Morgunblaðið - 25.01.1995, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
h
Mynddiska-
stríð í vændum
HÓPUR stórfyrirtækja hefur
tekið upp nýtt og samræmt kerfi
kvikmyndageisladiska og helztu
framleiðendur munu skiptast í
öndverðar fylkingar í harðri bar-
áttu um mikilvægan markað.
Fyrirtækin Matsushita, Tosh-
iba, Pioneer, Hitachi, Thomson
SA i Frakklandi og bandarisku
fyrirtækin Time Warner og MCA
hafa komið sér saman um geisla-
disk, sem getur geymt 135 mín-
útna myndbandsefni og komið i
stað myndbandsspólur.
Þetta er mikið áfall fyrir Sony
og Philips er lögðu til í síðasta
mánuði að tekið yrði upp annað
kerfi sem ekki er hægt að sam-
hæfa hinu. Þessi viðureign þykir
minna á misheppnaða baráttu
Sony á sínum tíma fyrir mynd-
bandskerfinu Betamax, sem fór
halloka fyrir VHS er naut stuðn-
ings Matsushita.
Nýja kerfið kallast DVD, það
er stafrænir vídeódiskar. Það er
endurbætt útgáfa á tónlistar-
geisladiskum og notuð er ný
leysitækni til þess að geyma
meira efni - 7,5 sinnum meira í
kerfi Toshiba.
Báðar hliðar disksins eru not-
aðar og á hvorri hlið má geyma
fimm „gigabit“ af efni, sem sam-
svarar 135 minútna kvikmynd.
Ný barátta um ólík kerfi
Sagt er að með þessu sniði
fáist mikil mynd- og tóngæði og
stuðningur frá Hollywood.
Fyrstu spilararnir og diskarnir
koma væntanlega á markað
haustið 1996 og munu spilararnir
kosta um 500 dollara, en diskarn-
ir 30 dollara.
Diska Sony-Philips er aðeins
hægt að spila öðrum megin. Þeir
geta geymt 135 mínútna kvik-
myndaefni og geymslugetan er
3,7 gigabit. Tvöfalt lag má hafa
á sumum diskunum og koma með
því móti eins miklu efni fyrir og
á diskum Toshiba.
Nauðsynlegt var fyrir Tosh-
iba-fyrirtækið að kerfi þess fengi
stuðning Matsushita, umsvifa-
mesta aðila heims á þessu sviði,
sem framleiðir undir vörumerkj-
unum Panasonic, Quasar, Tec-
hnic og National.
Sérfræðingar segja að stuðn-
ingur Matsushita kunni að hafa
úrslitaáhrif í baráttunni um yfir-
ráð á þessum markaði.
OnnurBoeing 737
vélin seld til Japans
FLUGLEIÐIR hafa selt eina Boeing
737-400 flugvéi til dótturfyrirtækis
japanska fjármögnunarfyrirtækisins
Nissho Iwai fyrir tæplega 1,9 millj-
arða króna.
Félagið hefur jafnframt leigt vél-
ina til baka í fimm ár. Þetta skilar
um 300 milljóna söluhagnaði.
Flugleiðir seldu aðra Boeing flug-
vél í desember til Japan Leasing
Corporation með svipuðum hagnaði
þannig að söluhagnaður félagsins
af þessum tveimur vélum er um 600
milljónir. Fram kemur í frétt frá
félaginu að sala og endurleiga vél-
anna hafi í för með sér lækkun fjár-
magnskostnaðar vegna áhvílandi
lána á þeim en rekstrarkostnaður
muni hækka eitthvað meira en sem
því nemur vegna leigugjalda.
Flugvélaverksmiðjur hafa kynnt
næstu gerðir og næstu kynslóð far-
þegaþotna sem koma á markað inn-
an þriggja ára. Flugleiðir eru að
hefja undirbúningsvinnu fyrir gerð
flugflotaætlunar fram yfir aldamót
og með þetta til hliðsjónar þótti rétt
að losa um elstu vélarnar og draga
með því úr áhættu af þvf að eiga
fjórar þotur sömu gerðar.
Námskeið fyrir þá sem vilja lengra:
NútímaForritun
VisualBasic er kjaminn í nútima forritun í gluggaumhverfi.
Enginn sem á annað borð vill nýta tölvuna og forritin
betur getur verið án þekkingar á VisualBasic!
60 klst námskeið, kr. 69.900,- stgr.
Dagskrá:
♦ Undirbúningur forritunar, greining og hönnun
• Forritun með VisualBasic
-n • Access og notkun hans við forritagerð
• VisuaJBasic í Excel, Access og Word
Námskeið á fimmtudögum og laugardögum
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuráðgjöf • námskeiö • útgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
hk 95011________________________________________Raðj;reiBslur Euro/VISA
Ílír P
Jólaveltan innanlands
hjá greiðslukorta-
fyrirtækjunun
Frá miðjum nóv.
til miðs janúar
1993-4
6.675 m.kr.
