Morgunblaðið - 02.02.1995, Page 36

Morgunblaðið - 02.02.1995, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 2.' FEBRÚAR 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför móður minnar, ömmu og systur, GUÐLAUGAR G. BACHMANN. Andrés Bertelsen, sonarsynir og systkini. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SNORRA PÉTURSSONAR, Skipalóni. Sigurborg Kristjánsdóttir, Þórir Snorrason, Guðrún Ingimundardóttir, Lovísa Snorradóttir, Hilmar Helgason, Jónína R. Snorradóttir, Ævar Ármannsson, Unnur Björk Snorradóttir, Jóna Marinósson, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartans þakkir færum við þeim fjölmörgu, sem hafa sýnt okkur samúð, vináttu og hlýhug við fráfall okkar ástkæru mæðgna, BELLU VESTFJÖRÐ og PETREU VESTFJÖRÐ. Hlýhugur ykkar, stuðningur og hjálpsemi hefur verið okkur ómetanleg. Guð blessi ykkur öll. Ragna Aðalsteinsdóttir, Garðar Smári Vestfjörð, Linda Óskarsdóttir. Morgunverðarkynning: m ,9 m. . Gæðastjórnun Hugbúnaðarlausnir Þriðjudaginn 7. febrúar 1995 frá kl. 8:30 til 11:30 í Þingsal 'Scandic' Hótel Loftleiðir Nýherji býður áhugafólki og þeim sem starfa að gæðastjórnun til kynningar á hugbúnaðarlausnum við gæðastjórnun. Við innleiðslu gæðastarfs í fyrirtækjum sem átt hefur sér stað á síðustu misserum hafa stjórnendur gert sér grein fyrir nauðsyn hagkvæmra hjálpartækja til stuðnings gæðastarfinu. Á kynninguna kemur m.a. erlendur gestur, Fr. Sanne Kimman ráðgjafi frá Danmörku. Efni kynningarinnar verður: ISO 9000 Gæðakerfi - Gæðagrunnurinn frá Nýherja Stjórnun umbótahópa - Hópstjórinn frá Nýherja Lotus NOTES - Hópstarfsgrunnur á tölvuneti Við hvetjum alla áhugamenn til þess að mæta og byrja daginn með uppbyggilegum fróðleik um mikilvæg og brennandi mál. Þátttakendur eru beðnir aö tilkynna þátttöku til Nýherja hf. í síma 569 7771 NÝHERJI SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 69 77 00 Alltaf skrefi á undan BJORNLEVI SIGURÐSSON + Björn Leví Sigurðsson húsasmíðameistari fæddist í Reylgavík 24. september 1926. Hann lést á Landspítal- anum 14. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Seljakirkju 25. janúar. ÞEGAR fregnin um lát Bjössa barst til eyrna okkar, má segja að hún hafi ekki komið á óvart, enda Ijóst að sjúkdómur hans myndi hafa betur að lokum. Því hefði mátt ætla að við hefðum verið viðbúin þessu, en hvenær er maður viðbúinn dauðanum? Að vita það að maður hittir Bjössa aldrei aftur? Að vita að við ræðum ekki framar landsins gagn og nauðsynjar eða segjum nýjustu + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR GUÐNASONAR, siðast til heimilis í Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Kolbrún Guðmundsdóttir Samúel Guðmundson, Valey Guðmundsdóttir, Svavar Valdimarsson, Guðmundur Guðmundsson, Ólína Steinþórsdóttir, Halldór Guðmundsson, Inga Þorsteinsdóttir, Ingi Vigfús Guðmundsson, Unnur Guðmundsdóttir, Guðjón Gíslason, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Vesturgötu 7, áður Langholtsvegi 180. Hanna Rún Guðmundsdóttir, Geir Birgir Guðmundsson, Petrea Helga Kristjánsdóttir, Jónas Þór Guðmundsson, Helena Sörensdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför sonar okkar og tengdadóttur, SVEINS GUNNARSSONAR og HRAFNHILDAR. