Morgunblaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ EINAR STEFÁN SIGURÐSSON + Einar Stefán Sigurðsson fæddist á Skálum á Langanesi 23. des- ember 1916. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Seli á Ak- ureyri 15. þ.m. For- eldrar hans, síðast til heimilis á Akur- eyri, voru Sigurður Einarsson, f. 20. mars 1893, d. 6. júní 1981, og Þórdís Stefánsdóttir, f. 2. júlí 1895, d. 6. júlí 1976. Systkini Ein- ars voru þrjú: Ingibjörg Sigur- rós, f. 2. júní 1913, d. 22. nóv. 1972, húsfreyja á Raufarhöfn; Bjarni, f. 28. des. 1919, lengi starfsmaður Vegagerðar ríkis- ins á Akureyri, búsettur þar; og Hermann Siguijón, f. 19. júní 1930, bílstjóri I Keflavík. Einar var tvíkvæntur, en hann Á MYND sem ég sé nú fyrir mér af Einari Sigurðssyni stendur hann, yfirlætislaus, en snyrtilega klædd- ur, á grænu túni með gráan vegg 'í baksýn. Þetta er í björtu veðri, grasið óvenju vel sprottið og með ólíkindum hve mikið er um sóleyjar og fífla. Hafið bláa hafíð fyrir ut- an, en einmitt vegna þess hve sól- skinið er bjart sést að veðrunin á allskostar við vegginn. Leiksviðið vitnar í senn um liðna lífsbaráttu á þessum stað og eyðibyggð þar sem grasið fær að gróa í friði og flóra úthagans leggur með tímanum und- ir sig gamlan töðuvöll. Þessi mynd var tekin á Skálum Á Langanesi fyrir meira en hálfum öðrum áratug. Á þeim stað leit Ein- ar Stefán Sigurðsson, sem kvaddur er á Akureyri í dag, fyrst dagsins ljós - eða réttara sagt myrkur — því að það gerðist í svartasta skammdeginu, á messu Þorláks helga á því herrans ári 1916. Á Skálum lifði Einar bemsku sína alla til tólf ára aldurs og unni þeim stað til æviloka. Þar komst hann ungur á flot, eins og skáld hinum megin við Bakkaflóa komst að orði um Þórð sjóara, og kynntist þessari verstöð, sem var, bæði í brimi og og konur hans skildu. Þær eru Hallfríður Sigurð- ardóttir, f. 7. nóv. 1925, ættuð af Ár- skógsströnd, og Dýrleif Finnsdótt- ir, f. 9. sept. 1922, búsett í Reykjavík. Með fyrri konu sinni eignaðist Ein- ar einn son, Sigurð, f. 5. júlí 1946, sem búsettur er á Stöðvarfirði, kvæntur Birnu Jó- hannsdóttur. Einar Stefán stundaði ýmsa vinnu, en var lengst af sjómaður. Skamma hríð var hann búsettur í Reykjavík, en annars norðan- lands, lengst á Akureyri. Sam- býliskona hans þar er Hulda Guðnadóttir, f. 10. apríl 1913. Útför Einars fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag. vetrarhríð og nóttleysu norðurslóða. Faðir hans, Sigurður Einarsson, var fæddur á Grenjaðarstað, en ólst upp á Svalbarðsströnd. Leið hans sextán ára gamals lá austur að Skálum og þar í byggðum kynntist hann konuefni sínu, Þórdísi Stef- ánsdóttur frá Læknisstöðum á Langanesi. Einar hét því í höfuðið á öfum sínum og ólst upp á slóðum beggja, því að eftir hartnær tuttugu ára dvöl á Skálum fluttist faðir hans með fjölskyldu sína til Sval- barðseyrar og þaðan um það bil áratug seinna til Akureyrar. Sjór og sveit, þéttbýli og dreif- býli, átti hvort sína helftina af Ein- ari Sigurðssyni, þótt sjómennskan og kaupstaðardvölin væru meiri örlagavaldar í lífi hans. Kjör hans og aðstæður á ung- lingsárum leyfðu ekki lengri skóla- göngu en lögboðna bamafræðslu þess tíma. Hann fór ungur að létta undir heima og vinna fyrir sér og krókurinn beygðist snemma að sjó- mennskunni, enda varð hún aðal- starf hans meðan hann var í blóma lífsins og þrekið mest. Fyrstu hand- tökin lærði hann í skjóli föður síns og annarra sem rera frá Skálum og kynntist þá veiðum á trillum og t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HALLSSON