8. des.-12. jan.
4.100 m.kr.
Frá miðjum nóv.
til miðs janúar
1994-5
7.050 m.kr.
8. des.-12. jan.
4.300 m.kr.
Breyting
+5,6%
+5,6%
E 8. desember til 12. janúar 1993-4 8. desember til 12. janúar 1994-5 Breyting
EURDCABD 1.100 m.kr. 1.250 m.kr. +13,6%
Færslufjöldi innanlands 417.270 448.926 7,6%
Notkun erlendis í nóv. 210 m.kr. 220 m.kr. 4,6%
Notkun erlendis i des. 102 m.kr. 106 m.kr. 3,5%
Meðalupphæð gíróseðils 60.000 kr. 62.000 kr.
Jólareikningar
Eurocard
hækka um 14%
ÚTTEKTIR hjá korthöfum Euro-
card á tímabilinu 8. desember til
12. janúar námu alls um 1.250
milljónum króna samanborið við
1.100 milljónir á sama tíma í fyrra.
Hér er um að ræða 14% aukningu
milli ára. Verið er að senda út reikn-
inga fyrir þessum úttektum um
þessar mundir sem koma til greiðslu
þann 2. febrúar.
Færslur á Eurocard á þessu tíma-
bili voru alls tæplega 449 þúsund
og fjölgaði þeim um 7,6% frá sama
tíma í fyrra. Þar af voru 90% þeirra
rafrænar og um 10% handskráðar.
Útsendir gíróseðlar eru 2% fleiri en
á sama tíma í fyrra og er meðalupp-
hæð hvers gíróseðils um 62 þúsund
krónur. Þá varð nokkur aukning á
úttektum erlendis fyrir jólin. í nóv-
ember námu úttektir erlendis um
220 milljónum og jukust um 4,6%
en í desember námu þær 106 millj-
ónum og jukust um 3,53%.
Kortafyrirtækin hafa nú opnað
fyrir þann möguleika að taka út
reiðufé úr hraðbönkum. Á þeim sjö
dögum sem liðnir eru frá þetta var
heimilað hafa 378 færslur átt sér
stað með Eurocard kort að upphæð
samtals 2,5 milljónir.
820 milljóna ,jólauppsveifla“
Visa tilkynnti í gær um kortavið-
skipti fyrir jólin en þar er ekki um
sambærilegar tölur að ræða við
upplýsingar frá Kreditkortum. Hjá
Visa námu viðskipti innanlands
rúmum 7.050 milljónum frá miðjum
nóvember fram í miðjan janúar
samanborið við 6.675 milljónir í
fyrra og er aukningin 5,6% milli
ára. Frá 8. desember til 12. desem-
ber námu viðskiptin 4,3 milljörðum
og jukust hlutfallslega jafn mikið.
Samkvæmt upplýsingum Visa juk-
ust viðskiptin fyrir jólin um 820
milljónir miðað við sama tímabil á
undán, en áður hafði veltan einnig
aukist erlendis um 500 milljónir.
IBMskýrir \
frá auknum
hagnaði
Armonk, New York. Reuter.
IBM hefur tilkynnt að hagnaður
fyrirtækisins hafi rúmlega þrefald-
azt á fjórða ársfjórðungi í 1.2 millj-
arða dollara.
Hins vegar var látinn í ljós ugg-
ur vegna veikrar stöðu í einkat-
ölvuviðskiptum fyrirtækisins.
Hagnaðurinn nam 362 milljón-
um dollara einu ári áður og afkom-
an hefur batnað meir en sérfræð-
ingar í Wall Street höfðu spáð.
Hún er orðin svo góð að IBM get-
ur státað af fyrsta árshagnaði í
jQögur ár.
Að sögn Louis Gerstners stjórn-
arformanns er endurskipulagning,
sem hófst þegar hann tók við fyrir
rúmum tveimur árum, langt kom-
in. Hlutabréf í fyrirtækinu lækk-
uðu í verði um 1.50 dollara í 73.875
dollara, þar sem útlitið í einkat-
ölvumálum fyrirtækisins olli von-
brigðum á Wall Street í fyrstu.
Góð afkoma IBM á ársfjórð-
ungnum jók árshagnað fyrirtækis-
ins í 3.0 milljarða dollara miðað
við 96 dollara tap 1993.
.......♦ ♦ ♦--------
í
€
i
I
i
|
I
Álfundi í
Ósló frestað
Ósló. Reuter. áí
ALÞJÓÐLEGUM álfundi hefur ver- æ
ið frestað, því að ástandið á mark-
aðnum virðist jákvætt og engin i
vandamál þarf að ræða í bráð að
sögn norsku stjórnarinnar.
