Morgunblaðið - 19.01.1995, Side 28
28 B FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
101 HÖIMNUN
MORGUNBLAÐIÐ
Bókin er úreltur
upplýsingamiðill
TiLVUTÆKNIN hefur ger-
breytt heiminum og hvern-
ig við skynjum hann. Einna
mest áhrif hefur tölvan haft á graf-
íska hönnun og myndmennt; með
tölvuna að vopni hafa hönnuðir
kannað nýjar víddir í túlkun og
tjáningu, leitað leiða til að tjá nýj-
an veruleika á nýjan hátt. Fyrir
skemmstu var staddur hér á landi
breski hönnuðurinn Malcolm Garr-
ett, sem er í fremstu röð þeirra
hönnuða sem tekið hafa tölvu-
tæknina í sína þjónustu. Malcolm
kom hingað til lands á vegum gra-
fískrar hönnunardeildar Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands, sem
hefur fengið ýmsa erlenda hönnuði
hingað til kennslu undanfarin ár,
en Malcolm Garrett hefur áður
komið hingað á vegum skólans,
kennt og haldið fyrirlestra. Að
þessu sinni kenndi hann leturgerð,
en hélt einnig fyrirlestur um hönn-
unarferil sinn og margmiðlun, sem
hann hefur unnið mikið að undanf-
arin misseri.
Malcolm Garrett stendur á fer-
tugu, en hann vakti fyrst athygi
sem hönnuður í pönkbyltingunni
bresku í lok áttunda áratugarins.
Sú bylting var ekki bara tónlistar-
bylting því hún hafði áhrif víðar í
bresku lista- og menningarlífi, ekki
síst fyrir tilstilli manna eins og
Malcolms Garrets, Peters Savilles
og Nevilles Brodys, sem eru líklega
áhrifamestu hönnuðir Bretlands
um þessar mundir.
Malcolm Garrett byijaði sem
hönnuður fyrir rokksveitina
Buzzcocks, en það þótti mikil ný-
lunda í þá daga að hann annaðist
útlit alls sem frá sveitinni kom;
plötuumslög, veggspjöld, tónleik-
amiða og hvaðeina. Hann lagði
stund á letursmíði við Reading
háskóla og síðar grafíska hönnun
í Manchester Polytechnic áður en
hann sneri sér til Buzzcocks-liða.
Tónlist hljómsveitarinnar þótti ný-
starleg þó hún byggði á gömlum
rokkhefðum, en hönnun Maleoms
var mun nýstárlegri. Síðar vann
hann meðal annars fyrir poppsveit-
ina Duran Duran og Boy George,
en hann segist snemma orðið
þreyttur á því að vinna fyrir tónlist-
armenn og útgáfur og langað að
reyna fyrir sér við eitthvað annað.
Upp frá því hefur hann meðal ann-
Tölvan hefur gerbreytt heimin-
um og á enn eftir að breyta
honum. Þannig telur breski
hönnuðurinn Malcolm Garret að
bókin sé að syngja sitt síðasta
og innan fárra ára verði flest
útgáfa stafræn, en ekki á papp-
ír. Garrett var staddur hér á
landi fyrir skemmstu og Árni
Matthíasson hitti hann að máli.
Malcolm
Garrett
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
LETUR sem Malcom Garrett hannaði fyrir timarit Nevilles Brod-
ys Fuse. í texta með letrinu segir hann það sé hannað sem for-
stafir fyrir steinskrift, en upphaflega hafi hann hugsað sér að
hafa hvern staf eina samfellda línu, en gert á því undantekningar.
ars starfað við margmiðlun og
tölvuútgáfu, en hann rekur fyrir-
tækið Assorted Images í Bret-
landi, sem meðal annars hefur
unnið að margmiðlunardisk sem
Peter Gabriel gaf út og er nú að
vinna að slíkum disk fyrir hljóm-
sveitina Duran Duran.
Úr poppinu í poppið
„Mig langaði til að losna úr tón-
listarheiminum og fara að vinna
fyrir aðra en plötuútgáfur og
hljómsveitir, þó kannski megi segja
að ég sé aftur kominn í það farið
í margmiðluninni,“ segir Malcolm
og kímir, „en það tók mig töluverð-
an tíma að fá almenn fyrirtæki til
að ráða mig, því einu dæmin um
vinnu mína sem ég gat sýnt þeim
var plötuumslög. Það má segja að
tölvan hafi einnig orðið mér að liði
í því, því ég var áberandi í um-
ræðu um tölvur á þeim tíma og
eftir smá tíma hætti fólk að muna
eftir mér sem plötuumslagamann-
inum og fór að muna eftir mér sem
„tölvusérfræðingnum".
