Morgunblaðið - 01.12.1994, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Jón Axel
/ • /
a
Sólon
*
Islandus
JÓN Axel Björnsson myndlistar-
maður opnar sýnmgn á vatnslita-
myndum á Sólon Islandus laugar-
daginn 3. desember kl. 16.
I kynningu segir: „Jón er í
fremstu röð málara af yngri kyn-
slóðinni og hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í
ótal samsýningum hér heima og
erlendis. Myndirnar sem Jón
Axel sýnir að þessu sinni eru
unnar á síðustu tveimur árum.
Persónuleg meðferð lita og af-
gerandi samspil þeirra er ein-
kennandi fyrir verk Jóns Axels,
sem oftar en ekki fjalla um
manneskjuna og mannlega tilvist
í tengslum við órætt umhverfi."
Sýningin stendur til 27. desem-
ber og er opin daglega.
JÓN Axel opnar sýningu á vatnslitamyndum á Sólon íslandus á laugardag.
Sturlunga
í Arnagarði
STOFNUN Árna Magnússonar
efnir til Sturlungadags í Árnagarði
við Suðurgötu laugardaginn 3.
desember í framhaldi af lestrum
úr Sturlungu og umljöllun um hana
í Þjóðarþeli ríkisútvarpsins.
Kl. 14-18 þennan dag verður
opin sýning á Sturlungahandritum
frá ýmsum öldum í sýningarsal
stofnunarinnar og kl. 16.00 verða
fluttir þrír stuttir kynningarfyrir-
lestrar í stofu 201 í Ámagarði. Þar
mun Stefán KarJsson tala um elstu
handrit Sturlungu og Guðrún Ása
Grímsdóttir um heimkynni og ein-
kenni Sturlungauppskrifta á 17.
og 18. öld, og loks ætlar Úlfar
Bragason að gefa yfirlit yfir rann-
sóknir á textum Sturlungu.
Kynning af þessu tagi var í nóv-
ember í fyrra, en þá var m.a. sýnt
handrit íslensku hómilíubókarinnar
sem hér var að láni úr Konungs-
bókhlöðu í Stokkhólmi og það
kynnt ásamt hinni nýju og glæsi-
legu útgáfu stofnunarinnar, og í
október sl. var sýning og kynning
á Flateyjarbók, sem hefur ekki
verið á almennum handritasýning-
um mörg undanfarin ár. Hún er
eitt veglegasta handrit íslenskt frá
miðöldum og verður aftur til sýnis
á Sturlungadegi fyrir þá sem
misstu af kynningu hennar í októ-
ber.
Á sýningunni gefst gestum kost-
ur á að skoða útgáfubækur
stofnunarinnar og festa kaup á
þeim þennan dag með 25% af-
slætti, og eru ýmsar hinna eldri
þó ódýrar fyrir. Þær bækur sem
birst hafa síðasta árið eru ljósprent
og texti íslensku hómilíubókarinn-
ar, Gripla VIII (ritgerðasafn),
Magnúsarkver, rit séra Magnúsar
Ólafssonar í Laufási, og Mattheus
saga postula.
Stofnun Árna Magnússonar hef-
ur sýnt handrit daglega að sumrinu
síðan fyrstu handritin bárust frá
Danmörku 1971. Að vetrinum hafa
hins vegar ekki verið handritasýn-
ingar nema þess hafi verið sérstak-
lega óskað fyrir skólabekki eða
aðra hópa, en nú er ætlunin að
hafa stöku sinnum að vetrinum
opna sýningu einn dagpart þar sem
eru sýnd eitt eða fleiri handrit sem
sjaldan eru höfð uppi og þau kynnt
sérstaklega.
Aðgangur að sýningunni og fyr-
irlestnmum er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Finnsk gjöf
til Þjóðar-
bókhlöðu
í TILEFNI vígslu nýrrar Þjóðar-
bókhlöðu í dag fimmtudaginn 1.
desember mun Esko Háki yfir-
bókavörður afhenda peningagjöf
frá Finnlandi að upphæð 10.000
Fim. (ísk. u.þ.b. 140 þús.)
