Morgunblaðið - 01.12.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 17
' TILBOÐIN
—Y*-—' KJÖT & FISKUR GILDIR FRÁ 1. TIL 8. DES.
Reyktur svínabógur 649 kr.l
Nautagúllas 790 kr.
Svínainnanlæri 1.090 fcr.l
500 g kókosmjöl 83 kr.
800 g Nesquik kókómalt 319 kr.i 209 kri
400 g Nesquik kókómalt
j 4 teg. Axa músli 149 kr.l
3teg. súper-sultur 65 kr.
10-11 BÚÐIRNAR
QILDIR FRÁ 1. TIL 7. DES.
fiamDorgarnryggur Lambalæri og -hryggir Kg t>yo Kr. j kg 498 kr
’/z lambaskrokkur kg 348 kr.j
Hveiti 2 kg 48 kr.
Sykur1 kg 48 kr.j
Smjörlíki 500 g 48 kr.
Smarties 150 g 99 kr.]
Macintosh 750 g dós 898 kr.
NÓATÚNSBÚÐIRNAR
GILDIR FRÁ 1. TIL 4. DES.
Rauðvínslegnir lambahryggir kg 629 kr.
Sænskt gæðakaffi 250 g 129 kr.
Bassets lakkriskonfekt 1 kg 399 kr.l
Shop Rite bandar. hveiti 2,23 kg 89 kr.
Sun Glory appelsínu- og epladjús 1 49 kr.i
Uppþvottaiögur 1 I 49 kr.
Ostaskeri 198 kr.|
Pizzaskeri 198 kr.
F & A GILDIR FRÁ 1. TIL 7. DES.
Playmobil sirkus 3.990 kr.:
After Eight 825 g 873 kr.
Schmidt kakó 250 g 129 kr.
Premier-kaffi 500 g 189 kr.
Noels hvítlaukssósa 480 g 430 kr.
Kleneex bréfþurrkur 19 kr.
Matvælaplast 15 m 83 kr.]
Jólapappír50 arkir 286 kr.
FJARÐARKAUP GILDIR FRÁ 1. TIL 3. DES.
Frosin ýsuflök kg 298 kr.l
Bayonneskinka kg 795 kr.
Rjómaís 1,51 285 kr.
Piparkökudropar 500 g 198 kr.
Piparkökur400g 139 kr.i
Konfekt 400 g 395 kr.
Ostarúllur5teg. 115 kr.
Jólakort 20 stk. (12,95 per stk.j 259 kr.
BÓNUS Sórvara f Holtagörðum Samlokugriil fyrir 2 samlokur 1.975 kr.
Team krullujárn 497 kr.
Team þrauðrist m/þeyglugrilli 1.790 kr.j
Handþeytari + hrærivél 2.390 kr.
Gufustraujárn m/úðara 1200w 1.890 kr.
Alba ferðatæki með útvarpi, kassettu + CD-spilara 13.975 kr.
I Karaoke-tæki 7.500 kr. Diskettur 11 stk. 3,5“ HD + diskéttubox649 kr.
[Vinnuskyrtur 100% bómull 579 kr.
Hettuhandklæði og smekkur 297 kr.
BÓNUS GILDIR FRÁ 1. TIL 8. DES. [ Bónus súkkulaðihjúpur dökkur/ljós 59 kr.;
Goði kindahakk 239 kr.
Goði ömmusteik 369 kr.
Bakara létt og mett-brauð 99 kr.
Frón piparhnappar 400 g 139 kr.
Premium gold-kaffi 500 g 169 kr.
Blómkál 49 kr.
Jólapappír 70x2 m 39 kr.
Piparkökur
ogjólakort
PIPARKÖKUR og sælgæti og ýmsar
jólavörur setja svip á tilboðin núna.
Vert er að minna á Frón-piparhnappa
í Bónus á 139 kr. 400 g og 10 jólakort
í Fjarðarkaupum kosta 259 kr. eða
12,50 stk. sem er ódýrt.
HAGKAUP Skeifunni, Akureyri, Njarðvík, Kringlunni GILDIR FRÁ 1. TIL 7. DES. - matvara
Opal bökunarkassi 599 kr.
Kjarnabökunarsulta900g4teg. fatan 159 kr.
Finax hveiti 2 kg 45 kr.
Findus lasagne 645 g 199 kr.
Hvítlauksbrauð fín og gróf 99 kr.
Fanta Lemon 21 99 kr.
Tilda hrísgrjón í suðupoka 250 g 49 kr.
Ostarúllur6teg. rúllan 129 kr.
HAGKAUP sveiflu tilboð
Eldvarnarbrúsi Meteor 349 kr.:
Jólaskraut fyrir glugga 199 kr.
Ungbarnasamfella 169 kr.
Tennissokkar 10 í pakka
barna og fullorðins 499 kr.
