Morgunblaðið - 02.02.1995, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
• TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright
Þýðing: Árni Ibsen
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Búningar: Þórunn E. Sveinsdóttir
Tónlistarstjórn: Jón Ólafsson
Leikstjórn: Hávar Sigurjónsson
Leikendur: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Pálmi Gestsson, Hilmar
Jónsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Róbert Arnfinnsson.
Frumsýning fim. 2/2 uppselt - 2. sýn. sun. 5/2 nokkur sæti laus - 3. sýn. mið.
8/2 örfá sæti alus - 4. sýn. fös. 10/2 örfá sæti laus 5. sýn. mið. 15/2 uppselt.
Litla sviðið ki. 20.30:
• OLEANNA eftir David Mamet
5. sýn. í kvöld - 6. sýn. sun. 5/2 - 7. sýn. mið. 8/2 - 8. sýn. fös. 10/2.
Stóra sviðið kl. 20.00:
• FÁ VITINN eftir Fjodor Dostojevskí
I kvöld laus sæti - sun. 5/2, uppselt - fös. 10/2 uppselt - lau. 18/2 uppselt -
fös. 24/2.
9GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fös. 3/2 nokkur sæti laus - lau. 11/2 nokkur sæti laus - sun. 12/2 - fim.
16/2. Ath. fáar sýningar eftir.
• GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman
Lau. 4/2 nokkur sæti laus, næstsíðasta sýning - fim. 9/2 síðasta sýning.
•SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
Sun. 5/2 nokkur sæti laus - sun. 12/2 - sun. 19/2 uppselt - lau. 25/2.
GJAFAKORT íLEIKHÚS - SÍGILD OGSKEMMTILEG GJÖF
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 til
18:00 og fram að sýningu sýningardaga.
Tekið á móti sfmapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Grxna linan 99 61 60 - greiðslukortaþjónusta.
gff BORGARLEIKHUSIÐ síml 680-680
r LEIKFÉLAG RETKJAVÍKUR
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• Söngleikurinn KABARETT
8. sýn. í kvöld, brún kort gilda, fáein sæti laus, 9. sýn. lau. 4/2, bleik kort gilda,
uppselt, sun. 5/2, mið. 8/2, fim. 9/2, fös. 10/2 fáein sæti laus.
• LEYNIMELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
Sýn. fös. 3/2,30. sýn., lau. 11/2, næst síðasta sýn, lau. 25/2, allra síðasta sýning.
LITLA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson.
Sýn. fös. 3/2, næst síðasta sýn., sun. 12/2, síðasta sýning.
• ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson.
Sýn. sun. 5/2 kl. 16, fim. 9/2.
MuniÖ gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Miðapantanir í síma
680680 alla virka daga kl. 10-12. - Greiðslukortaþjónusta.
eftir Verdi
Frumsýning fös. 10. feb. örfá sæti laus, hátíðarsýning sun. 12. feb. örfá sæti
laus, 3. sýn. fös. 17. feb., 4. sýn. lau. 18. feb.
Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20.
Sími 11475, bréfsími 27384. - Greiðslukortaþjónusta.
LEIKFELAG
AKUREYRAR
• ÓV/ENT HEIMSÓKN
eftir J.B. Priestley.
Sýn. lau. 4/2 kl. 20:30,
fös. 10/2 kl. 20.30.
• Á SVÖRTUM FJÖÐRUM -
úr Ijóðum Daviðs Stefánssonar
eftir Erling Sigurðarson
Sýn. mið. 8/2 kl. 18, lau. 11/2 kl. 20.30,
sun. 12/2 kl. 20.30.
• BarPar SÝNT í ÞORPtNU
Þri. 7/2 kl. 20.30, fim. 9/2 kl. 20.30 -
aðeins þessar tvær sýningar.
Miðasalan opin virka daga kl. 14-18,
nema mánud. og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 24073.
Nemendaleikhúsið
Lindarbæ, sími 21971
TANGÓ
f leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
Frumsýning föstud. 3. feb. kl. 20 - uppselt.
2. sýn. sunnud. 5. feb. kl. 20 - uppselt.
3. sýn. fimmtud. 9. feb. kl. 20 - uppselt.
Leikfélag Menntaskólans
v. Hamrahlíö
sýnir í Tjarnarbíói:
Marat - Sade
Ofsóknin og morðið á Jean-Paui
Marat, sýnt af vistmönnum Charen-
ton geðveikrahælisins undir stjórn
markgreifa de Sade
eftir Peter Weiss
í þýðingu Árna Björnssonar.
Sýning í kvöld kl. 20.
Aukasýning fös. 3/2 kl. 20.
Verð kr. 500 f. skólafólk - kr. 1.000
f. aðra. Miðapantanir í símsvara allan
sólarhringinn í síma 610280.
F R Ú E M I L í A
■ L K H U...„S|
Seljavegi 2 - sími 12233.
KIRSUBERJAGARÐURINN
eftir Anton Tsjekov.
Síðdegissýning sun. 12/2 kl. 15
og sun. 19/2 kl. 15.
Miðasalan opnuð kl. 13 sunnudag.
Miðapantanir á öðrum tímum
f sfmsvara, sfmi 12233.
®Sinfóníuhliómsveit íslands
Háskólabíói við Hagatorg sími 562 2255
Tónleikar fyrir ungt fólk!
Háskólabíói laugardaginn 4. febrúar, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Osmo Vánská
Einleikari: Harri Lidsle
Kynnir: Einar Örn Benediksson
Meðal verka:
Tónlist úr Bleika pardusnum, stef úr kvikmyndum um
James Bond, Göngulag fílsungans og tónlist úr Jurassic Park.
