Morgunblaðið - 18.01.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 45
BREF TIL BLAÐSINS
Heiðarlegu fólki
á að þakka
Frá Ónnu S. Snorradóttur:
TIL starfsfólks Flugleiða.
Undirrituð var farþegi með Flug-
leiðum til Gran Canaria 16. des. sl.
Vegna þess að blessuð jólin voru
á næsta leyti þótti mér sjálfsagt
að setja upp sparihringinn, sem ég
ferðast annars ekki með. Þegar ég
kom inn á hótel á Playa Del Ingles
var hringurinn ekki á sínum fingri.
Mér datt strax í hug að vegna kulda
um morguninn var ég með hanska,
en tók af mér þegar ég kom í vél-
ina og að þá hefði hringurinn
kannski runnið niður á gólf án þess
að ég tæki eftir því. Ég lét því
starfsfólk strax vita og lét boð út
ganga um þennan glataða grip.
Ekkert gerðist og ég reyndi að
gleyma hringnum.
Ánægjulegir endurfundir
í ársbyijun eða 2. jan. sl. er
hringt. í símanum er Ingvar Her-
bertsson hinn ljúfi og ágæti fulltrúi
Úrvals/Útsýnar ásamt konu sinni
Herborgu, sem allir nefna Bobbu.
Ingvar segir að ég eigi stefnumót
niðri og biður mig að koma strax.
Ég var að koma úr sundi, snaraðist
úr og fór í föt. Niðri sat Ingvar
brosandi út að eyrum og rétti mér
umslag. Þarna var kominn hringur-
inn minn og við Ingvar fórum bæði
að skellihlæja! Og sagan er svona:
Rétt áður en flugvélin fór aftur til
Islands, finnur einhver starfsmaður
félagsins hringinn í sætinu mínu.
Hringnum er stungið í umslag sem
á er prentað.JSAS Plaza Hotel
Hamburg — það sem hendi var
næst, hugsaði ég — og umsiagið
fengið Wim Matt hinum hollenska,
sem er starfsmaður Flugleiða á
Aerporta de Gran Canaria eins og
flugvöllurinn heitir. Wim sendir
umslagið inn í bæ til Auðar Sæ-
mundsdóttur, sem veitir skrifstofu
Flugleiða forstöðu og Auður kemur
því til Ingvars, fararstjóra okkar,
og hann afhendir mér. Sem sagt
þetta flakk á hringnum mínum fór
um margra hendur sem allar voru
stálheiðarlegar og ég sendi þeim
kærar kveðjur og þakkir. Engin
þeirra vissi í raun, hver það var sem
fann hringinn, en á umslaginu stóð.
Gullhringur fannst í 6a.
Má ég biðja skrifstofu Flugleiða
í Jteykjavík að skila hjartanlegu
þakklæti mínu til flugfreyju eða
þess starfsmanns, sem var í flugi
FI 910 h. 16.12. til Kanaríeyja og
bjargaði hi'ingnum mínum frá því
að lenda í ryksugu eða á öðrum
vondum stað. Gleðilegt ár!
ANNA S. SNORRADÓTTIR,
Hofteigi 21,105 Reykjavík.
Hvítasunnukirkjan
Salem á Isafirði 50 ára
Frá Sigfúsi B. Valdimarssyni:
Á NÝÁRSDAG var hátíðarsam-
koma í hvítasunnukirkjunni á
ísafirði. Þá var þess minnst að 50
ár eru síðan Salemsöfnuðurinn var
stofnaður, þá með aðstöðu í Hnífs-
dal. Nokkru síðar var svo hús hús-
mæðraskólans keypt, þar sem starf-
ið hefur verið síðan. Tveir af stofn-
endum safnaðarins eru enn á lífi
og voru þeir heiðraðir, það voru
Magnúsína Ólsen og Guðbjörg S.
Þorsteinsdóttir. Einnig voru heiðr-
aðir tveir aðrir elstu meðlimirnir,
þau Auður Guðjónsdóttir og Sigfús
B. Valdimarsson.
Starf safnaðarins er gróskumik-
ið, þar sem eitthvað er að gerast í
kirkjunni alla daga vikunnar. Bibl-
íufræðsla, bæn og lofgjörð, og
vakningarsamkomur. Barna- og
unglingastarf er þrisvar í viku og
hefir það verið sérlega vel sótt í
vetur, yfir 300 börn hafa verið
skráð. Það er mikilsvert að koma
Guðsorði til barnanna. Nú eru
hættulegri tímar en nokkru sinni
fyrr og vandamál æskunnar mörg
og margt sem lokkar og dregur,
sem leiðir marga til vansælu og
óhamingju.
„Með hveiju getur ungur maður
(og stúlka) haldið vegi sínum hrein-
um?“ Þannig spyrja margir enn i
dag. Gefum gaum að svarinu sem
kemur fast á eftir í 119. sálmi
Davíðs og 9. versi. „Með þvi að
gefa gaum að orði þínu,“ því orði,
sem á að vera „lampi fóta minna,
og ljós á vegi mínum“.
Þá er sjómannsstarfið vel þekkt
bæði innanlands og utan. Á sl. ári
var t.d. farið í 700 heimsóknir í
skip og báta með Guðsorð til fólks
af 40 þjóðernum. Þetta hefir vakið
undrun og gleði margra, ásamt
þeim jólapökkum, sem útbýtt er
meðal sjómanna, sem eru að heiman
á helgri jólahátíð. Því bera vitni
kveðjur, sem berast víðsvegar að.