Jólatré 30 sm 199 kr.i
Ofnpottar stórir 1.495 kr.
Ofnpottar minni 895 kr.
Heklaðar töskur 3 teg. 989 kr.
KEA NETTÓ GILDIR FRÁ 2. TIL 4. DES.
DirmerMmt 250 g 249 kr.
Skafís 2 I 339 kr.
Voga ídýfa m/kryddbl. 79 kr.
Flóru bökunarsmjörl. 500 g 67 kr.
Swiss Miss kakó 120 g 279 kr.
Svínakótilettur kg 879 kr.
Lasagna kg 397 kr.
Svikinn héri kg 397 kr.
11-11 BÚÐIRNAR QILDIR FRÁ 1. TIL 6. DES.
Folaldasaltkjöt kg 298 kr.
Lambasaltkjöt 1. fl. kg 499 kr.
Marineruð stld 850 g 219 kr.
Rúsínur500g 99 kr.
Flóru kakó 400 g 185 kr.
Korn Flakes 500 g 149 kr.
GARÐAKAUP GILDIR TIL 2. DES
Krydduð svínaherðabtóð í heilu kg 565 kr.
Frosin ýsuflök kg 415 kr.
Beauvais súrar gúrkur í sn. 560 g 115 kr.;
Beauvaissúrargúrkurl kg 198 kr.
Kiwi 98 kr.
Robin appelsínur 85 kr.
Kitchen hnífasett 10 stk. 1.290 kr.
Kitchen hnífasett 5 stk. 698 kr.
ÞINGEY HÚSAVÍK GILDIR 2. TIL 4. DES.
Ferskjur heildós 69 kr.
Jarðarber heildós 159 kr.
Perur heildós 89 kr.
Blandaðir ávextir heildós 95 kr.
Beauvais rauðrófur 75 kr.
Sveppir400g 79 kr.
Maískorn 59 kr.
RúsínurSOOg dós 89 kr.
Samtök launþega semja um lækkuð fargjöld og ódýrari hótelgistingu
Hvatttil
ferðalaga
á veturna
FLUGLEIÐIR selja 5.200 sæti á 5.200
kr. fram og til baka á öllum flugleiðum
nema til Eyja, en þangað verður 1.000
kr. ódýrara. Fyrir börn 2ja-12 ára er
flugmiðinn eitt þúsund kr. ódýrari.
ÖLL helstu samtök launþega og
Samvinnuferðir-Landsýn hafa náð
samkomulagi við fjölmarga aðila í
ferðaþjónustu innanlands um að
bjóða farmiða, bílaleigubíla, gist-
ingu o.fl. á sérstöku stéttarfélags-
verði til að hvetja menn til ferða-
laga innanlands yfir veturinn.
Þetta er framhaldi ferðaátaksins
„ísland — sækjum það heim“, sem
mæltist vel fyrir og varð til að fjöl-
margir lögðu sitt eigið iand undir
fót. Pétur Maack í ferðamálanefnd
ASÍ, sagði að það væri nýnæmi að
hvatt væri sérstaklega til ferðalaga
innanlands að vetrarlagi, en óhætt
að fullyrða að þá skartaði Island
oft sínu fegursta. Launþegasam-
tökin hafa nokkur undanfarin ár
boðið sérstök félagsfargjöld til út-
landa í samvinnu við Samvinnu-
ferðir-Landsýn, sem er að stórum
hluta í eigu launþegahreyfingar-
innar.
5.200 kr. með flugi
Því munu Flugleiðir í vetur bjóða
5.200 sæti á 5.200 kr. fram og til
baka á öllum innanlandsleiðum sín-
um nema til Vestmannaeyja en
þangað er fargjaldið 1.000 kr.
lægra. Til samanburðar má geta
að almennt fargjald til Akureyrar
nemur 12.930 kr. og APEX-gjald
báðar leiðir 6.630 kr. Til Egilsstaða
er almennt flugfargjald 17.930 kr.
og APEX 8.130. I þessum tölum
er gert ráð fyrir flugvallarskatti.
BSÍ býður 50% afslátt á helstu
sérleyfisleiðum um land allt. Skv.
því kostar 3.500 kr. Reykjavík-
Akureyri til baka
Þá hafa náðst samningar við
ýmsa helstu gististaði. Scandic-hót-
elin, Loftleiðir og Esja bjóða við-
komandi félagsmönnum eins
manns herbergi á 3.300 kr. nóttin
og 2ja manna á 4.400 kr. Hótel
Örk í Hveragerði og Hótel Norður-
land á Akureyri bjóða gistingu fyr-
ir einn á 2.700 kr. og fyrir tvo
saman á 4.000 kr. Hótel Borgar-
nes, Hótel Reynihlíð í Mývatns-
sveit, Hótel Selfoss og Hótel
Bræðraborg í Vestmannaeyjum
bjóða gistingu fyrir tvo fyrir 2.000
kr. á mann og Hótel Flúðir býður
gistingu fyrir tvo á 3.600 kr. og
Nesbúð á Nesjavöllum býður gist-
ingu á 1.500 kr. á mann.
