Morgunblaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
■ f
Guðrún Hanna Óskarsdóttir
Snjóflóðahætta í
Önundarfirði
Hröktust
um nótt
með fjög-
ur börn
ísafirði. Morgunblaðið.
„ÉG VARÐ alveg óskaplega
hrædd þegar ég heyrði fréttim-
ar frá Súðavík. Það var erfítt
að hlusta á þær I því kolvit-
lausa veðri sem hér var í síð-
ustu viku,“ sagði Guðrún
Hanna Óskarsdóttir, húsfreyja
í Neðri-Breiðadal í Önundar-
fírði. Hún og fjölskylda hennar
yfírgáfu bæinn á miðvikudag
og komust við illan leik í bama-
skólann í Holti.
Almannavamanefnd Flateyr-
ar hafði samband við fjölskyld-
una seint á þriðjudagskvöld og
óskaði eftir því að hún yfírgæfí
heimili sitt. Guðrún fór ásamt
eiginmanni sínum, Halldóri
Mikaelssyni, og ijórum bömum
út í óveðrið skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt miðvikudags.
„Við lögðum af stað á vélsleða,
en veðrið var svo brjálað að við
villtumst fljótlega hér á túninu.
Síðan festist sleðinn og þá
ákváðum við að snúa við. Það
kom síðan dráttarvél frá Þóris-
stöðum á móti okkur og flutti
okkur yfír í skólann. Þangað
vorum við komin um kl. fímm
um nóttina."
Margt flaug í gegnum
hugann í sleðaferðinni
Halldór sagði að ferðin á
sleðanum hefði verið erfíð. „Það
fór margt í gegnum hugann
þegar við festum sleðann. Böm-
in þurftu að fara af sleðanum
og við urðum að halda í þau
því að veðrið var svo vont,“
sagði Halldór.
Fjölskyldan flutti heim sl.
mánudagskvöld. Gegningar
féllu niður í þrjú mál, þar sem
ekki var hægt að komast í fjós
vegna veðurs. Halldór sagði að
kýr hefðu veikst af þessum sök-
um. Júgurbólga hefði komið
upp I nokkmm gripum. Ein kýr
hefði verið það illa farin að
gefa þurfti henni lyf í æð.
Neðri-Breiðadalur hefur
aldrei verið rýmdur vegna snjó-
flóðahættu, en snjóflóð hafa
fallið nærri útihúsum án þess
að neitt tjón hafi orðið.
Mikill beygur er í fólki við Ólafstún á Flateyri
Getum ekkí búið í húsi
þar sem okkur líður illa
ísafirði. Morgunblaðið.
„MAÐUR getur ekki búið í húsinu
sínu nema líða vel í því. Manni er
illa við að fara í vinnuna í vondum
veðrum á vetuma og þurfa að skilja
börnin sín eftir heima og vita aldr-
ei hvað getur gerst. Það hafa gerst
hlutir síðustu daga sem enginn
reiknaði með að gætu gerst og því
er beygur í fólki.“
Þetta segir Steinþór Bjarni
Kristjánsson, íbúi í Ólafstúni 12 á
Flateyri, en snjóflóð féll á hús ná-
granna hans sl. miðvikudag. Húsin
höfðu þá verið yfirgefin. Fjölskylda
Steinþórs, kona og tvö börn á tí-
unda ári og fyrsta ári, hefur komið
sér fyrir fjarri hættusvæðinu. Fjöl-
skyldan hefur ekki snúið heim þrátt
fyrir að hættuástandi hafí verið
aflýst.
Ibúar á hættusvæðinu á Flateyri
yfírgáfu hús sín um hádegi á mánu-
dag. Þá var almannavamamefnd
staðarins búin að lýsa yfír hættu-
ástandi. Venjulega em 10 hús yfír-
gefín, en að þessu sinni fór fólk úr
mun fleiri húsum. Steinþór sagði
að óhug hefði sett að fólki við að
heyra fréttirnar frá Súðavík. Veðrið
hefði þar að auki verið kolvitlaust.
Á miðvikudag féll snjóflóð á tvö
hús og stórskemmdi annað þeirra.
Steinþór sagði að þó að snjóflóða-
vamirnar hefðu gert gagn væri
spurning hvort þær fælu í sér nægi-
lega vörn. „Maður spyr sig hvort
til sé 100% snjóflóðavörn. Óttinn
getur aldrei horfið hversu góðar
sem vamimar eru.“
Um miðjan dag í gær var hættu-
ástandi aflýst á Flateyri. Steinþór
sagði að fáir væm farnir heim enn-
þá. Bæði væri ótti í fólki og eins
STEINÞÓR Bjarni Kristjánsson, íbúi í Ólafstúni 12 á Flateyri, við hús nágranna síns
í Goðatúni, en snjóflóð féll á það sl. miðvikudag.
væri ekki búið að ryðja heim að
húsunum.
„Andinn var þannig hjá þeim
sem búa þarna að menn vildu að-
eins sjá til burtséð frá opinberu
mati á hætfuástandi. Fólk eðlilega
hugsar sinn gang. Hræðilegir at-
burðir eins og urðu í Súðavík gera
það að verkum að fólk staldrar við
og hugsar.
Við sem búum á þessu hættu-
svæði höfum rætt saman um hvað
við gerum í framtíðinni. Það er enn
janúar og við sjáum fram á þijá
mánuði þar sem búast má við að
snjóflóðahætta skapist. Manni
fínnst eins og það hafí eitthvað
gerst í veðrakerfinu upp á síðkast-
ið, sem geri það að verkum að
þetta er verra. Þá er ég að tala
um ríkjandi vindáttir og úrkomu.
