Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 10
/
10 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
FRÉTTIR SAMHOGUR ME£ SÚmíKMmM
[f^ A jU(/I i! jl f
MORGUNBLAÐIÐ
A annan tug erlendra fréttamanna
hérlendis vegna snjóflóðsins
Koma tíl að
flytja fréttir
af bræðraþjóð
FRÉTTIR af snjóflóðinu sem féll á Súðavík á mánudagsmorgnn
nafa borist víða um heim. Mest umíjöllunin hefur verið í Noregi, þar
var snjóflóðið aðalfréttin á báðum sjónvarpsstöðunum í Noregi, NRK
og TV2. Fréttamenn TV2, Dagbladet, Aftenposten og Verdens Gang
eru hér á landi og sendu ítarlegar fréttir. Þá hafa tugir blaða og
fréttastofa falast eftir myndum og upplýsingum. Arve Bartnes og
Geir Bolstad, blaðamaður og ljósmyndari Dagbladet, sem komu hing-
að á mánudag, segja atburði sem þessa koma við Norðmenn, þar
sem fjölmörg snjóflóð falli á vetri hverjum og hafi kostað mörg
mannslíf. Þá segist Geir telja að Smugudeilan hafi svo sannarlega
komið íslandi á kortið og fréttir héðan veki æ meiri athygli.
„Norðmenn líta á íslendinga
sem bræðraþjóð, sem stendur okk-
ur jafn nærri og Svíar og Danir.
Smugudeilan hefur vissulega verið
erfíð en hún hefur ekki náð að
breyta þessu viðhorfi. Þjóðirnar eru
nátengdar, í Noregi eru margir
íslendingar og fjölmargir Norð-
menn hér,“ segir Arve.
Hann segir fréttir af svo mann-
skæðu snjóflóði koma við Norð-
menn, nánast á hveijum vetri taki
þau sinn toll. Tæp tíu ár séu liðin
frá því að hópur hermanna fórst í
snjóflóði í Vassdalen í Norður-Nor-
egi. Þjóðin hafi þá verið sem lömuð
og skrifað hafi verið um afleiðing-
arnar árum saman.
Smugudeilan hefur áhrif
Geir, sem er hér á landi í þriðja
sinn, segist ekki efast um að
Smugudeilan hafi orðið til þess að
íslendingar séu Norðmönnum ofar
í huga en áður. Það þyki sjálfsagð-
ara nú að senda fréttamenn hing-
að, gerist fréttnæmir atburðir.
Forsíða VG var lögð undir at-
burðina á Vestfjörðum og ítarleg
umfjöllun var í öllum stærstu blöð-
unum auk viðtala við nokkra þeirra
sem komust lífs af, ættingja o.fl.
Fréttin var ennfremur stærsta
fréttin í færeyska útvarpinu.
Sænsku og d^nsku blöðin gerðu
fréttinni góð skil, sem og blöð í
Færeyjum en utan Norðurland-
anna hvarf hún í gær í skugga
frétta af gríðariegu manntjóni í
jarðskjálfta í Japan. Litlar fréttir
birtust í blöðum í Bretlandi, Sviss,
Þýskalandi, Finniandi og Banda-
ríkjunum, auk þess sem minnst var
á snjóflóðið í fréttum sjónvarps og
útvarpsstöðva, svo sem CNN. Þá
má geta þess að íslendingar er-
lendis sem vildu fylgjast með mál-
inu fiuttu hver öðrum fréttir á Int-
ernetinu, svokölluðum íslandslista.
ÍBEGRAVDE SYGOAS BARN
\ • Redningsarbeidet
"! hindret av uværet
T«*ft-Anulger • Ulenu«g, 17 .ianuui 11»«
Landne begrub Fischerdorf
Schne<|pi issen verschutleren 13 Háuser im nordwestislöndischen Sudavik
Dle mclsieij d, r 250 Leute vun Sudavlk schllefen noch, als am
Montagmor^c 1 elne Lawlne Uher Ihrer Slcdlung nlederftng.
Eln T«HI 4e»iS igelogenen Flscherdorfes, 250 lun ndrdllch von
Heykjavlk gcl igen, wurde dabel verschilttet. Dle IsUndlscbe
Regicrung feW Iðrte atn Ab«nd den Nordwesten dtk Lande*
zum KrisengjEtt let.