Miðasala er alla virka daga á skrifstofulima og við innganginn við upphaf tónleika. Greiðslukorlaþjónusta. |
FOLKI FD
Miðstöðvardælur
Sérkennileg
skötuhjú
► S AMBÍÓIN sýna um þessar
mundir frönsku spennumyndina
Léon með Jean Reno í aðalhlut-
verki. Léon var ein af aðsóknar-
mestu myndum ársins í Frakk-
landi og annars staðar í Evrópu
hefur myndin hlotið ágæta að-
sókn. Sömu sögu er að segja um
gengi myndarinnar í Bandaríkj-
unum, en þar var hún sýnd und-
ir heitinu The Professional.
Sögusviðið í Léon er New
York árið 1994 og fjallar myndin
um samskipti nokkuð sérkenni-
legra skötuhjúa, þ.e. leigumorð-
ingjans Léon sem Reno leikur
og 12 ára gamallar stúlku sem
Natalie Portman leikur, en þau
eiga í höggi við spilltar fíkni-
efnalöggur undir forystu
hrotta sem Gary Oldman
leikur.
Luc Besson, leikstjóri
Léon, hefur m.a. gert mynd-
irnar Subway, The Big Blue
og La Femme Nikita, en Léon
er sjötta myndin sem hann leik-
stýrir og skrifar handritið að.
Besson segist hafa skrifað hand-
rit myndarinnar fyrst og fremst
með Jean Reno í huga, en upp-
haflega hafi hann þó ekki ætlað
sér að leikstýra myndinni sjálf-
ur. Aðalpersónu myndarinnar
segist Besson hafa þróað upp úr
hliðstæðri persónu sem Reno lék
í Nikita, og þegar hann hafði
lokið að skrifa handritið á aðeins
20 dögum og líkað mætavel við
árangurinn hafi hann tekið
ákvörðun um að sjá sjálfur um
leikstjórnina.
Margir kannast við Jean Reno
úr fyrri myndum Luc Besson,
en Reno hefur leikið í fjórum
þeirra, og má segja að hann
hafi fyrst vakið heimsathygli
þegar hann fór með hlutverk
Enzo í The Big Blue. Þá muna
eflaust margir eftir honum í
hlutverki farandriddarans sem
skaust til nútímans í Les Visite-
urs sem sýnd var í Regnboganum
í fyrra. Reno er fæddur í Casa-
blanca árið 1948, en foreldrar
HIN 13 ára gamla
Natalie Portman
sýnir ótvíræða
leikhæfileika í
vandasömu hlut-
verki í Léon.
WILO
Hagstætt
verð
SINDRI
- sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 72 22
FRANSKI leikarinn Jean Reno þykir til alls Iíklegur í
Hollywood eftir velgengni hans í myndum Luc Besson.
hans voru Spánveijar frá Anda-
lúsíu. Fljótlega eftir framhalds-
skólanám innritaðist hann í rík-
isrekinn leiklistarskóla, og að
námi þar loknu þjónaði hann um
stund í franska hernum með
aðsetur í Þýskalandi. Árið 1970
hóf hann nám við Franska leik-
listarskólann í París og árið 1974
hóf hann að starfa með tilrauna-
leikhúsi Andreas Voutsinas og
fékk hann fljótlega fyrsta hlut-
verk sitt í sjónvarpsmynd.
Síðan hefur Jean Reno jöfnum
höndum leikið í kvikmyndum, á
sviði og í sjónvarpi. Hann er
tveggja barna faðir og á heimili
bæði í París og Los Angeles. Þá
á hann býli í Suður-Frakklandi
þar sem hann dvelur gjarnan í
frítíma sínum. Dyrnar að Holly-
wood hafa smám saman verið
að Ijúkast upp fyrir Reono í kjöl-
far velgengni frönsku myndanna
sem hann hefur leikið í, og hafa
margir spáð því að hann eigi að
því leyti til eftir að feta í fótspor
Gérard Depardieu. Um þessar
mundir er Reno að leika í mynd-
inni Paris Match með þeim Ke-
vin Kline og Meg Ryan.
Hin þrettán ára gamla Na-
talie Portman sem leikur á móti
Jean Reno í Léon var valin úr
hópi fjölmargra bandarískra
stúlkna sem sóttust eftir hlut-
verkinu. Þetta er fyrsta kvik-
myndin sem Natalie leikur í, en
Luc Besson segir hana hafa orð-
0Sinfóníuhljómsveit Islands
Háskólabíói vio Hagatorg sími 562 2255
Gulir tónleikar Háskólabíói
fimmtudaginn 2.febrúar, kl. 20.00
Hljómsueitarstjári: Osmo Vánska
Einleikari: ElmarOliveira
Efnisskrá
Luduig van Beethoven: Fiðlukonsert
Igor Stravinskíj: Vorblót
Miðasala er alla viika daga á skrifstofutíma og við innganginn við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.
ið fyrir valinu fyrst og fremst
vegna þess að hún væri gædd
einstökum hæfileika til að sýna
tilfinningaleg tilþrif í erfiðum
atriðum og skipta svo gjörsam-
lega yfir og túlka frekar barna-
lega 12 ára stelpu. Natalie, sem
býr í New York, er hins vegar
ekki algjör byrjandi í leiklist-
inni, því hún hefur tekið þátt í
leiklistarnámskeiðum og farið
með nokkur hlutverk á sviði.
Helstu áhugamál hennar eru
lestur og skapandi skrif, en
einnig hefur hún gaman að alls-
konar dansi.