Safninu óskað
gæfu og gengis
Gjöfin er ætluð til bókakaupa í
Finnlandi að eigin vali. Með henni
vill finnska menntamálaráðuneytið
og Háskólabókasafnið í Helsing-
fors, sem er landsbókasafn Finn-
lands, óska þessu nýja sameinaða
safni gæfu og gengis á þessum
tímamótum, segir Tom Söderman
sendiherra Finnlands.
Námskeið um
íslenskt
þjóðfélag fyrir
enskumælandi nýbúa
Rauði kross íslands heldur námskeið fyrir
enskumælandi nýbúa um uppbyggingu
þjóðfélagsins, réttindi og skyldur íbúanna, heil-
brigðis- og menntakerfi og fleira.
Námskeiðið fer fram á ensku. Fjölrituðum bæk-
lingi, sem félagsmálaráðuneytið hefur látið gera
og þýða á ensku, verður dreift á námskeiðinu.
Staður: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Tími: Þriðjudagur 6. desember kl. 20.00-23.00 og
þriðjudagur 13. desember kl. 20.00-23.00.
Skráning: Skrifstofa RKÍ, simi 91-626722 fyrir kl.
17.00 þann 5. desember.
Verð: Námskeiðið er ókeypis. Boðið verður upp
á kaffi og te.
A course on Icelandic
Society for English
speaking people living
in Iceland
The Icelandic Red Cross is holding a course for
English speaking people living in Iceland on the
structure of Icelandinc Society, the rights and
obligations of the inhabitants, healt services,
social security, customs etc.
The course vill be held in English. A booklet pub-
lished by the Ministry of Social Affairs „Icelandic
Law and Icelandic Society" which has been trans-
lated into English will be distributed on the course.
Plase: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Time: Thuesday 6th of Desember from 8 pm.
to 11 pm. and Thuesday 13th of Desember from
8 pm. to 11 pm.
Register: Icelandic Red Cross Office, tel;
91-626722 before 5 pm. on the 5th of Desember.
Cost: The course is free.
Coffee and tee will be served.
+
RAUÐIKROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18,105 Reykjavík, sími 91-626722
Lokkur úr
hári Beet-
hovens
LOKKUR úr hári Beethovens verður
boðinn upp hjá Sotheby’s í London
í dag. Reiknað er með að lokkurinn
verði sleginn á 2.000-3.000 sterl-
ingspund. Við sama tækifæri gefst
mönnum kostur á að kaupa bréf frá
Beethoven til vinar fyrir 15.000-
20.000 pund.
Þetta verður tónskáldadagur hjá
Sotheby’s því að við bætist að hand-
rit að Niflungahring Wagners verður
á boðstólum fyrir 20.000-30.000
pund. Handritið leiðir í ljós að Wagn-
er byijaði að semja Ragnarök mun
fyrr en talið hefur verið, eða 1857.
-----»-♦.♦----
Kringlukráin
Uppskeruhá-
tíð Nýja mús-
íkskólans
TÓNLEIKAR á vegum Nýja músík-
skólans verða haldnir á Kringlu-
kránni Iaugardaginn 3. desember kl.
16.
Nýi músíkskólinn, Laugavegi 163,
er rekinn í námskeiðsformi; kennt
er á gítar, rafbassa, trommur og
sérstök söngdeild er starfrækt. Nem-
endur á hin ólíku hljóðfæri koma
saman vikulega á meðan námskeið
stendur yfir og mynda hljómsveitir,
sem æfa undir handleiðslu kennara.
Afraksturinn af því starfi kemur í
ljós á iaugardaginn, þar sem hljóm-
sveitirnar koma fram og flytja nokk-
ur lög hver.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir.
-----♦ ♦■♦----
Jól í Stöðlakoti
í STÖÐLAKOTI við Bókhlöðustíg
stendur nú yfir sölusýning á hand-
gerðum jólamunum nokkurra lista-
manna, s.s. á skartgripum, leir- og
postulínsmunum, . dúkum, hand-
þrykktum bókum, jólakortum, gjafa-
öskjum og fleiru.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18 til jóla.
|
>
\
i
l
t
\
íslenskur
kexpakki á
hvert heimili
í viku hverri
jafngildir
32 ársverkum
íiðnaði.