Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 39

Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 39
I MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 39- AÐSENDAR GREINAR Um furður lánskjaravísitölunnar NOKKUÐ hefur verið rætt og ritað um lánskjaravísi- töluna að undan- förnu, og í ljósi þeirra umræðna er vert að fara nokkrum orðum um títtnefnda vísi- tölu og verðtrygg- ingu á Islandi. Á árum áður þekktist verðtrygg- ing varla hérlendis og vextir voru hand- stýrðir. Þegar verð- bólga gaus upp eftir 1970 urðu raunvext- ir neikvæðir, og hver maður var sælastur sem skuldaði mest, en lán voru skömmtuð í bönk- um. Gífurlegt fjármagn fluttist á milli á þessum tíma, og sparifjár- eigendur misstu höfuðstól sinn í hendur skuldunauta sinna. Slíkar millifærslur gátu ekki gengið til langframa, og 1979 hélt verðtrygg- ing innreið sína hérlendis, en verð- trygging þýðir að eiganda fjár- magns er tryggt að verðgildi pen- inga hans rýrni ekki í útláni. Skuld- ir urðu nú verðtryggðar með láns- kjaravísitölunni sem þá var sam- ansett úr framfærsluvísitölu að 2/3, en byggingarvísitölu að 1/3, en til frekari skýringar mælir fyrr- nefnda vísitalan verðbólgu, þ.e. hækkun vöruverðs, en sú seinni kostnað við að byggja hús á íslandi. í fyrstu voru laun einnig verð- tryggð, þ.e. kaupmáttur launa var fastur sama hvernig verðbólgan lét, en framvindan varð sú að verð- lag og kauplag hækkaði til skiptis, og verðbólgan fór upp í himinhæð- ir. Til að ijúfa þessa víxlverkun var verðtrygging launa afnumin, en verðtrygging skulda stóð óhögguð. Næstu ár hélt verðbólgan áfram af nokkrum þunga, en laun stóðu í stað, og lánskjaravísitalan hækk- aði skuldir gífúrlega. Margir hús- byggjendur lentu í miklum skulda- vandræðum sem sumir súpa enn seyðið af í dag. Því má við bæta við að á þessum tíma uppnefndi Jón Baldvin Hannibalsson téða verðtryggingur “ránskjaravísi- tölu“. Hins vegar, þegar þetta mis- gengi var að mestu afstaðið og verðbólgan hjöðnuð 1989 var lán- skjaravísitölunni skyndilega breytt, og þá heldur seint gripið til björg- Ásgeir Jónsson unaraðgerða. Launavísi- talan (mælikvarði á launahækkanir) var tek- in inn í lánskjaravísi- töluna og látin gilda 1/3 til jafns við hinar tvær fyrri vísitölur. Þannig tók verðtrygging meira mið af launaþróun, en laun ráða nú 50-60% af hreyfingum vísitölunar. Hin nýja lánskjaravísi- tala átti að koma skuldunaut til góða í slæmu árferði, en lána- drottni til hagnaðar í góðæri, en hagnaður og tap mundu jafnast út þegar til lengri tíma er litið. Þetta er þó ekki alls kostar rétt því að öllu eðlilegu mun framleiðni vaxa og laun hækka meira en verðlag þegar til lengri tíma er litið. Það er að minnsta kosti reynsla síðustu 50 ára. Til lengri tíma munu skuldunautar tapa, nema því aðeins að þjóðarframleiðsla standi ávallt í stað. Tilvist launavísitölunnar í láns- kjaravísitölunni byggir á fáum haldgóðum hagfræðirökum. Því mótmæla fáir, enda voru flestir málsmetandi aðilar á móti nefndri breytingu, og gilti einu hvort um var að ræða peningastofnanir eða verkalýðsfélög. Ástæðan er einföld; verðtrygging hlýtur að miða við verðbólgu, þ.e. rýrnun á verðgildi peninga í hagkerfinu, en ekki við launakjör starfsstétta. Auk þess er hæpin þjóðhagfræði að binda skuldir við hagvöxt og framfarir (framleiðni) því með þessum hætti er launahækkunum umbreytt í fjár- magn með beinum hætti. T.d. ef laun hækka um 10%, og verðbólga verður 5%, þá eykur lánskjaravísi- talan höfuðstól verðtryggðra lána um 8%. Af þessum 8% eru 5% bætur vegna rýrnunar höfuðstóls af völdum verðbólgu (á mælikvarða