Morgunblaðið - 01.12.1994, Page 18

Morgunblaðið - 01.12.1994, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR: EVROPA # m • | I NÝR SVALA BRÆÐUR ERU KOMNIR A KREIK MUN MEIRI SAFI EN AÐUR. ENCINN HVÍTUR SYKUR. DAGSKAMMTUR AF C-VÍTAMÍNI í HVERJU CLASI. HVERJUM KASSA AF 1/4 LÍTRA FERNUM FYLGIR FALLECT JOLADAGATAL FYRIR BÖRNIN SEM SKREYTT ER SKEMMTILEGUM MYNDUM AF SVALA- BRÆDRUNUM FJÓRUM. »ÍTI»Ö B RAC DCODUR OC F R15 K FYRIR BÖRN OC FULLORÐNA 0 9 m • AN D I Síðasti fundurinn Reuter HELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, og Fran^ois Mitterrand, forseti Frakklands, áttu í gær sinn síðasta opinbera fund í Bonn. A undanförnum tólf árum hafa þeir Kohl og Mitterrand leitt samrunaþróunina í Evrópu og persónuleg vinátta þeirra ver- ið tákn um náið samstarf Þjóð- verja og Frakka. Leiðtogarnir tveir hafa hist á leiðtogafundi tvisvar á ári til þessa en á fyrri hluta næsta árs lætur Mitterrand af embætti. Velta margir fyrir sér hver framtíð hins þýsk- franska samstarfs verður. „Það munu eiga sér stað kynslóða- skipti í báðum ríkjunum. Ný kyn- slóð mun líta jafn tilfinninga- þrungnum augum á samskipti Þjóðverja og Frakka og taka meira tillit til þjóðarhagsmuna," segir Axel Sauder, hjá þýsku utanríkismálastofnuninni. Áhyggjur í norsku atvinnulífi Vilja gjalda- lækkanir og minni ríkishalla SAMTÖK norskra atvinnurekenda, NHO, hafa sent Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra bréf, þar sem lýst er yfir áhyggjum af framtíð atvinnulífsins vegna þess að aðild að Evrópusambandinu hef- ur verið hafnað. „Sænskir og finnskir keppinaut- ar hafa ti-yggt sér forskot. NHO óttast að bæði norskar og erlendar fjárfestingar muni fara til annarra landa og ekki fjölga norskum at- vinnutækifærum. I þessum kring- umstæðum verða norsk fyrirtæki að standa sig enn betur en keppi- nautar þeirra innan og utan ESB,“ segir í bréfinu. NHO lýsir yfir stuðningi við EES-samninginn og tilraunir stjórnvalda til að tryggja hann í sessi. Samtökin krefjast ýmissa að- gerða af hálfu stjórnvalda til að vega upp á móti verri samkeppnis- stöðu, sem þau telja fylgja því að standa utan ESB. Þau telja að minnka verði hallann á fjárlögum um a.m.k. sex milljarða norskra króna, eða 60 milljarða íslenzkra króna. Lækka verði launatengd gjöld fyrirtækja um 2%, afleggja ijárfestingargjald í áföngum fram til 1996, hækka afskriftarstuðul framleiðslutækja úr 20 í 30% og lækka umhverfis- og orkugjöld til samræmis við það, sem gerist í samkeppnislöndunum. NHO telur að minni fjárlaga- halla verði að tryggja með lækkun millifærslna til heimila, landbún- aðargeirans og til sveitarfélaga. Flytja til Svíþjóðar Tvö matvælaframleiðslufyrir- tæki tilkynntu í gær að þau myndu flytja hluta af framleiðslu sinni til Svíþjóðar. Delikat í Ósló sagðist myndu fækka störfum í Noregi um meira en 10% og Denja 1 Larvik sagðist verða að flytja til Svíþjóð- ar, þar sem fyrirtækið réði ekki við að borga 160 milljónir króna í tolla á salat, sem fyrirtækið flytur út til Svíþjóðar. Reglulegir fundir Borgarstjórnar Reykjavíkur , eru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar kl. 17:00. Fundirnir eru opnir almenningi og er þeim jafnframt útvarpað á AÐALSTÖÐINNI FM 90.9. biirsarstjóra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.