Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Hádegisverðarfundur ÍMARK Hvað er að gerast á bókamarkaðnum? íslenski markaösklúbburinn boöar til hádegisverðarfundar um væringarnar á bókamarkaönum. Fundurinn veröur haldinn á Hótel Loftieiðum, Víkingasal, þriöjudaginn 20. desember kl. 12:00 -13:30. Hvaö er almennt aö gerast á bókamarkaönum? Hvaöa áhrif hafa tilboö Hagkaups og Bónuss á bóksöluna? Mun sölumynstriö breytast til frambúöar? Hver eru viöbrögö bóksala? Hver eru viöbrögö rithöfunda? Þessum spurningum og fleiri veröur leitast viö aö svara á fundinum og án efa veröa umræður líflegar. Munið að mæta tímanlega því búast má við fjölda fundarmanna. Frummælendur: Einar Kárason, rithöfundur JóhannesJónsson, Bónus Halldór Guömundsson, útgáfustjóri Máls og Menningar Teitur Gústafsson, framkvæmdastjóri Félags bóksala Aðgangseyrir: kr. 1.500 fyrir ÍMARK-félaga, kr. 2.000 fyrir aðra. Innifaliö í verði er léttur hádegisverður og kaffi. MU N I Ð A ð G R EIÐ A FÉLAGSGJÖLDIN! - kjarni málsins! VIÐSKIPTI Delta hf. að selja Viking Brugg á Akureyri Ekki reynst vel að fjar- stýra verksmiðjunni OTTÓ B. Ólafsson, framkvæmda- stjóri Delta hf., segir aðalástæðu þess að fyrirtækið hyggist selja Viking Brugg-bjórverksmiðjuna á Akureyri þá að ekki hafi reynst vel að fjarstýra verksmiðjunni frá Reykjavík undanfarin tvö ár. „Þetta er einnig tiltölulega óskyldur rekst- ur frá lyfjaframleiðslu og fram- leiðsluferlið ólíkt,“ sagði Ottó. Eins og fram hefur komið hafa að undanförnu staðið yfir viðræður milli Delta hf. annars vegar og Kaupfélags Eyfirðinga og Valbæjar hf. hins vegar um sölu á Viking Brugg. Ríkir bjartsýni um að samn- ingar takist á milli þessara aðila á næstunni. Ottó svaraði því neitandi að rekstur verksmiðjunnar á Akureyri hefði almennt gengið illa. „Rekstur- Aukin bjartsýni bóksala SALA á jólabókunum í bókaversl- unum hefur tekið verulegan kipp undanfarna daga eftir afar dræma sölu um þarsíðustu helgi þegar stórmarkaðir seldu mikið af bókum á afsláttarverði. Teitur Gústafsson, formaður Félags ritfanga- og bókaverslana, segir að bóksalan hafi farið hægt af stað fyrstu dagana í síðustu viku. „Okkur sýnist að salan sé komin á gott ról og fari vaxandi dag frá degi. Eg hef haft samband við bók- sala á landsbyggðinni og þeir segja að salan sé vaxandi. Það var mjög dauft hljóðið í mönnum fyrir rúmri viku en eftir helgina eru menn bjartsýnni um að salan nái sér á strik.“ Að sögn Árna Einarssonar, framkvæmdastjóra Máls og menn- ingar hf., var salan þar fyrstu 18 dagana í desember um 10% minni en á sama tíma í fyrra. Hins vegar hefði bóksalan um síðustu helgi í verslunum fyrirtækisins verið um 23,6% minni en á sama tíma í fyrra. Þennan samdrátt um helgina mætti án efa að nokkru leyti rekja til slæms veðurs. Árni er bjartsýnn um að salan eigi eftir verða veruleg fram til jóla og sagði að ekki mætti ekki gleyma því að þegar aðfangadagur væri á laugardegi og sunnudegi væri verslunarmynstrið allt annað en þegar hann hann kæmi upp á öðrum vikudögum. „Þegar að- fangadagur er um helgi dregst sal- an saman fyrri hluta mánaðarins en síðan kemur mikil holskefla í sölunni síðustu vikuna fyrir jól. Ég er sannfærður um að aðalsölu- tíminn er eftir og spái því að við munum vinna þennan samdrátt upp fram að jólum.“ Bóksala stúdenta veitir 10% af- slátt af jólabókunum í desember og segir Sigurður Pálsson, versl- unarstjóri, að salan hafi verið held- ur meiri um helgina en á sama tíma í fyrra. Hann benti hins vegar á að stór hluti bóksölunnar í desem- ber hefði jafnan farið fram í síð- ustu vikunni fyrir jól. Vegna af- sláttartilboða Hagkaups og Bónus ríkti að þessu sinni óvissa um hvernig salan yrði fram til jóla. Óvíst væri hversu stór hluti af söl- unni hefði færst yfír til stórmarkað- anna eða hvort aðgerðir þeirra hefðu stækkað markaðinn. inn hefur gengið þolanlega miðað við aðstæður. Verksmiðjan er til- tölulega stór miðað við íslenska markaðinn. Menn voru mjög bjart- sýnir á sínum tíma þegar hún var byggð upp og reiknuðu með 15-16 milljón lítra markaði á ári.