Morgunblaðið - 01.12.1994, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 01.12.1994, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ f- FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 — 37 Landsbókasafn Stjórnarráðsbygging I--- ---••• rik» Arriarhólí j $ * * • (sandsteini) og 9 tommur að þykkt en milli steinanna er autt bil. Járn- bitar eru í loftinu með Monier- útbúnaði í millibilum. Síðan segir: „Sökum hinnar miklu breiddar [sal- arins] er yfir honum loft úr stein- steypu með sérstakri gerð, er nefn- ist Hennebique-gerð og hefur hún á voru landi einungis verið notuð hér í verksmiðjunni Iðunni. Stigar eru allir steinsteyptir og allt er húsið frá kjallaragólfi upp að efra lofti algerlega eldtraust. Miðstöðvarhitun er í húsinu með hitaleiðslu í öllum herbergjum. Allt er húsið 56x30 álnir eða 1.680 fer- álnir að stærð.“ Ein alin er 60 sentí- metrar. Byggingarkostnaður hússins var rúm 184 þúsund samkvæmt upplýs- ingum Kiörboe arkitekts en hann hafði eftirlit með framkvæmdunum fyrir Magdahl Nielsen. Kostnaður vegna innréttinga var 38 þúsund og heildarkostnaður því rúm 222 þúsund. Jón tekur fram að þar sem vatnsveita Reykjavíkur sé enn ókomin vanti einnig enn allan búnað til þvotta og ræstinga, meðal ann- ars inn af fordyri á neðstu hæð en sá kostnaður sé óumflýjanlegur vegna þeirra sem sækja lestrarsal- inn. Trésmíðafélagið Völundur tók að sér smíði safnsins, bæði stein og trésmíði, og var Guðmundur Jak- obsson umboðsmaður Völundar við bygginguna. Fyrir steinsmíðinni stóð Guðjón Gamalíelsson, Helgi snikkari Thordersen stóð fyrir tré- smíði og Páll Magnússon fyrir járn- smíði. Jón snikkari Halldórsson tók að sér innanstokksmuni flesta en tréskurð annaðist Stefán Eiríksson tréskeri. í ræðu Finnboga Guðmundssonar landsbókavarðar þegar minnst er 150 ára afmælis safnsins kemur fram að Trésmíðafélagið Völundur haldi enn tryggð við safnið. For- ráðamenn Völundar, bræðumir Sveinn, Haraldur og Leifur Sveins- synir, hafi viljað minnast afmælisins og látið smíða og fært safninu að gjöf nýjar og vandaðar innri hurðir í forstofu, en hinar gömlu voru orðn- ar signar og undnar. TEIKNING Kiörboe af stjórnsýsluhverfi í Reykjavík. Háskólinn lengst til vinstri, þá aðsetur ráðherra og Safnahúsið í fullri stærð milli Hverfisgötu og Lindargötu og á lóð Þjóðleikhússins er landspítali. Morgunblaðið/Ásdís Safnahúsið I LESSAL Landsbókasafnsins eru súlur úr islenskum grásteini. Efnið í þær var sótt í Öskjuhlið. Árni Óla segir í bók sinni Reykja- vík fyrri tíma að erfiðlega hafi gengið að finna nægilega stóra og ósprungna steina. Smiðaefnið hafi verið óhrjálegt en súlurnar eru eins og steyptar í sama mót. Helgi Thordarsen sá um alla timb- ursmíð en Guðjón Gamalíelsson um steinsmiði og veggi. Þykir Safnahúsið geyma vitnisburð um það hversu islenskir iðnaðarmenn voru listhagir á árum áður. um, sem hindraði afnot salarins um tvo mánuði eftir að öðru var lokið,“ segir Jón. Byggingu lauk haustið 1908 og fyrstu tvo mánuði ársins 1909 var unnið að uppsetningu hillna og röð- un bóka. Lestrarsalur var ekki að fullu búinn til afnota fyrr en í lok mars en þá voru einnig komin í húsið Landsskjalasafnið, Náttúru- gripasafnið og Fornminjasafnið, bæði síðastnefndu söfnin til bráða- birgða meðan húsrúm leyfði. Það var síðan árið 1962 sem handrita- safn