Morgunblaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRIJAR 1995 35.
FRÉTTIR
Björn Thoroddsen og Egill
Olafsson á Kringlukránni
1 Gengið í
verið
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur miðvikudagskvöldið 1.
febrúar fyrir gönguferð um síðasta
spöl gamalla alfaraleiða sem að-
( komumenn fóru að Skildinganesi
/ til að hefja sjóróðra í byijun vetr-
, arvertíðar.
Fyrst verður gengið frá Hafnar-
húsinu kl. 20 upp Grófína, aðal
lendingarstað árabáta í Reykjavík
fram til ársins 1913 og litið inn í
Ráðhúsið. Þar verða skoðaðar á
Islandslíkaninu verleiðir til Inn-
nesja á fyrri tíð. 2. febrúar, Kyndil-
messu, áttu vermennimir að vera
a komnir hver að sínum keip, því
að 3. febrúar var fyrsti róðurinn
' farinn.
( Eftir heimsóknina í Ráðhúsið
verður val um tvær gönguleiðir:
a) Ganga í slóð þeirra sem voru
ráðnir til sjóróðra frá Skildinga-
nesi og komu sjóleiðina til Reykja-
víkur og gengu þaðan gömlu alf-
araleiðina suður í Skeijafjörð. Frá
bæjarstæðinu í Skildinganesi verð-
ur gengið niður í Austurvör. Til
I baka verður gengið um Háskóla-
( hverfið.
i b) Taka SVR inn í Leynimýri
" og fylgja leið vermanna sem komu
landleiðina til sjóróðra frá Skild-
inganesi og ganga frá gatnamót-
um Suðurnesjaleiðar ogþjóðleiðar-
innar að vestan, norðan og austan
niður að Tjaldhóli og síðan með
Skeijafírðinum að Skildinganesi
og þaðan niður í Austurvör. Til
| baka sömu leið og fyrri hópurinn.
---------------
* ■ UNDANKEPPNI íslands-
meistarakeppni unglinga í frjáls-
um dönsum (freestyle) fyrir Stór-
Reykjavíkursvæðið verður haldin
í Tónabæ föstudaginn 10. febrúar.
Keppendur eru unglingar á aldrin-
um 13-17 ára. Skráning er í
Tónabæ. Kynnir verður íþróttamað-
ur ársins, Magnús Scheving.
( ■ FÉLAG Þingeyinga á Suður-
i nesjum heldur sitt árlega þorrablót
' í KK-salnum, Vesturbraut
15-17, Keflavík, laugardaginn 4.
febrúar nk. Undanfarna vetur hef-
ur félagið staðið fyrir félagsvist
öll sunnudagskvöld svo og gömlu-
dansakvöldum fjórum sinnum á
vetri og hefur hvorutveggja náð
miklum vinsældum meðal Suður-
^ nesjum.
TRÍÓ Björns Thoroddsen heldur
tónleika á Kringlukránni í kvöld,
miðvikudagskvöldið 2. febrúar.
Tríóinu til fulltingis verður söngvar-
inn Egill Ólafsson.
Efnisskrá tónleikanna saman-
stendur af frumsamdri tónlist eftir
í FEBRÚAR hefjast á ný námskeið
fyrir afgreiðslufólk í verslunum á
vegum Samstarfsnefndar um
menntun verslunarfólks.
Það eru Verslunarmannafélag
Reykjavíkur, Landssamband ísl.
verslunarmanna, Vinnuveitenda-
samband íslands, Vinnumálasam-
band samvinnufélaganna og Kaup-
mannasamtök íslands sem eru aðil-
ar að nefndinni.
Undirbúningur þessa námskeiðs
hófst haustið 1992 í kjölfar kjara-
samninga það ár en námskeiðin
hófust síðan í byijun síðasta árs. Á
síðasta ári sóttu rúmlega 300
verslunarmenn þessi námskeið víða
um land. Hefur Starfsmenntasjóður
félagsmálaráðuneytisins styrkt
námskeiðin.