Morgunverður er yfírleitt
innifalinn.
Tvær bílaleigur eru þátt-
takendur í þessu. Eurocar
og Budget bjóða bílaleigu-
bíla á öllum viðkomustöð-
um Flugleiða. Þá taka ný-
stofnuð samtök um 40
gistiheimila þátt í ferðaá-
takinu, en innan Gistisam-
band'sins eru gistiheimili
og skálar um land allt.
Tilboð þessi ná til um
100 þúsund félaga í ASÍ,
Bandalagi háskólamanna,
þ.m.t. Félag ísl. hjúkrunar-
fræðinga, Stéttarfélag
verkfræðinga, Stéttarfélag
tæknifræðinga, Far-
manna- og fiskimanna-
samband íslands, Vél-
stjórafélag íslands, Sam-
band íslenskra banka-
manna, BSRB Landssam-
band aldraðra, Blaða-
mannafélag íslands og Kennara-
samband Islands.
I gildi út maí
Tilboðin standa út maímánuð,
en áhugi er á að hafa sérkjör á
ferðum og gistingu innanlands í
sumar. Fram -kom í máli Páls Hall-
dórssonar, forstöðumanns innan-
landsdeildar Flugleiða, að ekki
þyrfti að bóka far með ákveðnum
fyrirvara en sætafjöldi í hverri ferð
væri takmarkaður svo að betra
væri að panta í tíma. Dvelja þarf
á áfangastað í a.m.k. tvær nætur
en ekki þó lengur en í einn mánuð.
Matur í
mötuneyti
gæti verið
hollari
MANNELDISRÁÐ hefur gefið út
bæklinginn „Matreitt fyrir marga,“
sem dreift verður til stjórnenda og
starfsmanna mötuneyta á vinnu-
stöðum, dvalarheimilum, sjúkra-
stofnunum og í skólum. I inngangi
kemur fram að sama fólkið borðar
gjarnan eina eða fleiri af aðalmál-
tíðum dagsins í mötuneyti.
í aðfaraorðum til starfsfólks
mötuneyta og stóreldhúsa segir:
„Sá matur sem þú útbýrð og berð
á borð daglega hefur ekki aðeins
áhrif á líðan og lund fjölda manna.
Heilsa þeirra og starfsorka eru
beinlínis undir því komin að hollur
og góður matur sé í boði.“
Feitari matur en heima
Laufey Steingrímsdóttir for-
stöðumaður Manneldisráðs segir
erfitt að áætla fjölda þeirra sem
borða í mötuneytum að staðaldri,
en ætla megi að þeir skipti tugum
KANNANIR hafa sýnt fram á
að heitur matur í mötuneyti
er yfirleitt feitari en heitur
matur á heimili.
þúsunda. „Því er full ástæða til að
vanda matreiðsluna, ekki síst í ljósi
þess að samkvæmt könnun Mann-
eldisráðs á mataræði íslendinga frá
1990, fá þeir sem borða heita mál-
tíð í mötuneytum að jafnaði mun
feitari mat en hinir sem borða heita
matinn heima.“
í bæklingnum er hvatt til aukinn-
ar notkunar á grænmeti með heit-
um mat eða köldum og fjölbreyti-
legu viðbiti og áleggi. Bent er á
leiðir til að draga úr feitum mat
og færð rök fyrir því, meðal annars
með því að benda á að of mikil fitu-
neysla eykur líkur á fítu og ýmsum
langvinnum sjúkdómum.
Klipið af fitu
„Hægt er að klípa af fitunni með
því að nota léttmjólk í stað nýmjólk-
ur, kaffiijóma í stað ijóma og
blanda 10% af sýrðum ijóma eða
jafnvel súrmjólk í kaldar sósur. Með
þessu má klípa nægilega af fitunni
þannig að hún komist í hæfilegt
horf.“ Þá er 'nvatt til þess að velja
fremur mjúka fitu en harða. „Mjúk
fita er heppilegri að því leyti að hún
hækkar ekki kólesteról í blóðinu á
sama hátt og hörð fita. Matarolíur,
til dæmis maisolía, sojaolía, sól-
blómaolía og ólífuolía, eru dæmi
um mjúka fitu sem heppilegt er að
nota í staðinn fyrir smjörlíki þar
sem því verður við komið.“
Bæklingurinn er prentaður á
þykkan pappír og er 16 bls. Aftast
eru uppskriftir, annars vegar mið-
aðar við 10 skammta og liins vegar
við 100, þar sem sýnt er fram á
hvernig hægt er að setja saman
matseðill og taka tillit til þeirra
ábendinga sem fram koma í bækl-
ingum.