framfærsluvísitölu), en 3% eru hrein og klár millifærsla frá skuldu- naut til lánadrottins og á sér litla hagfræðilega réttlætingu. Brátt eru liðin 6 ár frá þessari breytingu, og nú stendur verð- trygging 7% lægra, en að óbreyttu sem ætti að vera til hagsbóta fyrir skuldunauta. Þjóðhagsleg áhrif virðast hverfandi, en ástæðurnar eru einfaldar: hagvexti hefur lítt verið til að dreifa á þessum tíma, laun hafa hækkað minna en verð- lag, og hagkerfið í dróma. Hins vegar ættu menn að tala varlega um hagnað skuldunauta í þessu sambandi því líklega hefur ijár- magnseigendum verið bætt upp missi verðtryggingar með hærri raunvöxtum, en tíðin hefur verið góð hjá lánadrottnum að undan- förnu, og raunvextir í sögulegu hámarki. En skiptir verðtrygging höfuðmáli? Þ.e. ef markaðurinn er fullkomlega skilvirkur ættu vextir að jafna út mun á milli tímabila. Ef lánskjaravísitalan hækkar lán umfram verðrýrnun munu vextir af þeim lækka og svo öfugt. Þetta er að vissu leyti rétt, en vafi leikur á skilvirkni Iánamarkaðar hérlend- is, og einnig er spurning um aðlög- unartíma. Launahækkanir eru yfir- leitt ekki samfelldar heldur koma í stökkum. Þ.e. yfirleitt er samið við stærstu verkalýðsfélögin á sama tíma, og launavísitalan tekur hopp innan 1-2 mánaða. Það hlýtur að taka nokkurn tíma fyrir markað- inn að ná jafnvægi á nýjan leik, og á meðan getur margt gerst; spá- kaupmenn náð gífurlegum hagn- aði, en skuldunautar tapað stórfé. Þannig er mikill óstöðugleiki inni- byrgður í lánskjaravísitölunni sem mun hafa áhrif um leið og kauplag hreyfist. Nú kynni einhver að halda að í dag stæði fátt í vegi fyrir leiðrétt- ingu lánskjaravísitölunnar, enda sitja aðrir herrar stjórnarráðið um þessar mundir en 1989. Hins vegar hafa rök íhaldseminnar nú komið til skjalanna sem má útleggja svo: Lánskjaravísitölunni var breytt, það var ekki skynsamlegt en gert er gert. Allt frekara hringl skapar óvissu og glundroða, og fælir frá fjárfesta. Þetta eru að vissu leyti rétt rök og skiljanleg, sérstaklega hérlendis þar hagstjórn hefur ein- kennst af kollsteypum sem oft eru lítt ígrundaðar. Áftur á móti voru gerð mistök 1989, og þau þarf að leiðrétta. Það liggur mikið undir því að aðilar hagkerfisins fái réttar upplýsingar, búi við réttar leikregl- ur og hagvísar séu nálægt sanni ef hagkvæmni á að nást. Pólitískt fikt þ.e. verðtrygging með rangri mælistiku getur því vart leitt til hagkvæmni og stefnufesta getur aðeins verið forsvaranleg ef hún Núverandi lánskjara- vísitala er óhæf til síns brúks, að mati Asgeirs Jónssonar, sem telur framfærsluvísitöluna rétta mælistiku á verð- tryggingu. er um vitleg atriði. Rök íhaldsem- innar eru ekki rök í sjálfu sér ef annan bakstuðning vantar. Menn ættu ekki að breyta breytinganna vegna, en tryggð við vafasama hluti til að forðast breytingar er álíka varhugaverð. Þar að auki hafa íslensk stjómvöld ekki úr háurn söðli að detta þegar fjallað er um stefnufestu. Þau rök að breyting á lánskjara- vísitölunni fæli frá erlenda fjárfesta tel ég hins vegar ekki fyllilega rétt- mæta. Það sem hrekur erlenda fjár- festa frá eru fyrst og fremst sveifl- ur í gengi (e. peso problem). Það hættir enginn á það að kaupa ís- lensk verðbréf þrátt fyrir háa ráun- vexti, ef hann getur átt von 10%-30% gengisfellingu næsta dag, en íslensk hagsaga er full af slíkum dæmum. Nú hefur rofað til í efnahagsmál-* um landsins, og það hlýtur að vera einlæg von allra landsmanna að kaup geti hækkað meira en verðlag á næstu árum. Þá virðist það einn- ig undarleg sveiflujöfnun ef sama fólkið, þ.e. sömu skuldunautarnir, er höfðu skuldir sinar bundnar verðlagi