Morgunblaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VESTFJARÐAGÖNGIN
BÍLAR frá Súgandafiröi aka inn í munna Vestfjarðarganga í gær, en það var fyrsti dagurinn sem þau voru opin fyrir almennri umferð á milli Súgandafjarðar og ísafjarðar.
*
Vestfjarðagöngin opnuð fyrír umferð milli Isafjarðar og Súgandafjarðar
Tryggir samgang
og styttir leiðina
SÁ HLUTI Vestfjarðaganganna
sem liggur á milli ísafjarðar og
Súgandafjarðar var opnaður fyrir
bílaumferð klukkan níu í gærmorg-
un. Göngin verða opin í takmörkuð-
um mæli á næstunni að sögn Krist-
ins Jóns Jónssonar, rekstrarstjóra
hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði.
Göngin stytta leiðina til Suðureyrar
um þijá kílómetra og eiga að
tryggja að fært sé þangað árið um
kring.
Göngin eru lítt frágengin, ómal-
bikuð og opnir skurðir við hlið veg-
ar og er erfitt að mætast í þeim.
Því er umferð aðeins heimiluð í
aðra átt í einu, en vaktmenn fylgj-
ast með og stjórna umferð. Við
öpnunina í gær færði Vegagerð rík-
isins kvenfélaginu Ásrúnu á Suður-
eyri jólatré sem táknræna gjöf.
Starfsmenn Vegagerðarinnar óku
fyrstir í gegn eftir formlega opnun.
Göngin verða lokuð í dag en opin
frá klukkan 9 til 18 næstu daga
en frá klukkan 9 til miðnættis á
Þorláksmessu. Umferð er ekki
heimil á aðfangadag og jóladag en
þaðan í frá klukkan 9 til 18. Ganga-
menn koma síðan til starfa að nýju
2. janúar næstkomandi, og þá verða
göngin opin frá 9 til hádegis og frá
17 til 18 þrjá daga vikunnar, og tvo
tíma á laugardögum. Næstá haust
er stefnt að því að opna þau fyrir
eðlilegri umferð.
Þetta er
mikil sam-
göngubót
JÓHANNA Oddsdóttir frá
Isafirði á systur á Suðureyri,
og heimsótti hana í gær. Systir
hennar ók líka göngin í gær og
sagði Jóhanna hana kampakáta.
„Þetta er mikil samgöngubót
og ég losna að auki við þá
hræðslu sem greip mig oft þeg-
ar ég fór gömlu leiðina. Ég
held að Suðureyringar séu varla
búnir að átta sig á þessum und-
rum og á alveg eins von á að
þeir fái víðáttubrjálæði. Þeir
eru þó varla ánægðir með að
lokað sé á aðfangadag og jóla-
dag, því að fólk vill gjarnan
skreppa bæjarleið á slíkum há-
tíðisdögum," segir Jóhanna.
„Núna fá Isfirðingar líka að-
gang að auknu útivistarsvæði í
Súgandafirði og ég er t.d. viss
um að þarna verði mörg göngu-
svæði tekin í notkun á næst-
unni.“
r
Jóhanna Oddsdóttir
• •
Oruggur um
að komast
GRÉTAR Schmidt kveðst lítast
mjög vel á opnun ganganna, en
hann brá sér til Isafjarðar í gær
ásamt dætrum sínum. Hann var
viðstaddur þegar seinasta haft-
ið sem skildi að þá tvo hluta
ganganna sem annars vegar var
boraður frá Isafirði og hins
vegar frá Súgandafirði, var rof-
ið í febrúar sl., og gekk þá I
gegn. „Núna er maður öruggur
með að komast til tsafjarðar um
vetrartímann, öfugt við það sem
áður var þegar gamli vegurinn
sem er miklu erfíðari, var eina
leiðin. Ég heldtið samgangur
verði mikill, og meðal annars
er verið að tala um að smábátar
frá ísafírði leggi hér eftir frá
Súgandafirði, þvi að það styttir
leiðina á miðin um fimm tíma.“
Grétar Schmidt
Arnar Guðmundsson
Mikið örygg-
isatriði
fyrir okkur
„ÞETTA er önnur ferðin mín í
gegnum göngin í dag, ogmér
líst mjög vel á,“ sagði Arnar
Guðmundsson frá Suðureyri.
„Ég keyrði með konuna til
læknis í morgun og er núna á
leið út á flugvöll. Við hefðum
ekki komist til ísafjarðar í dag
eins og færðin er ef ekki hefði
verið búið að opna, og erum vön
því að vegurinn sé jafnvel lokað-
ur í heila viku. Þetta eykur ör-
yggi okkar mikið, og þann kost
sjáum við helstan. Einangrunin
eða að komast í búðir á ísafirði
hefur ekki háð íbúum mikið.
ísfirðingar munu væntanlega
notfæra sér leiðina mikið; hing-
að er margt að sækja enda stað-
urinn fallegur og alltaf ijóma-
blíða.“