Morgunblaðið - 19.01.1995, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 19.01.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995 D 35 Farsímar Nýir not- endurogný tækni auka söluá farsínum Helsinki. Reuter. ÞRÓUNIN á farsímamarkaðnum er í aðalatriðum sú að ört vaxandi fjöldi notenda eru einkaaðilar og að notkun stafrænnar tækni eykst hröðum skrefum að sögn finnska fjarskiptafyrirtækisins Nokia Oy. Lauri Kivinen, einn framámanna farsímadeildar Nokia, sagði í sam- tali við Reuter að rúmlega helm- ingur nýrra farsíma á Norðurlönd- um 1994 hefði verið seldur einka- notendum og gert væri ráð fyrir að þetta hlutfall mundi aukast 1995. Farsímanotendur á Norðurlönd- um eru óvenjumargir miðað við önnur lönd. Rúmlega 12% Finna eiga farsíma miðað við 2-3% að meðaltali í Efnahagssamband- slöndum og um 8% í Bandaríkjun- um. Næststærstir Rekstrarhagnaður Nokia Mobile Phones rúmlega tvöfaldaðist 1993 í 950 milljónir marka (200 milljón- ir dollara) og fyrirtækið er annar umsvifamesti farsímaframleiðandi heims, næst á eftir Motorola í Bandankjunum. Motorola og Nokia selja rúm- lega helming allra farsíma sem seldir eru í heiminum árlega að sögn Kivinens. Vegna aukinnar sölu farsíma um allan heim hefur verð þeirra lækkað um rúmlega 15-20% á ári að meðaltali. Laun hækka um 5.5% íDan- mörku Kaupmannahöfn. Reuter. FIMMGTÁN þúsund flutninga- verkamenn hjá um 1,000 fyrir- tækjum fá að jafnaði 5.5% launa- hækkun á tveimur árum í fyrstu launasamningunum í Danmörku 1995-1996 og hækkunin er innan viðmiðunarmarka ríkisstjórnarinn- ar. Samningarnir tókust eftir 30 tíma samningafundi og geta haft fordæmisgildi í komandi viðræðum í öðrum atvinnugreinum. „Við höfum reynt að forðast hvers konar samning, sem gæti spillt samkeppnisaðstöðu okkar gagnvart Þjóðverjum," sagði Stig Andersen, framkvæmdastjóri sam- taka vinnuveitenda. „Við búumst við að launahækk- anir erlendis verði um 3% á ári næstu tvö ár, svo að okkur hefur tekizt að varðveita samkeppnis- getu okkar á útflutningsmörkuð- um,“ sagði hann. Danska stjórnin hefur lagt áherzlu á nauðsyn þess að launa- hækkanir verði minni en í sam- keppnislöndum svo að verðbólga fari ekki upp fyrir 2%, eins og hún er nú, og núverandi uppsveiflu verði ekki stefnt í hættu. Samtök danska iðnaðarins og bæjarstarfsmenn hafa gagnrýnt launahækkunina og telja hana „of háa.“ Viðræðum um laun rúmlega tveggja milljóna Dana verður hald- ið áfram næstu sex vikur og launa- samningar til næstu tveggja ára taka gilfi l.marz. 101 VIÐSKIPTI Flöskuháls í matvöruverslun í SAMTALI við Morgunblaðið um verslunarhætti framtíðar- innar nefndi Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaup- mannasamtakanna, atriði sem hann sagði spennandi að skoða í tengslum við þessi mál. í mat- vöruverslun væri afgreiðslan flöskuhálsinn og það væri dýrt að hafa marga afgreiðslukassa. Sífellt væri verið að leita leiða til að leysa þetta vandamál og nú væri komin til sögunnar tækni sem gerði kleift að strika- lesa í einu vetfangi alla vöru í innkaupakerru um leið og kerr- unni væri rennt fram hjá af- greiðslukassanum. „Svona kerfi er nú farið að prófa í Japan og þess er ekki langt að bíða að það verði komið á almennan markað," sagði Magnús. „Það er sem sagt alltaf verið að leita leiða til þess að lækka kostnað. við vörudreifingu og auka hrað- ann.“ ORACLE Island Borgartúni 24 105 Reykjavík Sími 561-8131 Fax 562-8131 JjU/H n sem auí *lýstir h ér. Láttu okleur skerpa ]1 2aásmáium ryrirtækisins með netri arangn. I_________: ARGUS ekki bara 9-5 HLIÐA AUGLÝSINGAÞJÓNUSTA. MARKAÐSRÁOGJÖF, HÖNNUN, ALMENNINGSTENG SÍÐUMÚLA 2, l 28 REYKJAVÍK, PÓSTHÓLF 8856, SÍMI 685566 (3 LÍNUR), PÓSTFAX 6801 l 7. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.