á árabilinu 1983-1989, á tímum “ránskj aravísitölunnar“, munu nú hafa skuldir sínar bundn- ar launastigi á næstu árum þegar þjóðin mun vonandi sækja fram. Eru þá ekki byrðar þessarar (skulda)kynslóðar orðnar henni of- viða, og hún standi strípuð eftir, svipt húsnæði sínu og eigum? Því núverandi lánskjaravístala hefur alla burði til að hrinda fjölda fólks út í gjaldþrot á næstu misserum verði ekkert að gert. Niðurstaða alls þessa er mjög einföld, hvort sem notuð eru fagleg rök eða vísað til réttlætis; núver- andi títtnefnd lánskjaravísitala er óhæf til síns brúks. Að mínu áliti væri lánskjaravísitalan best sett sem rétt mælistika á verðtryggingu með framfærsluvísitölunni einni innanborðs, eins og í flestum öðrum löndum, en lágmarkskrafan hlýtur að vera sú að launavísitalan fari út úr núverandi lánskjaravísitölu. Höfundur er hagfræðingur. GJAFVERÐI Nú eru allar 20 gerðir kæliskápanna á hagstæðu tilboðsverði, til dæmis: • í. f K KF-263 m/lúxusinnréttingu 1 254 lítra kæliskápur með 199 Itr. kæli og 55 Itr. frysti. HxBxD = 146,5 x 55 x 60 cm. (Verðlistaverð kr. 62.100,-) Nú aðeins kr. 54.870,- stgr. Afborgunarverð kr. 57.760,- |n [ Öll tjRA/if tæki eru freonfrí. I— i VISA og EURO raðgreiðslur til allt að ■ 18 mánaða, án Otborgunar. ff MBk I MUNALÁN með 25% útborgun og ffff UBl I eftirstöðvum kr. 3.000 á mánuði. HÁTÚNi 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420 Líttu á verðið!! SEVERIN raftækin eru v-þýsk gæðavara á verði, sem á sér vart hliðstæðu hérlendis. SEVERIN raftækin hafa verið seld hér í fast að 50 ár og tryggir frábær reynsla gæðin. Hagstæð magninnkaup okkar tryggja lægsta mögulegt verð og getum við nú boðið yfir 60 gerðir af þessum gæðatækjum! TILBOÐ . Jt ivV!, ■■■ ■ ■ ■■_■ ;.■•■■■■ Brauðristar frá kr. 2.261. Djúpsteikingarpottar Ávaxtapressur frá kr. 3.600. fra kr. 8.531. Hraðsuðukönnur frá kr. 2.641. Handþeytarar frá kr. 2.451. Kaffivél, sem sýður vatnið sjálf, kr. 9.975. Aðrar kaffikönnur frákr. 1.700. (Allt verð er með 5% staðgreiðsluafslætti). Vöfflujárn frá kr. 3.790. Gufustraujárn frá kr. 2.841. Hárblásarar frá kr. 1.178. Dósaopnarar frá kr. 1.881. Borgartúni 28 "S 622901 og 622900 Komið í verslun okkar í Borgartúni 28 eðatil einhvers umboðsmanna okkar og skoðið úrvalið af SEVERIN raftækjunum! H G. Guðjónsson, Suðurveri R. Glóey, Ármúla 19, R. Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf. Miðvangur, Hafnarfirði. SUÐURNES: Stapafell hf., Keflavík. Samkaup, Keflavík. Rafborg, Grindavik. VESTURLAND: Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi. Trésmiðjan Akur, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Versl. Hamar, Grundarfirði. Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi. Skandi hf., Tálknafirði. Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri. Laufið, Bolungarvík. Straumur hf., ísafirði. Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. NORÐURLAND: Kf. Hrúttirðinga, Borðeyri. Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki. KEA, Akureyri, og útibú á Norðurlandi. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Versl. Sel, Skútustöðum. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði. Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum. Rafalda, Nesakaupstað. Hf. Héraðsbúa, Reyðarfirði. Kf. Fáskrúðsfjarðar. Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi. Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vik. Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Kf. Rangæinga, Rauðalæk: Reynistaður, Vestmannaeyjum. Kf. Árnesinga, Selfossi. 1 H

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.