Ég hef haft mikinn áhuga á
tækni frá því ég var lítill drengur
og þannig hafði ég gríðarlegan
áhuga á vísindaskáldsögum og las
allt sem ég komst yfir þeirrar gerð-
ar og sá allar bíómyndir og sjón-
varpsþætti. Þegar tölvur komu á
almennan markað fékk ég þegar
áhuga á þeim, en ég hafði ekki
áhuga á þeim sem forritari og
þannig hafði ég til að mynda aldr-
ei neinn sérstakan áhuga á Sincla-
ir-tölvunni. Forritin fyrir hana voru
ekki áhugaverð, en hún heillaði
mig sem hlutur; sem draumkennt
tæki. 1983 komst ég í kynni við
breskt fyrirtæki sem hafði sett
saman teikniforrit fyrir Apple//e
tölvuna og ég fékk lánaða tölvu
og greiddi fyrir lánið með því að
hanna fyrir fyrirtækið umbúðir
utan um forritið. Það kom mér á
bragðið í tölvuteiknun, enda sá ég
þá að það var vel mögulegt að
vinna eingöngu á tölvu. Samhliða
þessu leysti stafræn tækni ljós-
setningu af hólmi í textavinnslu
og við komumst yfir tölvukerfi sem
kallaðist Compugraphic og vorum
líka með fyrsta fyrirtækinu í Lund-
únum sem var með Scitex-kerfi.“
Meðfædd leti
„Ég hafði áhuga á tölvuteiknun,
mynd- og textavinnslu á tölvu og
vegna meðfæddrar leti óskaði ég
þess helst að þessi tæki gætu talað
hvert við annað. Mér fannst alltaf
kjánalegt að ég þyrfti að teikna
mynd á tölvu, prenta hana síðan
út og vinna myndina við teikning-
una, þá vinna inn á þá mynd letur
úr enn annarri tölvu og síðan þurfti
að mynda þetta allt saman svo
hægt væri að prenta það. Macint-
osh-tölvan breytti þessu öllu og
þó hún hafi verið frumstæð til að
byija með og oft hafi þurft að taka
viljann fyrir verkið þá sá ég strax
að framtíðin væri þessi.
Ég teiknaði allar myndir og vann
sjálfur í tíu ár, því ég treysti eng-
um til að gera þær eins og ég vildi
og var satt best að segja orðinn
dauðleiður á því. Þegar Macintosh-
tölvan kom til sögunnar fannst
mér aftur gaman að teikna. Það
væri gaman að geta sagt að ég
hafi verið framsýnn og spáð fyrir
um framtíðina, en einhvern veginn
fannst mér notagildið svo augljóst
í hönnun og teikningu.“
Tölvan hafði frelsandi áhrif
Malcolm segir að fólk hafi tekið
tölvunni misjafnlega á sínum tíma
og þó nú sjái allir kostina við að
hanna og teikna á tölvur hafi
ýmsir streist á móti og fundið henni
allt til foráttu; talið tölvuna eiga
eftir að skerða sköpunargetu
manna og sneyða alla vinnu ímynd-
unarafli.
„Mér fannst það alltaf kjánalegt
að fólk hefði áhyggjur af því að
tölvan stæði í veginum fyrir sköp-
uninni. Ekki hefur neinn áhyggjur
af myndavélinni, sem er á milli þín
og viðfangsins. Það eina sem kem-
á mögnuðu innkaupsverði.
>
ur í veg fyrir að þú getir unnið
hugmynd er andlegt ástand þitt.
Tölvan hafði frelsandi áhrif á mig
og það sem ég var að gera; hún
jók við það sem ég gat gert og
veitti mér möguleika á að bæta
við mig þekkingu og tækni. Mér
finnst ekki rétt þegar fólk segir
að tölvan sé bara verkfæri; háþró-
aður blýantur eða ritvél — tölvan
er hugsunarvél og þó hugsun henn-
ar sé takmörkuð þá bætir hún sí-
fellt við sig og ég kann vel að vinna
með tölvu sem kennir mér eitthvað
nýtt á hveijum degi.“
í dag vinna nánast allir hönnuð-
ir meira og minna á tölvur, marg-
ir einungis, og síðan er vinnan
prentuð. Malcolm dregur ekki dul
á þá skoðun sína að þetta ferli
eigi eftir að breytast svo um mun-
ar eftir því sem fram líður og lok-
aniðurstaðan hljóti að vera að
menn vinni á tölvu hugmyndir;
auglýsingar, texta eða myndlist,
sem síðan sé einungis birt á tölvu.
Tíu ára ferli
„Það hefur tekið tölvuna tíu ár
að komast í þann sess sem hún er í
í dag í grafískri hönnun og ég
held að það eigi eftir að taka önn-
ur tíu ár áður en fólk yfirgefur
prentmiðlana og þá ekki vegna
þess að fólk sé að gefa prentverk-
ið upp á bátinn heldur vegna þess
að fólk sem ekki hefur alist upp
við prentmiðla eigi eftir að skapa
eitthvað nýtt. Mér finnst vitanlega
erfttt að segja skilið við línulega
hugsun, prentverkið og pappírinn,
enda ólst ég upp við það. Börn í
dag alast aftur á móti upp við
myndbandstækni og stafræna
tækni og þar af leiðandi sjá þau
hugmyndir allt öðruvísi fyrir sér
og fyrir vikið á næstu kynslóð
hönnuða eftir að finnast óeðlilegt
og framandi að vinna á pappír og
fyrir prent.“
Malcolm var meðal brautryðj-
enda í tölvuhönnun og telst enn
meðal fremstu manna í þeirri deild,
en hann segir það hið besta mál
að vera þetta snemma á ferðinni;
áður en ný kynslóð sem alin er upp
við tölvur og myndbönd tekur við.
„Ég vil frekar gera fullt af vitleys-
um og ná tökum á tækninni á
meðan enginn skilur hvað ég er
að gera,“ segir Malcolm og hlær
við, „en að vera að hanna bækur
og plötuumslög endalaust, því þar
finnst mér ég hafa litlu við að
bæta.“
Tölvumyndlist
Þó tölvan hafi rutt sér til rúms
í grafískri hönnun og prentvinnslu
á hún enn eftir að hljóta náð fyrir
augum þorra myndlistarmanna, en
æ fleiri nýta sér nánast ótæmandi
möguleika tölvunnar til Iistsköpun-
ar. Malcolm segist og telja að önn-
ur eins bylting eigi eftir að verða
aðeinstillanúarioka.