fyrrverandi kennari, Víðihlíð, Grindavík, áðurtil heimilis á Ásabraut 16, Keflavík, lést sunnudaginn 22. janúar. Þórhalla Stefánsdóttir, Örn Geirdal Gíslason, Margrét Stefánsdóttir, Alfreð Árnason, Auður Stefánsdóttir, Sæmundur Gunnólfsson, Sigrún Hochheiser, Ron Hochheiser, Hreinn Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANLAUG SIGURÐARDÓTTIR, áðurtil heimilis á Kársnesbraut 21, Kópavogi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnu- hlíð aðfaranótt 18. janúar, verður jarð- sungin frá Kristskirkju, Landakoti, föstudaginn 27. janúar kl. 13.30. Sigurður Pétursson, Sigurjón Már Pétursson, Inga Hrönn Pétursdóttir, Marfa Pétursdóttir, Elínborg Pétursdóttir, Guðný Zita Pétursdóttir, Pétur Pétursson, Hannes Pétursson, Ólafía K. Kristófersdóttir, Birna Sverrisdóttir, Árni Erlendsson, Sævar Hlöðversson, Hjálmar Hlöðversson, Jónas Kristmundsson, Jónfna G. Halldórsdóttir, Halldóra Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. MINNINGAR árabátum og öllu sem þeim heyrði til. Sá reynsluskóli hélt áfram á Svalbarðseyri. Fyrstu árin þar var Einar þó líka í vinnu á bæjum á Svalbarðsströnd og víðar í nágrenninu á sumrin og þegar hlé varð á sjósókn, m.a. í Meðalheimi. En eftir fermingu var hann farinn að vera flest sumur á sjó og brátt á vetrarvertíð líka og var það upp frá því í meira en hálf- an fjórða áratug. Það lifnaði yfir Einari þegar ég sat hjá honum í Seli dálitla stund á liðnu sumri og bað hann að segja mér frá sjómannsferli sínum. Þann feril mundi hann vel og hafði gam- an af að rifja hann upp. Eftir það varð mér líka ljósara en áður að varla mundi til sú tegund fleytna eða veiðarfæra sem notuð hefði verið við veiðar á íslandsmiðum - og þótt víðar væri leitað - sem Einar hefði ekki flotið á. Fyrir utan línu og net á vetrarvertíð var sum- arsíldveiðin auðvitað ævintýrið mikla þegar hann var ungur. 1944 var frægt síldarsumar og um það leyti sem stofnað var lýð- veldi á íslandi sökk undir honum og félögum hans einhvers staðar á Húnaflóa, ef ég man rétt. Þeir vora í miðjum morgungrautnum á Kol- brúnu í svartaþoku þegar stefni á öðram bát kom inn um kinnunginn. „Það var lán að gott var í sjóinn,“ sagði sögumaður minn, sem ekki var feigari en svo að hann lifði hálfa öld eftir þetta atvik. Af öðram skipum sem hann nefndi má nefna Æskuna og mótor- bátinn Kristján, en hann átti Guð- mundur Pétursson útgerðarmaður á Akureyri. Einar lét vel af skip- rúminu hjá honum. Líklega hefur það verið gagnkvæmt, því að ég hef það eftir mönnum sem vel máttu vita að Einar hafí verið mjög vel liðinn sjómaður, þaulvanur öllum verkum, gætinn og samviskusamur. Eftir að Útgerðarfélag Akur- eyringa var stofnað og eignaðist nýsköpunartogarann Kaldbak gerð- ist Einar háseti á honum og seinna á fleiri togurum félagsins. Enn eru þó ótaldar strandsiglingar hans á Herjólfi fyrir sunnan og flóabátnum Drang fyrir norðan. Þegar Einar hætti að stíga öld- una gekk hann í ýmsa vinnu, eink- um á Akureyri, s.s. byggingavinnu og fatahreinsun. Skinnaverksmiðj- an Iðunn og efnaverksmiðjan Sjöfn nutu starfskrafta hans um skeið. •Sama gildir um vistheimilið Sól- borg. Þó að Einar gæti verið mishittur eins og margur annar var hann þannig gerður að í rauninni mátti hann helst ekkert aumt sjá og ég held að sú regla hafí verið alveg undantekningarlaus ef börn eða aðrir minnimáttar áttu í hlut. Þeir sem þetta vissu og heyrðu tal hans um heimilið og vistmenn þess þótt- ust sjá að það og þeir nytu þessara eðliskosta hans. Kynni okkar Einars Sigurðssonar