Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 22

Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Á miðjum aldri MYNPLIST Nýlistasafnið BLÖNDUÐ TÆKNI SAMSÝNING Opið alla daga kl. 14-18 til 22. janúar. Aðgangur ókeypis. NÝLISTASAFNIÐ hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem ein af merkari stofnunum okkar lands á sviði myndlistarmála; gjarna er litið til Listasafns íslands, Lista- safna Reykjavíkur og síðan Ný- listasafnsins - sem hefur þýtt heiti sitt á ensku sem „Safn hinna lifandi lista“ - sem helstu hom- steina í íslensku myndlistarlífi. Afmæli af öllu tagi marka tíma- mót, þar sem vert er að staldra við, fagna því sem hefur áorkast og líta til þess sem framundan er. Þegar í hlut eiga stofnanir eða félög, er ætíð æskilegt að spyrja um markmiðin; hefur þeim verið náð, er eitthvað nýtt á döfinni, eða ylja menn sér fyrst og fremst við minningar um forn afrek. Þessar vangaveltur eiga ágætlega við um Nýlistasafnið nú þegar yfir stendur afmælissýning safns- ins. Hér er komin sýning á grund- velli algjörs lýðræðis; öllum félög- um safnsins er boðið til þátttöku og fær hver um sig afmarkað rými til afnota. Sölum safnsins er því skipt í 114 reiti og stafrófs- röð á nöfnum félagsmanna látin ráða niðurröðun verka þeirra. Þannig ræður tilviljun nokkru um hvort verk eiga saman eður ei, og jafnfram hvort eitt verk öðru fremur dregur helst að sér athyg- lina í hveijum sal. Einhver fljótaskrift virðist hafa verið á undirbúningi sýningarinn- ar, því á hana vantar verk frá rúmlega tveimur tugum félags- manna, sem hlýtur að teljast nokkuð hátt hlutfall; einnig eru hér verk, sem voru fyrir nokkrum vikum á öðrum sýningum - jafn- vel á sama stað - og ber slíkt ekki vott um mikla virðingu fyrir sýningargestum. Þrátt fyrir þessa vankanta má segja, að sýningin gefí ágætt þversnið af því sem félagsmenn safnsins eru að fást við um þessar mundir. Mörg verkanna eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, og flest önnur eru nýleg, þó þar séu undantekningar á. Sýnendur eru á öllum aldri og verk þeirra af öllum gerðum, þó mest beri á ýmsum útgáfum hugmyndalistar- UPPDRÁTTUR af upp- setningu afmælissýningar Nýlistasafnsins. innar og naumhyggj'unnar; mál- verkið á t.d. fáa formælendur í þessum hóp, þó það hafí gengið í gegnum endurnýjun lífdaga á alþjóðavettvangi hin síðari ár. Lítið er hægt að ætla um stöðu myndlistarinnar á íslandi í dag út frá sýningu sem þessari; hinir eldri standa fiestir fyrir sínu, og meðal hinna yngri má finna skemmtileg tilþrif á stundum, þó margt sé þar flatneskjulegt. Verk Guðjóns Ketilssonar er sterkt, sem og mynd G.R. Lúðvíkssonar; syrpa Helenar Guttormsdóttur er kímin ábending til allra karlmanna; ljós- myndir Rögnu Hermannsdóttur eru athyglisverðar, sem og nýtt verk Sigurðar Guðmundssonar, sem hann hefur gefið safninu. Þrátt fyrir þessi (og fleiri góð) dæmi, er nokkuð þungt yfir heild- armyndinni. Í tilefni tíu og fimmt- án ára afmæla Nýlistasafnsins voru haldnar viðamiklar og um margt merkar sýningar, sem gáfu gott yfirlit yfir það svið, sem safn- ið hafði markað sér. Þessi sýning fellur alfarið í skugga þeirra og af henni er ekki hægt að ráða að félagsmenn séu að bijóta ný lönd eða leita nýrra leiða, heldur er tilfínningin „meira af því sama“ mest áberandi þegar sýningin er yfirgefin. Verk G. Erlu Geirsdótt- ur, þar sem orðhlutarnir „endur - nýjun/tekning“ eru saumaðir með gylltum þræði í slitinn klút, er góð túlkun á þessari erfiðu stöðu; á þessum stað leita listunnendur ef til vill endurnýjunar, en finna nú helst endurtekningu. Miðað við lífaldur listamanna- hópa og virkni samtaka þeirra