Öll starfsemi safnaðarins byggist
á orði Guðs, og allir eru því vel-
komnir, og fólk er hvatt til að not-
færa sér það sem kirkjan býður upp
á. Páll postuli sagði: „Eigi hlífðist
ég við að boða yður allt Guðs ráð,“
og Hallgrímur Pétursson segir í 10.
Passíusálmi, 12. versi: „Jesús vill
að þín kenning klár, kröftug sé
hrein og opinskár, lík hvellum lúð-
urs hljómi." Það er þessi lúður-
hljómur, sem þarf að heyrast í
hverri kirkju, sem kristin vill kall-
ast.
Einkunnarorð Salemkirkjunnar
hafa verið frá upphafi: „Og þeir
héldu sér stöðuglega við kenning
postulanna, og samfélagið og brotn-
ing brauðsins og bænirnar.“ Post.
2:42. Undanfarin ár höfum við ver-
ið að endurbyggja og stækka kirkj-
una. Réðumst við í það, í trú til
Drottins og fyrirheita hans. Hann
hefir reynst trúfastur, svo undrum
sætir hvað áunnist hefir, svo starf-
semi er nú á öllum hæðum. Við
þökkum Guði og öllum þeim, sem
hann hefir notað til að koma þessu
í gegn. Þó ýmislegt sé enn eftir
bæði utanhúss og innan, þá vitum
við að Drottinn er hinn sami og við
gefum honum áfram dýrðina og
tökum undir með þeim er sagði:
„Hingað til hefir Drottinn hjálpað
oss.“
SIGFÚS B. VALDIMARSSON,
ísafirði.
Eldborg við
Trölla-
dyngju á
Suðvestur-
landi
Frá Sesselju Guðmundsdóttur:
SEM Suðumesjamaður og
náttúruverndarsinni tek ég
heilshugar undir álit Hilmars
J. Malmquist í Morgunblaðinu
hinn 23. desember síðastliðinn
á Eldborginni en hann segir
þar: „Það var álit mitt að það
þjónaði málstað umhverfis-
verndar betur að fjarlægja
þennan ljóta blett og ganga
snyrtilega frá, en það að láta
gígleifarnar standa
áfram...“
Áður en núverandi efnis-
taka úr borginni hófst var hún
ekki þess verð að vera á nátt-
úruminjaskrá og eins gott að
eyða henni alveg úr því sem
komið var.
SESSELJA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Brekkutanga 36,
Mosfellsbæ.
Kerrur og vagnar:
Simo 306
kerruvagn
m/burðarrúmi,
innkaupagrind og
nælon
regnyfirbreiðslu
kr. 49.500.
20% afsláttur af
öllum
regnhlífakerrum.
Bílstólar:
25% afsláttur af
eldri litum í Maxi
Cosi 2000
ungbarnabílstólum.
Rúm og fleira: Hvítt barnarimlarúm m/8 cm þykkri svampdýnu:
Fullt verð kr. 13.600, 20% afsláttur kr. 10.880.
Alls konar tilboð í gangi á himnum fyrir rúm, rúmstuðurum
og saengurverum.
Ýmis önnur tilboð s.s. á kerrupokum, teppum, burðarrúmum
o.fl.
ALLT FYRIR BORNIN
G 4 P
SOLARKAFFIÐ 1995
OG 50ÁRA
AFMÆLISHÁTÍÐ
verður haldið að HÓTEL ÍSLANDI,
föstudagskvöldið 27. janúar 1995.
50. SÓLARKAFFI ÍSFERÐINGAFELAGSINS, verður haldid með sérstöku hátíðarsniði og
mjög vandað til veitinga og dagskrár. Heiðursgestur hófsins verðiu- Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra, sem jafnframt flytur hátíðarræðu. Veislustjóri:
Hermann Níelsson, alþingismaður. Isfirskir tónlistarmenn, hinn góð- og gamalkunni
“Villi Valli” og Hljómssveit BG, (Baldur Geirmundsson og félagar) halda uppi fjörinu.
Mörg góð skemmtiatriði og ýmsir leynigestir. Allir Isfirðingar að fornu og nýju og vinir
velkomnir.
ÞRENNS KONAR AÐGÖNGUMIÐAR:
1) SÓLARKAFFI MEÐ HÁTÍÐARMÁLSVERÐI.........Kr. 4.500.-
(Fordrykkur, 3 réttuð máltíð, sólarkaffi)
2) SÓLARKAFFI MEÐ FORDRYKK.................Kr. 2.500.-
3) SÓLARKAFFI..............................Kr. 2.200.-
Húsið opnar kl. 18.30 fyrir matargesti, en kl. 20.00 fyrir aðra.
Hefðbundin dagskrá með rjúkandi kaffi og rjómapönnukökum hefst kl. 20.30
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA og BORÐAPANTANIR:
Að Hótel íslandi eða í síma 91-687111,
VISA eða EURO - Greiðslukortaþjónusta.
Fyrir matargesti (eingöngu);
Miðvikudag 18/1 til Föstudags 20/1, milli kl. 13-17
Fyrir aðra:
Laugardaginn 21/1 á staðnum, milli kl. 14-16,
eftir það, 23/1- 27/1, kl. 13-17 eða í síma 91-687111
Sértilboð:
Afsláttarfargjöld/pakki frá ísafirði með FLUGLEIÐUM.
Ódýr gistidlboð hjá HÓTEL ÍSLANDI fyrir gesd utan af landi.
VISA
STJÓRN íSFIRÐIN GAFÉLAGSINS
CD
UTSALA 10-60% AFSLATTUR
Vetrarfatna&ur, skí&agallar, dúnúlpur,
íþróttaskór, íþróttagallar o.fl.
Opið
laugardag
kl. 10-16
»hummél*3
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655