Morgunblaðið - 18.01.1995, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
MORGÚNBLAÐIÐ
FRÉTTIR SNJÓFLÖÐIÐ 8 SÚÐAVÍK
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
SÚÐAVÍK við Álftafjörð í kyrru veðri að vetri til. Myndin sýnir hvar snjóflóðin tvö féllu á kauptúnið á mánudaginn.
Fjöldi skipa hefur tekið
þátt í björgunaðgerðum
FJÖLDI skipa hefur tekið þátt í björgunaraðgerðum á Súðavík
og leikið stórt hlutverk, þar sem sjóleiðin hefur verið eina færa
leiðin milli staða vegna veðurofsans sem verið hefur á Vestfjörð-
um undanfarna daga. Raunar hefur veðurofsinn verið slíkur
að sjóleiðin hefur varla verið fær, enda hafa sum skipin fengið
á sig brot og tekið niðri í höfnum fyrir vestan, en þau hafa
getað losnað fyrir eigin rammleik eða með hjálp annarra skipa.
Miðbik
bæjarins
er horfið
Morgunblaðið, Súðavík.
„ÞAÐ vantar algjörlega miðbik bæj-
arins. Hann er hreinlega horfinn,"
varð einum björgunarsveitarmanna
að orði þegar hann kom inn í hús í
gær til að kasta mæðunni eftir að
hafa leitað þeirra sem saknað var í
Súðavík. Um 230 manns leituðu
þeirra sem saknað var en undir kvöld
fundust þeir tveir sem lengst var
leitað að eftir snjóflóðið.
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
á Isafirði og fulltrúi í almannavama-
nefnd, sagði að björgun mannslífa
hefði haft algjöran forgang í leitar-
starfinu. Hann sagði að nú þegar
þeirri leit væri lokið tækju við önnur
verkefni. Það þyrfti að forða húsum
frá frekari skemmdum eins og að
koma í veg fyrir að ofnar verði fyrir
frostskemmdum. Kristján sagði að
aðstæður við björgunarstörf hefðu
verið afar erfiðar. Ekki hefði verið
hægt að komast til bæjarins nema
af sjó. Veðrið hafi verið afar slæmt
mest allan tímann og gengið á með
stórhríð og leitarmenn varla séð út
úr augum. Fyrri hluta dags í gær
var veður skaplegra en síðdegis
versnaði það aftur. Það jók svo enn
á erfiðleika björgunarmanna þegar
rafmagn fór af bænum þegar snjó-
flóð féll á mánudagskvöld og síminn
datt út í um tólf tíma í gær. Björg-
unarsveitarmenn urðu að hafa tal-
stöðvarsamband við almannavarna-
nefnd á ísafirði fyrir milligöngu
Hafrafellsins og varðskipsins Týs.
Rafmagnið var komið á aðsetur
björgunarmanna með dísilrafstöð.
Varðskipið Týr kom til Súðavíkur
um klukkan hálf þrjú í gær með um
60 manna björgunarlið frá Reykja-
vík. Liðið fór þegar til leitar en björg-
unarsveitarmenn frá ísafirði sem
hafa verið við leitarstörf á annan
sólarhring voru í mikilli þörf fyrir
hvíld. Með Tý komu til Súðavíkur
læknar, hjúkrunarfæðingar og prest-
ur. Læknarnir eru frá Slysadeild
Borgarspítala, barnarlæknir frá
Barnaspítala Hringsins og svæfing-
arlæknir. Eftir á ísafirði urðu hjúkr-
unarfólk sem eru sérhæfðir í áfalla-
hjálp. Meðal þeirra er Tómas Zoéga
geðlæknir.
Fagranesið hefur leikið stórt
hlutverk við björgunarstörfin. Það
var við bryggju á ísafirði þegar
snjóflóðið féll og hefur farið marg-
ar ferðir milli Isafjarðar og Súða-
víkur með björgunarmenn og íbúa
á Súðavík, auk þess sem stjórnstöð
björgunaraðgerðanna var flutt út
í skipið eftir að annað snjóflóð féll
í grennd við Traðargil í fyrra-
kvöld. Sama gildir um Bessa,
Haffara og Stefni. _Skipin hafa
verið í ferðum milli ísafjarðar og
Súðavíkur og aðstoðað við björg-
unaraðgerðir eins og kostur er.
