Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
LANDSKJÁLFTINN í JAPAN
MORGUNBLAÐIÐ
Hátt á annað þúsund manns
fórst og fjölmargra saknað
AFLEtÐINGAR JARÐSKJÁLFTANS í JAPAN
Aö minnsta kosti hátt á annaö þúsund manna týndi lífi og þúsundir
manna slösuöust. Meira en þúsund manns var enn saknað í gær.
Skjálftinn sem var 7,2 stig á Richter kvaröa, átti upptök
á 20 km dýpi undir Awajishima eyju, 15 km from Kobe.
Skýrlngar: í
Mestu Þjoö-
skemmdir brautir
/ m
Mesta Járn- Þétt
hamfara- brautír
svæöiö
^ Veikur skjálfti: Hús skjálta, huröir og gluggar skrölta og titra
Japanskur @ Meöalsterkur skjálfti: Hús skjálta mjóg og titra, munir talla úr hillum
jaröskjálftakvaröi: © stefkur sklálfti: Ve99ir sPrin9a' reykháfar og hlaönir múrveggir hrynja
(J) Stórskjálfti: Allt aö 30% bygginga htynur, skriöuföll veröa og jörö springur
5 km
SKEMMDIR:
• 3.000 byggingar eyöilagöar
• 10.000 heimili verulega skemmd
• Stjórnlausir eldar loguöu í miöborg Kobe
• Skemmdir og manntjón (allt aö100 km fjarlægö umhverfis Kobe
• Hanshin-hraöbrautin brotnaöi vföa og hrundi
• Tíu járnbrautarlestir fóru af sporinu
• Meira en 400 eftirskjálftar hafa tafiö mjög björgunarstörf
OSAKA
FLÓI
■ HOKKAIDO i.
AWAJISHIMA
„ EYJA
Tottori Toyooka
Himeii
Okayama
' Takamatsu
_Tokushirr^-
Kochi©—V^/'
- ©Fukui
^©Hikone
200 km
Islendinga í Jap-
an sakaði ekki
„VIÐ fundum
ekki fyrir
skjálftanum
hér í Yoko-
hama,“ sagði
Sigríður Maaek
í samtali við
Morgunblaðið í
gær en hún er
búsett í ná-
grenni TokýÓ, Jón Þrándur
allfjarri hamfa- Stefánsson
rasvæðinu. „Við höfum árang-
urslaust reynt að ná sambandi
við íslendinga, sem við vitum
af á skjálftasvæðinu. Þangað
hefur ekkert símasamband
náðst eftir skjálftana," bætti
hún við.
Islendingar, sem búsettir eru
á skjálftasvæðinu, sluppu allir
heilir frá hamförunum, að sögn
ættingja þeirra sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær. í Kobe,
sem verst varð úti, býr Jón
Þrándur Stefánsson, sem vinnur
við hagrannsóknir og í Kyoto
býr Isak Sverrir Hauksson og
fjölskylda.
„Ég náði sambandi við ísak á
Internet-tölvuupplýsinganetinu
og það amar ekkert að hjá fjöl-
skyldunni," sagði Gylfi Hauks-
son bróðir hans í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Þau vökn-
uðu við skjálftann um klukkan
sex að morgni. Hann sagði að
sprunga hefði komið í loftið yfir
rúminu en þar sem jarðskjálftar
séu tíðir hefðu þau bara velt sér
á hina hliðina og haldið áfram
að sofa.“
ísak sagði að skjálftarnir
hefðu ekki haft mikil áhrif í
Kyoto. Það kom fram í svari sem
hann sendi að hann væri búinn
að lesa um harmleikinn í Súða-
vík á Internetinu," sagði Gylfi.
„Jón Þrándur var vaknaður
þegar ósköpin dundu yfir. Hann
náði strax símasambandi heim
og þegar við töluðum saman um
eittleytið í nótt hristist allt og
skalf,“ sagði Þorbjörn Tjörvi
Stefánsson, bróðir Jóns Þránds.
„Húsið sem hann dvelst í er
illa útleikið eftir skjálftann. Það
stóð reyndar uppi en er alsett
sprungum og þakið mikið
skemmt. Vatnslagnir rofnuðu
og hann sagði að tjónið allt í
kring hefði verið mikið. Það var
á honum að heyra að þetta hefði
verið all hrikaleg upplifun".