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Andrea Guðmundsdóttir, Kristinn Pálsson, Ásvallagötu 49, Reykjavík. tíðindi? Helsta huggunin er að Bjössi fékk að halda reisn sinni fram í andlátið og að minningin um þennan ákveðna en jafnframt hlýja mann lifír. Viljum við systk- inin með þessum skrifum minnast Bjössa með nokkrum orðum. Bjössi var giftur föðursystur okkar, Sigríði Jóhannsdóttur, og stóð heimili þeirra ávallt opið vin- um og venslafólki, til lengri eða skemmri dvalar. Nýttum við systk- inin okkur það óspart, einkum þegar við vorum við nám í Reykja- vík, og má segja að sum okkar hafi verið eins og hluti fjölskyld- unnar. Þegar námi lauk og við settumst að á ólíkum stöðum, var ávallt reynt að fara til Siggu og Bjössa ef höfuborgin var heim- sótt, og oftar en ekki þegin gist- ing. Var þá stundum tekið í spil eða þjóðmálin rædd. Urðu umræð- ur oft líflegar, enda fylgdist Bjössi vel með og hafði ákveðnar skoðan- ir. Þótt menn greindi stundum á, voru menn þó ávallt sáttir er upp var staðið, og þegar kvatt var hlökkuðu allir til næstu heimsókn- ar í Breiðholtið. Þrátt fyrir slæma heilsu var Bjössi ótrúlega jákvæður. Hann velti sér ekki upp úr eigin erfiðleik- um, heldur sýndi Iifandi áhuga á öllu í kringum sig, bæði mönnum og málefnum. Oft var maður hissa hvað hann fylgdist vel með okkur unga fólkinu, bæði bræðrabörnum sínum, okkur systkinunum og öll- um þeim er nærri honum stóðu. Hann sýndi námi okkar og starfi sérstakan áhuga og hvatti okkur óspart. Gengi allt vel var Bjössi ekki síður hreykinn en við, eins og hann ætti sérstakan þátt í vel- gengninni og í okkur. Eftir á að hyggja sér maður að sú var og er einmitt rauninn. Systkinin frá Stöðvarfirði, makar og börn. Handrit afmælis- og minningafgreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega linulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skirnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ' LEQ) HL ÁRANGURS ' Við erum að leita að réttum aðilum sem hafa hæfileika til þess að hjálpa öðrum að ná árangri Sá árangur fœrir þér um leið tekjur sem flestir láta sig aðeins dreyma um Enviro-Tech International er bandarískt fyrirtæki sem á nokkrum árum hefur svo um munar skráð nafn sitt á spjöld sögunnar í Bandaríkjunum, Kanada, Englandi, Mexíkó og Japan. Aðalástæðan fyrir þessari miklu velgengni eru vörur sem hafa slíka sérstöðu á markaðnum að hægt er að „gera það ómögulega mögulegt". Með öðrum orðum vörulína sem á engann sinn líka - vörur, sem sejjast aftur og aftur og eru fullkomlega vistvænar. Á næstu vikum verður nokkrum aðilum boðin þátttaka í n\jög sérstöku sölukerfi, sem teygir anga sína um alla Evrópu. Fyrir flesta býðst tækifæri sem þetta aðeins einu sinni á ævinni. Fólkið, sem við leitum að, verður að hafa eftirfarandi eiginleika: • Geta þjálpað öðrum til þess að ná sínum markmiðum. • Kunna að leiðbeina öðrum. Það er mikilvægara heldur en reynsla þín af sölu- og markaðsmálum. • Geta ávarpað hóp af fólki án þess að líða illa. • Hafa opinn huga og áhuga á mannlegum samskiptum og vilja til þess að læra það sem þarf til þess að ná sem mestu út úr þessu viðskiptatækifæri. Láttu þetta tækifæri ekki framhjá þér fara án þess að kynna þér hvað hangir á spýtunni. Það breytir í raun engu hvort þú ert í fullu eða hálfu starfi nú þegar Alþjóða verslunarfélagið Allar upplýsingar í síma 588 6869. Skútuvogi 11, sími. 588-6869

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.