Morgunblaðið - 02.02.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995 25
Aftur til fortíðar
Myndvefn-
aður í Hafn-
arborg
SÝNING á myndvefnaði eftir Auði
Vésteinsdóttur verður opnuð laugar-
daginn 4. febrúar kl. 14 í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar.
Þetta er þriðja einkasýning Auðar,
fyrri sýningar voru á Húsavík 1986
og á Akureyri 1987. Þá hefur hún
tekið þátt í samsýningum hér heima
og erlendis.
Auður er myndlistarkennari við
Öldutúnsskóla. Hún stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands árin 1968-1972 og við Kenn-
araháskóla íslands 1987 til 1989.
Sýningin í Hafnarborg er opin
daglega frá kl. 12-18 og lokað á
þriðjudögum. Henni lýkur 20. febr-
úar.
GESTIJR Þorgrímsson sýnir
höggmyndir og ljóð í Gallerí
Úmbru.
Höggmyndir og
ljóð í Gallerí
Umbru
GESTUR Þorgrímsson sýnir högg-
myndir og ljóð í Gallerí Úmbru,
Amtmannsstíg 1. Verkin eru unnin
í rr.armara, gabbró og málm.
í kynningu segir: „Gtjót er ekki
bara grjót; gijót er náttúra, landslag,
umhverfi, steinn í götu þinni, bjarg
á brún. Eg reyni að birta þann gald-
ur sem í steininum býr og vekja með
því nýja forvitni þeirra sem vilja
horfa. og sjá.“ Þetta eru orð Gests í
tilefni af sýningu hans í Úmbru.
Sýningin verður opin frá 2. febr-
úar þriðjudaga til laugardaga kl.
13-18 og sunnudaga kl. 14-18. Henni
lýkur 22. febrúar.
-----♦ »■■■♦---
Síðustu sýning-
ar á Marat
SÍÐUSTU sýningar verða í kvöld og
annað kvöld hjá Leikfélagi Mennta-
skólans við Hamrahlíð á „Ofsókninni
og morðinu á Jean-Paul Marat fluttu
af vistmönnum Charenton-geð-
veikrahælisins undir stjóm mark-
greifa de Sade“. Leikritið, eftir Peter
Weiss, var frumsýnt 21. janúar í
M.H og fimm sýningum er lokið.
Verkið gerist á geðveikrahæli
1808 þegar Sade leikstýrir geðsjúkl-
ingum í leik um morðið á Marat.
Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson,
Linda Björg Árnadóttir hannaði bún-
inga, Guðni Franzson sá um tónlist-
arstjórn, Áróra Skúladóttir listfarðar
leikarana og Stefán Baldur Árnason
gerði leikmynd.
Sýningar eru í Tjarnarbíói og mið-
inn kostar 500 kr fyrir allt skólafólk
en 1.000 kr fyrir aðra.
KVIKMYNDIH
Bíó hö11 i n ,
Laugarásbíó
TIMECOP ★ Tk'/j
Leikstjóri og kvikmyndatökustjóri
Peter Hyams. Aðalleikendur Jean-
Claude Van Damme, Ron Silver, Mia
Sara. Bandarísk. Universal 1994.
Timecop er andans popp og kók.
Maður er ávallt tilbúinn að borga sig
inn á myndir af þessum toga, afþrey-
ingu í rösku meðallagi, sem veldur
ekki vonbrigðum og ekkert skilur
eftir sig annað en þá lítillátu ánægju
sem hún veitir manni eina örskots-
stund. Líkt og naslið.
Þessi nýjasta hasarmynd belgíska
spýtukarlsins Jean-Claude Van Dam-
mes, gerist mestan part við upphaf
næstu aldar, þess á milli hverfa aðal-
persónurnar aftur til fortíðar. Því
tímaferðalög eru orðin staðreynd og
mönnum orðið mögulegt að hverfa
aftur í tímann til að breyta mann-
kynssögunni — jafnt í góðum tilgangi
sem slæmum. Því eru hinar svoköll-
uðu tímalöggur komnar til skjalanna,
þær eiga að koma í veg fyrir að ópr-
úttnir menn geti misnotað sér þau
óþijótandi tækifæri sem nú hafa
skapast. Aðalmaðurinn í lögreglulið-
inu er Max Walker (Van Damme),
höfuðandstæðingurinn valdasjúkur
stjómmálamaður (Ron Silver), sem
hyggst næla sér í forsetaembættið
með aðstoð þessarar nýju tækni.
Hugmyndin er fjarri því að vera
ný af nálinni, hvað er langt síðan
H.G. Wells skrifaði Tímavélina'! Hún
er bærilega útfærð hér og leikstjór-
inn, Peter Hyams, gætir þess að
keyra myndina áfram á slíkum hraða
undir lokin að manni gefst ekki tónr
til að ergja sig yfir missögnunum í
tímaflakki þeirra féiaga, rökleysunni
og götunum í framvindunni. Eins
gott, því Timecop telst í þeim hópi
mynda þar sem afar óæskilegt er að
bijóta heilann yfir efnisþræðinum,
þá er ekkert gaman lengur. Þó keyr-
ir um þverbak á síðustu mínútunum
þegar kauði er búinn að skipta sér í
tvennt, en þar sem lýsingin er draugs-
leg og dimm, söguþráðurinn og fram-
vindan í aukahlutverki, hefur maður
á tilfmningunni að kominn sé einhver
aragrúi af Walkerum á tjaldið og
sannast þá hið fornkveðna, „Betri er
einn fugl í hendi en tveir í skógi“.
Sæbjörn Valdimarsson
HYUÍIDni
Sonata ber merki
glæsibifreiðar í útliti
og aksturseiginleikum
án þess að verðið
endurspegli það
- Gerðu verðsamanburð
• 5 gíra
• 2000 cc - 139 hestöfl
• Vökva-og veltistýri
• Rafdrifnar rúður
og speglar
• Samlæsing
• Styrktarbitar
í hurðum
• Útvarp, segulband
og 4 hátalarar
á mun betra verði en sambærilegir bílar
Ódýrasti bíllinn i sínunt flokki
S0NATA GLSi V0LV0 850 F0RD M0NDE0 T0Y0TA CARINA MMC GALANT
RÚMTAK VÉLAR 1997 cc 1984 cc 1988 cc 1998 cc 1997CC
HESTÖFL 139 143 136 133 137
LENGD/mm 4700 4670 4481 4530 4620
BREIDD/mm 1770 1760 1747 1695 1730
HJÓLHAF/mm 2700 2670 2704 2580 2635
VERÐsjsk. 1.739.000 2.498.000 2.010.000 1.879.000 2.250.000
Verö frá
1.598.000
HYunoni
...tíl framtídar
kr. á götuna!
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36
Hafið samband við sölumenn okkar
eða umboðsmenn um land allt