Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 33
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 33
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
EFTA-DÓMSTÓLL-
INN OG ÁTVR
DÓMSTÓLL EFTA kvað á föstudag upp ráðgefandi
álit vegna máls finnsks innflutningsfyrirtækis. Sam-
kvæmt álitinu er samkvæmt EES-samningnum óheimilt
að viðhalda einkaleyfi ríkisins á áfengisinnflutningi þegar
um er að ræða vöru, sem er upprunnin innan Evrópska
efnahagssvæðisins. Niðurstaðan er því sú — og hún á
ekki við um Finnland eingöngu — að innflutningur á áfengi
á að vera frjáls, rétt eins og á öðrum vörum, þótt smá-
sala kunni áfram að vera bundin ríkiseinkaleyfi. v
Álit EFTA-dómstólsins er athyglisvert efnislega, ekki
sízt að því leyti að dómstóllinn vísar á bug þeim röksemd-
um, að ríkiseinkaleyfi sé nauðsynlegt til að vernda heilsu
manna fyrir skaða af völdum áfengisneyzlu. „[. . .] unnt
er að ná því markmiði með ráðstöfunum, sem fela í minna
mæli í sér hindrun á vöruflutningum,“ segir dómstóllinn.
Þetta er í samræmi við ótalmargar vísbendingar um
að áfengisneyzla minnki alls ekki þótt innflutningur, dreif-
ing eða sala áfengis sé á hendi ríkisins. Niðurstaða EFTA-
dómstólsins styður því þá afstöðu Morgunblaðsins að tíma-
bært sé að endurskoða það kerfi einokunar í áfengissölu
hér á landi, sem hefur fyrir löngu gengið sér til húðar
og stríðir að flestu leyti gegn nútímalegum hugsunarhætti.
Hins vegar er álit EFTA-dómstólsins jafnframt athyglis-
vert að því leyti að dómurinn bendir á að afnema hefði
átt einkaleyfi ríkisins á áfengisinnflutningi i EFTA-ríkjun-
um, sem í hlut eiga, strax um síðustu áramót þegar EES-
samningurinn tók gildi.
Þetta hefur ekki verið gert hér á landi, þótt fjármálaráð-
herra hafi síðsumars lagt fram á Alþingi frumvarp um
afnám einkaréttarins, að fengnum athugasemdum frá
Eftirlitsstofnun EFTA. Það er auðvitað ófært að íslending-
ar standi ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-
samningnum, jafnmikið og þeir eiga undir því að önnur
ríki, sem aðild eiga að EES, virði ákvæði samningsins.
Alþingi ætti þess vegna að afgreiða frumvarp fjármálaráð-
herra hið snarasta.
Álit EFTA-dómstólsins um áfengisinnflutning er eitt
dæmi af mörgum um það aðhald, sem aðildin að EES
veitir stjórnvöldum hér á landi og þær umbætur í fijáls-
ræðisátt, sem samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði
hefur haft í för með sér.
GLASAFRJÓVGANIR
FLESTU fólki er eðlislægt að vilja eignast börn. Stað-
reynd er hins vegar að 10-15% para á barneignar-
aldri eiga við ófrjósemi að stríða. Landlæknir skilgreinir
ófijósemi sem sjúkdóm. í fjölmörgum tilfellum getur nú-
tíma heilbrigðisþjónusta hjálpað viðkomendum. Af þessum
sökum var starfsemi glasafrjóvgunardeildar Landspítala
mikið fagnaðarefni. Árangur af starfsemi deildarinnar
hefur og verið með ágætum. Um það bil þriðja hver með-
ferð hefur leitt til fæðingar, sem er talsvert meira en
meðaltalið annars staðar í heiminum.
í upphafi starfseminnar var áformað að meðhöndla
100-150 pör árlega. Þrátt fyrir fjölgun meðferða í 250
á ári eru meir en 600 pör á biðlista, sem getur þýtt hálft
þriðja ár í bið. Félagið Tilvera, samtök gegn ófijósemi,
segir mjög aðkallandi að stytta þennan biðlista með því
að bæta starfsaðstöðu glasafijógvunardeildar. Málsvarar
Tilveru telja að það þurfi 35 m.kr. í breytingar á hús-
næði og 10-15 m.kr. til tækjakaupa, auk nokkurrar fjölg-
unar starfsfólks, til að tvöfaida þjónustugetuna. En á það
ber að líta að hvert par greiðir yfir hundrað þúsund krón-
ur fyrir fyrstu meðferð og að starfsemi deildarinnar hefur
vakið verðskuldaða athygli erlendis þar sem þjónusta af
þessu tagi er keypt dýrum dómum.
Það er manneskjunni eðlislægt að eignast afkvæmi.
Þegar hægt er að hjálpa þeim, sem hjálpar þurfa við, til
að ná þessu eðlislæga markmiði manneskjunnar, sýnist
réttmætt að gera það. Hér á í hlut fólk sem er reiðubúið
til að greiða hátt kostnaðarhlutfall þjónustunnar. Hér er
og um að ræða þjónustu sem hægt er að markaðssetja
erlendis. Og kostnaður við að tvöfalda þjónustugetu glasa-
fijóvgunardeildar er ekki óyfirstíganlegur. Fjárveitingar-
valdið hefur eyrnamerkt framlög til þjónustuþátta af
minna tilefni en þessu.