Á námskeiðinu Smávöruverslun
I er rætt um hlutverk verslunar,
framboð og eftirspum, verðmyndun
og álagningu. Fjallað er um sam-
skipti og samstarf á vinnustað, rétt-
indi og skyldur. Á námskeiðinu eru
einnig samskipti afgreiðslufólks við
Björn og Egil ásamt þekktum jass-
perlum. Auk Björns í tríóinu leika
þeir Gunnar Hrafnsson, kontra-
bassaleikari og Ásgeir Óskarsson,
slagverksleikari. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 22.
viðskiptavini og meðferð fjármuna
tekin fyrir. Loks er rætt um ímynd
verslunar og vöruframsetningu og
mikilvægi vöruþekkingar. Hvert
námskeið er kennt í fjóra daga,
mánudaga til fimmtudaga frá kl.
9-13.
I Reykjavík verða námskeið í
febrúar til maí sem hér segir: 6.
til 19. febrúar, 20. til 23. febrúar,
6. til 9. mars, 20. til 23. mars, 24.
til 27. apríl og 8. til 11. maí. Utan
Reykjavíkur hafa námskeið verið
haldin á Norður- og Austurlandi.
Námskeið fýrir starfsfólk í kjöt-
deildum verslana mun verða kennt
í mars og apríl.
Verslunarfólk sækir þessi nám-
skeið í vinnutíma sínum og greiðir
viðkomandi verslunarmannafélag
námskeiðsgjaldið þannig að þátt-
taka er starfsfólki að kostnaðar-
lausu. Skráning á námskeiðin fer
fram hjá Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur og Kaupmannasam-
tökunum.
Til félagsmanna í Samtökum iðnaðarins
Endurmenntunarnámskeið
fyrir verslunarfólk
i
(
(
Námskeið fyrir stjórnendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja innan
Samtaka iðnaðarins hefjast senn.
Reynt verður að sníða hvert námskeið sérstaklega að þeim hópi sem
sækir það hverju sinni. Þess vegna þarf skrásetningu að Ijúka
viku fyrir hvert námskeið.
Frekari upplýsingar og skráning hjá skrifstofu Sl: s. 91-16010.
10.-11. feb.: Markaðsmál lítilla fyrirtækja (Guðný Káradóttir) 10 t. Kr. 7.500. Skráningu lýkur:
17.-18. feb.: Rekstrarform fyrirtækja (Ólafur Helgi Árnason) 7 t. Kr. 6.000. 10. feb.
3.-4. mars: Rekstrar- og greiðsluáætlanir (Jón Sigurðsson) 7 t. Kr. 5.500. 24. feb.
9.-10. mars: Útboð, tilboð og verksamningar 81. Kr. 7.500. (Guðmundur Guðmundsson og Ólafur Helgi Árnason) 3. mars
20. mars: Verkbókhald (Einar S. Valdemarsson) 41. Kr. 4.000. 13. mars
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
J
Námskeið fyrir for-
eldra fatlaðra
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp,
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra og Styrktarfélag vange-
finna standa sameiginlega að
námskeiði fyrir foreldra fatlaðra
14 ára og eldri 10. og 11. febrúar
nk. í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
Dagskrá 10. febrúar kl. 14.00-
17.30:
Fullorðinsfræðsla og möguleik-
ar í framhaldsnámi fatlaðra. Er-
indi flytja: Fulltrúar frá mennta-
málaráðuneyti, Ágústa U. Gunn-
arsdóttir, námsráðgjafi MH, Fjöln-
ir Ásbjörnsson sérkennari, Iðnskó-
lanum, Guðrún Hannesdóttir for-
stöðumaður Starfsþjálfunar fatl-
aðra, Þorsteinn Sigurðsson, skóla-
stjóri Fullorðinsfræðslu fatlaðra
og foreldrarnir Ragna K. Marinós-
dóttir og Elsa S. Jónsdóttir.
