Morgunblaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
______LISTIR____
Jólí skugga
ljósanna
MYNPLIST
M o k k a
BLÖNDUÐ TÆKNI
GUÐBRANDUR ÆGIR
Opið virka daga kl. 9.30-23.30 og
sunnud. kl. 14-23.30 til áramóta.
Aðgangur ókeypis.
ÞEGAR líður á síðasta mánuð
ársins og hátíðin eina og sanna
nálgast óðfluga, er ekki óeðlilegt
að fólk staldri aðeins við og líti í
kringum sig, og spyrji hvað allt
þetta brambolt eigi að þýða,
hvernig það fari með einstakling-
inn og hvað það skilji eftir, þegar
allt er um liðið.
Það er einnig sjálfsagt að mynd-
listarfólk taki þátt í slíkum vanga-
veltum, ög leiti eigin svara; það
er gert hér með sérstökum hætti.
Guðbrandur Ægir á heiðurinn af
framkvæmdinni, en hann lauk
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla Islands síðasta vor, og hefur
þegar tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum; hér er á ferðinni fyrsta
einkasýning hans.
Sú hátíð kristninnar, sem nú fer
í hönd, hefur gjarna verið kynnt
sem hátíð ljóss og friðar; listamað-
urinn leggur út frá þessu þegar
hann gefur sýningunni yfirskrift-
ina „Hátíð ljóss og skugga“. Með
fáeinum einföldum verkum fjallar
hann um jólahaldið hér á landi,
en bætir við, að hann sé með þeim
ekki síst að benda á „hversu langt
við erum komin frá upprunalegum
boðskap jólanna. Hin síðari ár
hefur óhóf ýmiskonar sett mark
sitt á jólin og undirbúning þeirra,
t.d. óhófleg neysla áfengis og mik-
il peningaeyðsla".
í þessum orðum er út af fyrir
sig enginn nýr sannleikur, því þau
hafa endurómað með ýmsum hætti
á þessum árstíma í gegnum marga
áratugi. Sem myndlistarmaður
fylgir Guðbrandur þeim hins vegar
eftir í verkum sínum. Annars veg-
ar hefur hann sett upp ímynd birt-
unnar í sinni hógværustu mynd -
eitt kerti í óskreyttum, grófum
tréramma - en hins vegar óhófið
á grunni þeirrar glansímyndar
jólaljósa og gylltra ramma, sem
alls staðar blasir við.
Þessu óhófi er lýst með nötur-
legum en um leið sakleysislegum
hætti á glanspappírnum, sem hef-
ur verið strekktur á veggi kaffi-
hússins. Svartir miðar brennivíns-
ins, auglýsingar kreditkortafyrir-
tækjanna, peningaseðlar og lítil
dánartilkynning yfir bláu reipi vísa
hvert um sig til þeirrar mannlegu
öiTæntingar sem að baki býr. Lít-
il skrautljósin ná ekki að bægja
frá þeim áhyggjum sem sækja að,
sem verða til þess að menn reisa
sér hurðarás um öxl með eyðslu-
semi, leita skjóls hjá flöskunni
fremur en að takast á við tilver-
una, eða hreinlega gefast upp og
kjósa að hverfa í náðarfaðm dauð-
ans fremur en að halda áfram.
Hér er vel að verki staðið hjá
listamanni við upphaf ferils síns.
Þessi litla sýning Guðbrands Ægis
er ágæt áminning um að oftar en
ekki fer hátíð jólanná fram í
skugga daufra skrautljósa, fremur
en böðuð þeirri birtu sem kirkjan
talar um. Glanspappír og gull-
rammar eru aumkunarverðar
umgjarðir, ef innihaldið er jafn
nöturlegt og gleðisnautt og hér
blasir við.
Eiríkur Þorláksson
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 27
Aðyentutílboð!
f^olunum fylgir bakstur, þrif og uppþvottur.
Við viljum létta þér störfin og bjóðum því þessi fjögur gæða-heimilistæki
frá Siemens og Bosch á sérstöku tilboðsverði.
Bakstursofn
SIEMENS BOSCH
Hrærivél
.. \
MUM 4555EU
Fjölvirkur Siemens baksturofn. Yfir- og undirhiti, blástur,
glóðarsteiking með og án blásturs. Rafeindaklukka,
létthreinsikerfi, sökkhnappar. Gæði hvert sem litið er.
Og verðið er einstakt Tilboðsverð kr. 49.900 stgr.
Ryksuga
Fjölhæf Bosch hrærivél sem gegnir dyggu hlutverki á mörg
þúsund íslenskum heimilum. Líklega mest selda hrærivélin
á Islandi undanfarin ár. Blandari, hakkavél og grænmetis-
kvörn fylgja með. Og verðið slær enginn út.
Tilboðsverð kr. 17.900 stgr.
Uppþvottavél
Létt og lipur Siemens ryksuga sem auðveldar þér að halda
híbýlunum hreinum. 1200 W, sjálfinndregin snúra, fylgihlutir
geymdir I vél, hleðsluljós. Og þær gerast vart ódýrari.
Tilboðsverð kr. 12.900 stgr.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjöröur: Rafstofan
Hvítárskála - Hellissandur: Blómsturvellir ■ Grundarfjörður: Guöni Hallgrímsson
Stykkishólmur Skipavík ■ Búðardalur Ásubúð ■ ísafjörður Póllinn ■ Hvammstangi:
Skjanni Sauðárkról ur Rafsjá Siglufjörður Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn •
Húsavík: öryggi Þórshöfn: Noröurraf Neskaupstaður. Rafalda Reyðarfjörður
Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvik: Stefán N.
Stefánsson • Höfn i Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar Tréverk Hvolsvöllur
Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Garður Raftækjav. Sig. Ingvarss. •
Keflavík: Ljósboginn Hafnarfjörður. Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
Viljirðu endmgu og gæði -
Velvirk, sparneytin og hljóðlát Siemens uppþvottavél.
Tekur borðbúnað fyrir 12 manns.
Og llttu á verðið.
Tilboðsverð kr. 59.900 stgr.
Nýi Sun Moon Stars dömuilmurinn, 30 ml. kr. 2.200-
Escada rakspíri og svitastífti í settí, kr. 3.000-
Unglingailmurinn Red- og Blue Jeans, 75 ml. kr. 2.290-
Max Factor snyrtívörur með 20% aíslætti.
Nýi Tocade dömuilmurinn frá Rochas með 15% afslætti.
Hydra Star, dag- og næturkrem fra Dior í öskju, kr. 2.990-
Scholl fótaefnin í gjafaöskjum með 25% afslætti.
Neutrogena ofhæmisprófaðar húðvörur með 25% afslætti.
Ódýrir varalitír á kr. 275- og margl fleira.
GRAFARVOGS APOTEK
Torginu, verslunar- og þjónustumiöstöðinni Hverafold 1-5, Grafarvogi, 112 Reykjavík, sími 587-1200
Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga 10-14 en lokað á sunnudögum nema annað sé tilkynnt.
Nýjasta apótek landsmanna hefur opnað í Torginu,
verslunar- og þjónustumiðstöðinni í Grafarvogi.
í tilefni opnunar eru mörg frábær
opnunartilboð í snyrtivörudeildinni.
Verið velkomin.