Helztu álframleiðsluríki höfðu
ráðgert fund í Ósló í byijun þessa
árs til þess að fara yfir samkomulag
þeirra frá því í fyrra um að draga
úr umframbirgðum (MOU).
Verð á áli í London hefur hækk-
að í 2,185 dollara tonnið og hefur ^
ekki verið hærra í tæp sex ár. Enn ^
hefur ekki verið ákveðið hvenær g
nýr fundur verður haldinn.
Ferðaþjónusta
Spáð að Þjóðveijar slái
ný met í ferðalögum íár
Stuttgart. Reuter.
ENGIN þjóð eyðir eins miklu í ferða-
lög og Þjóðverjar. Japanar koma
næstir, en eyðsla þeirra er miklu
minni en Þjóðverja samkvæmt
skýrslú þýzka seðlabankans.
Ferðalöngun Þjóðveija, Wander-
lust eins og þeir kalla hana, er ef
til vill meiri en elia af því að mark-
ið er traust og kaupmáttur þeirra
mikill. Þar við bætist að margir
Austur-Þjóðverjar hafa notað tæki-
færi það sern þeir hafa notið síðan
1990 til þess að ferðast að vild.
Þrátt fyrir hækkandi skatta og
áhyggjur af efnahagshorfum er tal-
ið að Þjóðveijar muni eyða 72 millj-
örðum marka í öðrum löndum 1995,
hærri upphæð en nokkru sinni fyrr.
í fyrra nam þessi eyðsla 67 milljörð-
um marka og hafði aldrei verið
meiri að sögn þýzkra hagfræðinga.
Þjóðverjum lífsnauðsyn
„Ferðalög eru Þjóðverjum lífs-
nauðsyn, jafnvel meiri nauðsyn en
áhugamál í tómstundum," sagði
Armin Unterberg, hagfræðingur við
100
70
40
GB
DresdnerBank, á blaðamannafundi
á árlegri ferðasýningu fyrir
skömmu.
Þegar 67 milljarða marka met-
upphæð fór í ferðalög í fyrra var
það í fyrsta skipti frá lokum síðari
heimsstytjaldar að eyðsla Þjóðveija
í ferðalög jókst á tíma samdráttar,
sagði Unterberg.
■ Talið er að um 230,000 manns
muni koma á sýninguna, sem stend-
ur í níu daga og gefur Þjóðveijum
kost á að kynna sér sumarleyfi í
rúmlega 100 löndum.
Þeir sem sækja sýninguna gera
það af einlægum áhuga. Nettó-
eyðsla Þjóðveija erlendis í fyrra nam
50 milljörðum marka og nafði auk-
izt úr 44.6 milljörðum marka 1993
samkvæmt skýrslu þýzka seðla-
bankans, Bundesbank
Til samanburðar eyddu Japanar
jafnvirði 38 milljarða marka erlend-
is 1993.
Gert er ráð fyrir að Þjóðveijár
veiji 55 milljörðum marka til ferða-
laga 1995, þannig að þessi útgjalda-
liður haldi áfram að aukast, en ekki
eins ört og á undanförnum árum
að því er Unterberg segir í skýrslu
sem var birt þegar sýningin hófst.
Eyðsla Þjóðveija í ferðalög er-
lendis hefur verið meiri en tekjur
þeirra af ferðamönnum allt frá 1960
þegar munurinn var 1 milljarður
marka og síðan hefur hann aukizt
jafnt og þétt og bitnað á hagstæðum
viðskiptajöfnuði á síðari árum að
sögn Unterbergs.
Útlendingar eyða minna
Styrkur þýzka marksins dregur
úr áhuga útlendinga að ferðast til
Þýzkalands. Eyðsla erlendra ferða-
manna í Þýzkalandi hefur verið 17
milljarðar marka á ári hveiju síðan
1990 og Unterberg spáir því að hún
verði jafnmikil 1995.
Raunar fækkaði erlendum gest-
um í Þýzkalandi um 15% 1990-
1993.
Þýzka ferðaráðið DZT var endur-
skipulagt 1994 til þess að auka ferð-
ir útlendinga til Þýzkalands. Sagt
er að Þjóðveijum hætti við að halda
að ungir ferðamenn hafi lítinn
áhuga á ferðum til Þýzkalands, en
meira er á þeim að græða en eldri
ferðamönnum því að þeir eru eyðs-
lusamari.
Ferðalög Þjóðveija til útlanda
hafa aukizt á sama tíma og raun-
laun hafa lækkað, atvinnuleysi er
mikið og minna fé er eytt í bús-
áhöld og þjónustu að sögn Unter-
bergs.
Samkvæmt skýrslunni veija Þjóð-
veijar um 3.6% tekna sinna til ferða-
laga, en Evrópubúar 2.9% að meðal-
tali
...
í
I
i
í
i
i
i
<
i
i