Á eftir verða umræður undir
stjórn Ástu B. Þorsteinsdóttur,
formanns Þroskahjálpar, og Sig-
ríðar Ólafsdóttur, framkvæmda-
stjóri fullorðinsfræðslu fatlaðra.
Einnig verður börnum þátttak-
enda boðið síðar í mánuðinum í
heimsóknir í þá skóla sem kynntir
verða á námskeiðinu.
Dagskrá 11. febrúar kl.
9.-17.00:
Upplýsingar um félagsleg rétt-
indi fatlaðra. A. Dísa Guðjónsdótt-
ir, félagsráðgjafi. Kynþroski, getn-
aðarvarnir og bameignir. Jóhanna
Jónsdóttir, kvensjúkdómalæknir.
Að ráða yfir eigin lífí?! Jóhann
Thoroddsen, sálfræðingur. Fatlað-
ir sem kynverur, Erla Jónsdóttir,
félagsráðgjafi. Hlutverk foreldra;
samskipti foreldra og ungmenna,
Sæmundur Hafsteinsson, sálfræð-
ingur. Sjónarhorn foreldra, Jens-
ína Janusdóttir og María Ólafs-
dóttir. Tími verður gefinn fyrir
fyrirspurnir og ítarlegri umræður
í minni hópum.
Upplýsingar fást og skráning
fer fram hjá landssamtökunum
Þroskahjálp. Þátttakendafjöldi er
takmarkaður.
------♦-----------
■ FÉLAG nýrra íslendinga
heldur sinn mánaðarlega félags-
fund í Gerðubergi fimmtudags-
kvöldið 2. febrúar kl. 20 í sal B.
Gestur kvöldsins er Mikael Karls-
son, dósent í heimspeki við Há-
skóla íslands. Hann flytur erindi
sem heitir Athugasemdir við ís-
lenskt lýðræði. FNÍ er félags-
skapur fyrir útlendinga og velunn-
ara. Aðalmarkmið félagsins er að
efla skilning milli fólks af öllum
þjóðernum, sem býr á íslandi með
auknum menningarlegum og fé-
lagslegum samskiptum. Fundir
félagsins fara fram á ensku og eru
öllum opnir.
Kynningarfundur
^Dale .
Carnegie
þjálfun®
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69. Guðrún Jóhannesdóttir
D.C. kennari
Námskeiðið
✓ Eykur hæfni og árangur einstaklingsins.
✓ Byggir upp leiðtogahæfileika.
✓ Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn.
✓ Skapar sjálfstraust og þor.
✓ Árangursríkari tjáning.
✓ Beislar streitu og óþarfa áhyggjur.
✓ Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari.
Hvað segja þátttakendur:
"Dale Carnegie® námskeiöið hefur gjörbreytt öllum viðskipta-
háttum mínum. Afköstin hafa margfaldast, sem veitir mér enn
meiri kraft til frekari framhvæmda og árangurs."
Karl Ottó Schiöth.
"Að vera þátttakandi á námskeiði Dale Camegie® hefur gefið mér
aukið sjálfstraust, og hjálpað mér að losna við kvíða og óþarfa áhyggjur,
svo finnst manninum mtnum ég vera orðin miklu skemmtilegri."
Karólina Thorarensen.
"Námskeiðið hefur aukið mér víösýni, ekki síst í mannlegum
samskiptum, sem kemur sér vel í starfi mínu sem arkitekt."
Hjördís Sigurgísladóttir.
"Dale Carnegie® námskeiðið hefur veitt mér aukið sjálfstraust,
gert mig jákvæðari og bjartsýnni og þar með tilbúnari til að takast
á við verkefni dagsins bæði heima og að heiman."
Gísli J. Sigurðsson.
Fjárfesting í menntun
skilar þér arði ævilangt
Innritun og upplýsingar í síma: 581 2411
0
STJORNUNARSKOLINN
Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie® námskeiðin