Morgunblaðið - 01.12.1994, Side 20

Morgunblaðið - 01.12.1994, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Samkomulag um framkvæmdastjóra OECD Paye endurráð- inn til 18 mánaða París. Reuter. SAMKOMULAG náðist í gær milli fulltrúa hinna 25 aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunar- innar (OECD) um stöðu yfirmanns stofnunarinnar. í málamiðluninni felst að fráfarandi framkvæmda- stjóri, Jean-Claude Paye, gegni stöðunni áfram í eitt og hálft ár en að þá taki Kanadamaðurinn Donald Johnston við og verður hann ráðinn til.fimm ára. Paye hefur gegnt framkvæmda- stjórastöðunni undanfarin tíu ár ' og rann síðara fimm ára ráðn- ingartímabil hans út þann 30. september. Ríki utan Evrópu börð- ust hart fyrir því að hann yrði ekki endurskipaður þar sem þau töldu áhrif Evrópumanna í al- þjóðastofnunum allt of mikil. Að auki gætti töluverðrar óánægju með störf Paye. Náðu ríkin saman um frambjóð-' andann Donald Johnston, sem er fyrrum fjármálaráðherra Kanada og fyrrverandi formaður Fijáls- lynda flokksins þar í landi. Ríki Evrópusambandsins kröfðust þess hins vegar að Paye yrði endurráð- inn. Sendiherra Svía hjá OECD, Staffan Sohlman, hefur gegnt stöðunni tímabundið frá í septem- ber. Bráðabirgðaráðning hans rann út í gær. Með þeirri málamiðlun, sem náðist í gær, er tryggt að Paye muni stjórna næstu tveimur leið- togafundum OECD, þar sem tekið er fram að þann síðari skuli halda fyrir maílok 1996. Aukinnar spennu gætir meðal ESB og annarra ríkja, ekki síst Bandaríkjanna og Japan, vegna skipunar í forystuembætti alþjóða- stofnana. Er búist við að næsta deila muni snúast um fram- kvæmdastöðuna hjá Heimsvið- skiptastofnuninni (WTO), sem tek- ur við af GATT um áramótin. Hlúum að börnum heims -framtíðin er þeirra FRAMLAG ÞITT ER MIKILS VIRÐI hjálparstofnun ynr) kirkjunnar V I " y - með þinni hjálp Háaldraður trúarleiðtogi sjíta-múslima látinn Klerkastjórn Irans vill sinn mann í embættið KLERKASTJÓRNIN í íran reynir nú að stjórria valinu á næsta and- legum leiðtoga sjíta-múslima í heiminum til að tryggja að hann aðhyllist herskáa útgáfu hennar af íslam og kenninguna um að lög^ mál íslams og stjórnmál séu órofa heild, að sögn fréttastofunnar Associated Press. Trúarleiðtogi sjíta, Mohammad Ali Araki erkiklerkur, lést á gjör- gæsludeild sjúkrahúss í Teheran á þriðjudag, að minnsta kosti hundr- að ára að aldri - og hugsanlega ailt að 106 ára. Hann var marja ala („æðsti apdlegur leiðbeinandi") og þeir sem hafa haft þann titil hafa verið æðstu túlkendur Kór- ansins meðal sjíta á þessari öld. Miðað við aldur æðstu erkikierka sjíta er nánast öruggt að næsti maiya a/a verði á sjötugs- eða .átt- ræðisaldri - sem merkir að hann gæti haldið embættinu í nokkra áratugi. Lægra settir erkiklerkar hafa þó skyggt á marja a/a, svo sem Ruhollah Khomeini, sem var til-. nefndur^ andlegur og veraldlegur leiðtogi íranstil æviloka árið 1979. í augum flestra sjíta er marja a/a þó enn æðsti túlkandi Kóransins. íranir hafna fraka Nýr Marja a/a gæti grafið undan áhrifum klerkastjórnarinnar í íran, bæði heima fyrir og í útlöndum þar sem hún leitast við að útbreiða byltingareldmóðinn. Sjítar eru um 100 milljónir, 10% múslima í heim- Ali Khamenei Ruhollah Khonieini inum, og 60 milljónir þeirra búa í íran. Sjítar eru einnig í