Fólk sem hefur búið þama síðustu
10-15 ár hefur orðið að flytja burtu
kannski fjórum sinnum og öll tilvik-
in áttu sér stað á síðustu fjórum
árum,“ sagði Steinþór.
Steinþór sagði óvíst hvað fólk á
hættusvæðinu muni gera. Hann
sagðist þó gera ráð fyrir að fólkið
muni leita eftir aðstoð lögfræðings
svo að það viti um réttarstöðu sína
ef til þess kæmi að húsin yrðu úr-
skurðuð óíbúðarhæf.
KRISTJÁN Jóhannsson, sveitarstjóri á Flateyri.
Flateyrarhreppur ítrekar beiðni til
stjórnvalda um fjárhagslega aðstoð
Nauðsyn að ljúka
gerð varnargarða
ísafirði. Morgunblaðið.
KRISTJÁN Jóhannsson, sveitarstjóri
á Flateyri, segir mikilvægt að ljúka
við gerð snjóflóðavamargarða fyrir
ofan byggðina á Flateyri, en kostnað-
ur við þá er talinn nema 40-50 millj-
ónum króna. Hann segir þó einnig
koma til greina að færa byggðina
frá hættusvæðinu.
Snjóflóð féll á tvö hús við Ólafstún
og Goðatún á Flateyri sl. miðviku-
dag. Annað húsið er líklega ónýtt.
Það hálffylltist af snjó. Allir gluggar
sem snúa upp að fjallshlíðinni eru
brotnir og þak hússins er stór-
skemmt. Hitt húsið er minna
skemmt, en snjóflóðið braut einn
glugga og dyr á því.
Árið 1991 var byrjað á snjóflóða-
vömum fyrir ofan byggðina við Ól-
afstún. Varnargarðarnir eru
hannaðir af frönskum sérfræðingum
í snjóflóðavörnum. Þar era nú garð-
ar og hólar, sem eiga að beina stefnu
snjóflóðs frá byggðinni og draga úr
krafti þess. Enginn vafí þykir leika
á að snjóflóðavamirnar gerðu gagn,
en þær fela ekki í sér fullkomna
vöm.
Kristján sagði að sveitarstjóm
Flateyrarhrepps hefði allt frá 1992
þiýst á að hreppurinn fengi aðstoð
við að Ijúka gerð garðanna. Engin
viðbrögð hefðu komið frá stjórnvöld-
um. Hann sagði að sveitarstjóm
myndi ítreka beiðni sína á næstunni
Verð á sjávarafurðum stendur nánast í stað milli desember og janúar
Verð 5,5% hærra en í fyrra
VERÐ á sjávarafurðum á útflutn-
ingsmörkuðum stóð nánast í stað
en hækkaði þó lítillega milli desem-
ber og janúarmánaðar eftir að hafa
hækkað jafnt og þétt á haustmán-
uðum og ekki er gert ráð fyrir frek-
ari verðhækkunum í næsta mán-
uði, að sögn Þórðar Friðjónssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar.
Verð á sjávarafurðum er nú 5,5%
hærra en það var að meðaltali á
síðasta ári. Þórður sagði að ekki
væri útlit fyrir að verð lækkaði á
nýjan leik, þvert á móti væru líkur
til þess að verð myndi fremur hækka
þegar fram í sækti. Þó væri sam-
kvæmt upplýsingum útflytjenda
ekki útlit fyrir verðbreytingar milli
janúar og febrúar. „Þegar á allt er
litið virðist hafa hægt á þessari þró-
un í bili og að það sé nokkurt hlé
á verðhækkunum," sagði Þórður.
Hagvaxtarskeið fram að
aldamótum
Þórður sagði að allar aðstæður í
efnahagsmálum á alþjóðavettvangi
væra þannig að verð á sjávarafurð-
um gæti haldið áfram að styrkjast
þegar fram í sækti. Hagvöxur í við-
skiptalöndum okkar hefði náð sér
verulega á_strik og eftirspurn væri
vaxandi. í áætlunum Þjóðhags-
stofnunar væri gert ráð fyrir að
verð á sjávarafurðum í SDR fylgdi
nokkurn veginn verðlagsbreyting-
um í helstu viðskiptalöndum.
Þórður sagði aðspurður að spár
um hagvöxt hefðu verið endurskoð-
aðar að undanförnu og nú væri
spáð 3% hagvexti í ár og næsta ár
og raunar árlega fram til aldamóta
í aðildarlöndum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar, OECD.
og ræða við stjórnvöld um framtíð
byggðar við Ólafstún. Jafnframt
væri ljóst að endurskoða þyrfti allar
snjóflóðavamir á Flateyri.
Ofanflóðasjóður borgar 80% af
kostnaði við gerð snjóflóðavamar-
garða. Flateyrarhreppur þarf því að
borga um 10 milljónir af þeim 40-50
milljónum sem kostar að Ijúka gerð
vamargarðanna á Flateyri. Kristján
sagði að Flateyrarhreppur hefði ekk-
ert fjárhagslegt bolmagn til að fjár-
magn þessar framkvæmdir. „Það er
náttúrlega frumskilyrði að fólki líði
vel í húsum sínum. Ef ekki er hægt
að tryggja það með snjóflóðavörnum
er spurning hvort ekki sé rétt. að
færa byggðina," sagði Kristján.
Hann sagði að Flateyringar myndu
ræða þann möguleika við stjórnvöld.
\
)
I
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
I
)
)
)
)
)