Morgunblaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
I LOFT UPP
JEFFBRIOCES tommy iee jones
Allra síðustu sýningar
B.I.14.Sýnd kl. 9 og 11.15,
FRUMSÝNING Á JÓLAMYNDINNI „JUNIOR"
FRUMSÝNING Á JÓLAMYNDINNI LASSIE
DAENS
ÞRIR LITIR: HVITUR
NÝ STÓRKOSTLEGA SPENNANDI ÆVINTÝRAMYND UM
TÖFRATÍKINA, SEM SKEMMT HEFUR BÖRNUNUM í MEIRA EN HÁLFA
ÖLD. LASSIE HJÁLPAR SYSTKINUNUM MATT OG JENNIFER I
BARÁTTUNNI VIÐ ILLÞÝÐI SEM Á í DEILUM VIÐ FJÖLSKYLDU ÞEIRRA.
SÝND KL. 5 og 7.
Allra síðustu sýningar
Sýnd kl. 9.
Sýnd kl. 5 og 9.
2 FYRIR 1
Falleg og skemmtileg ævintýramynd um konung
sem er fastur í líkama hvítabjörns.
Sýnd kl. 5.
NIOR
Hinirfrábæru leikarar, Arnold Schwarzenegger, Danny DeVito og
Emma Thompson koma hér í frábærri nýrri grínmynd fyrir alla fjöl-
skylduna. „Junior" er ný grínmynd frá leikstjóranum Ivan Reitman,
sem gert hefur myndir eins og „Ghostbusters", „Twins" og „Dave".
„Junior" er jólamynd i Reykjavík, Los Angeles, New York, London,
Berlín... og, og... „Junior" er grinmyndin sem öll heimsbyggðin
horfir á ÞESSI JÓLH Njóttu „Junior" í Háskólabiói!
Sýnd kl. 5.15, 6.45, 9 og 11.10.
I HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ. I
AILIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS. |
140 mín.
JÓLAMYNDIN
JÓLAMYND:
Óskarsverðlaun: Besta erlenda myndin I ár!
Nú verða GLÆSTIR TÍMAR í
Háskólabíói því við frumsýnum
Óskarsverðlaunamyndina
BELLE EPOQUE
á annan í jólum.
TROIS COULEURS
3sr«
FORREST
GUIÍP
'i
Bræðingur í betri kantinum
TONLIST
II l j ó m p l a t a
HUNGUR J.J. SOUL
Hungry for News, J.J. Soul Band:
J.J. Soul söngur, Ingvi Þór Kormáks-
son hljómborð, Stefán Ingólfsson
bassi, Trausti Ingólfsson trommur.
Aðrir hljóðfæraleikaréir: Þórður
Amason gítar, Eðvarð Ingólfsson
gítar, Vilhjálmur Guðjónsson gítar,
Ari Einarsson gítar og synth., Stefán
Stefánsson saxafónn, Reynir Sig-
urðsson víbrafónn, Einar Valur
Scheving trommur, Kjartan Guðna-
son trommur, Birgir Jóhann Birgis-
son píanó. Lög og textar: Ingvi Þór
Kormáksson og J.J. Soul. Stjórn upp-
töku: Ingvi Þór Kormáksson og J.J.
Soul. Hljóðritun: Birgir Jóhann Birg-
isson. Hljóðblöndun: Birgir Jóhann
Birgisson, J.J. Soul. Útgefandi:
Hrynjandi, 49,07 mín., 1.999 kr.
NÝ hljómplata með J.J. Soul
Band, Hungry for News kom mér
þægilega á óvart. Ég hafði aldrei
heyrt í þessari hljómsveit og vissi
því ekki við hverju var að búast,
en hér er á ferðinni þrælgóður disk-
ur, með fullt af skemmtilegri tón-
list í vönduðum flutningi. Ég held
að svona plata hafi ekki verið gef-
in út áður á íslandi. Tónlistin er
eins konar blúsbræðingur, með
djassrokki og poppívafi og ef finna
á samanburð í heimi erlendra stór-
meistara á-þessu sviði koma upp í
hugann nöfn eins og Steve Miller,
Mose Allison, Van Morrison og
jafnvei Georgie Fame.