Nacht «uf 01en«lag unterwfcgs:
Laul einarn Bericht dc> islZndi-
•chen Radios verliáis« ain Montag-
abond ein AmbulanMchlff mli
Ober fiú Personen - darunter vler
1® undacht Krankentchwe-
Tuhoisa lumivyöry
surmasi ainakin
viisi Islannissa
MARJATTA ISBERG
REYKJAVIK'LumivyOry *uk-
RtMÍ aÍDtkin viiii IbmúUl 250
Mukkaaa Sudavikku lslannin
UnitieSf vuonoaluecUa maanao-
Uiaamuna. KcUo 9.» Suonten
aikaa uitunut vyö/y tuhosi Uyiin
s_ * yaitrtoib.
eau. Lnkenne on lamaantunul, ja i
polini ja vfctUWuuoklukeskut I
ovat kehodancet ihmittf pytyiu-Æ
lemffn kotonaan. Koulut ja latf
tenurhat ovat oUecl suljenuinaL
Uaeilln pilkkakunnille llntud^
U vuonoilueella oh vlettö uh-
kaavanjjuywöryn takia »i
Skalvalop í
íslandi kostað
fleiri mannalív
19 fóík lógu undir Fólk flutt burtur
skalvalopi í íslendsku ’ í lt»tuni junda «1! hiliinL
r bygdini Suðarvík í 'v í FólkiA cr ör teim|
«fag liörde grát nnder snön
Framkvæmdastj óri
Viðlagatryggingar
Meta tjón
þegar verð-
ur fært
GEIR Zoega, framkvæmdastjóri
Viðlagatryggingar íslands, segist
gera ráð fyrir að fulltrúar Viðlaga-
tryggingar muni fara vestur í Súða-
vík fljótlega eftir að fært verður til
Vestfjarða til að meta eignatjónið
á flóðasvæðinu og tala við íbúa.
Fólk þarf tíma
til aðjafnasig
„Við munum gera það í samráði
við almannavarnir fyrir vestan og
forstöðumann vátryggingafélags-
ins þegar fólk er tilbúið að ræða
við okkur. Það tekur tíma fyrir
fólk að jafna sig. Við erum tilbúnir
að fara þegar við getum eitthvað
gert.
Spáin framundan er ekki góð svo
ég hef ekki trú á að þetta verði
fyrr en öðru hvoru megin við næstu
helgi,“ sagði hann. •
*
I öruggri
höfn
DJÚPBÁTURINN Fagranes
lagðist að bryggju á ísafirði eft-
ir hádegi í fyrradag með 93 íbúa
Súðavíkur. Fólkið var flutt á
sjúkrahúsið á ísafirði, þar sem
nöfn þess og dvaiarstaður á
ísafirði voru skráð. Að því loknu
fóru flestir til ættingja og vina.
Sjö manns, sem lent höfðu í snjó-
flóðinu, voru lagðir inn á sjúkra-
húsið til aðhlynningar.
Þingmenn Vestfjarðakjördæmis um atburðina í Súðavík á mánudagsmorgun
Aðstoð verður
veitt með öllum
tiltækum ráðum
Þingmenn Vestfjarðakjör-
dæmis segja að íbúar Súðavík-
ur verði aðstoðaðir með öllum
tiltækum ráðum í kjölfar at-
burðanna þar, en þingmenn-
irnir fara á staðinn strax og
mögulegt verður og hitta sveit-
arstjórn og aðra íbúa að máli.
EINAR K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði að nú sem stæði væru
menn auðvitað miklum harmi slegnir eins og
eðlilegt væri við þessar hræðilegu aðstæður.
Framtíðarákvarðanir bíða
„Á þessari stundu vil ég senda mínar
dýpstu samúðarkveðjur öllum þeim sem eiga
um sárt að binda og þarna hafa orðið fyrir
miklum áföllum," sagði Einar. „Það er ljóst
að þingmenn eins og allir aðrir vilja styðja
með öllum tiltækum ráðum við bakið á þessu
fóiki. Sem stendur á maður ákaflega erfitt
með að gera sér grein fyrir hvað tekur við
og hvernig best sé að bregðast við. Núna
hljóta menn þó fyrst og fremst að einbeita
sér að björguninni sjálfri og framtíðarákvarð-
anir hljóta því að bíða annars tíma.“
Einar sagði það þó blasa við í sínum huga
að taka þyrfti allt varðandi snjóflóðavarnir
til mjög mikillar endurskoðunar, en atburð-
irnir í Súðavík hefðu fært mönnum heim
sanninn um að þekking íslendinga á þessum
málum væri alltof lítil.
„En nú er hugur manns fyrst og fremst
bundinn við þessar hræðilegu hörmungar.
Það er erfitt úr Ijarlægð að sjá hvað á að
taka við, en ég veit að þingmenn munu örugg-
lega fara til Súðavíkur strax og aðstæður
leyfa og kynna sér ástandið af eigin raun.
Þeir munu örugglega aliir sem einn standa
einhuga að baki Súðvíkingum við framtíðar-
uppbyggingu staðarins," sagði hann.
