Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 26
T
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
LISTIR
Skínandí
flautuleikur
TÓNLIST
Illjómdiskar
ROMANCE
Haydn, Beethoven, Kuhlau, Doppl-
er, Dvorák, sígaunasöngvar. Mart-
ial Nardeau (flauta), Guðrún Birg-
isdóttir (flauta), Anna Guðný Guð-
mundsdóttir (píanó). Romance MG
004 RÚV. Dreifing Skífan.
ENN berast þessir fínu og
fáguðu hljómdiskar frá íslensk-
um einleikurum og ekki kvarta
ég! Hitt er svo annað mál ef
menn hætta að taka mark á því
sem ég skrifa í þessum pistlum
vegna lofsyrðanna, þá vil ég
bara benda þeim mönnum á, sem
ekki vita það, að við sitjum uppi
með heilan hóp af frábærum (og
duglegum) hljóðfæraleikurum,
jafnvígum á einleik, samleik, og
kammermúsík yfirleitt.
Það er síður en svo að allir
séu að senda frá sér hljómdiska.
(Ég er ekki að tala um alla
söngvarana og okkar ágætu kóra
— eða sinfóníuna að þessu
sinni...) Og hvað um alla okkar
stórefnilegu nemendur í tónlist
og tónlistaráhugann yfir-
leitt? Er ekki kominn tími
til að sýna tónlistarmálum
verðskuldaða viðurkenn-
ingu og taka höndum sam-
an um byggingu tónlistar-
húss? Þetta er svona að
gefnu tilefni.
Ég er víst að fjalla um
Marital Nardeau og Guð-
rúnu Birgisdóttur flautu-
leikara og Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur píanó-
leikara á nýjum hljómdiski
með léttklassískri tónlist
eftir Haydn, Beethoven,
Kuhlau, Dvorák o.fl. Þó
að verkin séu áheyrileg og ágæt
er það fyrst og fremst sjálfur
hljóðfæraleikurinn sem gerir
hljómdiskinn svo ánægjulegan
og eigulegan, flautuleikurinn
sérlega fallegur og músíkalskur
vel og píanóleikurinn einnig
fyrsta flokks. Jafnvel alþekkt
sígaunalög fá nýjan þokka og
eru viðeigandi endir á þessum
bjarta og ferska samleik.
Ég sé í raun og veru ekki
sérstaka ástæðu til að fjalla
nánar um verkin, sem eru góð
(annaðhvort væri nú!) og áheyri-
leg. Um flytjendur gildir hið
sama og ég hef verið að skrifa
um kollega þeirra undanfarið,
þeir eiga frækilegan námsferil
að baki og víða komið fram hér
heima og erlendis.
Martial Ardeau hefur búið hér
og starfað síðan 1982 og hafa
mörg verk verið samin sérstak-
lega fyrir hann á undanförnum
árum. Að auki er hann djassisti
góður og tónskáld (í frístund-
um). Guðrún Birgisdóttir (sem
steig sín fyrstu skref í Tónlistar-
skólanum hjá ekki ómerkari
listamönnum en Jóni Sigur-
bjömssyni og Manuelu Wiesler)
hefur einnig spilað mikið sam-
tímatónlist og frumflutt mörg
íslensk verk. Bæði hafa þau lagt
stund á barokkflautuleik á síð-
ustu árum (sem kemur við hjart-
að í músikunnendum).
Hljóðritun (Hreinn Valdi-
marsson) og stjórn upptöku
(Bjami Rúnar Bjarnason) er
fyrsta flokks.
TÓNLIST
Hljómdiskar
HAUKUR TÓMASSON/
PORTRAIT
Spírall (1992), Eco del passato
(1988), Octett (1987), Kvartett II
(1989), Afsprengi (1990), Strati
(1993), Áshildur Haraldsdóttir,
flauta. Anna M. Magnúsdóttir,
harpsikord. CAPUT-hópurinn.
Tónverksmiðstöðin og RUV. ITM
7-07.
SPÍRALL. Caput-hópurinn.
„Þetta er eins og hljómagangur
í djass-standard, sem breytist
smám saman og endar einhvers
stðar allt annars staðar en hann
byijar,“ Haukur Tómasson.
Verkið er í sjö hlutum. — Eco
del passado. Asthildur Haralds-
dóttir á flautu, Anna M. Magnús-
dóttir á harpsikord. Verkið, sem
samið er á Ítalíu, er í fjórum
mislöngum köflum. „Hljóðfæra-
skipanin vísar (líka) augljóslega
„Andlitsmynd“ af
Hauki Tómassyni
til fortíðarinnar.“ —
Octette. CAPUT.
Verkið er í sex sam-
tengdum köflum og
er hópnum oft deilt
niður í fjögur dúó
(flautu og klarinett,
horn og saxafón, ví-
ólu og selló, píanó og
slagverk). „í stað
fjölröddunar í hefð-
bundnum skilningi
em búin til nokkur
samtíma ferli sem
hvert hefur sinn þró-
unarhraða og tak-
mark.“ — Kvartett II. Haukur
CAPUT. „Verkið er
unnið út frá einfaldri laglínu sem
gengur í gegnum sífelldar um-
myndanir og hefur
að lokum breyst í
hljómrænt efni.“
Gerist hægt, ber
mikið á andstæðum.
— Afsprengi. Sin-
fóníuhljómsveit
danska ríkisút-
varpsins, stjórnandi
Leif Segerstam." —
Teflt saman tveim-
ur hljómagöngum
sem báðar era
vaxnar af sama
meiði“ ... hreyfist
eins og skriðjökull,
Tómasson ag sögn höfundar.
