Morgunblaðið - 25.01.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 37
BRÉF TIL BLAÐSINS
Frá Hjálmari R. Bárðarsyni:
í GREIN eftir Jóhann Indriðason,
sem hann nefnir „Krókur á móti
bragði, átök um yfirráð yfir Stál-
smiðjunni" sem birtist í Morgun-
blaðinu 20. janúar sl., virðist mér
nokkuð fijálslega farið með stað-
reyndir varðandi smíði Magna,
fyrsta stálskips, sem smíðað var á
íslandi. Jóhann segist vilja rekja
sögu Stálsmiðjunnar frá því hann
kom þar til starfa árið 1958, en
hann er í greinarlok sagður vera
fyrrverandi starfsmaður í Stál-
smiðjunni í 33 ár, seinnipartinn
sem yfirverkstjóri. Orðrétt segir í
grein Jóhanns Indriðasonar:
„í ársbyijun 1974 er Gunnar
H. Bjarnason verkfræðingur ráð-
inn framkvæmdastjóri, en hann
hafði unnið á teiknistofunni frá
1959.
Gunnar sýndi fljótt að hann var
maður til að taka við þessu trausta
fyrirtæki, duglegur og áræðinn og
hann beið ekki eftir verkefnunum,
hann sótti þau. Það má kannski
segja að hæst hafi risið starfsemi
Stálsmiðjunnar þegar smíðaður
var dráttarbáturinn Magni fyrir
Reykjavíkurhöfn, fyrsta stálskipið
sem byggt var á Islandi.“
Staðreyndir þessa máls eru hins
vegar þær, að smíði dráttarbátsins
Magna var lokið og hann afhentur
Reykjavíkurhöfn 25. júní 1955, en
miðað við fyrrgreind ártöl er það
um þremur árum áður en Jóhann
hóf störf við Stálsmiðjuna og um
fjórum árum áður en Gunnar hóf
þar störf sem verkfræðingur á
teiknistofunni.
Það er því alger fjarstæða að
gefa í skyn, að Gunnar H. Bjarna-
son hafi sótt þetta verkefni, smíði
fyrsta stálskipsins, til Reykja-
víkurhafnar eftir að hann varð þar
framkvæmdastjóri í ársbyijun
1973. Þá hafði Magni verið í notk-
Stálsmiðjan hf. ogfyrsta
stálskip smíðað á Islandi
TALIÐ frá vinstri: Geir G. Zoega formaður stjórnar
Stálsmiðjunnar hf., Sveinn Guðmundsson og Benedikt
Gröndal framkvæmdastjórar Stálsmiðjunnar hf., og
Hjálmar R. Bárðarson skipaverkfræðingur.
un meira en 18 ár hjá
Reykj avíkurhöfn.
Um smíði Magna
hefði Jóhann getað
kynnt sér staðreyndir
í bók minni „FÝrsta
stálskip smíðað á ís-
landi“, sem út kom
árið 1993. Þar er lýst
í máli og myndum
tækjakosti og starf-
semi Stálsmiðjunnar
þegar ég kom heim að
loknu námi og störfum
erlrendis 8. janúar
1948 og hóf störf sem
skipaverkfræðingur
við Stálsmiðjuna. Þá
var nýsmíði stálskipa
ekki verkefni sem
smiðjan gat tekið að
sér. Til þess vantaði
bæði tækniþekkingu
og ýmis verkfæri,
tækjabúnað og þjálfun
starfsmanna í sér-
verkefnum, eins og
nánar er skýrt frá í bók minni.
Ef ijármagn hefði staðið til boða
hefði mátt koma upp þessum
tækjakosti og aðstöðu á tiltölulega
stuttum tíma. Hér var hins vegar
ekki laust fjármagn til reiðu, og
þessa aðstöðu varð að byggja upp
með því að taka fé til þess úr
rekstri fyrirtækisins og nýta sem
best vinnuafl eigin starfsmanna,
þegar minna var um önnur verk-
efni, eins og skipaviðgerðir, smíði
á olíugeymum, gufukötlum og
öðrum verkefnum sem hægt var
að afla.
Jafnvel þótt fjármagn hefði ver-
ið ríkulegra til ráðstöfunar var öll
fjárfesting á þessum árum háð
leyfum Fjárhagsráðs. Erlendur
gjaldeyrir var háður innflutnings-
og gjaldeyrisleyfum og fékkst að-
eins til þeirra verkefna sem úthlut-
unarnefndir töldu brýnustu lífs-
nauðsyn.
Það var því þungur róður og
erfiður öll árin 1948, 1949 og
1950 að búa í haginn
að því er varðaði
tækjabúnað og þjálf-
un starfsmanna,
þannig að hægt yrði
að hefja smíði stál-
skipa hjá Stálsmiðj-
unni. En í því ef-ni var
ekki aðeins um
tæknileg atriði að
ræða. Otrúlega rót-
gróin var sú stað-
reynd að jafnvel
margir mætir menn
trúðu því, að það
væri of mikil bjart-
sýni, að hægt væri
að smíða stálskip á
Islandi.