yfirleitt er Nýlistasafnið á miðjum aldri, sem hefur reynst mörgum hættulegt stöðnunartímabil. Þeg- ar það var stofnað var það gert af brýnni nausyn, þar sem enginn annar aðili í landinu sinnti alþjóða- samskiptum og nýjustu hreyfing- um í listinni að neinu gagni. í ljósi þess að á undanfömum fimm til átta árum hefur orðið mikil breyt- ing hjá bæði Listasafni íslands og Listasöfnum Reykjavíkur hvað þetta varðar, er ef til vill kominn tími til fyrir Nýlistasafnið að end- urskoða markmið sín og tilgang, bæði til að þjóna félögum sínum og listalífinu í landinu sem best. Nýlistasafnið hefur burði til að vera lengi enn öflugur vettvangur á sviði íslenskrar myndlistar, en þá hlýtur endumýjun fremur en endurtekning að vera keppikeflið. Eiríkur Þorláksson Efnilegt debút TÖNLIST íslenska óperan „DEBÚT“ TÓNLEIKAR SIFJAR TULINIUS „Debút“-tónleikar Sifjar Tulinius, fiðla. Steinunn Birna Ragnarsdótf- ir, píanó. Verk eftir Mozart, Jónas Tómasson, Ysaye, Brahms og Win- iawski. Sunnudag 15. janúar 1995. SIF MARGRÉT Tulinius (stúdent úr MH 1988) er enn við nám í fíðlu- leik, nú hjá Mitchell Stern og Joyce Robbins í New York, og því kannski áhöld hvort um „alvöru“-debút var að ræða á síðdegistón- leikum hennar og Stein- unnar Birnu Ragnarsdóttur í íslensku óperunni á sunnudaginn var. Hvað sem því leið/þá var ekki út á aðsókn að setja, því salur Gamla bíós var setinn fyrir ofan meðallag, ög rosknir tónleikagestir nokkuð áberandi. E.t.v. hafði þetta marg- menni sín áhrif á taugar einleikarans, því miðað við þá spretti sem undirritaður heyrði Sif taka í Tónvakakeppni Ríkisútvarps- ins í fyrra, þar sem hún var örygg- ið uppmálað, þá gætti nú ávænings af streitu; ef ekki sýnilegri, þá heyr- anlegri, einkum framan af, þar sem tónninn var stundum nokkuð lokað- ur, hraðaval varfærnislegt og in- tónasjón endmm og eins í lægri kantinum, þegar stokkið var upp á við. Engu að síður sýndi Sif góð tök á mótun hending og bogatæknin var nánast óaðfinnanleg, eins og fram kom m.a. í fallegri beitingu á tvígripum og á veikum stöðum. Sónata Mozarts fyrir fiðlu og píanó í B-dúr K 454 var heldur bragðdauf, enda flutt af ýtrustu varkárni, auk þess sem píanóið var í sterkara lagi, einkum í andante- kaflanum. í einleiksverki Jónasar Tómassonar (yngri), Vetrartré, þar sem Sif stóð ein og óstudd, sýndi einleikarinn meiri tilþrif, og auð- heyrilegt, að þarna væri að mótast allpersónuleg skoðun á verki sem hefur burði til að geta orðið sígilt viðfangsefni fiðluleikara um ókomna áratugi. Næst á eftir kom annað verk án undirleiks, Sónatan op. 27 eftir Eugéne Ysaye (d. 1931), rapsódísk og tæknilega allkrefjandi tónsmíð í 4 þáttum, þar sem höfundur vitn- ar í tónbókmenntir fyrri tíma, eins og í E-dúr Partítu Bachs (í 1. þætti), en mest þó í sekvenzinn forna úr sáiumessunni, Dies irae, sem geng- ur eins og rauður þráður gegnum allt verkið. Sif flutti þetta verk einna best allra á tónleikunum og náði að kalla fram verulega spennu og dulúð með yfirvegun og festu. Meðferð þeirra stallna á hinni háttelskuðu sónötu op. 78 eftir Brahms var þokkafull en ekki ýkja spennandi, og hin stutta Polonaise brillante op. 4 eftir Winiawski (d. 1880) lýttist, þrátt fyrir töluverðan bravúr, nokkuð af „flötum" nótum hér og þar í fiðlunni. Sif er efnilegur fiðluleikari, og væri gaman að fá að heyra leik hennar aftur við óþvingaðra and- rúmsloft. Vonandi verður þess ekki langt að bíða. Ríkarður Ö. Pálsson SIF Tulinius og Steinunn Birna Ragnarsdóttir. __ Ljóðatónleikar í Islensku óperunni HOLLENSKA mezzo-sópr- an söngkonan Jard van Nes og breski píanóleikarinn Roger Vignoles halda tón- leika á vegum Tónlistarfé- lagsins