urðu með þeim hætti að móðir mín og hann kynntust og hófu sambúð um það leyti sem hann gekk síðast í land með pokann sinn. Þar hittust tvö alþýðubörn sem höfðu hvorugt siglt alveg lygnan sjó í lífinu, en bæði orðið að vinna hörðum hönd- um og neita sér um sitt af hveiju. Nú vildu þau freista þess að fylgj- ast að um stund. Við bræðurnir vorum þá báðir famir að heiman, fullorðnir menn, og móðir min orðin ein eftir ásamt föður sínum sem þau Einar bjuggu með síðustu fjög- ur æviár gamla mannsins. Á fyrri sambúðarárum sínum, meðan heilsan leyfði, létu þau Einar og móðir mín rætast gamlan draum um að ferðast víðar innanlands en þau höfðu átt kost á yngri árum. Hún naut þess ekki síður en hann, sem víðar hafði komið. Dætur mín- ar þijár sem þá voru barnungar fengu þá stundum að fljóta með, enda auðsótt mál á sumrin þegar þær fóru norður í orlof sitt til ömmu á Akureyri, sem þær gerðu stund- um. Þær fengu ríkulega að njóta þeirrar barngæsku Einars sem var svo fallegur og áberandi þáttur í fari hans, en henni kynntust auðvit- að flestir krakkar sem í kringum hann vora, þ.ám. sonarsynir hans tveir, Einar Jóhann og Svavar Kristján, og synir Birnu tengdadótt- ur hans af fyrra hjónabandi, Val- garð Þór og Guðni Þór. Þegar þetta fólk óx úr grasi fylgdist Einar með því sem á daga þess dreif. Þess nutu dætur mínar og fjölskyldur þeirra. Tvær þeirra eru nú búsettar í Bretlandi og koma því ekki við sakir fjarlægðar að fylgja Einari síðasta spölinn, en hugsa hlýtt til hans og senda kveðju yfir hafið til ömmu sinnar í minningu þess sem var, nú þegar hann er allur. Leiðir þeirra lágu nokkrum sinn- um til útlanda eftir að þau kynnt- ust. Tvívegis voru þau með okkur hjónum í Danmörku og í seinna skiptið, árið sem móðir mín varð sjötug og Einar löggiltur, fórum við bræðurnir, konur okkar og sum börnin með þeim suður í Eyjahaf. Þar kunnu þau vel við sig um stund- arsakir undir suðrænni sól. Þegar við komum aftur til Fano, rétt hjá Esbjerg, minntist Einar þess eitt kvöld þegar glatt var á hjalla að þangað hafði hann komið áður og sagði okkur sögu af því við mikinn fögnuð. Farmaður hafði hann aldrei ver- ið, en hins vegar oft siglt með afla og þá oftast til Bretlands eða Þýskalands eins og aðrir togarasjó- menn. Eitt sinn voru þeir í fiskflutn- ingum til Esbjerg. Margt skeður í siglingum og í það sinn höguðu örlögin því svo að óvænt ferð til Kaupmannahafnar endaði með því að leita þurfti á náðir íslenska sendi- ÞORVALDUR STEINGRÍMSSON + Þorvaldur Steingrímsson frá Hrísey fæddist 29. nóvember 1924. Hann lést á Akur- eyri 27. desember 1994. Útför hans fór fram frá Akur- eyrarkirkju 5. jan- úar sl. KÆRI Valdi minn! Nú ert þú horfínn héðan og kominn á annað tilverustig, sem verður kannske miklu skemmtilegra en það sem þú áttir hér á jörðinni. En oft var nú gaman þegar við vorum að alast upp í Hrísey. Við vorum vinir og þú áttir heima í næsta húsi við mig og þegar mamma þín þurfti að fara eitthvert lengra til, varst þú í gæslu hjá mömmu. Við vorum jafn- aldrar og lékum okkur saman. Manstu þegar við vor- um að stokka upp lín- una, þú hjá mb. Þor- steini Þorvalds og ég hjá mb. Haka. Þú varst svo flinkur að rétta öngla ef þeir voru bogn- ir. Manstu þegar þú eignaðist fyrstu munn- hörpuna? Og svo marg- ar í viðbót. Svo fékkstu harmóniku sem þú spil- aðir mikið á og samdir mörg lög og texta líka, það var sko flott. Já, Valdi minn, svona gæti ég haldið áfram og skrifað langa grein og eftir að við Stína fórum að búa saman komstu oft til okkar og við skemmtum okkur