Morgunblaðið - 02.02.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995 9
FRÉTTIR
Tyrkneska forræðismálið tekið fyrir í undirrétti í dag
Vonir bundnar við að
lokaniðurstaða fáist
FORRÆÐISMÁL Sophiu Hansen
átti að taka fyrir í tyrkneskum
undirrétti upp úr kl. 7 að íslenskum
tíma í morgun, fimmtudag. Sophia
vonar að rétturinn komist að loka-
niðurstöðu í málinu. Henni þykir
fullvíst að úrskurðinum verði áfrýj-
að til hæstaréttar.
Sophia sagðist vonast til að hún
fengi vernd við dómshúsið eins
og hún hefði óskað eftir. „Réttar-
höldin eiga að hefjast klukkan 9
að staðartíma og um tuttugu mín-
útum sjðar má búast við niður-
stöðu. Ég vona að dómarinn kom-
ist að lokaniðurstöðu á morgun.
En ég hef áhyggjur af því að hann
þori ekki að taka afstöðu og geri
einhveija vitleysu. Ég veit að
Hasíp, lögmaðurinn minn, hefur
áhyggjur af því,“ sagði Sophia og
hún tók fram að Hasíp ynni stöð-
ugt að því að fá Halim dæmdan
fyrir brot á umgengnisrétti hennar
og dætra hennar.
„Ramadan" að hefjast
Sophia hafði dvalist í Tyrklandi
í sex mánuði þegar hún kom til
íslands í tíu daga jólafrí. Hún sneri
aftur til að vera viðstödd réttar-
höld í Istanbúl í lok desember en
málinu var frestað þangað til í
dag. Allan þennan tíma hefur hún
án árangurs látið reyna á um-
gengnisrétt sinn og dætra sinna.
Hún sagðist ekki hafa séð dætur
sínar í þrjú ár og ekkert hafa frétt
af þeim að undanförnu. Hins vegar
hefði hún sérstakar áhyggjur af
þeim nú því „ramadan", fasta
múslima, væri að hefjast. Ramödu-
mánuðinn má ekki borða meðan
sól er á lofti og Sophia segir að
Halim hafi haft þann sið að borða
eftir sólsetur en vekja stúlkurnar
ekki til að fá sér bita fyrir sólarupp-
rás.
Vindsveipur frá flutningabíl þeytti smábíl útaf á Sandskeiði
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
MAGNÚS hjá bifreiðinni eins og hún leit út eftir veltuna.
Innbrotsþjófar góm-
aðir á þremur stöðum
LÖGREGLAN í Reykjavík gómaði
innbrotsþjófa á þremur stöðum í
borginni aðfaranótt þriðjudags og
færði þá í fangageymslur.
Einn maður fannst í herbergi inn
af læknastofu við Laugaveg, sem
hann hafði brotist inn í, þar sem
hann var að leita að lyfjum. Ein-
hver sá til ferða mannsins og lét
lögreglu vita.
Til tveggja manna sást bakatil
við Hótel Lind á Rauðarárstíg og
Með alvarlega
áverka í and-
liti eftir
líkamsárás
TVÍTUGUR maður er tvíkjálkabrot-
inn og nefbrotinn eftir að átján ára
piltur réðist að honum í Lækjargötu
á sunnudagsmorgun.
Pilturinn réðist að manninum við
annan mann og henti honum í göt-
una. Síðan sparkaði pilturinn í and-
lit mannsins með áðurnefndum af-
leiðingum.
Pilturinn var handtekinn og játaði
hann verknaðinn. Hann hefur áður
komið við sögu mála hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
------» ♦ ♦
Kviknaði í bíl
ELDUR kom upp í bifreið eftir
árekstur á Bústaðavegi við Flugvall-
arveg skömmu fyrir hádegi í gær.
Lögregla kom á staðinn og slökkti
eldinn. Ökumaður annarrar bifreið-
arinnar kvartaði undan eymslum í
hálsi og var fluttur á slysadeild.
fundust þeir í kjallara hússins, báð-
ir undir áhrifum áfengis.
Þjófavarnarkerfi fór í gang í veit-
ingahúsinu Naustinu við Vestur-
götu þegar maður braust þar inn.
Maðurinn fannst síðan á bak við
bar í koníaksstofu.
Allir þessir menn hafa komið við
sögu sambærilegra mála hjá lög-
reglu áður.
