Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ 4, Áætlun um rekstur, fjármál og framkvæmdir næstu þriggia ára Aðhaldi beitt og lántökur ekkiauknar næsta ári, 329 milljónir á því þarnæsta og loks 342,1 milljón árið 1997. „ÞETTA er aðhaldsáætlun, við gerum ekki ráð fyrir að auka á lántökur, það er ekki stefnan að lenda í skuldafeni eins og svo mörg önnur sveitarfélög. Það eru erfiðleikatíma og við ætlum frekar að fara út í meiri framkvæmdir seinna þegar fjárhagurinn verður rýmri,“ sagði Sigfríður Þorsteins- dóttir, forseU bæjarstjórnar Akur- eyrar, um Áætlun um rekstur, fjármál og framkvæmdir á árunum 1995-1997 en fyrri umræða um áætlunina verður til umræðu á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í dag, þriðjudag. Áætlunin er stefnumarkandi hvað varðar rekstur, fjármál og framkvæmdir á vegum bæjarins á næstu þremur árum. Stefnt er að því að rekstrargjöld verði ekki hærra hlutfall en 73,55 af skatt- tekjum á næsta ári og lækki um 1% árin 1996 og 1997. Nýmæli í rekstri verða aðeins tekin upp að tekjur aukist eða hægt sé að ná fram hagræðingu, sparnaði eða breytingu á núverandi rekstri. Þá er stefnt að því að langtímalán bæjarsjóðs hækki ekki á tímabil- inu. Forsendur áætlunarinnar eru m.a. að spáð er að íbúum bæjarins fjölgi um 1% á ári að jafnaði á tímabilinu og gert er ráð fyrir að skattstofnar skili sambærilegum tekjum næstu árin en tekjur auk- ist lítillega vegna fjölgunar'íbúa. Gert er ráð fýrir að útsvarstekjur aukist um 0,5% á ári og að tekjur af fasteignagjöldum hækki um 1% á ári. 37 milljóna hagræðing Á árinu 1995 er gert ráð fyrir að ná hagræðingu í rekstri sem leiðir til lækkunar rekstrargjalda um 15 milljónir á næsta ári og 11 milljónir árin 1996 og 1997 eða samtals um 37 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að þessari hag- ræðingu verði náð með því að fara skipulega yfir rekstrarútgjöld bæj- arsjóðs og draga úr kostnaði eins og kostur er með bættum innkaup- um á rekstrarvörum og þjónustu og minni launakostnaði með mark- vissri vinnubrögðum. Alls er gert ráð fyrir í áætlun- inni að rúmur milljarður fari til fjárfestinga, gjald- og eignfærðra á tímabilinu, 337,2 milljónir á Bókasafn og sundlaug bíða Hvað varðar eignfærðar fjár- festingar er gert ráð fyrir að var- ið verði 83 milljónum til félags- mála, þar af eru 50 milljónir vegna byggingar Giljaleikskóla. Til heil- brigðismála verður.varið 24 millj- ónum á tímabilinu, 252 milljónum til fræðslumála og verður aðalá- herslan lögð á einsetningu grunn- skóla norðan Glerár að sögn for- seta bæjarstjórnar. Rúmlega 41 milljón er áætluð menningarmála. Á næsta og þarnæsta ári fara tæpar 20 milljónir til Listamið- stöðvar í Grófargili, en árið 1997 er áætlað að nota 20 milljónir í Amtsbókasafnið á Akureyri. Til fjárfestinga á sviði íþrótta- og tómstundamála fara 71,5 milljónir á tímabilinu, og munar þar mestu um 64 milljóna króna framlag vegna framkvæmda við Sundlaug Akureyrar árið 1996, en að sögn Sigríðar var ákveðið að fresta framkvæmdum við laugina