Morgunblaðið - 03.02.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 9
FRÉTTIR
Bókun sjálfstæðismanna við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Áætlun R-listans
svik við kjósendur
AUGLJÓST er að leggja hefði mátt
fram fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar án skattahækkana R-list-
ans, segir í bókun borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar á fundi borgar-
stjómar í gær. Bent er á að R-lista-
flokkarnir hafí lofað fyrir kosningar
að skattar á borgarbúa yrðu ekki
hækkaðir. Fyrsta fjárhagsáætlun
vinstriflokkanna væri illa undirbúin
um leið og hún staðfesti svikin
kosningaloforð R-listans.
Holræsaskattur er
viðbótarskattur
Fram kemur að holræsaskattur
væri hrein viðbótarskattlagning á
borgarbúa og framkvæmd undir
fölsku yfirskini. Sjálfstæðismenn
leggist eindregið gegn skattinum
og munu afnema hann. Þá hafi
R-listinn þegar fellt tillögu sjálf-
stæðismanna um lækkun á verslun-
ar- og skrifstofuskatti en sýnt hafi
verið fram á að hægt væri að halda
áfram öflugum framkvæmdum og
rekstri án skattlagningar R-lista.
Því yrði þó aðeins mætt með sam-
drætti í rekstri og minni fram-
kvæmdum i samanburði við þrjú
síðustu ár.
Eftir erfiðleika í atvinnulífí, þar
sem Reykjavíkurborg hafí axlað það
hlutverk að halda uppi öflugum
rekstri og framkvædmum meðal
annars með lántökum til að þúsund-
ir manna héldu atvinnu, hafi nú
tækifæri skapast á ný fyrir fyrir-
tækin í borginni að sækja fram.
Undir slíkum kringumstæðum væri
lag sem nýta bæri til að draga sam-
an að nýju rekstur og framkvædm-
ir borgarinnar.
Þá segir að ýmis utanaðkomandi
áhrif séu jákvæð ganvart fjármálum
borgarinnar á árinu. Hagdeild borg-
arinnar geri ráð fyrir minnst 100
milljón króna auknum útsvarstekj-
um vegna aukinna tekna borgarbúa
á milli áranna 1994 til 1995. Jafn-
framt geri R-listinn ráð fyrir 2,5%
launahækkun á árinu. Sjálfstæðis-
menn telji ráðlegra í sínum tillögum
að bíða með áætlanir um auknar
tekjur á móti auknum launaútgjöld-
um. Tekist hafi með harðfylgi sjálf-
stæðismanna á síðasta ári að fá til
baka 240 millj., sem borgin var
skylduð lögum samkvæmt til að
greiða í Atvinnuleysistryggingasjóð
auk 610 millj. auka framlags úr
Vegasjóði vegna framkvæmda í
Reykjavík. Þetta skapi borginni
stóraukna getu til framkvæmda og
sanni enn frekar óþarfa skatt-
heimtu R-listans.
260 milljónir í óútskýrðan
niðurskurð
Fram kemur að sjálfstæðismenn
hafi lagt fram hugmyndir um fram-
lög til hvers málaflokks, þar sem
gert væri ráð fyrir samdrætti í
rekstri en áherslan aukin á skóla-
starf, málefni aldraða og leikskóla-
starf. Þá segir: „R-listinn hefur
ekki treyst sér til að leggja fram
tillögur um hagræðingu í sérhveij-
um málaflokki en samþykkir 260
milljóna króna óútskýrðan niður-
skurð á rekstrargjöldum samtímis
því sem fjárhagsáætlun er lokað.