Aldrei verður því
nógsamlega þakkað
það traust, sem Val-
geir Bjömsson hafn-
arstjóri Reykjavíkur
sýndi mér persónu-
lega og því undirbún-
ingsstarfi, sem þegar
hafði verið unnið, þegar hann árið
1950 fór þess á leit, að ég gerði
teikningar að nýjum dráttarbáti
fyrir Reykjavíkurhöfn, ásamt
smíðalýsingu og kostnaðaráætlun
miðað við að skipið yrði smíðað
hjá Stálsmiðjunni. Þótt frumteikn-
ingar og smíðalýsing lægi fyrir í
ársbyijun 1951 var samningur um
smíðina ekki undirritaður fyrr en
28. apríl 1953.
Daginn áður, þ.e. 27. apríl
1953, var haldinn aðalfundur Stál-
smiðjunnar hf. Stjórnarformaður
var þá Geir G. Zoéga, og fram-
kvæmdastjórar Stálsmiðjunnar hf.
voru þeir Benedikt Gröndal for-
stjóri Hamars hf. og Sveinn Guð-
mundsson forstjóri Héðins hf.
í fundargerðarbók þessa aða-
fundar Stálsmiðjunnar hf. er skráð
eftirfarandi bókun: „Formaður
minntist þess, að hafnarstjórn hef-
ur samþykkt að taka tilboði Stál-
smiðjunnar hf. um smíði á dráttar-
bát fyrir Reykjavíkurhöfn. Hafa
framkvæmdastjóramir ásamt
Hjálmari R. Bárðarsyni undan-
farna mánuði unnið að framgangi
þessa máls. Lét formaður í ljós
að ástæða væri til þess að fagna
því að hafnarstjórn hefur sýnt fé-
laginu það traust að fela því smíði
þessa fyrsta stálskips, sem smíðað
hefur verið hér á landi. Fram-
kvæmdastjóramir gáfu síðan
nokkrar upplýsingar, m.a. að
samningsverðið væri tæpar 6,5
milljónir kr., og ætti skipið að
verða fullgert um áramótin
1954-55. í skipinu er 1.000 ha.
dieselvél. Flutti formaður fram-
kvæmdastjóram og Hjálmari R.
Bárðarsyni þakklæti fyrir störf
þeirra öll til framgangs máli þessu,
og tók fundurinn undir með lófa-
taki.“
í bók minni er síðan lýst smíði
skipsins í máli og myndum, svo
og sjósetningu og afhendingu 25.
júní 1955 eins og fyrr segir.
Það er von mín að þessarar
frumraunar íslenskrar stálskipa-
smíði verði áfram minnst og rétt
tímasett, enda er hér um að ræða
upphafsþátt þeirrar iðngreinar á
íslandi. Megi íslensk stálskipa-
smíði áfram þróast og dafna til
hagsbóta fyrir þjóð þessa eylands
um ókomin ár.
HJÁLMAR R. BÁRÐARSON,
Álftanesvegi, Álftanesi.
ÚRVAL*
15 nætur
79.287 kP.
Á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
(2ja til og með 11 ára), gist á La Cabana.
15 nætur í Flórída
48.576 kr.
Á mann m.v. tvo fullorðna og þrjú börn
(2ja til og með 11 ára), gist a Shorewalk.
2 vikur á Spáni
48.485 kp.
Á mann m.v. tvo fullorðna 03 eitt barn
(2ja til og með 11 ára), gist a Gemini.
Verðdæmi miðast vi
Lágmu
Hafnarfirði: sími 565 23 66, A
Selfossi: sími 21666, Aku
- og hjá umboðsmönr,
Barcelona
2 vikur
65.231 kr.
Á mann í tvíbýli, gist á Hotel Sol Apolo.
Danmörk
1 vika
41.816 kP.
Á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
(2ja til og með 11 ára), sumarhús við Slagelse.
AlBufeira
2 sólarvikur á Algarve
A mann m.v. tvo fullorðna og þrjú börn
(2ja til og með 11 ára), gist á Brisa Sol.
esia
2 sólarvikur á Algarve
47.188 kP. 43.115 kr.
A mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn (2ja til
og með 11 ára), gist á Pinhal Falésia Apartments
'iala 1I1: ifilma Bala Vinas
2 sólarvikur á Mallorca
2 sólarvikur á Mallorca
2 sólarvikur á Mallorca
41.361 kr. 54.145 kr. 45.366 kr.
Á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
(2ja til og með 11 ára), gist á Torre Blanca.
Á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn (2ja til Á mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn (2ja til
og með 11 ára), gist á Royal Playa de Palma. og með 11 ára), gist á Barceló Cala Vinas.
Matjaluf
2 sólarvikur á Mallorca
2 sólarvikur í Gríska Eyjahafinu
2 sólarvikur á ströndum Tyrklands
49.867 kr. 82.635 kr. 68.263 kr.
A mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
(2ja til og með 11 ára), gist á Royal Magaluf.
Arulia
A mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn
(2ja til og með 11 ára), gist á Kipriotis.
Sarasota
A mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
(2ja til og með 11 ára), gist á llayda Club.
Sittjes
T
hafa 61
s