Landsbókasafnsins flutti í sal- inn á efri hæð, þar sem Náttúru- gripasafnið hafði verið til húsa. I lok ræðu, sem Jón hélt í mars 1909 eftir að safnið var tekið í notk- un, segir hann: „Að síðustu skal ég taka það fram að bygging þessi markar nýtt tímabil í byggirig- arsögu íslands; gleðilegt að geta sagt það, að veglegasta og vandað- asta steinhús þessa lands er byggt eingöngu af íslendingum, undir for- stjórn ísl. manna; því nær hvert handtak er íslenzkt á húsi og mun- um. — Vonandi, að landsjóður hætti að byggja nokkra opinbera bygg- ingu úr tré.“ Lands- bóka- verðir ÁTTA menn hafa gegnt embætti landsbókavarðar frá upphafi Stiftsbókasafns 1848. Fyrsti bókavörður Stifts- bókasafnsins var Jón Árna- son frá 1848 til 1887. Þá tók við Hallgrímur Melsted, 1887-1906, og Jón Jakobs- son var landsbókavörður 1906-1924. Eftirmenn hans hafa verið Guðmundur Finnbogason, 1924-1943, Þorkell Jóhannesson, 1943- 1944, Finnur Sigmundsson, 1944-1964, Finnbogi Guð- mundsson, 1964-1994, og Einar Sigurðsson sem tók við embætti landsbókavarð- ar 1. október síðastliðinn. 3 háskólabókaverðir Eftir að Háskólabókasafn og Landsbókasafn fá sam- eiginlegt húsnæði í Þjóðar- bókhlöðunni, nefnist nýja safnið Landsbókasafn Is- Iands - Háskólabókasafn. Háskólabókasafnið var stofnað árið 1940 og hefur verið til húsa í aðalbyggingu háskólans en auk þess eru 17 útibú frá safninu í þeim byggingum þar sem kennsla og rannsóknir á vegum há- skólans fara fram. Frá upphafi hafa þrír menn gegnt embætti há- skólabókavarðar. Fyrst dr. Einar Ólafur Sveinsson há- skólabókavörður, en hann sá um safnið frá upphafi til ársins 1945. Þá tók við dr. Björn Sigfússon háskóla- bókavörður, til ársins 1974 er Einar Sigurðsson tók við starfinu. Árið 1992 voru starfsmenn safnsins 33 í 25,6 stöðugildum. Hlutverk safnsins er meðal annars, að sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarf- semi í Háskóla íslands og einnig eftir föngum þörfum atvinnulífs, stjórnsýslu og rannsókna utan háskólans. Stj ómsýsluhverfi við Hverfisgötu Tafir á framkvæmdum Fram kemur hjá Jóni Jakobssyni að framkvæmdum hafi miðað seint framan af sökum snjóþyngsla og frosta veturinn sem unnið var að steinsmíði. „Síðar kom ýmislegt fyr- ir sem olli töfum, vöntun á ýmsum teikningum þegar til átti að taka, mikill dráttur á sendingu bókaskápa frá útlendum verksmiðjum og að síðustu sein skil á innanstokksmun- MEÐ heimastjórn kom fljótlega í [jós að ekki yrði unnt að koma fyrir öllum sljórnsýslubyggingum sem henni fylgdu í Kvosinni. í Þjóðskjalasafninu er til skissa eft- ir Kiörbóe arkitekt, sem sá um framkvæmdir við byggingu Landsbókasafnsins, og þar gerir hann ráð fyrir að í nágrenni safns- ins rísi stjórnsýsluhverfi með stór- um opinberum byggingum. Blýantsteikning Kiörboe var aldrei samþykkt en forvitnilegt er að sjá þær hugmyndir sem hann setti fram. Safnahúsið við Hverfisgötu er sýnt sem rand- bygging niður að Lindargötu og er gert ráð fyrir undirgangi frá Ingólfsstræti um lokaðan garð að lóð Þjóðleikhússins. Þar sem leik- húsið er nú gerði Kiörboe ráð fyrir að Landspítalinn yrði reist- ur. Á sjálfum Arnarhól var gert ráð fyrir ráðherrabústað og fram- an við hann skyldi háskólinn rísa. Eftirtektarvert er að háskólanum er ætlað mun minna hús en Lands- bókasafninu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.