Mörg skip voru komin í var
vegna óveðursins þegar slysið varð
á mánudagsmorguninn. Margrét
EA og Júlíus Geirmundsson fóru
og söfnuðu saman björgunar-
sveitarmönnum í öðrum þorpum á
Vestfjörðum. Júlíus fór á suður-
firðina. Margrét fór á Þingeyri og
tók þar björgunarmenn, en fékk á
sig brot um kvöldmatarleytið í
fyrradag. Enginn slasaðist en allir
brúargluggar brotnuðu og miklar
skemmdir urðu á tækjum í brú.
Margrét EA á Þingeyri
Skipið hélt aftur til Þingeyrar í
fylgd nálægra skipa og liggur þar
nú. Júlíus Geirmundsson tók niðri
í höfninni á Þingeyri í fyrrinótt,
en tókst að losa sig með eigin
togvírum. Hann tók björgunar-
sveitarmenn á Flateyri til viðbótar
og fór með þá til björgunarstarfa.
Varðskipið Týr kom til ísafjarð-
ar á ellefta tímanum í gærmorgun
eftir um tuttugu klukkustunda
siglingu frá Reykjavík með lækna,
hjúkrunarfólk, björgunarsveitar-
menn og björgunarbúnað. Skipið
hélt síðan til Súðavíkur en gat
ekki lagst að bryggju vegna þess
að það risti of djúpt. Týr liggur
fyrir akkerum fyrir utan og eru
björgunarsveitarmenn fluttir í
land með gúmmíbátum.
Múlafoss hélt
sjó á Húnaflóa
Engey var væntanleg til ísa-
fjarðar um kvöldmatarleytið í gær
með björgunarsveitarmenn og
björgunarbúnað, en hún fór frá
Reykjavík klukkan sjö í fyrrakvöld
í kjölfar Týs. Múlafoss hélt sjó á
Húnaflóa í gær á utanverðum
Húnaflóa. Um borð eru 32 björg-
unarsveitarmenn aðallega frá
Sauðárkróki sem fóru um borð í
skipið á Skagaströnd.
Samúðar-
kveðjur
berast er-
lendis frá
Ósló. Morgunblaðið.
J0RN Hagen, talsmaður
Tonsberg, vinabæjar ísa-
ijarðar í Noregi, sagði í sam-
tali við dagblaðið Aftenposten
í gær að bæjarbúar sendu
íbúum Súðavíkur og ísafjarð-
ar innilegar samúðarkveðjur
sínar.
„Þetta er hörmulegur at-
burður. Við sendum íbúum
Súðavíkur og ísafjarðar sam-
úðarkveðjur,“ sagði Tonsberg
er honum barst fréttin af
náttúruhamförunum í Súða-
vík. Þriðja hvert, ár koma
pólitískir fulltrúar norrænu
vinabæjanna fimm, Tons-
berg, Joensu, Hróarskeldu,
Lindkoping og ísafjarðar,
saman til skrafs og ráða-
gerða. Hefur því tekist vin-
skapur með fulltrúum Tons-
berg og fólki frá ísafirði og
nágrenni.
Isaíjörður og Tensberg
hafa verið vinabæir frá 1948.
Samúðarkveðjur víða að
Ríkisstjórnir Noregs, Bret-
lands og landsstjórn Færeyja
sendu í gær forsætisráðherra
samúðarkveðjur til íslenzku
þjóðarinnar og þeirra sem
eiga um sárt að binda vegna
snjóflóðsins í Súðavík.
Súðvíking-
um sýnd
hluttekning
ÞEIM, sem eiga um sárt að
binda vegna hamfaranna á
Súðavík, var sýnd hluttekn-
ing á bæjarstjórnarfundi í
Hafnarfirði í gær.
Ellert Borgar Þorvaldsson,
forseti bæjarstjórnar, mæltist
til þess að bæjarfulltrúar og
áheyrendur risu úr sætum í
virðingar- og samúðarskyni.
„Djúp samúð og einlægur
samhugur ríkir meðal þjóðar-
innar í garð þessara landa
okkar. í þeirri von að Drott-
inn leggi líkn með þraut bið
ég bæjarfulltrúa að votta íbú-
um Súðavíkur virðingu og
samhygð með því að rísa á
fætur,“ sagði Ellert Borgar
meðal annars.
stöð 2
BJÖRGUNARMENN unnu sín störf dag og nótt við mjög erfiðar aðstæður vegna stöðugs illviðris
sem geisað hefur á Vestfjörðum. Hér er verið að leita í einu húsanna.