Miklir eldar geisa í Kobe og vatnsskortur
torveldar slökkvistarfið - Þúsundir manna
slösuðust og um 140.000 flúðu heimili sín
Kobe. Reuter.
MANNSKÆÐASTI og öflugasti landskjálfti í
Japan í tæpa hálfa öld varð að minnsta kosti
1.800 manns að bana og 966 var enn saknað í
gær, auk þess sem 6.334 manns slösuðust.
Skjálftinn olli gífurlegu eignatjóni og miklir eldar
loguðu enn í hafnarborginni Kobe fimmtán
klukkustundum eftir að skjálftinn reið yfír í fyrra-
Fólkið hafðist við í félagsheimil-
um, skólum og tjöldum sem reist
voru í almenningsgörðum í borg-
inni. Mikill reykmökkur var yfír vest-
urhluta og miðborg Kobe, sem urðu
verst úti í skjálftanum. Eldarnir voru
allt að 300-500 metrar á breidd og
eyðilögðu hveija timburhúsaröðina á
fætur annarri. Haft var eftir emb-
ættismönnum að ails geisuðu 134
eldar í borginni. Borgarbúar börðust
við eldana, sumir aðeins með vatns-
fötum, en sumstaðar var ekki reynt
að slökkva þá vegna vatnsskortsins.
Hermenn og slökkviliðsmenn frá
Tókýó og fleiri borgum sem sendir
voru til Kobe, töfðust á leiðinni
vegna umferðaröngþveitis.
„Eldarnir breiðast svo ört út að
það hefði ekki orðið að neinu gagni
þótt slökkviliðsmennirnir hefðu kom-
ist hingað fyrr,“ sagði einn borg-
arbúanna. „Þetta er vonlaust vegna
þess aðjafnvel þótt slökkviliðið kom-
ist hingað er ekkert vatn að hafa,“
sagði annar.
Mikil gaslykt var í Kobe og
slökkviliðs- og lögreglumenn óku um
borgina til að vara við hættunni af
eldfimu gasi sem lak úr ónýtum
leiðslum.
Björgunarsveitir grófu í rústunum
með höndunum í leit að tæplega
þúsund manns sem var saknað,
þeirra á meðal 20 sjúklingum sem
voru innlyksa í rústum sjúkrahúss í
kvöld. Sprungur á vegum, umferðaröngþveiti og
skortur á vatni torvelduðu mjög slökkvistarfið.
Tomiichi Murayama, forsætisráðherra Japans,
ákvað að senda hermenn á vettvang til að að-
stoða íbúana, sem þurftu að notast við holræs-
isvatn til að slökkva eldana vegna vatnsskorts.
Um 140.000 manns urðu að flýja heimili sín.
Kobe sem hrundi.
10.000 hús eyðilögðust eða
skemmdust
Tugir bifreiða krömdust þegar
vegabrýr hrundu nálægt Kobe og tíu
lestir fóru út af sporunum. Alls eyði-
lögðust um 10.000 hús og önnur
mannvirki algjörlega eða skemmd-
ust. í miðborg Kobe mynduðust 30
sm breiðar sprungur á götunum.
Landskjálflinn reið yfir næstfjöl-
mennasta svæðið í Japan og eitt af
hinum iðnvæddustu. Eigna- og
manntjón varð á svæði með 100 km
radíus umhverfis Kobe, meðal ann-
ars í Osaka, næststærstu borg Jap-
ans, og Kyoto, hinni fornu höfuð-
borg, þar sem hof og ómetanleg
Búddha-líkneski skemmdust.
Næstum allir sem fórust og meira
en helmingur þeirra sem slösuðust
voru í Kobe, sem er talin ein af feg-
urstu borgum Japans og helsta hafn-
arborgin á vesturströndinni. íbúar
Kobe eru 1,4 milljónir.