Strati. Sinfóníu-
hljómsveit íslands, stjórnandi
Páll H. Pálsson. „Verkið þróast
frá upphafi úr þéttum tónvef
yfir í mjög einfaldar hugmyndir
þar sem efnið birtist berstrípað."
Allt frá Schönberg til Strav-
inskis (jafnvel allt í senn), í
mjög svo mótuðu eigin tónmáli.
Öll verkin meira eða minna
glimrandi tónsmíðar — í senn
fijálsar og agaðar. „Skipulagt
kaos.“ Leitandi „út“ eða „inn“.
Jafnvel í frumeindir sínar.
Spennandi og ögrandi í hljómum
og ferli. Eiginlega mjög falleg.
Jarðverkin flottust, að mati und-
irritaðs. Fjórar stjörnur fyrir
Strati.
Allur flutningur hafinn yfir
gagnrýni. Áshildur og Anna, svo
ekki sé minnst á CAPUT, leika
eins og englar. Sinfóníuhljóm-
sveitimar — okkar ekki síður —
fyrsta flokks. Sömuleiðis hljóð-
ritun (Þórir Steingrímsson, Vig-
fús Ingvarsson, Hallgrímur
Gröndal. Upptökustjóri Bjarni
Rúnar Bjamason).
Oddur Björnsson.
NÝ NILFISK - NÚ Á FRÁBÆRU KYNNINGARVERÐI
MUNURINN LIGGUR í LOFTINU!
Nilfisk hefur hreinna útblástursloft en nokkur önnur
heimilisryksuga..Nýr síunarbúnaður, svonefnd HEPA sía, er
svo fullkomin, að 99,95% rykagna, jafnvel þótt þær séu
smærri en 1/10.000 úr millimetra, verða eftir í ryksugunni.
NILFISK GM210
25.640,- stgr.
ára ábyrgö
NILFISK GM200 NILFISK GM200E
21.400,-stgr. 17.990,-stgr.
NILFISK /FOniX
OMENGUÐ GÆÐI HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
3 litir og 3 útfærslur: Sameiginlegt er 1200W mótor, inndregin snúra,
innbyggð sogstykkjageymsla og aflaukandi kónísk slanga. GM200 og
GM210 hafa rykmæli og stillanlega rörlengd. GM210 að auki 2ja hraða
mótor, HEPA-síu og TURBO-teppasogstykki með snúningsbursta.
HEPA-sía og TURBO-sogstykki fást aukalega með GM200 og GM200E.
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar plötur
• ÚT ER kominn nýr 14 laga disk-
ur með Bjartmari Guðlaugssyni.
Undanfarin tvö og hálft ár hefur
Bjartmar verið búsettur í Óðinsvé-
um í Danmörku. Þar hefur hann
stundað listnám hjá danska list-
málaranum og fyrrverandi rektor
Fjónsku listaakademíunnar, Bendt
Veber.
Samhliða
listnáminu hef-
ur Bjartmar
flutt tónlist
sína vítt og
breitt um Dan-
mörku. í sumar
lék hann með
skandinavísku
hljómsveitinni
Nord-Mix og
kom meðal
annars fram á Skagen festival og
Tarm festival. í Nord Mix kynnt-
ist Bjartmar sænska rokksöngv-
aranum Steffan Sundström og var
það kveikjan að því að Bjartmar
fór til Svíþjóðar og hóf að starfa
með sænsku hljómsveitinni Bad
Liver.
Bjartmar fór síðan í Silence-
stúdíóið í Koppom í Svíþjóð ásamt
Bad Liver og fleiri sænskum hljóð-
færaleikurum. Dagana 25. til 30.
október 1994 voru síðan tekin upp
„live“ fjórtán ný lög.
Svíinn Johan Johansson stjóm-
aði verkinu.
(Útgefandi er Hrynjandi. Dreif-
ingeríhöndum Skífunnar.)
------» ♦ ♦
• KÓR Átthagafélags Stranda-
manna hefur sent frá sér geisla-
plötuna „ Smá vinir fagrid'. A
honum eru lög sem kórinn hefur
flutt á undanförnum árum, meðal
annars lög úr söngleikjum. Einnig
eru á plötunni einsöngs- og tví-
söngslög. Efnið er einnig fáanlegt
á snældu.
Upptökur fóm fram í Víðistaða-
kirkju síðastliðið vor. Stjórnandi
kórsins er Erla Þórólfsdóttir og
píanóleikarar þau Laufey Kristins-
dóttir og Pavel Smid. Kór átthaga-
félags Strandamanna var stofnað-
ur árið 1958 og hefur starfað nær
óslitið síðan.
Jón Pétur Jónsson frá Drangs-
nesi var fyrsti stjórnandi kórsins.
Magnús Jónsson frá Kollaíjarðar-
nesi tók við árið 1972 og stjórnaði
hann næstu ellefu árin. Árið 1983
varð Erla Þórólfsdóttir stjórnandi
og hefur verið það síðan, að einu
ári undanskildu. Kórinn heldur
aðventu- og vortónleika árlega.
Áður hafa komið út tvær hljóm-
plötur með kórnum, Kveðja heim
árið 1979 og Ljáðu mér vængi
árið 1983.
Landbúnaður
skapar
verðmæti
fyrir tæpa
20 milljarða
króna
áári.
iSUHSKUR
LANDBUNAÐUR