Morgunblaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
afmælistilboð
KitchenAid
í tilefni 30 ára afmælis okkar og 75 ára afmælis KitchenAid
bjóðum við takmarkað magn af nýjustu heimilishrærivélinni K90
á kr. 31.400 (rétt verð kr. 36.900).
Staðgreitt kr. 29.830.
K90 vélin er framtíðarvél með enn sterkari mótor og hápóleraðri
stálskál með handfangi.
Fjöldi aukahluta er fáanlegur, m.a. kommylla og kransakökustútur.
íslensk handbók fylgir.
kitchenAid
Lágvær - níðsterk - endist kynslóðir
Umboðsmenn:
REYKJAVÍKURSVÆÐI: Laufiö, Bolungarvík
Heimasmiðjan, Kringlunni Húsgagnaloftið, ísafirði
Húsasmiðjan, Skútuvogi Straumur, ísafirði
Rafvörur hf., Ármúla 5 Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík
H.G. Guðjónsson, Suðurveri
Rafbúðin, Álfaskeiöi 31, Hafnarf. NORÐURLAND:
Miövangur, Hafnarfirði Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri
Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga
VESTURLAND: Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Rafþj. Sigurdórs, Akranesi Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi KEA, Akureyri og útibú
Blómsturvellir, Hellissandi Kf. Þingeyinga, Húsavík
Versl. Hamrar, Grundarfirði Kf. Langnesinga, Þórshöfn
Versl. E. Stefánssonar, Búðardal Versl. Sel, Skútustöðum
VESTFIRÐIR:
Kf. Króksfjarðar, Króksf.
Skandi, Tálknafirði
Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri
AUSTURLAND:
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafirði
Rafvirkinn, Eskifirði
Kf. Héraðsbúa, Seyöisfirði
Kf. Héraðsbúa, Egilsstööum
Kf. Fram, Neskaupstað
Kf. Hérðasbúa, Reyðarfirði
Kf. Fáskrúðsfjarðar,
Fáskrúðsfirði
Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi
Kf. A-Skaftfellinga, Höfn
SUÐURLAND:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
Kf. Rangæinga, Rauðalæk
Versl. Mosfell, Hellu
Reynistaður, Vestmannaeyjum
Kf. Árnesinga, Selfossi
Kf. Árnesinga, Vík
SUDURNES:
Samkaup, Keflavík
Stapafell, Keflavik
Einar
MmM Farestveit & Co.hf.
§ Borgartúni 28 “Si 622901 og 622900
Z
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Silli
HÚSNÆÐI Fiskiðjusamlags Húsavíkur.
Þrjú fyrirtæki sameinast
Húsavík. Morgunblaðið.
ÞRJÚ meðal stærstu fyrirtækja á
Húsavík, hlutafélögin Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur, Höfði og íshaf,
héldu aðalfund nú í desember. Á
fundi Höfða og einnig Ishafs var
samþykkt að stefna að því að sam-
eina þau félög 1. september næst-
komandi og síðar er hugsað að þau
öll þrjú sameinist. Öll hafa þau
breytt reikningsári sínu sem nú er
1. september til 31. ágúst og er
síðasta uppgjör þeirra miðað við
það, þannig að þessa árs reiknings-
ár er aðeins 8 mánuðir.
Rekstur Fiskiðjusamlagsins er
mun hagstæðari þetta ár en í fyrra,
nú er rúmlega 30 milljóna króna
hagnaður en í fyrra var tæplega
12 milljóna króna tap. Alls var inn-
vegið fiskmagn 5.330 tonn og þar
af rækja 3.100 tonn, sem nú er
farin að eiga stærri hlut en bolfisk-
urinn. Alls vinna hjá fyrirtækinu
Reksfur
Fiskiðjusamlags-
ins gengur mun
betur en í fyrra.
um 140 manns. Framkvæmdar-
stjóri er Tiyggvi Finnsson.
