Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 17
LANDIÐ
Útsvar óbreytt
í Dalabyggð
Búðardal - Hreppsnefnd Dala-
byggðar hefur ákveðið að útsvar
verði það sama og síðastliðið ár
eða 9% af tekjuskattsstofni. Einnig
hefur hreppsnefndin ákveðið að
fasteignaskattur verði 36% af eign-
um. A sl. ári var fasteignaskattur
40% í þremur gömlu sveitarfélag-
anna en þrátt fyrir þetta verður
heildarálagning fasteignaskatts
7,5% hærri en hún var í gömlu
sveitarfélögunum samanlagt.
Ástæða þess er sú að á sl. ári
fór fram endurmat á miklum hluta
fasteigna á sveitarfélaginu sem
leiðir til nokkurrar hækkunar á
fasteignamati þeirra. Endurmati
var lokið í Suðurdalahreppi ’93 en
eftir er að endurmeta eignir á
Fellsströnd, Skarðsströnd og ein-
hveiju leyti í Búðardal og verður
því lokið á þessu ári.
Sorpmóttöku- og
sorphirðingargjald
Sorpmóttökugjald og sorphirðu-
gjald verður lagt á öll íbúðarhús,
sumarbústaði og fyrirtæki sam-
kvæmt gjaldskrá sem er í vinnslu.
Sorpgjald fyrir móttöku á sorpi í
gáma frá íbúarhúsum í sveitum,
sumarbústaði o.fl. verður 3.000 kr.
og sorpgjald fyrir hirðingu sorps
frá húsum verður 7.500 kr.
Þá hefur hreppsnefnd samþykkt
að greiða húsaleigubætur til þeirra
sem eiga rétt á þeim. Þeir sem
telja sig eiga rétt á þessum bótum
eru hvattir til að hafa samband
við bæjarskrifstofuna sem fyrst.
í byijun nóvember sl. komu tveir
starfsmenn frá félagsmálaráðu-
neytinu og héldu námskeið fyrir
félagsmálanefnd og sveitarstjórn
um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Félagsnefndin er þessa dagana að
vinna að gerð reglna um fjárhags-
aðstoð og félagslega heimaþjón-
ustu auk annarra verkefna sbr.
íþrótta- og tómstundastarf ungl-
inga. En starf nefndarinnar er
mjög umfangsmikið.
Óskað var eftir tillögum um
byggðarmerki Dalabyggðar sl.
sumar og bárust 33 tillögur frá
17 höfundum. Hlutskörpust varð
Anna Flosadóttir en það var fjög-
urra manna dómnefnd sem skilaði
niðurstöðum til hreppsnefndar.
Stefnt er að því að gefa íbúum
Dalabyggðar kost á að sjá allar
tillögurnar á næstunni.
Fárviðri og mikil fannkoma
Borg í Eyja- og Miklaholts-
hrepp - Allt frá því á sunnudag
hefur verið hér norðanstórhríð með
feiknalegri fannkomu. Geysistórar
fannir hafa safnast við byggingar
og margir afleggjarar heim á bæi
eru þungfærir og sumir ófærir.
Mjólkurbíll og póstbíll komust ■
ekki í fyrradag vegna veðurofsa.
Áætlunarbílar komust í gær með
því að fara um Heiðdal og norðan-
vert Snæfellsnes.
I öllum þessum hamförum hefur
fréttaritari ekki heyrt um nein slys
eða stórtjón á mannvirkjum. Þó
hafa orðið útafkeyrslur nokkrar
vegna storms og blindu. Bíll með
moksturstönn lenti utan vegar og
er moksturstönnin klemmd föst
undir bílnum. Þá lenti bílstjóri frá
Stykkishólmi í vondu veðri á
sunnudag, var sá á ferð frá Þverá
og ætlaði til Stykkishólms. Komst
hann við illan leik eftir þriggja tíma
basl að Hjarðarfelli. í gærmorgun
leit út fyrir þokkalegt veður en það
stóð ekki lengi.
Þ0RRAV FYRIR O EISLUR HÓPA!
Urvals norðlenskur
þorramatur
• Hrútspungar • Ný lifrarpylsa
• Lundabaggar • Magáll
• Bringukollar • Húsavíkur hangikjöt
• Súr sviðasulta • Sýrt heilagfiski
• Ný sviðasulta • Hákarl
• Súr svínasulta • Harðfiskur
• Ný svínasulta • Smjör
• Sviðakjammar • Rófustappa
• Súr blóðmör • Kartöflumús
• Nýr blóðmör • Hverabrauð
• Súr lifrarpyisa • Síld 3 teg.
•Súr sundmagi • Flatkökur
Kr. 1.195. pr. mann.
Upplýsingar gefur Jón Þorsteinn í síma 671200
NÓATÚN
Arleg fuglatalning
Húsavík - Hin árlega fuglatalning,
sem um allt land fer fram á sunnu-
degi milli jóla og nýárs, fór fram
helgina eftir áramótin þar sem
enginn sunnudagur var nú á milli
jóla og nýárs.
Talið var nú á færri svæðum í
nálægð Húsavíkur en venjulegt
er og því einstaklingsfjöldi og teg-
undafjöldi minni en verið hefur
undanfarin ár. Sé aðeins horft til
þeirra svæða sem talin voru eru
helstu einkenni talningarinnar
eftirfarandi samkvæmt upplýsing-
um Gauks Hjartarsonar sem hafði
yfirumsjón með talningunni.