Sálartjónið erfiðast
Pétur Bjarnason, þingmaður Framsóknar-
flokksins, sagði erfitt að tjá sig á þessari
stundu um hvert framhaldið yrði í kjölfar
atburðanna á Súðavík.
„Maður hefur sjálfur verið í hringiðu þess-
ara atburða og látið hverri stund nægja sína
þjáningu og nóg hefur verið að henni. Við
erum ekki búin að sjá fyrir hver endalok
þessara hremminga verða fyrr en veður geng-
ur niður. Hvað snertir framtíð Súðavíkur þá
heyrist mér andblærinn vera þannig að allir
landsmenn muni leggjast á eitt við að að-
stoða við að þarna verði byggt upp. Ég er
þeirrar skoðunar að þarna verði sálartjónið
erfiðast, en hitt muni vera hægt að bæta.
Mínar áhyggjur snúast fyrst og fremst um
fólkið og það sem við höfum misst þarna,
en hvað snertir íjárhagstjón þá er það hiutur
sem verður ekki vandamál að leysa úr. Hitt
er erfiðara og sárara.“
Þingmenn fari vestur
þegar óveðri linnir
Matthías Bjarnason, fyrsti þingmaður
Vestfirðinga, býst við að þingmennirnir fari
vestur í Súðavík strax og óveðrinu linnir og
fólkið verði tilbúið að ræða við þá eftir það
mikla áfall sem það hafi orðið fyrir.
„Eins og er getum við ekkert gert nema
treysta á þessa hraustu björgunarmenn,"
segir Matthías. „Það er okkur bæði ljúft og
skylt að fara og ræða við fólkið, bæði forráða-
menn sveitarfélagisins og atvinnulífs, til að
sjá hvað við getum gert,“ sagði Matthías.
Þörf á sérstakri aðstoð
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingmaður
Kvennalista, sagði að þegar aðstæður leyfðu
myndu þingmenn Vestfjarða vafalaust fara
til Súðavíkur til fundar við sveitarstjórn og
íbúa, en að sjálfsögðu væri ekkert hægt að
gera fyrr en björgunarstarf þar væri um
garð gengið. Hún sagðist vera ákaflega þakk-
lát þeim viðbrögðum sem Vestfirðingar hefðu
fengið um allt land, og sérstaklega væri hún
þakklát þeim hjálparsveitum sem sendar
hefðu verið til Súðavíkur hvaðanæva að og
unnið hafa við erfiðar aðstæður.
„Það er auðvitað alveg ljóst að það verður
að koma til alveg sérstök aðstoð í Súðavík.
í hvaða formi hún verður er ég ekki alveg
tilbúin að segja á þessari stundu, en ég er
ekkert í vafa um það að allir landsmenn eru
tilbúnir að veita alla þá aðstoð sem þarf og
stjórnvöld þar með,“ sagði Jóna Valgerður.
„Það er þó alveg ljóst að í framhaldinu verð-
ur að hjálpa þessu fólki yfir þau andlegu
áföli sem dunið hafa yfir bæði byggðina og
hvern einstakan. Ég er ekki viss um að allir
þeir sem eiga þarna eignir kæri sig um að
byggja þær upp á sama stað, enda sjálfsagt
varla neitt vit í því.“
Vantar rannsóknir
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Al-
þýðubandalagsins, er staddur erlendis en
hann hefur haft fregnir af atburðum í gegn-
um þingmenn og fjölskyldu sína. Kristinn
segir að þegar frá líði þurfi að fara yfir snjó-
flóðavarnir frá grunni.
„Það síðasta sem ég gerði áður en ég fór
utan var að heimsækja sveitarstjórann í
Súðavík, kynna mér snjóflóðið í desember,
hættumatið sem þá lá fyrir og kort af staðn-
um þar sem snjóflóðahættusvæði var merkt
inn á. Þetta kort er greinilega úrelt sem seg-
ir okkur að það vantar heilmikið inn í snjó-
flóðavarnir."
Kristinn segir brýnasta verkefnið að bæta
úr þessu. „Menn þurfa frekari rannsóknir og
betri spár en þeir hafa haft því svo virðist
sem hættumatið sem menn hafa lagt til
gi-undvallar sé ekki byggt á nægilega traust-
um grunni. Meðan menn hafa ekki náð utan
um þetta mál mun fólk hafa efasemdir um
hvort það eigi að búa á viðkomandi stöðum.
Við þurfum að bregðast við upp á framtíðina
þótt við getum ekki bætt úr því sem orðið
er,“ sagði Kristinn.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná í Sighvat
Björgvinsson heilbrigðisráðherra og þing-
mann Vestfjarða, sem er erlendis.