Morgunblaðið - 18.01.1995, Síða 7

Morgunblaðið - 18.01.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 7 FRÉTTIR Úthlutun lóðar RÚV við Efstaleiti endurskoðuð Útvarpsstjóri vill frest BORGARSTJÓRI hefur tilkynnt Ríkisútvarpinu um endurskoðun á úthlutun hluta lóðar í Efstaleiti sem stofnunin fékk úthlutað frá Reykja- víkurborg árið 1978. Reykjavíkur- borg gerði síðan leigusamning við RÚV um þessa lóð árið 1990. Út- varpsstjóri hefur óskað eftir að afturköllun verði frestað og viðræð- ur fari fram við borgarstjóra um málið, sem borgarstjóri hefur sam- þykkt. í leigusamningnum frá 1990 var ákvæði þar sem borgaryfirvöld áskildu sér rétt til að afturkalla úthlutun lóðarhluta norðan hita- veitustokks sem liggur þvert yfir svæðið, eftir 1. janúar 1995, væru þá ekki fyrirliggjandi tímasettar áætlanir sem borgaryfirvöld gætu fallist á um byggingaráform RÚV á lóðahlutanum. Umrætt svæði er 19 hektarar að stærð og segir f áðurnefndum skilmála að afturköll- un úthlutunar verði án endur- greiðslu eða bóta. Lóðin í heild sinni er tæpir 6 hektarar að stærð. Fyrir þjónustu sem vantar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að afturköllunin sé tilkomin af brýnni þörf fyrir byggingarlóðir í hverfinu fyrir þjónustustarfsemi af ýmsum toga. Meðal annars hafi heilbrigðis- og ti-yggingaráðuneytið sótt á um að fá leyfi til að reisa heilsugæslustöð í hverfinu, ló.ð vanti ennfremur fyr- ir hjúkrunarheimili, dagheimili o.fl. „Okkur finnst miður að vita af þessari lóð óbyggðri í miðju borgar- innar á sama tíma og við sjáum ekki að Ríkisútvarpið leggi í bygg- ingaframkvæmdir í fyrirsjáanlegri framtíð. Forsendur í útvarpsrekstri hafa breyst mjög síðan RÚV fékk Kjartan í opin- bera heimsókn AÐALFRAM- KVÆMDA- STJÓRI EFTA, Kjartan Jóhanns- son, kemur í opin- bera heimsókn til íslands dagana 18.-20. janúar næstkomandi. Kjartan Samkvæmt Jóhannsson venju sækir nýr aðalframkvæmda- stjóri EFTA öll aðildarríki samtak- anna heim í upphafi starfstíma síns og ræðir verkefni samtakanna og framtið þeirra við ráðamenn og hagsmunaaðila, segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu. Aðalframkvæmdastjórinn mun að þessu sinni eiga fundi með for- seta Islands, forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Hann mun einn- ig ræða við formenn annarra stjórn- málaflokka og formann utanríkis- málanefndar og hitta að máli full- trúa samtaka vinnumarkaðarins. lóðina og núverandi húsakynni stofnarinnar eru ekki fullnýtt, þannig að telja má fjárfestingar af þess hálfu í steinsteypu ósenni- legar,“ segir Ingibjörg Sólrún. Heimir Steinsson útvarpsstjóri kveðst hafa óskað eftir fundi með borgarstjóra til að gera honum grein fyrir stöðu mála eins og þau horfa við Ríkisútvarpinu. Engar breytingar hafi orðið á byggingar- áformum RÚV frá þeim tíma sem samningar tókust um lóðina, og vilji forráðarmenn stofnunarinnar kynna þau áform fyrir borgarstjóra og skipulagsnefnd borgarinnar. Mönnum sé fráleitt heitt í hamsi en telji eðlilegt að ræða stöðu mála við borgaryfirvöld áður en lengra er haldið. HÚS Ríkisútvarpsins við Efstaleiti í Reykjavik. Þeir sem leggja bílum sínum í bílahúsum þurfa ekki að hafa áhyggjur af hrími á rúðum og frosnum læsingum. Þeir ganga að bílnum þurrum og snjólausum og eru mun öruggari í umferðinni fyrir vikið. Einfalt og þægilegt - ekki satt! B í LASTÆÐ AS J ÓÐ U R Bílastcedi fyrir alla Mundu eftir smámyntinni - það margborgar sig. Bílahúsin eru á eftirfarandi stöðum: • Traðarkoti við Hverfisgötu • Kolaportinu • Vitatorgi • Vesturgötu • Ráðhúsinu • Bergstöðum við Bergstaðastræti Forsætisráðuneyti Japönum vottuð samúð DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra hefur í nafni ríkisstjórn- arinnar vottað japönsku þjóð- inni samúð sína vegna hörmu- legra afleiðinga jarðskjálftans, sem reið yfir Japan í morgun, með kveðju til Tomiichi Murayama forsætisráðherra Japans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.