sem hófust á þessu ári um eitt ár. Morgunblaöið/Kúnar Pór MIKIÐ rót var í höfninni við Slippstöðina-Odda í gærmorgun í hríðarbyl sem gekk yfir og voru festar skipanna því tryggðar. Akureyringar sluppu þó að mestu við óveðrið. Hömlur á dreifingu kjúklinga frá Fjöreggi á Svalbarðsströnd Jóla- steikin lækkar VERÐ á hefðbundinni jólasteik iækk- aði um allt að 30% frá fimmtudegi til föstudags eða frá því árleg verð- könnun Neytendafélags Akureyrar og nágrennis fór af stað. Vilhjálmur Ingi Árnason, formaður félagsins, sagði harða samkeppni fjögurra verslana hafa leitt til verðlækkana. Dæmi eru þess að verð á algengum jólamat hafi lækkað umtalsvert frá þvi í fyrra. Verðkönnun Neytendafélags Ak- ureyrar var gerð á fimmtudag, en síðdegis þann dag bárust félaginu fjöl- margar breytingar á verði frá því sem gefið hafði verið upp um morguninn. Jólasteikin hefur lækkað umtals- vert frá því samskonar könnun var gerð í fyrra, sem dæmi má nefna að Bayonneskinka kostaði 711 krónur kílóið í Hagkaup þá en nú 698 krón- ur. Verð á lambalæri hefur lækkað mun meira, kostaði 845 krónur kílóið í llagkaup í fyrra en nú 545 krónur. Úrbeinaður hamborgarhryggur með beini hefur lækkað um 100 krónur kílóið í versluninni milli ára. HÖMLUR hafa verið settar á dreifingu kjúklinga frá alifuglabú- inu Fjöreggi á Svalbarðsströnd í Eyjafirði þar sem meirihluti sýna var mengaður af salmonellu. Brynjólfur Sandholt * yfirdýra- læknir sagði að svo virtist sem starfsaðferðum á búinu væri áfátt, ögun skorti við störf á búinu. „Þetta var í þokkalegu horfi í fyrra en ástandið virðist hafa versnað til muna í ár og framleiðandinn hefur ekki náð tökum á þessu og því eru þessar hömlur settar,“ sagði Brynjólfur. Hann sagði að málið yrði skoðað frekar og afurðum hleypt á markaðinn aftur uppfylltu þær kröfur Hollustuverndar ríkisins um að salmonellamengun í kjúkl- ingum sé undir 5%. Þessar kröfur hafa framleiðendur hjá Fjöreggi ekki uppfyllt um langan tíma, að sögn yfírdýralæknis, en salmon- ellamengun á búinu hefur verið mismunandi mikil eftir tímabiíum. Ekkert fer út fyrr en búið er að taka sýni aftur „Það verður fylgst með fram- leiðslunni þannig að ekkert fer út fyrr en búið er að taka sýni aftur og miðað við þær niðurstöður sem út úr þeim koma verður haft sam- band við Heilbrigðiseftiriit Eyja- fjarðar og Hollustuvernd um hvernig þessi vara verður með- höndluð," sagði Brynjólfur. Salmonella finnst í öllu lífríkinu og sagði yfirdýralæknir að ætíð gæti komið upp að hún fyndist í framleiðlslu. Hann vildi brýna fyr- ir mönnum að fara skilmerkilega eftir leiðbeiningum á umbúðum kjúklinga m.a. varðandi það hvernig ætti að þíða þá upp og sjóða. „Þá mun mönnum ekki verða meint af, en á hinn bóginn skulu menn hafa það í huga að þeir geta verið að kaupa salmon- ella mengaðan kjúkling, það er aldrei hægt að útiloka það,“ sagði Brynjólfur. Tvö snjó- flóð yfir Múlaveg TVÖ snjóflóð féllu á alræmdan snjóflóðakafla á Múlavegi milli Ólafsfjarðar og Dalvík- ur um helgina, hið fyrra sem var sýnu