Morgunblaðið - 18.01.1995, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Safnað fyrir dráttar-
vél séra Péturs
AKUREYRI
Nýir hluthafar kaupa hlut í Dagsprenti
í
!
I
Tekist hefur að safna
EITT þúsund manns sótti tón-
leika sem haldnir voru í Glerár-
kirkju um helgina, en til þeirra
var efnt til styrktar séra Pétri
Þórarinssyni sóknarpresti í
Laufási í Eyjafirði. Hann missti
báða fætur á liðnu ári, þann
vinstri á vordögum en sá hægri
var tekinn skömmu fyrir jól.
Eftir að spurst hafði út að Pét-
ur ætti sér þann draum að aka
til bústarfa á sumri komanda á
sérútbúinni dráttarvél sem ein-
göngu er stjórnað með handafli
STARFSFÓLK Dagsprents, útgáfufélags dagblaðsins Dags, lagði fram
eina milljón króna við hlutafjáraukningu í fyrirtækinu. Tekist hefur
að safna nýju hlutafé að upphæð um 18 milljónir króna og góðar von-
ir eru um að takist að ná þeim tveimur sem á vantar í 20 milljóna
króna hlutafjáraukningu fyrirtækisins. Hörður Blöndal framkvæmda-
stjóri Dagsprents sagði að Kaupfélag Eyfirðinga og Kaffibrennsla
Akureyrar hefðu nýtt forkaupsrétt sinn að nýju hlutfé að upphæð tíu
milljónir króna en það er heimingur þess nýja hlutaíjár sem stefnt var
að því að safna eftir að hlutafé fyrirtækisins var lækkað niður í 5% á
hluthafafundi milli jóla og nýárs.
Hamfarirnar
í Súðavík
Kennarar
fresta bar-
áttufundi
KENNARASAMBAND íslands og
Hið íslenska kennarafélag hafa
ákveðið að aflýsa fyrirhuguðum bar-
áttufundi félaganna sem halda átti
í Alþýðuhúsinu á Akureyri í dag kl.
17.
Sýna samhug og hluttekningu
Fundi í Reykjavík var frestað í
gær og segir í fréttatilkynningu að
kennarafélögin vilji með þessari
ákvörðun sýna samhug og hluttekn-
ingu með þeim sem eiga um sárt að
binda vegna hinna hörmulegu nátt-
úruhamfara í Súðavík.
bróðurparti nýs hlutafjár
Starfsfólk keypti hlut
Hluthafar nýttu forkaupsrétt sinn
sem rann út nýlega og keyptu nýtt
hlutafé fyrir eina milljón króna.
Nýjir aðilar hafa skrifað sig fyrir
kaupum á sjö milljóna króna hlut,
en þar er um að ræða Kaupmanna-
samtök Akureyrar og nokkur fyrir-
tæki í bænum m.a. Höldur, Straum-
rás og Sandblástur og málmhúðum
og fleiri. Þá keyptu starfsmenn fyr-
irtækisins hlutafé að upphæð ein
milljón króna.
„Við erum búin að safna 18 milij-
ónum króna af þeim 20 sem stefnt
var að og teljum góða von um að
ná inn þessum tveimur milljónum
króna sem á vantar, þær eru í far-
vatninu," sagði Hörður, en greiðslu-
stöðvun fyrirtækisins sem staðið
hefur síðustu fimm mánuði rennur
út í næstu viku, 24. janúar.
„Við ætlum okkur að lifa af þessa
greiðslustöðvun og teljum okkur
ekki þurfa að ganga í gegnum
nauðasamningaferil. Við vonum að
þeir sem við skuldum sýni okkur
biðlund fyrst um sinn á meðan við
erum að innheimta nýtt hlutafé,"
sagði Hörður.
Engar kollsteypur
Engar breytingar eru fyrirhugað-
ar á rekstri dagblaðsins Dags að
sögn framkvæmdastjórans. „Við
teijum að búið sé að sníða fyrirtæk-
inu þann stakk sem því hæfir og
það eru ekki neinar kröfur af hálfu
nýrra hlutahafa um stórfelidar koll-
steypur í rekstrinum,“ sagði Hörður.
var ákveðið, að efna til söfnunar
og voru tónleikarnir liður í
henni. Tvennir tónleikar voru
haldnir í Glerárkirkju og komu
yfir eitt hundrað manns fram á
þeim. Einnig voru haldnir tón-
leikar í Grenivíkurkirkju og
Svalbarðsstrandarkirkju um
helgina og næstu helgi verða
tónleikar í Hlíðarbæ. Myndin
var tekin á tónleikum í Glerár-
kirkju, en Pétur og fjölskylda
hans voru að sjálfsögðu á
fremsta bekk.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
)
I
i
)
\
I
100 ára afmælis Davíðs Stefánssonar skálds minnst með margvíslegum hætti
Verk skáldsins
kynnt á sýningum
og samkomum
Viðamikil dagskrá verður á Akureyri og í Möðruvallakirkju
á afmælisdaginn. Leikfélag Akureyrar frumsýnir nýtt leik-
verk, A svörtum fjöðrum eftir Erling Signrðarson, í tilefni
tímamótanna. Ýmsar kynningar og sýningar sem tengjast
skáldinu eru fyrirhugaðar á næstunni.
HUNDRAÐ ár verða liðin frá fæð-
ingu Davíðs Stefánssonar skálds
frá Fagraskógi næstkomandi
laugardag, 21. janúar, og verður
þess minnst með margvíslegum hætti. Menn-
ingarmálanefnd Akureyrarbæjar skipaði
starfshóp til að undirbúa og samræma hátíð-
arhöld vegna tímamótanna en um næstu
helgi og reyndar næstu mánuði verður ýmis-
legt um að vera er tengist Davíð og verkum
hans.