John J. Soul starfaði áður sem
trommuleikari í heimalandi sínu,
Englandi. Hann hefur búið hér á
landi um skeið og í samvinnu við
Ingva Þór Kormáksson, hljómborðs-
leikara og lagasmið, komið fram á
öldurhúsum í Reykjavík undir nafni
hljómsveitarinnar J.J. Soul Bandf
Þessi plata er afrakstur af samvinnu
þeirra félaga, sem greinilega hefur
verið með miklum ágætum ef marka
má útkomuna hér. Ingvi Þór hefur
áður sent frá sér lög á hljómplötum,
en að mínu mati hefur hann með
Hungry For News stigið stórt skref
fram á við sem lagasmiður og í
framtíðinni komast menn hreinlega
ekki hjá því að taka hann alvarlega
sem slíkan.
Sem söngvari er J.J. Soul í hópi
hinna skemmtilegri sem hér hafa
komið fram í langan tíma. Röddin
er djúp og blúsuð og ósjálfrátt varð
mér hugsað til Longs Johns Baldr-
ys, sem sælla minninga kom hingað
til lands á nokkurra daga fyllerí
fyrir allmörgum árum. J.J Soul er
ekki síðri söngvari og einhvern
veginn hef ég á tilfinningunni að
hægt yrði að koma þeim Ingva Þór
á framfæri erlendis, ef rétt yrði að
málum staðið. Þetta er stórgóð
plata, ein sú besta á árinu, og það
er erfitt að nefna eitt lag öðru frem-
ur. Þau standa öll fyrir sínu. í dag
eru til dæmis Jazzman, A Place
To Hide og Hungry For News í
mestu uppáhaldi, en á morgun
gæti það þess vegna verið Five
Below Zero eða eitthvert annað.
Kannski er það höfuðkostur plöt-
unnar, að flest lögin hafa eitthvað
við sig sem gleður eyrað. Og ekki
skemmir fyrir að í textagerð er
J.J. Soul á heimavelli.
Vissulega er blæbrigðamunur á
lögunum og fer það einna helst eft-
ir því hvaða tónlistarmenn leika með
hvetju sinni, en þar fer fríður flokk-
ur manna svo sem sjá má í kynn-
ingu hér að framan. I hljómsveitinni
eru auk J.J. Soul og Ingva Þórs
þeir Stefán Ingólfsson á bassa og
Trausti Ingólfsson á trommur og
mynda þeir saman þéttan grunn.
Gítarleikararnir Þórður Árnason,
Eðvarð Lárusson og Vilhjálmur
Guðjónsson setja einnig sterkan
svip á tónlistina, hver á sinn hátt,
og hið sama má-segja um aðra sem
við sögu koma, þótt í minna mæli sé.
Það pr óhætt að mæla með þess-
ari plötu við hvern sem er og menn
þurfa ekkert endilega að vera blús-
eða djass-rokkunnendur til að hafa
af henni gaman. Hún er afskaplega
þægileg áheyrnar í alla staði. Ég
hef því miður ekki séð J.J. Soul
Band á sviði, en það verður mitt
fyrsta verk, næst þegar ég sé hljóm-
sveitina auglýsta. r
Sveinn Guðjónsson
J.J. Soul og félagar koma
vissulega á óvart á nýju plöt-
unni „Hungry for News“.
Springsteen
hefur betur
►BANDARÍSKA rokkstjarnan
Bruce Springsteen kom í veg fyr-
ir að breska útgáfufyrirtækið
Dare gæfi út tvöfalda geislaplötu
með lögum sem hann gerði áður
en hann varð frægur. Nefnist plat-
an „Prodigal Son“ og var tekin
upp árið 1971, en Springsteen sló
fyrst í gegn með plötunni „Born
to Run“ árið 1975.
Málið átti að fara fyrir dóm-
stóla en áður en til þess kom náð-
ist samkomulag miili Springsteens
og útgáfufyrirtækisins, sem féllst
á að gefa ekki út plöturnar og
afhenti rokkstjörnunni uppruna-
legu upptökurnar í þokkabót.
Springsteen hafði áhyggjur af
gæðum upptakana, bæði vegna
þess hve langt væri um liðið og
þess hve allar aðstæður liefðu
verið lélegar á þeim tíma.
FOLK