7 6 ára gamall einbúi komst lífs af eftir að snjóflóð reif hús hans af grunni
Hamfarir á Siglufirði um helgina
Morgunblaðið/RAX
HÚS Karls Georgs er gjörónýtt og innbúið að mestu leyti einnig. Öll neðri hæðin er full af snjó og efri hæði að hluta, eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var innanhúss í gær.
„Var búinn að
sætta mig við
að kveðja“
EG HEYRÐI einhvern hvin
og svo var ég kominn út,
meira veit ég ekki. Ég
hafði ekki hugmynd um
að þétta væri snjóflóð, fyrr en löngu
eftir á og hélt að þetta væri vind-
hviða sem hefði sprengt allt upp,“
segir Karl Georg Guðmundsson, 76
ára gamall bóndi á bænum Saurum
á Súðavík. Bærinn er gjörónýtur eft-
ir að snjóflóð úr Traðargili í Súðavík-
urfjalli skall á honum laust eftir
klukkan 11 á sunnudagsmorgun.
Karl Georg kveðst ekki vita hvort
hann hafi misst meðvitund þegar
flóðið skall á húsinu, of erfitt sé að
gera sér grein fyrir því. Þegar hann
hafi komið til sjálfs sín hafi fætur
hans verið fastir í snjónum. „Ég var
alveg búinn að sætta mig við það
að kveðja,“ segir Karl Georg.
Barst áfram um 20 metra
Karl Georg sat á bekk við þann
gafl hússins sem vissi frá fjallinu og
talaði í síma við frænda sinn, þegar
símtalið slitnaði skyndilega. Var þá
farið að athuga um hann. Nágrannar
hans í ilæsta húsi fyrir neðan Saura
skyggndust út en sáu ekki til bæjar
sökum glórulausrar stórhríðar. Þrír
björgunasveitarmenn í Björgunar-
sveitinni Kofra fóru á
stjá skömmu síðar.
„Þegar við komum að
sáum við að húsið, sem
er nær aldargamalt timb-
urhús, hafði rifnað af
grunni og borist áfram
eina 20 metra þangað til
það staðnæmdist á skakk
og skjön. Flóðið virðist
hafa klofnað í tvennt
hálfvega niður að húsinu,
meirihlutinn skollið á því
en hinn hlutinn dreifst
yfir allstórt svæði nær
bænum. Einn okkar fór
til að gera viðvart en við
gengum tveir að húsinu
Fjalar Gunnarsson
og kölluðum," segir Fjalar Gunnars-
son, björgunarsveitarmaður. Karl
Georg kveðst hafa heyrt köllin, lyft
hausnum með erfiðismunum upp úr
snjónum og svarað. „Ég var eiginlega
búinn að gefast upp þá, og bjóst
ekkert við því að lifa lengur, enda
orðinn nákaldur," segir hann. Hann
var þá búinn að liggja í snjónum í
um hálfan annan tíma, hálfur inni í
húsinu og hálfur utan þess, en hann
sneri á hlið. „Við heyrðum dauft að
hrópað var á hjálp og gengum á hljóð-
in. Karl Georg lá þá á grúfu fram á
við með olnboga ofan á
snjónum sem náði hon-
um upp yfir mið læri.
Höfuð og hár voru
alsnjóug og það var ekki
auðvelt að greina hann.
Hann sagði að annar
fóturinn væri alveg fast-
ur og hann gæti ómögu-
lega hreyft sig. Ég
krafsaði snjóinn frá hon-
um og spurði hvort hann
kenndi sér meins. Hann
virtist ekki mikið slasað-
ur og við losuðum hann
alveg og bárum niður
að næsta húsi. Þar rudd-
umst við inn, drifum
hann úr fötunum og hlúðum að hon-
um og nudduðum til að ná upp lík-
amshitanum," segir Fjalar. Hjúkrun-
arkona kom á staðinn skömmu síðar
og hugaði að líðan hans.
Innbúið óvátryggt
Karl Georg var kaldur og þrekað-
ur. Eftir aðhlynningu var hann flutt-
ur á heimili Sigríðar Hrannar Elías-
dóttur, sveitarstjóra Súðavíkur og
formanns almannavarnarnefndar í
þorpinu. Þar kvartaði hánn yfir
eimslum í líkama og kastaði upp.
KARL GEORG Guðmundsson, bóndi, yfirgefur Sjúkrahús ísafjarð-
ar eftir að hafa gengist undir læknisskoðun þar síðdegis i gær.
Sigríður Hrönn hýsir Karl Georg nú,
og kveðst hann ekki vita hvert fram-
haldið verði en ljóst sé að hann sé
nú allslaus. Hann muni þó ekki deyja
ráðalaus. Búið er að opna söfnunar-
reikning númer 1000 honum til
stuðnings í Sparisjóði Súðavíkur.