Vinsælasta skáld þjóðarinnar
Davíð Stefánsson bjó lengst af við Eyja-
fjörð og á Akureyri og starfaði m.a. lengi
sem amtsbókavörður á Akureyri. Á sextugs-
afmæli skáldsins samþykkti bæjarstjórn Ak-
ureyrar að gera Davíð að heiðursborgara
bæjarins: „Hann er tvímælalaust vinsælasta
núlifandi skáld þjóðarinnar og ekkert ís-
lenskt skáld mun nokkru sinni hafa haft jafn-
marga aðdáendur og lesendur að verkum
sínum meðal samtíðarmanna sinna sem hann.
Skáldrit hans hafa verið jafndáð og lesin af
ungum sem gömlum, körlum sem konum af
öllum stéttum," segir í tiliögu bæjarstjórnar
um að Davíð verði kosinn heiðursborgari.
Dagskráin hefst kl. 11.00 á afmæTisdegi
Davíðs með stuttri samkomu í Davíðshúsi,
þar sem þæjarstjórn og ættingjar skáldsins
minnast dagsins. Samkoma verður í Möðru-
vallakirkju kl. 14.00 á vegum Arnarnes-
hrepps og er hún öllum opin. Þar verður
kynning á verkum Davíðs Stefánssonar,
Tjarnarkvártettinn syngur og Rósa Guðný
Þórsdóttir og Arnar Jónsson lesa úr verkum
hans. Samkomunni lýkur með því að lagður
verður biómsveigur á leiði Davíðs.
Sýning verður opnuð á verkum Davíðs í
Amtsbókasafninu á Akureyri kl. 16.30. Leik-
húskvartettinn flytur lög úr sýningu LA og
Viðar Eggertsson les upp úr ljóðum Davíðs.
Tekið verður á móti vanskilabókum á safnið
með bros á vör en í tilefni dagsins verður
hann sektalaus. Amtsbókasafnið og Héraðs-
skjalasafnið verða öllum opið,
Á svörtum fjöðrum
Leikfélag Akureyrar frumsýnir um kvöldið
nýtt leikverk eftir Erling Sigurðarson, Á
svörtum fjöðrum, úr ljóðum Davíðs Stefáns-
sonar. Erlingur sem er íslenskufræðingur og
kennari við Menntaskólann á Akureyri skrif-
aði verkið að beiðni LA af þessu tilefni. Leik-
sýningin er stærsti einstaki atburðurinn í
tilefni afmælisins. I verkinu tjáir skáldið
, # Morgunblaðið/Rúnar Þór
FRA æfingu Leikfélags Akureyrar á leikritinu A svörtum fjöðrum, sem Erlingur
Sigurðarson byggir á ljóðum Davíðs Stefánssonar. }
Davíð Stefánsson hug sinn á ýmsum tímum
og leitar á vit minninganna þar sem persón-
ur stíga fram úr hugskoti hans og fjölbreyti-
legar myndir lifna. A sviðinu glæðast þessar
táknmyndir og talsmenn ólíkra viðhorfa lífi,
þar sem ástin er í aðalhlutverki.
Leikstjóri og leikmyndahöfundur er Þráinn
Karlsson, búninga gerir Ólöf Kristín Sigurð-
ardóttir og tónlistarstjóri er Atli Guðlaugsson
en lýsingu hannar Ingvar Björnsson. Með
hlutverk fara Aðalsteinn Bergdal, Bergljót
Arnalds, Dorfi Hermannsson, Rósa Guðný-
Þórsdóttir, Sigurþór Albert Heimisson,
Sunna Borg og Þórey Aðalsteinsdóttir.
Söngvarar eru Atli Guðlaugsson, Jóhannes
Gíslason, Jónasína Arnbjörnsdóttir og Þuríð-
ur Baldursdóttir, en um hljóðfæraleik sér
Birgir Karlsson.
Frumsýning verður á afmælisdegi skálds-
ins og verður forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, viðstödd þessa sýningu en hún
hefur einnig hug á að fylgjast með fleiri
atburðum þennan dag. Tvær sýningar verða
á Á svörtum fjöðrum á sunnudag, kl. 16.00
og 20.30.
Tónverk tileinkað skáldinu
Arnar Jónsson leikari flytur dagskrá í
Davíðshúsi á sunnudag, 22. janúar, um
skáldið og verk hans, en Arnar býr nú í
gestaíbúðinni í Davíðshúsi.
Á vegum Amtsbókasafnsins hefur verið
gefið út lítið kver með nokkrum ljóðum Dav-
íðs sem dreift verður til skólanemenda á
Akureyri og þá verður efnt til kynningar
fyrir nemendur í Davíðshúsi á næstu mánuð-
um. Gilfélagið mun efna til dagskrár í Deigl-
unni síðar.
Á Sinfóníutónleikum sem haldnir verða í
Akureyrarkirkju í febrúar verður frumflutt
verk eftir Hróðmar Inga Sigurbjornsson til-
einkað Davíð. „Davíðshátíð" verður í íþrótta-
skemmunni í apríl og Gréta Berg opnar
myndlistarsýningu í listhúsinu Þingi af þessu
tilefni.
Næsta sumar verða sýningar og dagskrár
fyrir bæjarbúa og ferðafólk í Davíðshúsi og
Deiglunni og loks má nefna að sýning tengd
verkum Davíðs verður opnuð í Listasafninu
á Akureyri í sumar.