Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 43
MINNIIMGAR
KRISTBJORN
DANÍELSSON
-|- Kristbjörn
Daníelsson
fæddist í Borgar-
nesi 13. janúar
1931. Hann lést í
Landspítalanum 13.
desember síðastlið-
inn. Hann var sonur
hjónanna Daníels
Jónssonar og Jór-
unnar Þorsteins-
dóttur. Systkini
hans voru sex: Jón,
Guðfríður (látin),
Bára, Hafsteinn,
Asmundur og Sæv-
ar. Kristbjörn var
Ingibjörgu Jakobsdóttur frá
Vopnafirði og bjuggu þau allan
sinn búskap í Reykjavík. Krist-
björn starfaði lengst af í Stein-
smiðju S. Helgasonar hf., þar
af lengi sem verkstjóri. Utför
hans fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag.
kvæntur
oft
i
LÁTINN er í Reykjavík vinur minn
og vinnufélagi Kristbjörn Daníels-
son.
Kynni okkar Kidda, eins og ég
hef alltaf kallað hann, hófust fyrir
rúmum 30 árum, er ég hóf störf í
Steinsmiðju Sigurðar Helgasonar.
Kiddi hafði þá starfað þar um nokk-
urra ára skeið. Áður hafði hann
unnið í byggingarvinnu, m.a. hjá
Sigurði, auk þess sem hann stund-
aði sjóinn á sínum yngri árum. Frá
þeim tímum átti hann án efa góðar
minningar, því þegar hann rifjaði
upp lífíð um borð í Eldborginni
geislaði hann af ánægju.
Eitt var það sem Kiddi hafði
mikla ánægju af, en það voru ferða-
lög, jafnt innan lands sem utan.
Hvatti hann okkur hjónin óspart til
að ferðast um þær slóðir sem þau
Ingibjörg höfðu ferðast um. Það
voru ánægjulegar stundir þegar við
bárum síðan saman bækur okkar
og skoðuðum myndir frá hinum
ýmsu stöðum.
Kiddi fylgdist vel með því sem
var efst á baugi í þjóðmálaumræð-
unni hverju sinni og lá sjaldnast á
skoðunum sínum. Það var því ekki
síst fyrir hans atbeina sem
spunnust líflegar umræður á vinnu'-
staðnum, enda gættu menn þess
að vera ekki alltaf á eitt sáttir.
Það fylgir tómleiki þeirri tilhugs-
un að þessi stóri og stæðilegi mað-
ur sé horfínn á braut. Þrátt fyrir
að hann hafí átt við veikindi að
stríða hvarflaði ekki að manni að
hann yrði hrifínn á brott svona
fljótt, tæpra 64 ára að aldri. En
það er svo margt í þessum blessaða
heimi sem við fáum engu um að
ráða. Þó ber okkur að vera þakklát
fyrir það sem lífíð hefur veitt okk-
ur. Kiddi var traustur og góður
maður. Það að hafa átt hann að
vini er mér dýrmætt og er það
eflaust svo um fleiri.
Við hjónin vottum Ingibjörgu og.
öðrum aðstandendum Kidda inni-
lega samúð okkar á erfíðri stundu.
Minningin um góðan vin mun lifa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Róbert Jóhannsson.
Okkur systkinin langar að minn-
ast í nokkrum orðum hans Kidda
föðurbróður okkar. Alveg frá því
að við munum fyrst eftir okkur í
Gautlandinu bjuggu Kiddi og Ingi-
björg í sama stigagangi. Ferðirnar
milli fyrstu og þriðju hæðar urðu
margar á þessum árum og alltaf
tóku þau okkur afskaplega vel.
Erindin voru margvísleg, oft þó
tengd gæludýrum þeirra hjóna. Við
vildum fá að leika við hamsturinn
sem endaði gjarnan með því að leita
þurfti að honum út um alla íbúð
eftir að hann hafði óvart sloppið frá
manni. Svo kom hundurinn Peggy
og þá þurfti maður að
fá að fara út og labba
með hana. Það var al-
veg sama hvenær okk-
ur datt í hug að fara
niður, alltaf var tekið
vel á móti okkur og
gjaman lumað á ein-
hverju góðgæti.