meirihluta í Azerbajdzhan og stór hluti íbúa íraks og Líbanons. Stjórnin í Teheran óttast að næsti maija a/a verði ekki íráni og henni stendur einkum stuggur af Ali Husseini Seestani, einum af æðstu erkiklerkunum. Seestani er 65 ára og býr og kennir í Naj- af, fornri fræðamiðstöð sjíta í suð- urhluta íraks. Þótt írönsk stjórnvöld hafi ekki neinn formlegan rétt til að hlutast til um valið á marja a/a hafa þau þegar reynt að hindra að Seestani verði fyrir valinu. Að sögn Associated Press sagði Ahmad Jannati erkiklerkur, sem er atkvæðamikill í stjórninni í Te- heran, fyrir viku að írönsku klerk- arnir hefðu „engin áform um að velja marja a/a frá öðru landi en íran“. Jannati sagði að óvinir írans væru að reyna að knýja fram ópóli- tískan marja a/a til að grafa undan kierkastjórninni. Seestani hefur farið að dæmi fyrrverandi maiy'a a/a og varast að hafa afskipti af stjórnmálum, en það er í andstöðu við stjórnina í Iran, sem starfar samkvæmt þeirri kenningu að íslam og stjórn- mál séu órofa heild. Æðstu erkiklerkarnir velja marja a/a og. sem stendur eru þeir að minnsta kosti fimm, en líklegt þykir að kierkastjórnin fjölgi þeim áður en trúarleiðtoginn háaldraði fellur frá. Klofningur meðal sjíta Leiðtogamálið hefur valdið djúja- stæðum klofningi meðal sjíta. Ir- anska dagblaðið Sa/aam gagn- rýndi þá hugmynd a_ð næsti marja a/a yrði að koma frá Iran. Dagblað- ið er málgagn íslamskra harðlínu- manna sem telja klerkastjórnina orðna of hófsama og hafa glatað „hreinleikanum" frá valdatíma Khomeinis. Klofningurinn nær einnig til i//zöo//a/i-hreyfingar sjíta í Líban- on; andlegur lærifaðir hennar er á bandi Seestani en pólitíski leiðtog- inn styður Ali Khamenei, andlegán leiðtoga írans. Frá því Khomeini lést af völdum krabbameins árið 1989 hefur stjórnin í íran reynt að gera Khamenei, sem er 55 ára, að and- legum og pólitískum leiðtoga shíta út um allan heim, en hann hefur aðeins verið erkiklerkur í fimm ár og nýtur ekki mikils stuðnings utan Irans. Ný stjórn í Nepal MAN Mohan Adhikary sór emb- ættiseið sem forsætisráðherra í ríkisstjórn kommúnista í Nep- al í gær en þeir báru sigur úr býtum í kosningunum um miðj- an mánuðinn. Birendra, kon- ungur Nepals, (t.h.) er hér að lesa nýja forsætisráðherranum eiðstafinn en Adhikary er 74 ára að aldri. ♦ ■ ♦ ♦ Líkur á að GATT verði samþykkt Washington. Reuter. ÖLDUNGADEILD Bandaríkja- þings tók GATT-samninginn til umræðu í gær og auknar líkur voru taldar á því að hann yrði stað- festur eftir að fulltrúadeildin lagði blessun sína yfir hann með miklum meirihluta atkvæða. Robert Dole, leiðtogi repúblik- ana í öldungadeildinni, spáði því að samningurinn yrði samþykktur. Fulltrúadeildin samþykkti samninginn á þriðjudag með 288 atkvæðum gegn 146 og meiri mun en búist var við. Bill Clinton for- seti fagnaði úrslitunum og hvatti öldungadeildina til að veita samn- ingnum jafn afgerandi stuðning. Samningurinn þarf að fá 50 atkvæði af 100 við lokaafgreiðslu málsins og stuðningsmenn GATT telja öruggt að hann njóti svo mikils stuðnings. QcQtSkSk 'TvS IFJORA DAGA FIMMTUDAG - SUNNUDAGS 20% STAÐGR.AFSLATTUR AF ÖLLUM PEYSUM 'M OPIÐ KL. 10-18, FÖSTUDAG KL. 10-18.30, LAUGARDAG KL. 10-18, SUNNUDAG KL. 13-17 LAUGAVEGI97, SIMI55 22 555

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.