Fjöldi einstaklinga er í meðal-
lagi og í talningunni sáust 37 teg-
undir fugla. Sjaldgæfustu tegund-
irnar sem sáust voru rauðhöfða-
önd, grafönd, æðarkóngur,
dvergsnípa og glóbrystingur. Það
mun í fyrsta sinni sem dvergsnípa
sést í Þingeyjarsýslu. Fjöldi af
hávellum var óvenjumikill en top-
pendur óvenjufáar. Sendlingum
heldur áfram að fjölga hægt og
sígandi eftir lægð siðustu ára.
Fremur lítið var af stórum máfum
og fjöldi svartbaks var innan við
helming meðaltals undanfarins
áratugs og skýrist það ef til vill
með bættum frágangi á úrgangi
frá sláturhúsi og fiskvinnslu. Að-
eins sáust þrír af hinum dæmi-
gerðu svartfuglum en það er
óvenju lítið en áraskipti eru á
þeim upp við land en óvenjumarg-
ar teistur sáust. Fremur lítið sást
af snjótittlingum þrátt fyrir vetr-
artíð að undanförnu. Meira var
af skógarþröstum og svartþröst-
um á Húsavík en nokkru sinni
fyrr í jólatalningum og liggur
skýringin trúlega í auknum mat-
argjöfum Húsvíkinga. Engir fýlar
sátu nú en þeir hafa stundum sést
í þúsundum. Veðurlag hefur mikil
áhrif á fjölda fýla uppi við land.
Þessar talningar eru allar gerð-
ar af áhugamönnum án end-
urgjalds og er þakkarvert að svo
skuli gert.
Morgunblaðið/Silli
HJÖRTUR Tryggvason við
talningu en hann hefur unnið
við talningar í um 15 ár og
er mikill náttúruunnandi.
Mannskapur mokaði
skafli af fjárhúsþaki
HÉR í Mývatnssveit gekk vindur til norðanáttar síðastlið-
inn sunnudag með allmikilli snjókomu og skafrenningi.
Um kvöldið breyttist áttin snögglega í suðvestan ofsaveð-
ur með blindkófi sem hélst alla nóttina og jafnframt birti
í lofti.
Á mánudagsmorgun var sama veður og sá vart út
úr augum. Allt skólahald féll niður og margir komust
ekki til vinnu. Síðdegis fór veðrið að ganga niður og
birta og um kvöldið var komið hér fegursta veður. Sum-
staðar setti skafla á vegi, en á milli eru langir kaflar
algjörlega snjólausir. Nú er búið að mestu að hreinsa
flesta vegi. Þess má geta að á Helluvaði setti mjög þykk-
an skafl á fjárhúsþak. Óttast var að skaflinn myndi sliga
þakið og var því safnað mannskap til að moka skaflinum
af þakinu.
Áð undanförnu hefur verið reki í Laxá á löngum kafla
og hefur þetta mjög hækkað í henni við Helluvað og
talið með því mesta sem sést hefur. Raforkuframleiðsla
í Laxárvirkjun á þriðjudagsmorgun var um 9 metavött.
Starfsmannafélag ríkisstofnana Félag þroskaþjálfa
Deild meðferðar- og uppeldisfulltrúa
Málþing
Eiga sveitarfélög að taka við málefnum fatlaðra?
Haldið föstudaginn 20. ianúar kl. 13.00-17.00 í Borgartúni 6.
Dagskrá:
13.00-13.10 Ávarp Rannveigar Guðmundsdóttur, félagsmálaráðherra.
13.10-13.35 Þjónusta við fatlaða í nútíð og framtíð.
- Eggert Jóhannesson, frkvst. svæðisskrifstofu Suðurlands.
13.35-14.00 Stefna félagsmálaráðuneytisins.
- Margrét Margeirsdóttir, deildarstjóri.
Viðhorf til umræðuefnisins
kl. 14.00—15.50.
Ræðumenn:
Þroskaþjálp.
- Guðmundur Ragnarsson,
varaformaður.
Öryrkjabandalag íslands.
- Hafdís Hannesdóttir, félagsráðgjafi.
Félagsmálastofnun Reykjavíkur.
- Dísa Guðjónsdóttir, félagsráðgjafi.
Fulltrúi sveitarfélaga í dreifbýli.
- Loftur Þorsteinsson, oddviti,
Hrunamannahreppi.
BSRB.
- Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB.
Deild meðferðar- og uppeldisfulltrúa.
- Helga Eiríksdóttir, formaður.
Félag þroskaþjálfa.
- Hrefna Haraldsdóttir, formaður.
Pallborðsumræður.
Kl. 15.50-17.00.
Þátttöku ber að tilkynna til skrifstofu Starfsmannafélags ríkisstofnana
í síma 629644 eða í faxi 629641.
Allir sem hafa áhuga á málefninu eru velkomnir.
Ráðstefnustj.: Sveinn Allan Morthens, framkvstj. svæðisskrifst. Norðurlands vestra.
Stjórnandi pallborðsumræðu: Kristín Á. Ólafsdóttir.