Mannskæðasti landskjálftinn
frá 1948
Fréttaritari Reuters, sem flaug
yfir svæðið í þyrlu, sagði að eyði-
leggingin á skjálftasvæðinu minnti
einna helst á „Godzilla“-skrímsla-
myndirnar japönsku. „Úr lofti að sjá
er eins og forsögulegt skrímsli hafi
þrammað yfir svæðið," sagði hann.
Landskjálftinn varð kl. 5.46 að
staðartíma, kl. 20.46 að íslenskum
tíma í fyrrakvöld, og reið yfir miðju
Honshu-eyjar frá Japanshafi til
Kyrrahafs.
Skjálftinn mældist 7,2 stig á Ric-
hterskvarða og skjálftamiðjan var
20 km undir eyjunni Awajishima,
sem er um 30 km frá Kobe. Mörg
hús hrundu einnig á eyjunni, sem
er vinsæll ferðamannastaður.
Þetta er öflugasti landskjálfti á
Kansai-svæðinu í miðhluta Japans
frá árinu 1946 þegar skjálfti sem
mældist 8,0 stig á Richter varð
næstum 1.500 manns að bana. Þetta
er jafnframt mannskæðasti skjálft-
inn í Japan frá 1948, þegar skjálfti
sem mældist 7,1 stig á Richter reið
yfir Fukui í miðhluta landsins og
kostaði 3.769 manns lífið.
Murayama forsætisráðherra lýsti
skjálftanum sem hinum „versta sem
riðið hefur yfir japanska stórborg
frá Kanto-Iandskjálftanum mikla"
sem varð 130.000 manns að bana
árið 1923.
Vegabrýr hrynja
Bílar héngu fram af tveggja hæða
hraðbrautum, jámbrautateinar
sneru upp í loft og ringlaðir ibúar í
náttfötum reyndu að komast í húsa-
skjól í vetrarkuldanum.
Stórar kaflar af vegabrú, sem
tengir Kobe og Osaka, hrundu. Lög-
reglan sagði að 14 bílstjórar og far-
þegar hefðu látið lífið þegar bifreið-
ar þeirra hefðu feykst af hraðbraut-
inni eða ekið ofan í gjár sem mynd-
uðust við þrjá 100 metra kafla þar
sem vegabrúin hrundi.
Meira en 400 eftirskjálftar riðu
yfir svæðið næstu klukkustundirnar,
torvelduðu björgunarstarfið og eyði-
lögðu byggingar sem höfðu þegar
orðið fyrir miklum skemmdum í
stóra skjálftanum.
Kaupæði greip um sig meðal íbú-
anna, sem hömstruðu matvæli,
drykki og ýmsan varning eins og
rafhlöður og kerti. Ekki var vitað
til þess að fólk hefði brotist inn í
verslanir til að láta greipar sópa.
íbúar Kobe sögðu að fyrir skjálft-
ann hefði heyrst ógnvænlegur gnýr.
„Ég vissi ekki hvort mig væri að
dreyma,“ sagði einn þeirra, klæddur
náttfötum eftir að hafa flúið í skynd-
ingu frá heimili sínu. „Menn voru
ekki viðbúnir þvílíkum hryllingi
hérna.“
Ekkert símsamband
Símasambandslaust var að mestu
við borgina og öngþveiti var á vegum
frá henni vegna fólks sem reyndi
að flýja hana.
íbúi í Nishinomiya, bæ nálægt
Kobe, kvaðst hafa vaknað við ham-
farirnar. „Það var eins og mér væri
feykt ofan í djúpa gryiju eða hel-
víti. Skjálftinn var svo öflugur."
Flestir þeirra sem var saknað voru
í rústum bygginga sem hrundu í
Kobe, meðal annars átta hæða bygg-
ingar og þriggja hæða hótels. „Við
vorum ekki viðbúin þessu, við töldum
aldrei að svo öflugur jarðskjálfti
gæti riðið yfir Kansai-svæðið," sagði
kaupsýslumaðurinn Katsumi Take-
uchi.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
ráðamenn í Tævan, Frakklandi,
Þýskalandi og Bretlandi buðust til
að aðstoða Japani við björgunar-
starfið. Clinton ákvað að senda hóp
hátt settra embættismanna til Jap-
ans til að aðstoða við skipulagningu
björgunarstarfsins.