Morgunblaðið - 20.12.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.12.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 13 LANDIÐ Mjólkurframleiðendur samþykkja samkomulag um úreldingu mjólkursamlagsins í Borgarnesi „Sár leiðindi og sorg að standa að þessu“ Borgarnesi - Á aukafundi fulltrúa Mjólkursamlags Borgfirðinga, sem haldinn var á föstudaginn var samkomulag um úreldingu MSB samþykkt með 22 atkvæðum gegn 13 og á aukafundi fulltrúa Mjólk- urbús Borgfirðinga sem haldinn var sama dag var samkomulagið samþykkt með 22 atkvæðum gegn 8. Þórir Páll Guðjónsson kaupfé- lagsstjóri kvaðst vera mjög feginn að komin væri niðurstaða í þessu máli svo hægt væri að fara að vinna að framhaldinu á föstum grunni. Sagði Þórir Páll að ef sam- komulagið hefði ekki notið sam- þykkis þessara funda hefði sam- komulagið verið í uppnámi og mjög erfitt fyrir stjórn KBB að vinna úr því. Umrætt samkomulag er milli Kaupfélags Borgfirðinga og Mjólkursamsölunnar í Reykjavík. Aðal markmið samkomulagsins eru, eins og fram kemur í sam- komulaginu: A) Að leysa í einu lagi ágreining um eingarhald að Mjólkursamsöl- unni í Reykjavík og Mjólkursam- lagi Borgarfirðinga, án þess að til kostnaðarsamra og tímafrekra málaferla komi. b) Að ná fram sem mestri hagræðingu í mjólkur- vinnslu á sölusvæði Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík og c) að styrkja, eftir því sem kostur er, atvinnustarfsemi í Borgarnesi og nágrenni. Kaupfélag Borgfirðinga afsala sér jafnframt tilkalli til eignar- hluta í Mjólkursamsölunni í Reykjavík. Kaupfélag Borgfirð- inga er viðurkennt sem eini eig- andi að Mjólkursamlagi Borgfirð- inga. Mjólkurframleiðendur á fé- lagssvæði kaupfélagsins afsala sér jafnframt öllu tilkalli til eignar- hluta í Mjólkursamlaginu, að því tilskildu að þeir fái greidda út hluti sína í sérgreindum stofnsjóði sam- lagsins. Innviktun haldið áfram Samkomulagið felur í sér að Mjólkursamlag Borgirðinga, MSB, verði úrelt gegn því að um 4 til 500 milljónir komi með einum eða öðrum hætti fyrir, þar af um 250 milljónir sem hlutdeild í sparnaði og hagræðingu í mjólkuriðnaðin- um. Ennfremur verði stofnað nýtt hlutafélag um atvinnurekstur í Borgamesi. Hlutafé hins nýja fé- lags verði a.m.k. 80 milljónir króna og eigi KBB um 50% og MS, Osta- og smjörsalan og Mjólkurbú Flóa- manna - MBF - o.fl. 50%. Gert er ráð fyrir að hlutafélagið taki yfir ýmsa framleiðslu og þjónustu, sem rekin hefur verið í húsnæði MSB við Engjaás í Borgarnesi, auk framleiðslu og pökkun á ávaxtasöfum, sem fram að þessu hefur farið fram hjá Mjólkurbúi Flóamana á Selfossi. Vinnuhópur fulltrúa fyrirhugaðra eignaraðila hlutafélagsins hefur tekið til starfa og verður undirbúningshlutafélag stofnað fyrir 15. janúar 1995 með hlutafé að upphæð 10 milljónir. Að sögn Þóris Páls Guðjónssonar kaupfélagsstjóra væri undirbún- ingsfélagið stofnað til þess að ekki þyrfti að koma til stöðvunar á atvinnutarfsemi á meðan breyt- ingin færi fram. Þrátt fyrir úreldingu Mjólkur- samlags Borgfirðinga verður hald- ið áfram innvigtun á mjólk úr Borgarnesi og dreifing á mjólk og mjólkurafurðum og mjólkureftirlit með svipuðum hætti og aður en allri mjókurvinnslu verður hætt. Leiðindi og sorg Margir þeirra sem tóku til máls á fulltrúafundunum tóku það fram að þó að þeir væru innst inni á móti úreldingu MBS þá gætu þeir ekki greitt atkvæði á móti boðaðri hagræðngu sem fælist í úrelding- unni. Guðjón Viggósson bóndi í Rauðanesi Borgarhrepi orðaði það svo: „í mínum huga eru það sár leiðindi og sorg að þurfa að standa að þessu. í um 45 ára skeið hef ég átt afskaplega ánægjuleg og góð samskipíi við starfsfólk í þessu fyrirtæki og lengi vel ól ég þá von í bijósti að það væri hægt að kom- ast hjá því að ganga þennan veg. En einhveijir menn hafa sett okk- ur á brautina, við erum eins og sporvagn sem að rennur eftir ákveðnu spori og þaðan er ekki svo auðgengið." Þórarinn Jónsson bóndi á Hamri í Þverárhlíð og full- trúi í stjórn KBB sagði m.a.: „Ég stend hér ekki uppi sem einhver sérstakur úreldingarsinni, því mér er býsna sárt um þetta fyrirtæki okkar. En ég þykist vera búinn að velta fyrir mér þeim valkostum sem fyrir eru, eins og ég hef vit til og valkostnirnir eru ekki margir. Við skulum átta okkur á því að hag- ræðingarumræðan stoppar ekkert á þessum tímapunkti þó við sting- um við fótum. Hún heldur áfram og við gætum hugsanlega staðið frammi fyrir því, ef við nýtum ekki þetta tækifæri núna, að við yrðum að fórna þessu fyrirtæki okkar bótalaust.“ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson „Andskotans ullarkambar“ VÍSA Páls Ólafssonar, Vínlaus er vont að lifa, kom í huga frétta- ritara þegar Guðfinni Finnboga- syni bónda í Miðhúsum á Strönd- um voru réttir ullarkambar I Sænautaseli í Jökuldalsheiði á dögunum. í vísunni ber Páll sig illa yfir brennivínsleysi á bænum og að hann verði að þamba blönd- una við gegningar og endar hún svo: Klökugur inn þá kominn er/kvenfólkið réttir strax að mér/andskotans ullarkamba. -------» ♦ ♦-- Aðventu- kvöld í Reykjahlíð- arkirkju Mývatnssveit - AÐVENTUKVÖLD var í Reykjahlíðarkirkju fimmtudag- inn 15. desember kl. 20.30. Þar söng kór kirkjunnar undir stjóm Jóns Áma Sigfússonar, einsöngvari með kórnum var Hildur Tryggvadóttir en undirleik annaðist Wolfgang kennari við Tón- listarskólann ( Reykjahlíð. Barnakór skólans söng undir stjóm Garðars Karlssonar. Hafdís Finnbogadóttir flutti hugvekju á aðventu. Wofgang og kona hans Antje fluttu sónötu fyrir orgel og lágfiðlu. Þá var farið með blessunarorð og bæn og allir sungu Heims um ból. Siðast var eftir- spil, Wolfgang lék á orgel, Þórunn Steinardóttir og Antje á fiðlur. Séra Öm Friðriksson prófastur á Skútu- stöðum stýrði aðventukvöldinu sem var mjög hátíðlegt. Fjölmenni var. Gleðileg íslenskjól —já takk ,1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.