Málið er svo sent til sérskipaðrar
nefndar sem á að vinna það verk
sem R-listanum hefur ekki tekist á
tæpum 8 mánuðum í meirihluta-
stjórn borgarinnar. Óskað hefur
verið eftir að sjálfstæðismenn taki
þátt í umræddu nefndarstarfi. Það
er sjálfsagt og munu tillögur sjálf-
stæðismanan verða ræddar þar.“
Hreinsun strandlengjunnar
án skatta
I bókuninni segir að þrátt fyrir
að sjálfstæðismenn geri ekki ráð
fyrir skattahækkunum R-listans
treysti þeir sér til öflugrar uppbygg-
ingar í hreinsun strandlengjunnar
og auknum framlögum til skóla-
starfs, þar á meðal Vinnuskólans
en niðurskurður R-listans þar sam-
svarar því að 1000 unglingar fái
ekki starf næsta sumar.
Öflug uppbygging leikskóla á
árinu sé af hinu góða en þegar fram
í sæki muni koma í ljós mikill mun-
ur á stefnu sjálfstæðismanna og
vinstriflokkanna í R-listanum.
Sjálfstæðismenn telji að leggja eigi
áherslu á uppbyggingu leikskóla
fyrir börn á aldrinum 2-5 ára en
leita annarra leiða fyrir yngri börn.
R-listinn stefni að því að öll börn
frá 6 mánað aldri verði á leikskóla
að grunnskólaaldri. Ljóst sé að
þjónustan verði kostnaðarsöm hvort
sem foreldrar eða öllum skattborg--
urum verður ætlað að taka þátt í
að greiða hana.
Loks kemur fram að í stað þess
að hraða uppbyggingu hjúkrunar-
heimilis í Suður-Mjódd eins og R-
listinn hafí lofað fyrir síðustu kosn-
ingar hafí hann fyrirvaralaust rift
samstarfi við samstarfsaðila, Eir og
stór og öflug verkalýðs- og félaga-
samtök. Samkvæmt fjárhagsáætlun
væri ljóst að R-listinn ætli ekki að
standa við þetta loforð. Því sé ljóst
að fyrsta fjárhagsáætlun vinstri-
flokkanna fjögurra í R-listanum sé
illa undirbúin um leið og hún stað-
festi svikin kosningaloforð.
BSRB andvígt stjóm-
arskrárfrumvarpinu
Tölvunefnd
bannar sölu
útsvarsskrár
TÖLVUNEFND hefur sent Nútíma
samskiptum hf. bréf þar sem farið
er fram á að fyrirtækið hætti sölu
skrár yfír hæstu greiðendur útsvars
á íslandi, hvort sem er í prentuðu
eða tölvutæku formi. Einnig er farið
fram á að neindinni verði afhentur
listi yfir kaupendur skrárinnar og
að henni verði eytt innan tíu daga
frá dagsetningu bréfsins, sem er 1.
febrúar.
Hermann Valsson, framkvæmda-
stjóri Nútímasamskipta hf., segir
fyrirtækið ekki eiga annarra kosta
völ en að hlíta niðurstöðunni að svo
stöddu en að henni verði jafnframt
áfrýjað til Héraðsdóms.
Fyrirtækið gaf út skrá yfir 14.000
hæstu greiðendur útsvars í lok jan-
úar eftir að lögfræðingur fyrirtækis-
ins hafði komist að þeirri niðurstöðu
að opinber birting á þeim upplýsing-
um væri heimil samkvæmt gildandi
skattalögum. Hafði tölvunefnd áður
lagst gegn birtingu skrárinnar í
tölvutæku formi.
STJÓRN Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja leggst gegn samþykkt
frumvarps um breytingar á mannrétt-
indakafla stjómarskrárinnar. „Stjórn
BSRB telur að á frumvarpinu séu svo
alvarlegir hnökrar að samþykkt þess
komi ekki til greina fyrr en bót hafi
verið ráðin á þeim og leitað eftir sam-
félagslegri sátt um þá niðurstöðu,"
segir í athugasemdum sem sendar
hafa verið til stjórnarskrámefndar
Alþingis.
Stjóm BSRB leggst einkum gegn
12 grein frumvarpsins þar sem um
nýmæli sé að ræða er kveði á um
rétt manna til að standa utan félaga.