Fyrir aðeins tæpum
tveimur mánuðum lést
afi okkar, pabbi Kidda,
og viljum við hér
kveðja þá báða með
þökkum fyrir þær góðu
minningar sem þeir skilja eftir í
hugum okkar.
Ingibjörgu og öðrum aðstandend-
um vottum við okkar dýpstu samúð.
JökuII og Iris.
Að liðnum öllum þessum þrautum
þessum þrotlausu erfiðleikum
þessum endurteknu vonbrigðum
þessum hverfulu gleðistundum
spyijum við þrátt fyrir allt
þegar því er skyndilega lokið:
Hversvegna ekki einn dag enn
aðeins einn dag?
(Halldóra B. Bjömsdóttir)
Ótímabært fráfall, skyndilegur
dauði, vekur mann til umhugsunar
um lífíð. Kæri frændi, Kristbjörn
Daníelsson er látinn. Margar og
skemmtilegar minningar koma upp
í hugann þegar horft er til baka.
Við minnumst sérstaklega sam-
verustundanna sem fjölskyldan átti
saman, enda var Kiddi sérlega barn-
góður og hrókur alls fagnaðar.
Með söknuð í hjarta og góðar
minningar kveðjum við nú góðan
dreng. Elsku Imba mín, megi Guð
styrkja þig á þessum erfiðu tímum.
Nína, Jakob, Kolbrún, Halla,
Ingibjörg og fjölskyldur.
Hann elsku mágur minn er lát-
inn. Þegar dauðinn ber að dyrum
stöndum við öll ráðþrota. Hann
Kiddi, þessi glæsilegi og góði dreng-
ur sem okkur öllum þótti svo vænt
um, er farinn frá okkur og eftir
situr sorgin ein. En ljósið í myrkinu
eru allár fallegu og góðu minning-
arnar sem við eigum um hann.
Hann var tryggur vinur og ég ætla
með þessum orðum að þakka hon-
um fyrir alla þá ástúð sem hann
sýndi börnum og bamabörnum mín-
um og þau sakna hans öll sárt.
Einnig þakka ég honum allan þann
stuðning sem hann veitti mér þegar
ég missti manninn minn. Það var
mér ómetanlegt.
En sárust er sorgin hjá systur minni
sem nú sér á eftir dásamlegum lífs-
förunaut og bið ég algóðan guð að
gefa henni styrk.
Fyrir hönd Ingibjargar Jakobínu
og fyölskyldunnar allrar flytjum við
Þorsteini Svörfuði yfiriækni á gjör-
gæsludeild Landspítalans og öllu
hans fólki hjartans þakkir fyrir ein-
staka umönnun og hjartahlýju.
Vertu sæll kæri vinur.
Salvör Jakobsdóttir.
JTOSS/GNOl
skíði
bindingar
ÁTOSS/GAJO£
skíðaskór
uur/i
hjálmar - hlífar
hanskar
Barnapakki
Verð 17.380 kr'.
*Tilboð 15.642 kr.
Unglingapakki
Verð 20.990 kr.
*TiIboð 18.891 kr.
Fullorðinspakki
Verð 25.900 kr.
*Tilboð 23.310 kr.
Gönguskíðapakki
Verð 16. lOOkr.
*Tilboð 14.490 kr.
i
Vi
skór og stafir
í einum pakka
Skíðapakkar Skátabúðarinnar hafa verið eftirsóttir um árabil.
Kunnáttuiuenn velja í pakkana úrvalsbúnað sem hentar hverjum
fyrir sig og verðið er sérlega hagstætt.
Raögreiöslur • Póstsendum samdægurs. ___
'Tilboðsverö miöast viö staðgreiðslu."
S n o r r a b r a u t
6 0
-SMWK fWMÚK
• s
m
561 2045
Útsölustaöir: Verslunin Óöinn, Akranesi • Sporthlaöan, ísafiröi • Skíðaþjónustan, Akureyri • S.Ú.N.,Neskaupstað