konunglega. Fyrir þína hönd þakka ég starfsfólkinu á Sólborgu á Akureyri fyrir góða umönnun og öllum öðrum sem voru góðir við þig. Ég veit að mamma þín, hún Kristbjörg, og fósturfaðir, ráðsins um praktíska aðstoð til að komast aftur til Esbjerg. Sendi- herra vor, sem þá var í Danaveldi, var skilningsríkur maður á marga hluti óg kom vel fyrir. Og því sagð- ist Einar Sigurðsson aldrei gleyma þegar hann stakk að sævíkingnum nokkrum dönskum krónum aukreit- is, aldeilis óbeðinn, svo að hann þyrfti ekki frekar en hann vildi að neita sér um einn eða tvo bjóra á leiðinni til baka. Einar tók fram að þessar krónur hefði hann borgað íslenska ríkinu aftur, enda af þeirri kynslóð sem var alin upp við skil- vísi og leit á hana sem dyggð er varðaði við heiður. 0g þó að hann væri ekki alveg sama sinnis í stjórn- málum og téður sendiherra er mér ekki granlaust um að hann hafi haft með honum töluverða samúð upp frá þessu þegar hann var að beijast fyrir sínu pólitíska lífi. Ánnars var Einar ekki ýkja margmáll um lífsviðhorf sitt, en hann var verkalýðssinni og fylgdi jafnan Alþýðuflokknum að málum eins og margir starfsbræður hans og jafnaldrar. En enginn var hann flokksþræll og oft þótti honum falla á silfrið í seinni tíð. Reyndar var honum margt mótdrægt þegar á leið ævina, miðað við það sem hann hefði kosið, bæði í mannfélagsmál- um og einkalífi. Þar olli mestu önd- unarfærasjúkdómur sem gaf hon- um engin grið mörg síðustu árin, auk þess sem sjóninni hnignaði svo að hann átti erfitt með lestur. í fyrravor fékk hann inni í hjúkrunar- heimilinu Seli, enda þurfti hann orðið á nær stöðugri hjúkrun að halda. Þar kunni hann eftir atvikum vel við sig og var þakklátur lækn- um, hjúkrunarliði og öðru starfs- fólki Fjórðungssjúkrahússins og Sels fyrir góðan hlut þess að því að létta honum lífið. Sambúð móður minnar og hans hafði staðið hátt á þriðja tug ára og meðan hann var heima var það hún sem studdi hann, hjúkraði honum í veikindum hans og var hans góði andi eftir því sem kraftar hennar leyfðu. Nú þegar Einar Sigurðsson er kvaddur sendi ég ástvinum hans og venslafólki samúðarkveðjur og fjölskylda mín minnist kynnanna við hann með þakklæti fyrir horfnar stundir og það góða sem hann gerði okkur. Hann fór ekki margar ferðir á bílnum sínum síðustu misserin sem hann var í eigu hans, og trilluna sem hann átti lengi sér til hugar- hægðar hafði hann orðið að losa sig við. Það segir dálítið um hvem- ig maður hann var, að eftir að hann seldi hana gladdist hann yfír því að hún hefði lent í góðum höndum. Og nú er hann farinn í sína síðustu ferð, laus úr viðjum. Eins og marg- ur sjómaðurinn fyrr og síðar var hann trúaður maður. Verði honum að von sinni. Hjörtur Pálsson. hann Alli, og bróðir þinn, Steingrím- ur, taka vel á móti þér. Vertu svo margblessaður. Þinn vinur, _ Árni Tryggvason. í dag kveðjum við Valda okkar sem við höfum þekkt og starfað með í fjölda mörg ár. Við þökkum honum samfylgdina sem var bæði mjög skemmtileg og gefandi. Ákveðinn fastur þáttur í Iífi okkar er horfinn. Valdi bíður okkar ekki lengur þegar við komum á vaktina. Hann tók alltaf á móti okkur með gleði og hlýju. „Ertu kominn, langt síðan ég sá þig síðast“ sagði hann gjarnan, jafnvel þó við hefðum sést daginn áður. Við kveðjum Valda með miklum söknuði, en þökkum Guði hans fyrir að taka hann til sín og láta hann ekki þjást í langri sjúkdómslegu. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. Hvíl í friði elsku vinur. Starfsfólk Mikluhlíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.