Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
# <t|<F '*
AÐEINS ÞU
MARISA TOMEI
ROBERT DOWNEY JR.
BONNIE HUND, JOAQUIM
DE ALMEIDA, FISHER STEVENS (COLD FEVER)
í frábærri rómantískri gamanmynd.
Hlátur — grátur og allt þar á milli.
í leikstjórn stórmeistarans
NORMANS JEWISON
Sýnd, 5, 7, 9 og 11.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt i spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Only yo
boðsmiðar á myndir í
Verð kr.
Miðaverð kr. 550.
Sýnd kl. 7.
Síðustu sýningar.
lljL i
ÞRÍR
rji
Ein stelpa, tveir strákar, þrír möguleikar
threesome
Sýnd kl. 9 og 11. B. i 12 ára.
KARATESTELPAN
Sýnd kl. 5. Verð kr.350.
FOLK
Systra-
kærleikur
► „ÞESSI bók er gjöf til systra
okkar,“ segir Carol Saline en hún
gaf út bókina Systur með Sharon
J. Wohlmouth Ijósmyndara. „Við
tileinkum bókina öllum þeim
konum sem búa við þá blessun
að eiga systur sem geta deilt
fögnuði þeirra á gleðistundum
og stutt við bakið á þeim á erfið-
um augnablikum í lífi þeirra."
LINDSEY er fjögurra ára og
systir hennar Eryn Elkin er sex
ára. Þrátt fyrir ungan aldur vita
þær hvers virði vináttan er.
SYSTURNAR Bloomie, Dottie og Minnie Green eru ekkjur á níræðisaldri og búa í nágrenni hver
við aðra. „Þær mega ekki af hverri annarri líta, en á sama tíma eru þær mjög sjálfstæðar,“ segir
Linda sem er dóttir Bloomie. „Ef eitthvert barna þeirra leggur til að þær búi saman, fórna þær
höndum og segjast ekki geta hugsað sér neitt skelfilegra."
„VIÐ verðum meira en bara vinir,“ segir hin sjö ára Anna Klales
um nýfædda systur sína Hannah. „Við verðum systur ... Síðar
meir mun ég kenna henni að ganga og þegar hún verður aðeins
eldri gef ég henni þríhjólið mitt. Við munum fara í feluleik og
deila leyndarmálum. Hannah mun elska mig af öllu hjarta."
„VIÐ höfum oft verið spurðar að því hvernig það sé að eiga fræga
systur,“ segir Kelly Turlington og á við systur sína, toppfyrirsæt-
una Christy. „Við höfum ekki tekið eftiy neinum mun. Þegar hún
kemur í heimsókn tekur hún ennþá til í fataskápunum okkar,
segpr okkur hvað fari okkur best og gefur okkur dýr föt.“ Erin
er henni sammála: „Við erum bestu vinkonur.“ Christy bætir við:
„Mér líður best í návist þeirra. Þótt við segjum ekki orð, vitum
við allt um hveija aðra. í því felst ákveðið öryggi."
Friðrik
► DANSKIR fjölmiðlar velta því nú fyrir sér
hvort brúðkaup Friðriks krónprins og fyrirsæt-
unnar Kötyu Storkholm sé í vændum og hún
verði næsta drottning Dana.
Friðrik ýtti ekki beinlínis undir þær sögu-
sagnir þegar hann forðaðist að nefna hana á
nafn í sögulegum viðtalsþætti sem sjónvarpað
var síðastliðinn sunnudag.
Hann fékkst þó til að lýsa þeim kostum sem
honum finnst að næsta drottning Dana þurfi
að hafa til að bera: „Hún verður að vera sátt
við sjálfa sig og hyllast undir einstaklings-
hyggju. Þá verður hún að vera sjálfstæð kona,
en ekki dúkka. Þetta er ekki auðvelt verkefni."
Friðrik og Katya Storkholm tóku saman
fyrir um það bil hálfu ári og virðist Dönum
lítast vel á stúlkuna. Vona þeir að með henni
segi Friðrik skilið við hið Ijúfa líf. Hann hefur
verið veikur fyrir fögrum konum í gegnum
tíðina, en þær hafa þó aldrei gert langa við-
dvöl í lífi hans.
FRIÐRIK prins og Katja Stork- VERÐUR undirfatafyr-
holm í göngutúr, en þau eru ný- irsætan Katja Storkholm
komin úr ferð til Kyrrahafseyja. næsta drottning Dana?
Nancy Kelly látin
LEIKKONAN
Nancy Kelly lést
2. janúar 73 ára
að aldri. Það var
dóttir hennar
sem greindi frá
þessu síðastlið-
inn föstudag.
Nancy Kelly
átti langan leik-
feril að baki
bæði á leiksviði
og í kvikmynd-
um. Hún byijaði
að leika þegar á
barnsaldri og
flutti til Los
Angeles þegar hún komst á táningsaldur.
Hún fékk Tony-verðlaunin og Sarah Siddons-verð-
launin fyrir leik sinn í leikritinu „The Bad Seed“ og
seinna var hún tilnefnd til Oskarsverðlauna þegar hún
lék í kvikmynd, sem gerð var eftir sama leikriti.