Morgunblaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁRTÚNSBREKKA er fjölsótt í hvaða veðri sera er, segir urasjónarmaður. Svig og stökk í Artúnsbrekku STEINAR og Hákon, níu ára, léku sér á skíðasvæði íþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjavíkur í Artúns- brekku eftir hádegi í gærdag ásamt fjölda annarra barna. Segja þeir gaman að renna sér í brekkunni og eru báðir úr hverfinu. „Við komum alltaf hingað. Það er svo gaman að stökkva og sikksakka." Aðspurðir hvort þeir væru búnir að læra voru þeir snöggir til svars. „Við Iærum alltaf áður en við förum á skíði. Það tekur svona fimm mínút- ur.“ Þegar spyijandinn getur ekki leynt vantrú sinni lengist heimanám- ið upp í þijátíu mínútur. „Við vorum að lesa, skrifa og reikna," segja þeir og gera sig líklega til hreyf- ings. „Nei, nei, við erum ekki að fara. Við erum bara að fara heim með skíðin og ná í sleðana okkar,“ segja Steinar og Hákon gallvaskir. Skemmdarverk Sigurður Hafsteinsson er umsjón- armaður skíðasvæðisins og lætur vel af gestunum. Starfssviðið er vítt, allt frá plástursgjöfum upp í skíða- viðgerðir. En þótt allt fari vel fram að deginum segir Sigurður skemmd- arverk mikið vandamál; einhveijir dundi sér við það á kvöldin að stela svamppúðum sem settir eru utan um lyftustaurana til að veija gestina höggi ef ske kynni að þeir renndu sér utan í þá. „Við fengum púða á alla staurana en það er bara einn eftir." Aðspurður segir hann púðana engum til gagns, ekki sé einu sinni hægt að renna sér á þeim í brekkun- um. „Púðarnir voru settir upp í síð- ustu viku og það hurfu sex um helg- ina. Svo eru einhveijir að dunda sér við það að slíta öryggin niður,“ Fjöldi barna renndi sér á skíðum og sleðum í blíðskaparveðrí í Ár- túnsbrekkunni í gær. Gestirnir skipta oft hundruðum á dag og koma í alls kyns veðrí. bætir hann við. „Þetta er allt frítt og það væri ansi hart að þurfa að fara að taka gjöld af krökkunum til þess að bera kostnaðinn af skemmdarverkunum. “ Koma í hvaða veðri sem er Sigurður segir mikið af krökkum koma til að renna sér í brekkunni. „Þetta er stundum eins og á Lækjar- torgi. Gestirnir skipta nokkrum hundruðum á dag og eru á öllum aldri. Þau koma alls staðar að, úr Vesturbænum og Kópavogi." Opið er allan daginn og til níu á kvöldin og segir Sigurður krakkana renna sér alveg fram á kvöld, sama hvern- ig viðri. „Það var bijálað rok og rign- ing um daginn, samt biðu þau hérna í röð,“ segir hann. Arna og Sunneva eru báðar níu ára og í sama bekk. Fyrsti dagur Ornu á skíðum var á mánudaginn og var hún mætt strax daginn eftir. „Mér finnst gaman að renna mér hérna,“ segir Arna sem býr í Vogun- um. „Mamma mín keyrir mig hing- að. Fyrsta dagin renndi ég mér í 1 ‘A tíma. Það var kona hérna sem heitir Sissa sem hjálpaði mér í lyft- una. Þegar hún heyrði að ég væri að koma í fyrsta skipti sagði hún: „Þá kanntu ekki grundvallaratriðin." Nei, sagði ég ogþá kenndi hún mér. Við fórum alltaf hærra í brekk- unni og þegar ég var komin efst upp brá mér því ég vissi ekki að þetta væri svona hátt.“ í fótspor strákanna Aðspurð hvort hún hefði ekki ver- ið þreytt sagði Arna: „Nei, en ég var svolítið spennt." Vinkona Örnu heitir Sunneva og bað hana að koma með sér í Ártúnsbrekkuna fyrst hún væri nýbúin að læra. „Ég er búin að koma hingað fimm sinnum," seg- ir Sunneva. „Mér finnst skemmtileg- ast að renna mér niður,“ segir hún aðspurð hvað sé skemmtilegast en þvertekur fyrir að þær vinkonurnar séu að stökkva líka: „Strákarnir eru bara í því,“ skýtur Arna inn í samtal- ið. „Mig langar svolítið til þess en ég veit ekki hvort ég þori því,“ seg- ir hún líka. Þær Sunneva hugsa sig síðan um og eru loks sammála um að sennilega hafi þær báðar stokkið alveg óvart þegar þær lentu á ójöfn- um í brekkunni og geti því jafnvel hugsað sér að feta í fótspor strák- anna innan tíðar. HÁKON og Steinar voru að fara heim að sækja sleðana sína. WILO Miðstöðvordælur SIGURÐUR Hafsteinsson gef- ur plástra, gerir við skiði og allt þar á milli. Hef opnað lækningastofu í Doinus Medica, Egilsgötu 3, Reykjavík. Tímapantanir frá kl. 9.00—16.30 í síma 563-1015. Þorkell Guðbrandsson, læknir, dr.med. Sérgrein: Lyf- og hjartalækningar. Hagstætt verð SINDRI - sterkur í verki BORGARTÚNI31 ■ SÍMI 562 72 22 Öryggi innanlands Þegar kemur að innlausn spariskírteina 10. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.