stærra, um 60 metra breití, féll aðfaranótt sunnu- dags og það seinna á sunnu- dag. Vegurinn varð af þeim sökum ófær um tíma. Snjó kyngdi niður í Ólafs- firði um helgina og er þar allt á kafi í snjó, þar var iðu- laus stórhríð I gærmorgun en engin skakkaföll fylgdu. Óveðrið sem gekk yfir um helgina náði aldrei inn til Akureyrar en þar var nokkur bylur í gærmorgun. Færð spilltist þó ekki og gekk um- ferð áfallalaust að sögn varð- stjóra lögreglunnar. í I I í l l Eldur laus í \ Grýlu g*ömlu Ólafsfiröi. Morgunblaðið. SVO óheppilega vildi til þegar Grýla gamla og Leppalúði ásamt jólasveinum sínum heimsóttu Barnaskólann í Ólafsfirði síðastlið- j in föstudag að sökum þrengsla í skólastofu sex ára barna varð Grýlu það á að reka sig utan í j logandi kerti. Afleiðingarnar urðu þær að eldur varð laus í gæru- skinnfeldi sem hún klæðist jafnan við hátíðleg tækifæri. Uppi varð fótur og fit meðal barnanna sem horfðu skelfíngu lostin upp á Grýlu í ljósum logum. Gerðu þeir kennur- um sínum þegar viðvart og tókst með góðri samvinnu og snarræði nemenda og kennara að slökkva eldinn þannig að Grýla hlaut ekki j skaða af. Hins vegar munu jólaföt- ' in vera illa leikin. Veitt verði fé til kaupa á skyggni- magnara FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á Akureyri hefur farið þess á leit við bæjarráð að Akureyrar- bær veiti sérstaka fjárveitingu til greiðslu á 15% hlut sveitar- félagsins í kaupum á skyggni- magnaratæki á skurðstofu, en heilbrigðisráðuneytið hefur gefið fyrirheit um að veitt verði fé til greiðslu á hlut ríkisins í fjáraukalögúm fyrir árið 1994. Áætlaður hluti sveitarfélagsins nemur um 2,5 milljónum króna. Fjárveitingin er tekin upp við endurskoðun frumvarps að fjárhagsáætlun fyrir árið 1995. Snjóplógur keyptur LEITAÐ hefur verið heimildar bæjarráðs til kaupa á snjóplóg af Sandblæstri og málmhúðun sem kostar 800 þúsund krónur auk virðisaukaskatts. Með tæk- inu þarf að kaupa ventlakistu og tékka að upphæð 250 þús- und krónur. Bæjarráð sam- þykkti á fundi sínum að heim- ila kaupin enda verði þau greidd af fjárveitingu til véia- kaupa á árinu 1995. Viðgerð á pípuorgeli BÆJARRÁÐ frestaði af- greiðslu á erindi frá sóknar- nefnd Akureyrarkirkju sem leit- aði eftir stuðningi frá Ak- ureyrarbæ til viðgerða á pípu- orgeli kirkjunnar en fyrir liggur mjög kostnaðarsöm Viðgerð á því. Stuðningur við ræktun í Eyjafjarðará BÆJARRÁÐ hefur lýst yfír stuðningi við ræktunarstarf Veiðifélags Eyjafjarðarár, en stjórn félagsins ritaði ráðinu bréf þar sem greint er frá því að þrír bændur við vestanverðan Eyjaíjörð hafi leitað eftir því við landbúnaðarráðuneyti að bann frá árinu 1979 við veiði göngusilungs í net í vestanverð- um Eyjafirði verði afnumið. Ráðuneytið leitaði umsagnar Veiðifélags Eyjagarðarár um erindið en félagið leggst ein- dregið gegn því að bannið verði fellt úr gildi og vísaði til stór- aukinnar veiði í ám vestan Eyja- fjarðar eftir að bannið tók gildi og vaxandi áhuga á ræktun í ánum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.