Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ Fleiri um- sóknir um veiðileyfi hjá SVFR TVÖ stór mál eru í athugun hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur um þessar mundir, umsóknir um veiði- leyfi fyrir komandi sumar og undir- búningur fyrir árshátíð félagsins sem haldin verður föstudaginn 3. febrúar næstkomandi. Forráðar- menn SVFR hafa unnið dijúgt að því að ná verulegum verðlækkunum á vatnasvæðum sínum hin seinni misseri og bíða spenntir eftir svörun félagsmanna. Árshátíðin er hin 51. í röðinni og í'er fram í Súlnasal á Hótel Sögu. í fyrra var hún í Perl- unni. Jón Gunnar Borgþórsson fram- kvæmdastjóri SVFR sagði í gær- morgun að umsóknir væru ekki færri og jafnvel fleiri heldur en í fyrra. „Það er nú ekki búið að raða þessu endanlega upp, en mér sýnist þó að stóraukin eftirspurn sé um Elliðaárnar, einnig í Gljúfurá og fyrirsjáanlegt' er að vandasamt verður að úthluta í Norðurá og svæði 1 og 2 í Stóru Laxá. Aukningin í Norðurá stafar af stórlækkuðu verði, bæði á veiðileyf- um og uppihaldi. Menn hafa hringt og þakkað fyrir þetta, sagt að lækk- unin geri þeim kleift að fara í ár sem þeir gátu ekki stundað áður. Þegar er tekið til við að flokka umsóknir og um helgina munu stjórnarmenn, árnefndarmenn og fleiri taka til við að úthluta veiði- leyfum,“ sagði Jón Gunnar. Laxastigi á árshátíð Bjarni Ómar Ragnarsson, for- maður skemmtinefndar SVFR, sagði í samtali við Morgunblaðið að undirbúningur fyrir árshátíðina væri að komast á lokastig og horf- ur væru góðar. „Það hefur mikið verið hringt og spurt og talsvert bókað,“ sagði Bjarni. Hann sagði enn fremur, að í flestu væri árshátíðin með hefð- bundnu sniði með sínum fimm rétta kvöldverði og föstu dagskrárliðum á borð við vísubotnakeppni, flugu- getraun, bikarafhendingum og ræðu veislustjóra sem að þessu sinni verður Össur Skarphéðinsson um- hverfisráðherra. „Tvennt annað mætti nefna, til dæmis verða sænan með söng og grín þeir Egill Ólafs- son, Bergþór Pálsson og Örn Árna- son og „Byngvi“ verður með „laxa- stiga" að hætti Bingólottósins. FRÉTTIR BJARNI Ómar Ragnarsson formaður skemmtinefndar SVFR. Langarþig í skemmtUegan skóla eitt kvöld í viku? □ Langar þig að vita hvað best og mest er vitað í gegnum sálarrannsóknarhreyfinguna sem og visindalegar rannsóknir á líkunum á lífi eftir dauðann og hvar framliðnir líklega eru og í hvernig samfélagi þeir líklegast lifa? □ □ □ Langar þig að vita af hverju langflestir „vísindamenn“ heim- sins hafa eins mikla fordóma fyrir dulrænni reynslu fólks og raun ber vitni? Langar þig að vita hvað eru afturgöngur og draugar og hvers vegna þessi fyrirbæri sjást? Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn hugsanlega og líklega eru í dag og hversu öruggt meint samband við þá og þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla? MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 9 Hótel ísland kynnir skemmtidagskrána ÞÓ LÍIII ÁR OG ÖLD BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - 25 ÁRA AFMÆLISTÓNLEIKAR BJÖRGVIN IIALI.DÓRSSON lílur yfir dagsverkið sem dægurlagasöngvari á hfjómplötum í aldarfjórdung, og \ ið heyruni nær 60 lög l'rá glæstum fcrli - t'rá 1969 til okkar daga Næstu sýningar 21. jan., 4., 11. og 18. feb. Matsebill Koníakstóneruð humarsúpa með rjómatopp Lamba-piparsteik með gljáöu grænmeti, kryddsteiktum jaröeplum og rjómapiparsósu. Grand Marnier ístoppur með hneturn og súkkulabi karamellusósu og ávöxtum. Verd kr. 4.600 - Sýningarverd kr. 2.000 Dansleikur kr.800 Sértilboð á gistingu, sími 688999. Bordapantanir í stma 687111 Gestasöngvari: SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓr Leikmynd og leikstjórn: BJÖRN G. BJÖRNSSON Hljómsveitarsljórn: GUNNAR ÞÓRÐARSON ásamt 10 nianna hUómsveit Kynnir: , JÓN AXEL ÓLAFSSON Islands- og Noróiirlandaineislarar í samkMi'inisdönsuin Irá Dansskóla Vuóar llaralds smui dans. □ Langar þig til að lyfta þér upp eitt kvöld í viku í bráð- skemmtilegum og vönduðum skóla innan um lífsglatt og skemmtilegt fólk, þar sem skólagjöldununum er stillt í hóf? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur. Tveir byrjunarbekkir hefja brátt nám í Sálarrannsóknum 1 nú á vorönn ‘95. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsin- gar í símum 5619015 og 5886050. Yfir skráningardagana er að jafnaði svarað í sima Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar kl. 15.00 til 21.00. Skrifstofa skólans verður hins vegar opin alla virka daga kl. 17.00 til 21.00. Sálarrannsóknarskólinn - skemmtilegur skóli Vegmúla 2, símar 5619015 og 5886050. Eitt blab fyrir alla! -kjarni málsins! Fjármálastjóiar - sjóðir - stofnanir - fýrirtæki • Ríkisvíxlar hafa fjölmarga kosti við fjárstýringu. • Ríkisvíxlar eru örugg skammtímaverðbréf með tryggri ávöxtun. Þeir eru skráðir á Verðbréfaþingi íslands sem tryggir greið viðskipti við kaup og sölu. • Ráðgjafar Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa veita þér allar nánari upplýsingar í síma 562 6040. Útboð ríkisvíxla fer fram í dag kl. 14:00. Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa um tilboð í vexti á ríkisvíxlum. ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu) sími 562 6040, fax 562 6068 Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.