Morgunblaðið - 20.12.1994, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.12.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 45 ; MARIANNA LOGE + Marianna Loge, fararstjóri frá Rostock, fæddist í Suð- ur-Þýskalandi 3. maí 1924. Hún lést í Þýskalandi 1. desember síðastliðinn. Eiginmaður henn- ar, Kurt Loge, lifir konu sína. HÚN VAR fararstjóri íslenskra kvenna í 15 ára á Eystrasaltsvik- unni, sem haldin var í Rostock í Austur-Þýskalandi. Það var mót kvenna í ALK (Alþjóðasamband lýðræðissinnaðra kvenna) en þang- að var íslenskum konum boðið á vegum MFÍK í boði A-Þ og hittust þar konur hvaðanæva að úr heimin- um, ræddu alheimsmál, skiptust á skoðunum og ræddu um frið, af- vopnunarmál, bann við efnavopnum og sýklahernaði, velferð og verndun barna, jafnrétti og atvinnuþátttöku kvenna. íslenskar konur höfðu þar framsögu á við hinar erlendu konur og komu margar okkar þar í fyrsta skipti opinberlega fram. Marianna var gift Kurt Loge í 50 ár, miklum öðlingsmanni. Þau eignuðust eina dóttur, vel gefna og fallega stúlku með mikið dökkt hár. Hún lést 18 ára að aldri og var þeim mikill harmdauði. Maríanna var með próf frá versl- unarskóla og kom það sér vel er hún var að skipuleggja allskonar ferðir og skemmtanir fyrir íslensku konurnar á Eystrasaltsvikunni, því hver mínúta var dýrmæt. Marianna var mjög sérstæður persónuleiki, hún var nákvæm, glaðlynd og passasöm og allt er varðaði okkur íslensku konumar var eins og best var á kosið. Við félagar í MFÍK vildum bjóða Mariönnu til íslands en hún fékk ekki leyfi hjá þáverandi stjórnvöld- um fyrr en 1987 og dvaldi hún þá í hálfan mánuð við mikla gleði og ánægju. Svo var það 1991 að þau hjón Marianna og Kurt Loge gátu látið þann draum rætast að koma sem ferðamenn til íslands og ók ég þeim hringveginn í kringum landið. Það var ógleymanleg ferð í júní. Við hjónin áttum svo eftir að þiggja heimboð hjá þeim í Rostock og m.a. fara með heim í „unaðs- reit“ þeirra, þar sem Rostockbúar höfðu landskika og ræktuðu þar grænmeti, blóm og ávexti. Ég vil þakka Mariönnu fyrir alla þá umhyggju og góðvild er hún sýndi okkur fulltrúum MFÍK á Eystrasaltsvikunni og sendi djúpar samúðarkveðjur til Kurt Loge. Jugend, vereinige dich im Kampf um den Frieden, gegen die Gefahr eines neuen Krieges! Ólöf P. Hraunfjörð. í sambandi vi& neytendur frá morgni til kvölds! Pbt0tUtlllðtíÍk - kjarni málsins! MINNINGAR t Móðir mín, SIGURÁST SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR, Skiilagötu 40, Reykjavík, lést í Sjókrahúsi Suðurlands 16. desember. Gyða Gunnarsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GRÓA SVEINSDÓTTIR frá Selkoti, Austur-Eyjafjöllum. andaðist í Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, laugardaginn 17. desember. Anna Gissurardóttir, Svanhvít Gissurardóttir, Guðfinna Gissurardóttir, Kolbeinn Gissurarson, Erna Gissurardóttir, Þóra H. Gissurardóttir, og barnabörn. Ingvar Einarsson, Ágúst Guðjónsson, Árni Magnússon, Halldóra Guðmundsdóttir, Matthfas Guðmundsson, Aðalsteinn Sigurjónsson t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, mágur og afi, BJÖRN JÓNSSON múrarameistari, til heimilis i Löngubrekku 29, Kópavogi, lést föstudaginn 16. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Engelhart Svendsen Björnsson, Helga Haraldsdóttir, Þór Svendsen Björnsson, Ása Halidórsdóttir, Sigrún Svendsen og afabörnin. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDÍA ELÍSABET PÁLSDÓTTIR frá Sjávarhólum, Kjalarnesi, lést á öldrunardeild Hvítabandsins 17. desember. Árni Pálsson, Elín Árnadóttir, Ingvar Ernir Kjartansson, Baldvin Árnason, Catalini Tangeianos, Margrét Árnadóttir, Guðmundur Gústafsson, Alexander Árnason, Ólafur Árnason, Málfriður Arna Aronsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIBJARTUR J. ARNÓRSSON húsasmíðameistari, Droplaugarstöðum, áður Bogahlfð 22, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. desember kl. 13.30. Jóhannes Ingibjartsson, Sigurbjörg Jónsdóttir, Sigurður Ingibjartsson, Signý Hauksdóttir, Svandís Ingibjartsdóttir, Rafn Eyfell Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA ÞORBERGSDÓTTIR, Skólabraut 5, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 13. desember, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 21. desember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Hlífarsjóð SÍBS. Bergþóra Sigurðardóttir, Róbert Róbertsson, Guðrún K. Sigurðardóttir Golden, Georg D. Golden, Jórunn Hulda Sigurðardóttir, Eyjólfur Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. t SIGURLAUG HELGADÓTTIR, Bólstaðarhlíð 60, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 21. desem- ber kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð. Auður Helgadóttir Winnan, Gray Winnan, Elm Frigg Helgadótir, Lárus Helgason, Rosemarieflor L. Canillo, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, KARL ÁGÚSTSSON vélsmiður, Bröttukinn 2, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósepsspítalanum í Hafn- arfirði 18. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. desember kl. 13.30. Margrét Guðmundsdóttir. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, mágur, afi og langafi, GUÐMUNDUR MARÍUSSON fyrrv. verkstjóri í Héðni, Blönduhlíð 16, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, þriðjudaginn 20. desember, kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Vigdís Brynjólfsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson, Hjördís Einarsdóttir, Gíslína S. Kauffman, Róbert Kauffman, María J. Guðmundsdóttir, Sigurður G. Sigurðsson, Jón Brynjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR BJARNASONAR, Logafold 61, Reykjavík, fer fram frá Aðventkirkjunni, Ingólfs- stræti 19, Reykjavík, á morgun, mið- vikudaginn 21. desember, kl. 13.30. Aðalheiður Ólafsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Bjarni Sigurðsson, Helga Arnþórsdóttir, Rakel Ýr og Rebekka Bjarnadætur, lan Graham, Hilda og Mark Graham. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BRAGI EINARSSON prentari og hljómlistarmaður, Melási 6, Garðabæ, sem lést 9. desember sl., verður jarð- sunginn frá Garðakirkju miðvikudaginn 21. desember kl. 13.30 Bettý Jónsdóttir, Sturla Bragason, Hrafnhildur Guðnadóttir, Þór Bragason, Hafdís Guðjónsdóttir, Jón Bragason, Einar Bragi Bragason, Ása Kristin Árnadóttir, barnabörn og aðrir ættingjar. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu Við andlát GUÐNÝJAR G. ALBERTSSON. Börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.