfin ef
keypt eru ný í staðinn innan 30
daga. Skattafslátturinn getur orðið
enn hærri þar sem 80% af kaup-
verði bréfanna kemur til frádráttar
tekjum einstaklinga. Þannig geta
hlutabréfakaupin haft áhrif á
greiðslufjárhæð námslána og út-
reikning á vaxtabótum og barnabót-
um.