í Reylqavík í dag í íslensku óperunni kl. 20.30. Á efnisskránni eru fjögur sönglög op. 2 eftir Alban Berg, Frauenliebe und -le- ben eftir Schumann, lög eft- ir Debussy og Manuel de Falla. í kynningu segir: „Und- anfarin ár hefur Jard van Nes unnið sér sess sem einn af fremstu söngv- urum í Evrópu. Hún er jafn vel heima á óperusviði og sem einsöngvari með hljómsveit og í ljóðasöngv Hún kom fyrst fram með Concertgebouw- hljómsveitinni í Amsterdam .Arið 1983 undir stjórn Bernards Haitinks í Sinfóníu nr. 2 eftir Mahler og síðan hefur hún verið tíður gestur með helstu hljómsveitum um allan heim undir stjóm manna á borð við Vlad- imir Ashkenazy, Carlo Maria Giulini, sir Georg Solti og Mstislav Rostropovich. Hún kom fyrst fram á óperusviði í Rodelinda eftir Handel árið 1983, og síðan hefur hún sungið í fjölmörgum ópemm og má nefna Moz- art, Hindemith og Wagner. Jard van Nes hefur sungið inn á ijölda geisladiska, bæði ljóðasöngva, oratorio, sinfóníur og ópemr. Breski píanóleikarinn Roger Vignoles er nú með- al eftirsóttustu meðleikara í heimi og kemur fram í öllum helstu tónleikahöll- um veraldar í fylgd þeirra söngvara og hljóðfæraleikara sem mest era metnir. Auk þess sem hann hefur leikið með Jard van Nes hefur hann komið fram víða um heim með söngvumm eins og Kiri Te Kanawa, Elisabeth Söderström, Sarah Walker og Janet Baker og í fersku minni eru tónleikar hans hér með Thomas Allen sl. vetur. Hann er einnig eftirs- óttur sem leiðbeinandi í „Master Classes“ fyrir söngvara og píanóleik- ara og mun halda slíkt námskeið í Tónlistarskólanum í Reykjavík á morgun, 19. janúar, kl. 10-13.“ Miðasala verður við innganginn. JARD Van Nes mezzo-sópran söngkona. Taktu lagið, Loa! ÆFingar em vel á veg komnar á leikritinu Taktu lagið, Lóa!, sem fmmsýnt verður í lok mánaðarins á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Höfundur verksins er breska leik- skáldið Jim Cartwright, sá hinn sami og skrifaði Stræti og BarPar, sem sýnd voru við miklar vinsældir hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Akur- eyrar. Leikendur em Kristbjörg Kjeld, Pálmi Gestsson, Ólafía Hrönn Jóns- dóttir, Hilmar Jónsson, Ragnheiður Steindórsdóttir og Róbert Arnfinns- son. Búninga annast Þómnn E. Sveinsson, lýsingu Páll Ragnarsson, sviðsmynd þannar Stígur Steinþórs- son, Jón piafsson stjórnar hljóm- sveitinni, Árni Ibsen þýddi verkið og Hávar Siguijónsson leikstýrir. Taktu lagið, Lóa! var tilnefnt gam- anleikrit ársins í Bretlandi 1993. Endurholdgaður Chopin! TONLIST Ilafnarborg RÚSSNESKIR MENNINGARDAGAR Rem Urasin píanó, Vladimir Efimov tenór, Rinat Ibragimov bariton og Amold Budarin, píanó. Verk eftir Tsjajkovskíj, Rachmaninoff, Chopin, Schubert og rússnesk alþýðutón- skáld. Sunnudag 15. janúar. ÞAÐ kváðu standa yfir rússneskir menningardagar í Hafnarfirði, og í tilefni af því bauð menningarmið- stöðin Hafnarborg sl. sunnudag kl. 17, rétt áður en mesta stórhríðin skall á, upp á tónleika. Eitthvað virt- ust samskipti Hafnarborgar og rúss- neska sendiráðsins ganga brösuglega hvað upplýsingastreymi varðar, því flytjendur reyndust helmingi fleiri en tónleikaskráin sagði til um, og verkefnavalið reyndist einnig all- breytt frá því sem prentað stóð. Flytj- endur áttu því að tilkynna viðfangs- efnin jafnharðan, en á því vildi stund- um verða misbrestur, auk þess sem tilkynningamar fóm fram á rúss- nesku, sem er undirrituðum eigi töm. Svo maður ljúki þessu harmahjali af, þá kom heldur á óvart, að báðir ein- söngvarar, auðheyranlega þjálfaðar raddir, kusu að syngja við hljóðnema og uppmögnun, að því að virtist án áþreifanlegrar ástæðu, fyrir utan það að