- Hún annar um sjö milljónum lítra eða sem samsvarar öllum íslenska markaðnum. Það má búast við að framleiðsla verksmiðjunnar verði nálægt þremur milljónum lítra en innlendu aðilarnir tveir eru með um 70% af markaðnum." Viking Brugg hefur þreifað fyrir sér með útflutning á bjór en Ottó sagði að það hefði verið þungur róður. „Það er mikil umframfram- leiðslugeta í Evrópu og fyrirtækin hafa verið að selja bjór á mjög lágu verði m.a. til íslands," sagði hann. Varðandi áhrif af fyrirsjáanlegu afnámi verndartolls á innfluttan bjór 1. apríl á næsta ári sagðist Ottó ekki eiga von á því að það hefði slæm áhrif á stöðu innlendu framleiðslunnar. Innflytjendur þyrftu þá jafnframt sjá um innflutn- inginn og lagerhald á bjórnum og sá kostnaður mýndi vega þyngra en niðurfelling á vemdartollinum. Hjá Viking Brugg starfa um 20 manns við framleiðslu á sterkum bjór. Magnús Gauti Gautason, kaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga, segir arðsemissjónarmið liggja að baki áhuga félagsins á helmingseign í Viking Bragg. „Þar að auki erum við mjög stórir í matvæla- og drykkj- arvöruframleiðslu þannig að þetta fellur ákaflega vel að þeim þætti.“ Morgunblaðið/Sverrir STEYPUSTÖÐ Steinsteypunnar hf. hefur verið sett upp nálægt álverinu í Straumsvik. Steinsteypan hf. að ljúka uppsetningu steypustöðvar í Hafnarfírði Framleiðslan hefst í febrúar NÝR aðili bætist við á st.eypu- markaðnum á höfuðborgarsvæð- inu í byijun næsta árs. Forsvars- menn Steinsteypunnar hf. í Hafn- arfirði hafa frá síðasta sumri unn- ið að undirbúningi starfseminnar, sem hefur að sögn Péturs Guð- mundssonar, eins hluthafa félags- ins, tafist af ýmsum óviðráðanleg- um ástæðum. Nú er gert ráð fyr- ir að Steinsteypan hf. hefji fram- leiðslu í febrúar nk. „Við áætluðum í upphafi að hefja starfsemina í ágúst sl., en ýmis atriði urðu til þess að seinka málunum. Nú er hins vegar allt að skríða saman,“ sagði Pétur. „Við eigum bara eftir að setja uþp færiband stöðvarinnar og ég reikna með að það verði komið upp í fyrstu vikunni í janúar." Að sögn Péturs er áætlað að framleiðsla hefjist upp úr miðjum janúar og þá verður fyrst um að ræða prufuframleiðslu fyrir Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðar- ins. „Það getur tekið allt upp und- ir mánuð að fá þar grænt ljós á framleiðsluna þannig að við mun- um væntanlega ekki byrja að framleiða fyrir almennan markað fyrr en í lok febrúar,“ sagði Pét- ur, og ennfremur að menn væru bjartsýnir á framhaldið enda hefðu ýmsir aðilar haft samband til þess að forvitnast um hvenær framleiðslan færi í gang. Afkastagetan er 50 rúmmetrar á klst. Steypustöðin sem forsvarsmenn Steinsteypunnar hf. hafa sett upp í Hafnarfirði, nálægt álverinu í Straumsvík, var áður í eigu Landsvirkjunar, en hefur staðið ónotuð við Blönduvirkjun frá árinu 1991. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá keypti hópur aðila, und- ir nafni Guðmundar Ingólfssonar, fyrrum stöðvarstjóra hjá Hrauni hf., sem rak steypustöðina Ós, steypustöðina að undangengnu útboði hjá Landsvirkjun. Um er að ræða stöð af gerðinni Röbácks, árgerð 1980; og er afkastageta hennar 50 rúmmetrar á klukku- stund. Kaupverðið var 15,9 millj- ónir króna án virðisaukaskatts. € !t ( i e í, < i I í i i l i í ■ i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.