Leiðin til Súðavíkur var ekki rudd
fyrr en um klukkan 13.30 í gær og
fyrst að því loknu gekkst hann undir
læknisskoðun á Sjúkrahúsi ísafjarð-
ar. Hann var víða marinn en annars
voru meiðsli hans ekki stórvægileg.
Traktor þeyttist langar leiðir
Karl Georg hafði búið á Saurum
í tæpan áratug, en húsið var í eigu
annars manns. Ljóst er að bæði innbú
hans og húsið sjálft voru óvátryggð.
Fjárhús við hlið hússins eru rústir
einar eftir flóðið. í því voru 13 kind-
ur, flestar í eigu Karls Georgs. Fimm
ær drápust og einn hrútur. Óökufær
Daihatsu Charade bifreið sem stóð á
hlaðinu lagðist saman undir snjó-
þunganum, og er með öllu ónýtur.
Zetor-dráttarvél Karls sem lagt var
fyrir aftan bæinn, kastaðist yfir hann
og liggur nú á hlið fyrir framan hús-
ið, grafin að mestu í snjó. Nýlegur
verkunarhjallur í nágrenni bæjarins
liðaðist í sundur í snjóflóðinu og er
brak úr honum á víð og dreif í slakka
til hliðar við bæinn, þar á meðal
bárujárnsplötur og tréflekar.
Um leið og vitað var um flóðið var
lýst yfir hættuástandi. Fimm hús
voru rýmd á sama svæði og flóðið
féll og yfirgáfu átta manns heimili
sín. Snjóflóðahættu var aflýst síðdeg-
is í gær en fólk beðið um að hafa
varann á.
Snjofloð fell ur Jörundar-
skál niður fyrir veg nokkru
sunnan við syðstu byggð
.
Fólk við Háveg, Suðurgötu c
Laugarveg yfirgaf hús sín un
tíma, en hætta var talin á
snjóflóðum úr Strengsgiljum
Snjóflóð féll skammt
frá syðstu byggðinni
Siglufirði. Morgnnblaðið.
SNJÓFLÓÐ féll úr Jörundar-
skál inn í Siglufirði um
klukkan 6 í gærmorgun.
Flóðið, sem var um 70
metra breitt, féll aðeins 150-200
metra frá syðstu byggð bæjarins.
Engin meiðsl urðu á fólki í flóðinu
og ekkert eignatjón.
Almannavamanefnd Siglufjarð-
arbæjar lýsti yfir hættuástandi um
Flæddi
inn í þijú
hús
SJÓR gekk langt upp á land við
Túngötu og Eyrargötu á Siglu-
firði sl. sunnudagsmorgun með
þeim afleiðingum að það flæddi
inn í þrjú íbúðarhús. Talsverðar
skemmdir urðu í húsunum.
Starfsmenn bæjarins voru
kallaðir út um kl. 10 til að losa
stífluð niðurföil og klukkutíma
síðar var björgunarsveitin ræst
út þeim til aðstoðar.
Þriðja flóðið á
þremur árum
Hvöss norðanátt ásamt vax-
andi straumi gerði það að verk-
um að sjórinn gekk þetta langt
upp á land. Einnig flæddi upp
úr niðurföllum, t.d. flæddi upp
úr ræsi í áhaldahúsi bæjarins.
íbúðarhúsið að Túngötu 20,
sem er tvibýlishús, var eitt
þeirra húsa sem flæddi inn í.
Þetta sama hús varð fyrir mikl-
um skemmdum í janúar sl. þeg-
ar óveður geisaði og reif m.a.
þakið af húsinu. Sigfússína Stef-
ánsdóttir, sem býr í þessu húsi,
sagði að þetta væri í þriðja
skiptið á 10 árum sem flæddi inn
í húsið.
Að sögn Guðna Sölvasonar,
bæjarverkstjóra, má alltaf búast
við þessu þegar stíf norðanátt
er ríkjandi og stórstreymt er.
tíma í gær vegna ótta um að snjó-
flóð kæmi úr Strengsgili ofan við
bæinn. íbúar sex húsa voru beðnir
að yfirgefa heimili sín og umferð
var takmörkuð um hættusvæðið.
Sváfu rólegir
Að sögn Baldvins Valtýssonar,
sem er formaður almannavama-
nefndar í fjarveru Björns Valdimars-
sonar bæjarstjóra, hafði almanna-
vamanefnd kannað hugsanlega snjó-
flóðahættu í fyrradag. Lítill snjór ,
var þá í fjallinu og taldi nefndin
enga hættu á ferð. Menn sváfu því
rólegir þegar snjóflóðið féll. Baldvin
sagði aðstæður í þessu gili dálítið
sérstakar. Þar myndaðist nokkurs
konar trektog þyrfti því ekki mikinn
snjó til að hleypa skriðu af stað.
Morgunblaðið/Sigriður Ingvarsdóttir
GUNNLAUGUR Sigfússon þurfti að taka til hendinni
við að þurka upp eftir flóðin á sunnudag.