Morgunblaðið - 02.02.1995, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.02.1995, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Ókeypis lögfræðiaðstoð á hverju fimmtudagskvöldi milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012. ORATOR, félag laganema. Kynningarfundur [œi_Dale . ^ Cameaie þjálfun®^^ Fimmtudagskvöld kl. 20.30 að Sogavegi 69. Námskeiðið Konráð Adolphsson D.C. kennari ✓ Eykur hæfni og árangur einstaklingsins. ✓ Byggir upp leiðtogahæfileika. ✓ Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn. ✓ Skapar sjálfstraust og þor. ✓ Árangursríkari tjáning. ✓ Beislar streitu og óþarfa áhyggjur. ✓ Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari. Hvað segja þátttakendur: "Dale Carnegie® námskeiöið hefur gefiö mér aukiö sjálfstraust og kjark til aö takast á viö lífið og tilveruna. Ég hef losnað viö áhyggjur og þar meö náö betra sambandi við fjölskylduna." Hildur Sigurðardóttir. "Námskeiðió veitti mér aukiö öryggi og sjálfstraust, sem hefur nýst mér persónulega og í félagsstarfi. Aukinn eldmóö og meiri skilning á mannlegum samskiptum." Guðrún Benediktsdóttir. "Námskeiðið hefur veitt mér meira sjálfstraust en ég jief nokkurn tímann fundið áður, sem hefur komið mér vel í samskiptum við viðskiptavini mína." Jón Helgi Jóhannesson. "D.C. námskeiðið hefur gefið mér meira sjálfstraust og þjálfað mig í framkomu, sem mun hjáipa mér að verða árangursríkari í starfi sem vióskiptafræðingur." Einar Gunnar Þórisson. Fjárfesting í menntun . skilar þér arði ævilangt.. Innritun og upplýsingar í síma: 581 2411 0 STJORNUNARSKOLINN Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie® námskeiðin I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Kattafæla - húsráð EDIK og laukur hafa lykt sem köttum er illa við. Laukurinn þarf ekki að vera öðruvísi en venjulegur laukur og edikið má vera ediksýra. Varist að edikið er æt- andi fyrir hörundið, úðið því úr úðabrúsa (blðmaúðara) á hom húsa, inngönguleiðir katta á grindverkum, en ekki á neitt líf eða lífrænt. Ekki á tré, gróðurmold eða fannbreiður og hafið hanska úr gúmmíi eða gami á höndunum. Gerið þetta með sólarhrings millibili. Laukinn má pressa og sía t.d. gegnum grisju og blanda safanum saman við edikið á úðabrúsann. Kett- irnir forðast lyktina og fara aðrar leiðir. Reynið þetta ásamt öðmm húsráð- um með góðri von. Sumir nota berki af sítmsávöxt- um. Sveitakona Tapað/fundið Könnur óskast EF EINHVER á gömlu sjóarakönnumar (stórir og þykkir hvítir kafflfantar með bláum röndum efst) og vill láta þær af hendi er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 38746. íþróttataska tapaðist BLÁ Adidas-íþróttataska tapaðist í Austurstræti, líklega fyrir utan skemmti- staðinn Berlín, um þijú- leytið aðfaranótt sl. laug- ardags. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 612719. Alpahúfa fannst HVÍT alpahúfa fannst fyr- ir utan Miklubraut 20 sl. mánudag. Upplýsingar í síma 5534010. Strigaskór fannst GLÆNÝR stór strigaskór fannst fyrir utan Barma- hlíð 44 fyrir u.þ.b. viku. Upplýsingar í síma 20296. Penni fannst FALLEGUR Parkerpenni fannst fyrir utan Bónus á i Seltjarnarnesi rétt fyrir jól. Upplýsingar í síma 610528. Högni fæst gefins AF sérstökum ástæðum fæst svartur og hvítur eins árs högni gefins. Sérlega bliður og mannelskur. Upplýsingar í síma 627398. Týndur köttur FIMM mánaða grábrönd- óttur fressköttur með hvíta bringu fór frá Álfholti í Hafnarfirði aðfaranótt sl. sunnudags. Hafi einhver orðið hans var er hann vin- samlega beðinn að láta vita í síma 651459. BRIDS llmsjón GuAm. Páll Arnarson TAKTU þér sæti í austur og reyndu að mynda þér skoðun á möguleikum varnarinnar til að hnekkja fjórum spöðum suðurs: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ 10 ¥ DG10762 ♦ ÁG76 + 63 Austur + 872 ¥ Á98 ♦ 52 ♦ D10542 Vestar Norður Austar Suður - - - 1 spaði 2 lauf 2 hjörtu 4 