„BSRB lítur svo á að með þessu sé
sérstaklega vegið að stéttarfélögum
í landinu og starfsemi þeirra, og
nægir að vísa til mikillar umræðu
síðustu misserin um neikvætt félaga-
frelsi. Þrátt fyrir það er hvergi minnst
á stéttarfélög í greinargerð með fmm-
varpinu og öll greinargerðin afar loð-
in og kallar á marga túlkunarmögu-
leika,“ segir í athugasemdunum.
Fleiri atriði eru gagnrýnd í fmm-
varpinu, m.a. að þar sé ekki að fínna
skýr heildarákvæði um vemd allra
gmndvallarmannréttinda eins og þau
séu viðurkennd í fjölmörgum alþjóða-
samningum um mannréttindi.
Síðustu dagar útsölunnar
15% aukaafsláttur föstudag
og laugardag
_ Glugginn Laugavegi 40.
Eigum engra kosta völ
„Við eigum engra annarra kosta
völ en að hlíta tilmælum tölvunefnd-
ar, úrskurður hennar er endanlegur
og við getum ekki áfrýjað honum til
æðra stjórnvalds,“ segir Hermann en
að hans sögn hefur skráin verið seld
í talsverðum fjölda eintaka, bæði til
einstaklinga og opinberra aðila.
Aðspurður hvort kröfu nefndarinn-
ar verði áfrýjað til dóms segir Her-
mann að leitað verði til Héraðsdóms
Reykjavíkur og að farið verði fram
á einnar milljónar króna skaðabætur.
Sigurður Olafsson
læknir
Hef opnað lækningastofu í
Læknastöðinni Uppsölum, Kringlunni,
tímapantanir frá kl. 09-17 í síma 686811 og
Sjúkrahúsi Akraness,
tímapantanir frá kl. 09-17 í síma 93-12311.
Sérgrein: Meltingarsjúkdómar, lyflækningar.
1991. SADDAM HUSSEIN.
persafeóastríðið.
NOSTRADAMUS
ÚTSALA
15 aukaafsláttur
OPIÐ LAUGARDAG
KL10-16
Hverfisgötu 78 - sími 28980
Félagar
Árshátíð hestamannafélagsins Fáks verður haldin í félagsheimilinu
laugardaginn 4. febrúar. Húsið opnað kl. 18.30.
Fordrykkur, sjávarréttir, steikarhlaðborð, kaffi og konfekt.
Hljómsveit G.G. heldur uppi stanslausu fjöri ásamt söngsystrum.
Veislustjóri: Kristjana Valdimarsdóttir.
Verð kr. 3.000 með mat, eftir mat kr. 1.500.
Miðasala á skrifstofu félagsins og í hestavöruverslunum.
Fákur
MARjNA RjNALDi MaxMara
ÚTSALA
_____Mari______
Hverfisgötu 52 -101 Reykjavik -Simi91-62 28 62
Fólk er alltaf
að vinna
í Gullnámunni:
69 milljónir
Vikuna 26. janúar til 1. febrúar voru
samtals 69.616.613 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og
fjöldinn allur af öðrum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður: Upphæð kr.:
27. jan. Mamma Rósa, Kópavogi...... 173.646
27. jan. Mamma Rósa, Kópavogi...... 96.256
27. jan. Mónakó....................... 52.750
27. jan. Ölver........................ 77.774
28. jan. Café Royale.................. 53.956
28. jan. Mamma Rósa, Kópavogi...... 131.109
29. jan. Háspenna, Hafnarstræti.... 104.489
30. jan. Hótel Örk, Hveragerði..... 101.356
30. jan. Hótel Örk, Hveragerði..... 50.932
30. jan. Háspenna, Hafnarstræti.... 100.032
31. jan. Háspenna, Laugavegi....... 147.302
1. feb. Mónakó....................... 57.867
l.feb. Háspenna, Hafnarstræti.... 284.549 f
Staða Gullpottsins 2. febrúar, kl. 13:00
var 5.002.333 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.