25 milljóna hagnaður
hjá Höfða
Höfði rekur frystitogarann Júl-
íus Havsteen og rækjubátana Ald-
ey og Kristey, sem öll stunda
rækjuveiðar. Einnig rekur Höfði
netaverkstæði. Rekstur félagsins
gekk vel þetta 8 mánaðareiknings-
ár, 25 milljóna króna hagnaður.
Alls störfuðu hjá félaginu 35 menn
og launagreiðslur voru rúmar 77
milljónir. Hluthafar eru alls 117
en Húsavíkurbær á rúm 50% hluta-
fjár, Fiskiðjusamlagið tæp 37% og
aðrir um 13%.
Frystibúnaður í Kolbeinsey
íshaf gerir út togarann Kol-
beinsey, sem aðeins var að veiðum
6 mánuði þessa árs, en í júlí var
hafin vinna við að koma fyrir bún-
aði til frystingar um borð í skipinu
og vann Stálsmiðjan hf. í Reykja-
vik það verk.
Tap varð á rekstri þetta ár um
20 milljónir en var í fyrra um 49
milljónir. Hinn nýi frystibúnaður á
að koma rekstrinum á réttan kjöl.
Starfsmenn félagsins voru 18.
Hluthafar eru alls 104 en stærstu
hluthafar eru Fiskiðjusamlagið,
44,6%, Húsavíkurbær, 21,1% og
Kaupfélag Þingeyinga, 17,4.
Framkvæmdastjóri Höfða og Is-
hafs er Kristján Ásgeirsson.
Raytheon kaupir þýskt fyrirtæki
Boston. Morgunblaðið.
BANDARISKA fyrirtækið Raythe-
on tilkynnti í þessari viku að það
hefði gert samning um að kaupa
Anszchuetz & Co., sem framleiðir
siglingabúnað fyrir skip, af þýska
fyrirtækinu Carl Zeiss.
Skilmálar samkomulagsins voru
ekki gefnir upp, en í frétt frá
PR-fréttaþjónustunni sagði að
búist væri við að gengið yrði frá
kaupunum, sem þurfa samþykki
þýskra stjórnvalda, snemma á
næsta ári.
Anschuetz hefur bækistöðvar í
Kiel í norðurhluta Þýskalands og
er í fremstu röð framleiðenda í
sjálfstýribúnaði, stýristjórnkerfum
og snúðáttavitum, sem miðast við
norðurpól, en ekki segulpól og eru
því óháðir segultruflunum.
Anschuetz verður hluti af sigl-
ingafyrirtæki Raytheon, sem fram-
leiðir ratsjár- og samskiptabúnað
og selur um allan heim. Þessi sam-
runi mun bæta stöðu Raytheon á
sviði siglingabúnaðar þar sem nú
getur fyrirtækið boðið upp á kerfi,
sem sameinar skipstjórn og upplýs-
ingar frá ratsjá, hnattstöðukerfi
(Global Positioning System eða
GPS), snúðáttavita og gervihnatta-
boð.
Raytheon er 9,2 milljarða
Bandaríkjadollara fyrirtæki með
höfuðstöðvar í Massachusetts. Fyr-
irtækið framleiðir rafeindabúnað
bæði til almennra nota og hernað-
amota og nær framleiðslan allt frá
flugbún^ði til heimilistækja.
Jólaskreytinguna fœrð þú hjá okkur
Einnig allt efni tiljólaskreytinga
Kerta- og hyasintuskreytingar, krossar
greinar, lugtir og kerti á leiði.
GRÓÐRASTÖÐIN W
GARÐSHORN
við Fossvogskirkjugarð, sími 40500
OPIÐ ALLA DAGA KL. 10-22
Stærð: 101-125 cm I Verö: tr. 2.000
I 126-150 cm I tr. 2.500
151-175 cm hr. 3.400
176-200 cm I tr. 3.900
201-250 cm 1 tr. 4.300«
250-300 cm 1 tr. 4.500