lauf 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: laufás. Sagnhafi hlýtur að eiga a.m.k. sexlit í spaða og sennilega ekki meira en tví- lit í hjarta úr því hann sagði ekki fjögur hjörtu. Það er hæpið að suður sé með fímm tígla, því honum hefði verið í lófa lagið að segja 4 tígla við 4 laufum. Og hann er með eitt eða ekkert lauf. Þessi frumathugun gefur svo sem engin tæmandi svör um bestu vömina. En ef skipting suðurs er 6-2-4-1, sem er einn líklegasti mögu- ieikinn, gæti verið nauðsyn- legt að taka strax tvo slagi á hjarta og uppheíja síðan fjórða slag vamarinnar á tromp hjá makker. Norður ♦ 10 f DG10762 ♦ ÁG76 ♦ 63 Vestur ♦ G94 f K5 ♦ D98 ♦ ÁKG98 Austur ♦ 872 f Á98 ♦ 52 + D10542 Suður ♦ ÁKD653 ¥ 43 ♦ K1043 ♦ 7 Alla vega kostar ekkert að halda makker upplýstum um þennan vamarmögu- leika með því að henda lauf- drottningu undir ásinn í fyrsta slag! Makker verður þá ekki höndum seinni að leggja niður hjartakóng og spila meira hjarta. Þriðja hjartað tryggir honum slag á spaðgosa. Með morgunkaffinu ÞAÐ er synd að við skul- um ekki hafa reipi, held- ur þurfa að halda flekan- um svona saman. JÓN og Systa ... nei, fyr- irgefið, Siggi og Sigrún. En óvænt heimsókn ... Sjábu hlutina í víbara samhengi! Plnrgtimlþlii&ilií - kjarni málsins! Víkveiji skrifar... NÝLIÐIÐ ár var það svartasta hvað varðar dauða af völd- um eiturlyfja í Ósló. Er skrifari fletti í gegnum bunka af Aften- posten rakst hann á samantekt um þetta efni og þar er sérstak- lega vakin athygli á því hve heró- ín er orðið algengt og ódýrt miðað við það sem áður var í Noregi. Einnig er það áberandi í þessum fréttum blaðsins að eiturlyfjaneyt- endur og þá einkum sprautufíkl^r, sem búa utan norsku höfuðborgar- innar fara iðulega þangað til að ná sér í eiturlyf og neyta þeirra þar. Sú neysla endar hins vegar oftar en áður með dauða viðkom- andi og koma áhyggjur vegna þessarar þróunar fram í norska blaðinu. xxx FJOLDI þeirra sem létust á síð- asta ári í Ósló af völdum of stórs eiturlyfjaskammts var 79 árið 1994, 48 árið 1993 og árið 1992 voru þeir 73. Meðalaldur þess fólks sem lést á þennan hátt í Ósló í fyrra var 33 ,ár, sá elsti 48 ára og sá yngsti 19 ára. Að- eins 12 konur voru í fyrmefndum 79 manna hópi í fyrra. Ef litið er á Noreg í heild hefur ekki orðið mikil breyting á milli ára og um 100 manns létust í landinu vegna ofneyslu eiturlyfja bæði í fyrra og hittifyrra. Samkvæmt upplýsingum úr Aftenposten létust 168 manns í Danmörku fyrstu níu mánuði síð- asta árs vegna ofneyslu eiturlyfja og er þar um tvöföldun að ræða frá fyrra ári. Fram kemur að þriðji hver þeirra sem dó í fyrra á þennan hátt í Ósló hafði verið við laus við eiturlyf í meira en þrjá mánuði. Einnig dóu margir í fyrra af völd- um of stórs skammts eiturlyfja sem ekki var vitað til að notuðu þessi efni. Mjög er óljóst hversu margir fíklar sprauta sig í Noregi og talað um að þeir geti verið á bilinu frá 3 þúsundum upp í 13 þúsund manns. Einnig kemur fram í blað- inu að litlar rannsóknir hafi verið gerðar á þessu umhverfi. VERÐ á eiturlyfjum eins og heróíni hefur lækkkað mjög í Noregi og samkvæmt upplýsing- um blaðsins er verð á einu grammi af heróíni nú frá 500 krónum norskum og upp í um 10 þúsund krónur fyrir nokkrum árum eða sem nemur um 100 þúsund krón- um íslenskum. Eiturlyfjalögreglan í Ósló upp- lýsir blaðið hins vegar um að verð- ið sé á bilinu frá 800 krónum upp í 3 þúsund krónur norskar. Fleiri sölumenn dauðans en áður láti sig litlu varða hvað þeir selja og neytendur hafi enga tryggingu fyrir því hvað þeir nota hveiju sinni - kannski í síðasta skiptið. xxx FRÉTTIR sem þessar vekja óhug og leiða hugann að því hversu oft þróun sem á sér stað í nágrannalöndum okkar verður reynsla Islendinga fáum árum síð- ar. Vonandi ekki í þessu tilviki. Eða erum við þegar á sömu braut?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.