tenórinn, þjóðsöngvarinn Efimov, söng síðustu lög sín fyrir uppklöpp við balalækusveitarundirleik af tón- bandi! Settu þau atriði óneitanlega nokkuð sérkennilegan blæ á tónleik- ana, sem hefði getað orðið skringi- legur, hefðu söngvarar ekki sýnt ýtrastu aðgæzlu. En þegar öllu þessu kvabbi slepp- ir, þá voru rússnesku tónleikarnir hin ágætasta skemmtun, að ekki sé talað um hlut Rems Urasin í fyrri hluta dagskrár, sem var samfelld sigurganga. Maður gæti svosem skil- ið, að upptökubíll Ríkisútvarpsins kjósi að sitja heima, þegar gesti ber að garði sem ku taka fyrir hefðbund- in rússnesk þjóðlög og ku að auki vera ráðnir til að skemmta kráar- gestum; þó hefði stofnunin sennilega ekki setið auðum höndum, hefði skemmtitröllið ívan Rebroff borið að landi. Hitt varð hinsvegar lýðum ljóst þegar eftir nokkur lög (okt.-des. úr Árstíðum Tsjajkovskíjs og nokkrar etýður eftir Chopin), að Ríkisútvarp- ið hafði sofnað illa á verðinum, þeg- ar ákveðið var að hljóðrita ekki hinn 19 ára snilling frá Kasan í Tartarst- an. Annan eins píanóleik hefur undir- ritaður ekki heyrt í hérlendum tón- leikasölum í áraraðir, og hvað Chop- in varðar, einfaldlega aIdrei. Fettur hins fölleita unglings voru líkt og teknar upp úr lýsingum Ha- rold G. Schonbergs í „The Great Pianists" á stælum 19. aldar snillinga í framkomu, og maður hugsaði með sér: almáttugur. Því hér var bæði horft til himins, róið fram í gráðið, höndum lyft upp fyrir hvirfil og þar fram eftir götunum, fyrir nú utan það, að piltur gat í fljótu bragði líkzt Schumann og Chopin anzi mikið í útliti: litaraftið tæringarlegt og hár- greiðsla hin sama og tíðkaðist ca. 1835. En þá fór maður að leggja við hlustir. Hvílíkur píanóleikur! Syngj- andi flæði, merlandi píanississimó, tilfinning fyrir rúbató á við sjötugan vitring, stormandi forte, stórskota- fortissimó (hin 5—6 „p“ eða „f“ rúss- neskra rómantíkera öðluðust allt í einu merkingu), hendingamótun sem gaf tónlistinni jafnvel meiri dýpt en hún átti skilið ... Hárin risu á höfði manns; þetta var upplifun ofan og handan við hinar náttúmlausu hljóð- verstúlkanir á geisladiskum nútím- ans og í beinu sambandi við arfsagn- ir 19. aldar, þar sem slitnir strengir fuku upp af hljómbotni eins og hrá- viði og konur féllu í yfirlið - nema - feilnótulaust! Framlag söngvaranna tveggja í seinni hlutanum gat í huga undirrit- aðs varla annað en bliknað í saman- burði við hinn unga ofurhuga. Efimov tenór söng á þjóðlegum nót- um með tilheyrandi smérvíbratói, falsettubeiting og rússnesku acceler- andói; samsetningu sem undirritaður hefur ekki kunnað að meta síðan á yngri áram, en sem greinilega féllu í góðan jarðveg hjá flestum áheyr- endum. Baritoninn, Rinat Ibragimov, söng klassískara efni, þ.á m. aríur úr Tsjajkovskíj-óperum og sönglög eftir Rachmaninoff, og fórst mjög vel úr hendi, enda röddin hljómmikil (að svo miklu leyti sem hún bjagað- ist ekki í rafmögnuninni). Nú kom í ljós, að Rem Urasin var einnig góður undirleikari, nákvæmur og tillitssam- ur, en auk hans kom annar píanisti í viðaminni og þjóðlegri lögum við sögu, Arnold Budarin, er lék á köfl- um örlítið djassskotnar útsetningar. Meðal þjóðlaga Efimovs var reyndar eitt, sem minnti skemmtilega á Maí- söng Jóns Ásgeirssonar í hljóma- byggingu og að hluta í lagferli, en meðal eftirminnilegustu laga var þó tartarskt þjóðlag í ágætum flutningi Ibragimovs og Budarins, sem bar nokkurn blæ af kyrrlátum, blues-leit- um indíánasöng. Að lokum sungu þeir félagar nokk- ur alþekkt rússnesk lög svo sem Nótt í Moskvu og „Those Were the Days“ við dynjandi lófatak þakklátra hlustenda. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.