Þeir voru færðir í fangageymslur
lögreglunnar í Reykjavík þar sem
var óvenju margt um manninn í
fyrrinótt. 13 manns gistu þær, þar
af 3 vegna afplánunar sekta.
Lögreglunni var í gærmorgun
tilkynnt um innbrot í Bjarkargötu
6. Þaðan var stolið tveimur tölvum,
prentara, faxtæki og peningakassa.
Tilkynnt var um 12 önnur innbrot
frá morgni mánudags til þriðju-
dagsmorguns.
Það var eins
og bíllinn
sogaðist til
að aftan
Selfossi. Morgunblaðið.
„ÞAÐ VAR eins og bíllinn sogað-
ist til að aftan og fór svo á ská
útaf,“ sagði Magnús Jakobsson
kjötiönaðarmaður á Selfossi sem
lenti útaf á Sandskeiði eftir að
hafa mætt stórum flutningabíl
með aftanívagn. Magnús, sem
var á litlum Daihatsu 1000 eða
svonefndu „bitaboxi", slapp
ómeiddur þrátt fyrir að
„bitaboxið“ steyptist á toppinn
og á hliðina.
Atvikið átti sér stað skammt
austan afleggjarans i Bláfjöll er
Magnús var á austurleið í gær.
Flughált var á veginum og nokk-
uð stríð norðanátt. Magnús sagð-
ist hafa verið á um 70 km hraða
en hefði hægt ósjálfrátt á þegar
hann sá flutningabílinn nálgast
þar sem honum fannst hann vera
á mikilli ferð. Það skipti síðan
engum togum að um leið og
flutningabíllinn fór hjá þá þeytt-
ist bíll Magnúsar til og stakkst
útaf í harðfennið utan vegar.
Flutningabílstjórinn varð ekki
var við neitt heldur ók áfram.
„Ég hef oft hugsað um það hvað
þessir stóru bílar taka mikið með
sér og þetta er greinilega nokk-
uð sem menn verða að taka al-
varlega. Ég geri það alveg ör-
ugglega eftir þetta,“ sagði
Magnús Jakobsson. Hann sagðist
vona að flutningabílstjórar
gerðu sér grein fyrir þeim að-
stæðum sem gætu skapast þegar
þeir mættu litlum bilum.
Síðustu dagar útsölunnar
Enn meiri verðlækkun
♦
Nýjar vörur í næstu viku
TESS
v n'
neðst við
Dunhaga,
sími 622230
OpiO virka daga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
UTSALA
Enn lækkurr. við
50-70% afsláttur
Barnafataverslunin Barnakot,
Borgarkringlunni, s. 881340.
Eiðistorgi 13, 2. hæð,
yfir almenningstorginu,
sími 552-3970.
Útsala - útsala
- Komdu og prúttaðu.
Frábœr krepbuxnadress í st. 36-44.
Kjólar, stuttir, hálfsíðir og síðir
í st. 36-48, o.fl., o.fl., o.fi.
Kaffi á á könnunni.
Opið á laugardögum kl. 11-16.
Magnús E. Kolbeinsson,
læknir, F.A.C.S.
Hef opnað lækningastofu í
Læknastöðinni Uppsölum, Kringlunni,
tímapantanir frá kl. 09-17 í síma 686811 og
Sjúkrahúsi Akraness,
tímapantanir frá kl. 09-17 í síma 93-12311.
Sérgrein: Skurðlækningar.
Hljómsveitin STJORNIN
Grétar Örvars & Sigga Beinteins
Gulli Helga skemmtir
Gestasöng varar:
Björgvin Halldórsson og Bjarni Ara
Miðaverð aðeins kr. 800.
Nýjung íyrir gesti Hátel íslands!
Borðapantanir á dansleikinn
ísima 687111 eltirkl. 20.00.
ÚTSALA
á skíðafatnaði, úlpum og púðabuxum
20-50% afsláttur
Cortína sport
Skólavörðustíg 20,
símí 21555.
i <jþ I
idunrtl
CLARINS
í Sigurboganum
Við höldum sérstaka CLARINS
daga 2.-4. febrúar nk.
Snyrtifræðingur frá CLARINS
veitir persónulega ráðgjöf og
leiðbeiningar um húðmeðferð.
Otal tilboð og kynningarafsláttur.
Verið velkomin.
Fagmennska og þjónusta í fyrirrúmi
Laugavegi 80, sími 611330.
Stór dansleikur
Laugardagskvöld a Hotel Islandi